Morgunblaðið - 06.05.1965, Side 1

Morgunblaðið - 06.05.1965, Side 1
32 siður 82. árgangur. 101. tbl. — Fimmtudagur 6. maí 1965 Frentsmiðja MorguTsblaðstm Skýrsla ríkísstjórnarinnar um alumínmálið lögð fram á Alþingi: Alumínverksmiðjan í Straumsvík Mundi skila 300—350 millj. kr. hreinum tekjum áríega — ©g tryggja langhagkvæm- ustu virkjun sem kostur er á í gær var lögS fram á Al- þingi skýrsla ríkisstjórnar- innar um athugun á bygg- Ingu alúmínverksmiðju hér á iandi. í*ar er skýrt frá t»ví, »ð hreinar árlegar gjaldeyr- istekjur af rekstri 60 þús. tonna veksmiðju séu áætlað- ar nema 300-350 millj. kr., tem myndi skiptast í aðal- etriðum þannig: Greiðslur f.vrir raforku munu nema um 103 millj. kr., skattgreiðslur rúmum 50 millj. kr. og launa- greiðslur og greiðslur fyrir ýmiss konar þjónustu hér inn an lands 150-200 millj. kr. JÞ-essar tekjur myndu nema yfir 650 þús. kr. á ári á hvern vinnandi mann hjá verksmiðj unni, en áætlað er, að 60 þús. tonna verksmiðja myndi hafa wm 450 manns í þjónustu sinni. Gert er ráð fyrir, að verk- amiðjan muni hefja starf- rækslu vorið Í969 og kaupa raforku með föstu verði til að minnsta kosti 25 ára og með því væri tryggt, að ís- lendingar gætu ráðizt í hina hagkvæmustu virkjun, sem Völ er á. Aluminverksmiðjan í Straumsvík — Þannig mun hún ííta út. í skýrslu ríkisstjórnarinnar rekstur aluminverksmiðju á . --------------- sem er mjög ýtarleg, er að finna upplýsingar um þetta mál frá upphafi. Þar er greint frá viðræðum þeim, sem fram hafa farið, frá því að stóriðjunefnd gaf skýrslu sína h. 14. nóv. s.I. svo og stöðu viðræðna við Swiss Al- uminium um byggingu og íslandi. Þá er þar skýrt frá grundvallarskipulagi verk- smiðjunnar, staðsetningu hennar, stærð, orkukaupum og orkuverði, samningstíma o.fl. Fara helztu atriði skýrsl- unnar hér á eftir. Framhald á bls. 8 MENNIRNIR FLUTTIR FRA ÍSEYNNIINNAN SKAMMS — liklega öðru hvoru meg- in við helgina — Rekur Arlis II inn á islenzkan fjörð? ÞEIR 20 menn, sem nú dvelj- ast á iseyjunni Arlis II, skammt frá ísiandsströndum, verðo fluttir af eynni í lok þessarar viku, eða í síðasta lagi í byrjun þeirrar næstu, að þvi er John F. Schindler, að- stoðarframkvæmdastj. Heim- skautarannsóknarstöðvarinn- ar í Point Barrow, Alaska, tjáði Mbl. í viðtali í gær. ís- brjóturinn Edisto, sem undan farna daga hefur rutt sér braut í gegnum allt að 7 m. þykkan is, mun í gær hafa hætt vií að reyna að' brjótast núverandi leið til ArUs H, sök um þess að renna opnaðist í ísinn nokkuð frá. Mun isbrjót urinn nú sigla þessa rennu, en þá þarf hann aðeins að brjótast um 20 rnilna leið gegnum is að eynni. Schindler sagði, að siðan í marzbyrjun hefði Arlis II rek ið mjög hratt í suðurátt, eða 14—15 sjjómílur að meðaltali á sólarhring. Mest hefði eyna rekið 32 sjómíiur á einum sólarhring. enda væri hun nú stödd tiltölulega skammt und an Vestíjörðum. Þá sagði Schindler, að mögu leikar hefðú verið á þvi, og F. Schindler væru raunar enn, að Arlis II Framihald á bls. 31 Vopnahlé í Domini kanska lýðveldinu Bandaríkjamenn hafa ekki viðuxkennt stjórn Caamanos — Allt kyrrt 1 Santo Domingo Santö Domingo, Dóminí- kanska lýðveldinu og New York, 5. maí (NTB) I kvöld var undirritaöur vopnahléssamningur í Santo Domingo fyrir milligöngu friðarnefndar samtaka Ame- ríkuríkja, en segja má, að allt hafi verið með kyrrum kjör- um í borginni í dag. Bandaríkjamenn hafa enn ekki viðurkennt bráðabirgða- stjórn Franciscos Caamanos Denos, sem tók við embætti forseta í gær. Sagði talsmað- ur utanríkisráðuneytis Banda ríkjanna í dag, að eins og málum væri háttað nú, væri engin virk stjórn í Dóminí- kanska lýðveldinu. Fregnir frá Santo Dom- ingo herma, að í átökunum frá því að herforingjasijórn Kt-íds Cabrals var steypt fyr ir 11 dögum ,hafi 1000 manm fallið í höfuðborginni og 12 þús. særzt. Friðarnefnd samtaka Ame- ríkuríkja tilkynnti í kvöid, að samið hefði verið um vopnablé Framhald á bls. 31 Ulbricht aðvatw V-Þjóðverja Berlín, 5. maí (NTB). WALTER Ulbricht, leiðtogi a- þýzkra kommúnista, varaði í dag V-Þjóðverja við að halda fleiri þingfundi í V-Berlin, þvi að A- Þjóðverjar gætu ekki þolað slík ar ögranir án þess að gripa til gagnaðgerða. Ulbricht sagði þetta í ræðu í a-þýzka þinginu. Hélt hann því fram, að samkvæmt lögum til- heyrði V-Berlín A-Þýzkalandi, þar sem öll borgin hefði upphaf iega verið á sovézka hernáms- svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.