Morgunblaðið - 31.03.1965, Side 3
Miðvikudagur 31. marz!965
MORGUNBLAÐIÐ
3
Einn *f þátttakendunum var Steingrimur Bernharðsson, banka
stjóri, og varð hann nr. 3 í keppninui og hér sést l»nn draga
sprækan þyrskling.
lægra en yrði á innfluttu
— seg/r dr. Jón Vestdal, forstjóri
Sementsverksmiðju rikisins
AÐ því er Jón Vestdal, forstjóri
Sementsverksmiðju ríkisins,
skýrði blaðinu frá er verð á sem-
enti verksmiðjunnar heidur
laegra en verð á innfluttu sem-
enti myndi vera.
Sagði hann að þegar verð á
sementi verksmiðjunnar væri
ákveðið væri það gert með því,
að Hagstofan reiknaði út hvað
innflutt sement kæmi til með að
kosta samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem fengist um verð frá
erlendum seljendum, svo og upp
skipunarkostnaði og farmgjöld-
um til landsins. Höfð væri hlið-
sjón af verðlagsákvæðum, sem
giltu áður en verksmiðjan tók til
starfa um uppskipunarkostnað,
dreifingarkostnað og aðflutnings
gjöld á sementi. Ákvörðun verk-
smiðjustjórnar og ríkisstjórnar
væri tekin í samræmi við þá út-
reikninga og þess gætt að verðið
væri nokkru lægra á innlendu
sementi en útreikningarnir sýndu
að yrðu á innfluttu.
Jón Vestdal sagði, að meira en
ár væri liðið frá þvi verð á ís-
lenzku sementi hefði siðast verið
ákveðið. Sér væri kunnugt um,
að sementsverð í Vestur-Evrópu
hefði hækkað nokkuð á þessu
tímabili, enda hefði verið skort-
ur á sementi að undanförnu. —
Kvaðst han vita til, að Danir
hafi flutt inn sement frá Finn-
landi á sl. ári og Bretar hefðu
spurzt fyrir um útflutning héð-
an á sementi á sl. ári. Sagði hann,
að útflutningsverð á sementi frá
Danmörku fyrir ári hefði verið
90 shillingar tonnið en væri nú
92—93 shillingar.
Hann kvaðst vilja henda á, að
þótt tollur væri á innfluttu sem-
enti þyrfti sementsverksmiðjan
líka að borga tolla af sinni fram-
leiðslu, t.d. umbúðum öllum,
varahlutum, gipsi og olíu, sem
þyrfti að nota til framleiðslunn-
ar. Þó skipti mestu máli, að toll-
ar hafi verið greiddir af öllum
vélum og útbúnaði til verksmiðj-
unnar þegar hún var byggð og
þyrfti að afskrifa þessar toll-
greiðslur og borga vexti af þeim.
Væru það verulegar fjárhæðir.
Að lokum sagði Jón Vestdal,
að frá upphafi hafi ráðamenn
verksmiðjunnar gætt þess, að
landsmenn hefðu hag en ekki
óhag af tilkomu islenzkrar sem-
entsverksmið j u.
430 kg.
veidd
í vökum
Akureyri, 29. marz.
LIONSKLÚ BBU RINN Hug-
inn igekkst fyrir keppni í fisk-
drætti upp um ísinn á Akur-
eyrapolli í gær. Hófst keppn-
in kl. 14 og lauk kl. 17. Lions-
klúbburinn lagði til færi og
beitu og sá um að höggva göt
á ísinn. Þátttökugjald var 150
kr., sem varið verður til líkn-
armála. Veitingar voru seldar
frammi á isnum.
Blíðskaparveður var i gær,
sólskin og logn, og breigður
Akureyringum við*eftir frost-
hörkurnar að undanförnu.
Snjóföl var á ísnum, en ísinn
sjáifur var 20 til 25 cm. þykk—
ur. Mikill mannfjöldi lagði
leið sína fram á Poll, bæði
gangandi og á skautum ,sleð-
um, reiðhjólum, skellinöðrum
og barnavögnum til að njóta
góðviðrisins og skemmta sér
við að horfa á veiðigarpana
dorga.
Þátttakendur i veiðikeppn-
inni voru 28, þar af ein kona,
Guðfinna Thorlacius yfirhjúkr
unarkona. Alls veiddust 430
'kig. á þessum þremur klukku-
stundum. Hlutskarpastir urðu
þessir menn:
1. Ásgeir Kristjánss. 37,1 kg.
2. Karl Jörundsson 32,7 kg.
3. Steingrmur Bernharðss. \
31,8 kg.
