Morgunblaðið - 06.05.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 06.05.1965, Síða 8
8 M0RCUN3LADID Fimmtudagur 6. maí 1965 Framh. af bls. 1 I. Inngangur. Undanfarin ár hafa farið fram athuganir á vegum ríkisstjóm- arinnar á því hvort urmt væri og hagstætt að koma upp hér á landi aluminiumivinnslu eða öðr- um orkufrekum iðnaði, er byggð ist á hinni miklu ónotuðu vatns- orku landsins. Aathuganir í þess um efnum hafa annars vegar ver ið í 'höndum sérstakrar nefndar, Stóriðjunefndar, sem skipuð var af iðnaðarmálaráðherra 5. maí 1961, en hins vegar í höndum Raforkumálaskrifstofunnar. Hinn 14. nóvember 1964 skilaði Stóriðjunefnd ítarlegri skýrslu til ríkisstjórnarinnar um alumin- iumverksmiðju og stórvirkjun, en þar eru störf nefndarinnar og gangur viðræðna við erlend aluminiumfyrirtæki rakin fram ti* þess tíma. Skýrslu þessari fylgdu allmörg fylgiskjöl, er einkum fjalla um raforkumál og srtórvirkjanir. Skýrsla þessi á- samt fylgiskjölum var afhent öllum alþingismönnum sem trún aðarmál skömmu síðar, og eru þær allar birtar hér rrreð sem fylgiskjöl. Einnig var þingmönn- um afhent framhaldsskýrsla Stóriðjunefndar um málið, er dagsett var 6. fébrúar 1966. Það voru meginniðurstöður skýrslu Stóriðjunefndar frá 14. nóvember 1964, að aðstaða væri fyrir hendi til að ná viðunandi samningum um byggingu alu- miniumverksmiðju hér á landi, er gæti skapað fjárhagslegan grundvöll stórvirkjunar við 3úr- fell. Einnig virtist unnt að afla nægilegs lánsfjár erlendis til slíkrar virkjunar, en ástæða væri til að ætla, að verulegur hluti lánsfjárins fengist hjá Al- þjóðabankanum. Varðandi nán- ari greinargerð fyrir þessum við horfum vísast til skýrslu nefnd- arinnar, sem prentuð er hér með sem fylgiskjal L Á grundvelli fyrrnefndrar skýrslu Stóriðjunefndar ákvað ríkisstjómin, að haldið skyldi áfram viðræðum við hið sviss- neska fyrirtæki, Swiss Alumini- um Ltd., svo og Alþjóðabankann er leitt gætu í ljós endanlega, hverra kosta gæti verið völ fyr- ir íslendinga í þessum efnum. Fyrstu fundirnir fóru fram dag- ana 14.—17. desember í Zúrioh, en í þeim tóku þátt bæði fulltrú- ar frá Swiss Aluminium og sendinefnd frá Alþjóðabankan- um. Af hálfu íslenziku rikis- stjómarinnar tóku þátt í við- ræðunum dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, formaðúr Stór- iðjunefndar, Eiríkur Briem, raf- magnsveitustjóri, og Steingrím- ur Hermannsson, framkvæmda- stjóri Rannsóknaráðs ríkisins, en þeim til aðstoðar voru Hjörtur Torfason, lögfræðingur og dr. Gunnar Sigurðsson, verkfræð- ingur. Annar fundur með sömu aðilum var haldinn í Washing- ton fyrstu vikuna í marz þessa árs, og voru fulltrúar íslenzku ríkisstjómarinnar þá hinir sömu og áður. Þriðji fundurinn var svo haldinn dagana 31. marz og 1. apríl í Reykjavík, en til þess fundar komu aðeins fulltrúar frá Swiss Aluminium. Forustu í þeim viðræðum af hálfu ríkis- stjórnarinnar hafði Jóhann Haf- stein, iðnaðarmálaráðherra, en að öðru leyti tóku sömu menn þátt í viðræðunum og áður að viðbættum Brynjólfi Ingólfssyni, ráðuneytisstj óra. Loks dvaldist svo sendinefnd frá Alþjóðabank- anum í Reykjavík dagana 12._____ 22. apríl, en hún vann að loka- athugunum Alþjóðabankans varð andi Búrfellsvirkjun. Allir þessir viðræðufundir hafa orðið til þess að skýra mjög við- horf í málinu, enda þótt loka samningar hafi að sjálfsögðu ekki getað farið fram og mörg atriði séu enn óútkljáð. Verður nú fyrst gerð grein fyrir helztu atriðum, sem fram hafa komið í þessum viðræðum, en síðan verður gefið heildaryfirlit yfir ■ ar ■ efnisatriði málsins, eins og það nú stendur. Viðræðumar síðan í desembei Þegar Stóriðjunefnd