Morgunblaðið - 31.03.1965, Síða 1
ZIS síður
Saig'on, 30. marz (AP): Óþekktur hermaður úr bandaríska
1 flughernum aðstoðar einn hinna særðu fyrir framan banda-
ríska sendiráðið.
Grimmdarleg árás á banda-
ríska sendiráðiö I Saigon
13 fórust, rumlega 180 særðust,
margir hættulega. Háværar raddir
um hefndaraðgerðir gegn Hanoi
Saigon, 30. marz (AP-ISTTB)
SPRENGJA sprakk við
bandaríska sendiráðið í Sai-
gon og fórust a.m.k. 13 manns
í sprengingunni og um 180
særðust, þar af 42 alvarlega.
Miklar skemmdir urðu á
sendiráðsbyggingunni og nær
lig'gjandi húsum.
Talið er fullvíst að Viet
Cong kommúnistar hafi stað-
ið fyrir sprengingunni sam-
kvæmt fyrirmælum frá Norð
ur-Vietnam. Tveir menn. sem
fluttu sprengjuna að sendi-
ráðinu, lögðu á flótta eftir aS
hafa skotið lögreglumann til
bana. Náðist annar þeirra á
flóttanum, en hinn komst-
ekki undan og fórst í spreng-
ingunni.
*----------------------------®
45 lík fundin í
E1 Cobre í Chile
Santiago, Chile, 30. marz.
(AP—NTB).
FJÖRUTÍU og fimm lík hafa
fundizt i rústum námubæjarins
E1 Cobre í Chile, en talið er að
flestir af 400 íbúum bæjarins
hafi farizt á sunnudag eftir að
jarðskjálftar komu .af stað flóð-
bylgju, sem gróf þorpið undir
aur og leðju.
Ekki er enn vitað hve margir
biðu bana í jarðskjálftunum í
Chile, en óttazt að tala látinna
eé allt að 600. Aðrar fregnir segja
þó að 400 hafi farizt. Bærinn E1
Cobre varð verst úti, en bær
þessi er 130 km. fyrir norðan
Santiago. Skammt fyrir ofan bæ
inn var 70 metra há stífla, sem
eprakk við jarðhræringarnar og
eteypti milljónum tonna af vhtni,
eur og leðju yfir bæinn. Annars
etaðar að hafa einnig borizt frétt
ir um mannslát af völdum jarð-
ekjálftanna, en ekki eru nákvæm
®r tölur fyrir hendL
Hafin er fjársöfnun handa nauð
etöddum í Chile, og barst fyrsta
framlagið í dag. Voru það 60
þúsund mörk (um kr. 650 þús.)
frá vestUr-þýzku stjórninni.
Vegna sprengingarinnar
hefur verið gripið til víð-
tækra varúðarráðstafana. 406
manna bandarískt herlög-
reglulið er nú á verði við
sendiráðið, og yfirmönnum
sendiráðsins hefir verið feng-
inn lífvörður.
Maxwell Taylor, sendi-
herra Bandaríkjanna í Sai-
gon, er nú í Washington. Atti
hann í dag fund með John-
son forseta, Dean Rusk utan-
ríkisráðherra, Robert Mc
Namara varnarmálaráðherra
og fleiri leiðtogum. Er hugs-
anlegt að sprengingin leiði tii
aukinna loftárása á Norður-
Vietnam, og heyrzt hafa kröf-
ur um það að Bandaríkie
svari árásinni á sendiráðið
með loftárás á Hanoi, höfuð-
borg Norður Vietnam.
Meðal hinna særðu í Sai-
gon, er Alexis Johnson, sem
gegnir sendiherraemhætti í
fjarveru Maxwells Taylors.
Fátt er um sjónarvotta að
sprengingunni, því flestir þeirra,
Faóir leitar að syni sínum meðal hinna mörgu föllmi við bandaríska senediráðið. Faðirinn hafði sem voru á ferð við sendiráðið,
skilið barnið eftir fyrir utan kaffihús gegnt sendiráðinu meðan hann skrapp þar inn. Framhald á bls. 21.
»
Wallace ríkisstjóri tekur á
móti f ulltrúum blökkumanna
Víðlæk ríinnsokn á glæpastðrfse mi Ku Klux Klan
Montgomery og Washington,
30. marz — (AP-NTB) —
ILEIUTOGAR í baráttunni fyrir
jjafnrétti blökkumanna áttu í dag
rúmlega klukkustundar fund með
George C. Wallace, ríkisstjóra í
Alahama. Sögðust þeir að fund-
inum loknum vona að ríkisstjór-
inn aðstoðaði þá við að leysa þær
hatrömmu kynþáttadeilur, sem
Jnegar hafa kostað nokkur manns
Mf í Alabama.
Á sama tima kom sérstök nefnd
Randarikjaþings saman í Was-
bington til að ' ræða kynþátta-
vandamálin. Nefnd þessi, sem áð-
ur hefur unnið að rannsóknunt á
„ésnneriskri starfsemi" i Banda-
ríkjunum, ákvað að láta nú þeg-
ar hefja víðtæka rannsókn á
starfsemi Ku Klux Klan samtak-
anna.
Formaður óamerísku nefndar-
innar, eins og hún er nefnd, er
Edwin Willis, þingmaður demó-
krata frá Louisiana. Sagði hann
að bráðabirgðarannsóknir hefðu
leitt í ljós að sérstakir leyniflokk
ar innan samtakanna fremji
mjög ógnvekjandi afbrot. Jafn-
framt upplýsti Willis að fleiri
öfgafélög í Bandaríkjunum yrðu
sett undir rannsókn, þeirra á
meðal nazistar og „Svartir mú-
hammeðstrúarmenn“. Skoraði
Willis á alla Bandaríkjameiua að
aðstoða við rannsóknirnar. Sér-
staklega hvatti hann alla þá, sem
þekkja eitthvað til starfsemi Ku
Klux Klan að skýra yfirvöldun-
um frá þekkingu sinni. Taldi
han jafnvel hugsanlegt að marg-
ir fyrri meðlimir og leiðtogar
samtakanna hefðu nú fengið nóg
af hryðjuverkum og vildu létta
á samvizku sinni með því að
aðstoða yfirvöldin.
Wallace, ríkisstjóri, vildi lítið
láta uppi um viðræðurnar við
leiðtoga í jafnréttisbaráttunni.
En hann hefur hingað til neitað
að ræða við þá sjálfur, og kom
það mönnum nokkuð á óvart or
Framhald á bls. 8.
Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins
EINS og áður hefir verið tilkynnt, hefst
landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
22. apríl næstkomandi. Dagskrá fundarins
verður tilkynnt síðar. Er þess vænzt, að þau
félagssamtök flokksins, sem ekki hafa enn
kosið fulltrúa sína á landsfundinn, geri það
sem fyrst og tilkynni aðalskrifstofu flokksins
í lieykjavík nöfn fulltrúa.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
jr