Stærsta fiskinn (steinbít)
dró Þorleifur Ágústsson. Vó
fiskurinn 3,4 kg og var 77 cm
að lenigd. Framangreindir sigur
vegarar hlutu allir verðlauii.
Lagnaðarís er nú meiri á
Akureyrarpolli og innanverð-
um Eyjafirði en verið hefur
áratuigum saman. Nær ísinn út
undir Svalbarðseyri að austan
og út undir Skjaldarvík við
Hér er einn af yngri keppendunum að dorga. •Börn og fullorðnir fylgjast með af áhuga.
(Myndimar tók Sv. P.)
vesturlandið.
— Sv. P.
Nr. 2 í keppninni varð Karl Jörundsson og hér heldur hann heim með aflann á sleðanum, en
jafnframt má sjá önnur farartæki á myndinni.
Verð á íslenzku sementi
STAKSTEIIVAR
„Á grundvelli raun-
hæfra kjarabóta"
f RITSTJ ÓRNABGREIN Vísis I
gær er rætt um nýafstaðna ráð-
stefnu Alþýðusambands íslahds
um kjaramál, sem haldin er til
undirbúnings samningaviðræðum
milli launþega og atvinnurekenda
í byrjun júní n.k. þar segir m.a.:
„Höfuðnauðsyn er, að í þeim
samniriigum takist að tryggja
vinnufriðinn næsta árið á grund-
velli raunhæfra kjarabóta og án
þess að jafnvægi efnahagsmál-
anna sé kollvarpað. Það verður
ekki létt verk. En með góðum
vilja og skilningi beggja aðila
vinnumarkaðarins mun það tak-
ast. Eðlilegt er, að verkalýðssam-
tökin setji á oddinn óskir um
verulegar kjarabætur. En það er
líka ljóst, að þær verða að vera
í þeirri mynd, að þær kjarabætur
hverfi ekki að bragði í eldi verð-
bólgunnar. Margt kemur þar til
igreina auk launabóta, svo sem
stytting vinnutímans, aukin
ákvæðisvinna, lagfæringar i
skattamálum og aðgerðir gegn
verðbólgunni. í fyrra var brautin
mörkuð. Síðan hafa ýmsir þeir
atburðir gerzt, sem kalla á endur-
skoðun á sama grundvelli. Mikil-
vægt er, að sú endurskoðun verði
innan þess ramma, sem gerir
kleift að halda gengi krónunnar
óbreyttu".
Stefnulaust rekald
Ekki steðjar nokkru sinnl
stærri vandi að foringjum Fram-
sóknar heldur en þegar þessi
röndótta hjörð er neydd til þess
að gefa út einhvers konar stefnu-
yfirlýsingu. Allt orðalag verður
að vera nægilega loðið til þess,
að „stefnan" styggi enga þá mis-
litu skoðanahópa, sem að flq^ki
þeirra standa. Til að bæta fyrir
málefnaskortinn er síðan gripið
til orðagjálfurs og lýðskrums,
það er talað um „sameiningu
vinstri manna", sem þó hafa fátt
eitt sameiginleigt í skoðunum,
„umbótaöflin", þegar rætt er um
svartasta afturhald síðustu ára-
tuga á íslandi, Framsóknarmenn,
„heilbrigöa stefnu í efnahagsmál-
um“, og þá átt við eysteinsk-
una, sem verið hefur einn versti
þrándur í götu framfara í land-
inu um áratugabil, og þannig má
lengi telja. Eitt sinn var einróma
samþykkt á flokksþingi Fram-
sóknar stefnuyfirlýsing i utan-
ríkismálum. Fáum mánuðum síð-
ar gerðist það á ASÍ-þingi, að
einn af fulltrúum Sjálfstæðis-
manna á þinginu bar fram þessa
ályktun orðrétta. í stað þess að
samþykkja yfirlýsta stefnu
flokksins síns í utanríkismálum,
varð Framsóknarmönnum á þing-
inu það á, að þeir felldu hana og
greiddu þess í stað atkvæði með
tillögum kommúnista um utan-
ríkismál. Stefnufastir menn,
Framsóknarmenn!!
Vamagli
f lok stjórnmálaályktunar mið-
stjórnar Framsóknarflokksins um
síðustu helgi kom siðan hinn
úauðsynlegi vamagli, þar sem
allir þeir, sem vilja byggja upp
heilbrigt þjóðfélag eru hvattir til
að fylkja sér um Framsóknar-
flokkinn, „þótt þeir séu eigi
sammála um allt“.