gaf skýrglu sína 14. nóvember 1964, stóðu mál þannig að samkomu- lagsgrundvöllur virtist hugsan- legur við Swiss Aluminium um byggingu 30 þús. tonna verk- smiðju hér á landi, er keypti raforku frá Búrfellsvirkjun samkv. löngum orkusölusamn- ingi. Svissneska fyrirtækið hafði frá upphafi lagt áherzlu á það, að það fengi raforku fyrir 8,6 aura eða 2 mill kWst., ef verk- smiðja af þessari stærð ætti að teljast hagkvæm hér á landi. Af nefndarinnar hálfu var hins veg- ar talið, að raforkuverðið þyrfti að vera hærra, og taldi hún á- stæðu til að ætla, að svissneska fyirtækið fengist til að hækka til boð sitt upp í 10,75 aura eða 2,5 mill á kWst., ef til alvarlegra samninga kæmi. Það var meg- intilgangur þeirra viðræðna, sem fram fóru í Zúriah í desember, að kanna hvaða samningum yrði unnt að ná í þessum efnum. í þessum viðræðum féllst Swiss Aluminium á að raforku- verð hækkaði upp í 10,75 aura (2,5 mill) á kWst., en jafnframt greiddi verksmiðjan fastan skatt á tonn af aluminium, er væri í samræmi við venjulega skatt- lagningu á íslandi. Hins vegar lögðu forstöðumenn fyrirtækis- ins höfuðáherzlu á það, að slík hækkun raforkuverðs væri ekki samrýmanleg hagkvæmum rekstri, nema unnt væri að stækka verksmiðjuna tiltölulega fljótlega upp í 60 þús. tonna árs- afköst. Óskaði fyrirtækið ein- dregið eftir því, að samnings- bundinn réttur til slíkrar stækk unar yrði fyrir hendi frá upp- hafi. Eftir viðræðurnar í Zúrich voru þessi nýju viðhorf tekin til athugunar. Var sérstaklega reynt að athuga, hvaða áhrif það hefði á raforkukerfið, ef aluminium- verksmiðjan yrði stækkuð innan fárra ára upp í 60 þús. tonna árs afköst. Lagði Stóriðjunefnd sér- staka skýrslu um þetta mál fyrir ríkisstjómina 6. febrúar 1965, en hún fylgir hér með sem fylgi- skjal II. Niðurstaða hennar var sú, að það væri hagkvæmt að byggja Búrfellsvirkjun í tveim- ur áföngum í stað fjögurra, sem áður hefðu verið ráðgerðir, og sejja frá henni orku til alumin- iumverksmiðju, er hefði 60 þús. tonna ársafköst og einnig yrði byggð í tveimur áföngum. Hin örari uppbygging raforkukerfis- ins eftir þessum leiðum mundi m.a. skapa tækifæri til bygging- ar annarrar stórvirkjunar fljót- lega eftir Búrfellsvirkjun á sterkum efnahagslegum grund- velli. Um þessi mál var frekar rætt í viðræðum þeim, sem fram fóru í Washington í byrjun marzmán- aðar. Var þá m.a. á það bent af hálfu íslendinga, að erfitt væri fyrir þá að taka á sig þá óvissu sem samningsbundinn réttur Swiss Aluminium til stækkunar upp í 60 þús. tonn mundi hafa í för með sér. Mundi það þýða miklu örari stækkun Búrfells- virkjunar en ella, en aðstæður gætu breytzt, þannig að slíkt yrði erfiðleikum bundið. í sam- bandi við þetta bentu fulltrúar Alþjóðabankans á, að réttur Swiss Aluminium til handa til þess að stækka verksmiðjúna mundi á engan hátt greiða fyrir lántökum til virkjunarinnar, nema um skuldbindingu væri að að ræða. Ef fyrirtækið féllist hins vegar á, að gerður yrði fast- ur samningur um orkukaup til 60 þús. tonna verksmiðju, er byggð yrði í áföngum, enda væri þegar í upphafi gengið frá aJlri lánsfjáröflun til 210 MW Búr- felLsvirkj unax. Töldu fulltrúar Afþjóð aba nk a ns, að bankinn mundi verða reiðubúinn til þess að auka lánveitingar til virkj- unarinnar, svo að þetta yrði kleift. Swiss Aluminium félist fyrir sitt leyti á þessa tillögu Alþjóðabankans, enda gæti stækkunin upp í 60 þús. tonna ársafköst farið fram í tveiimur áföngum, er yrðu 16 þús. tonn hvor. Umræðum um þetta efni var svo haldið áfram á fundum þeim, sem haldnir voru í Reykjaví'k 31. marz og 1. apríl s.l. og varð þá samkomulag um það, að gengið yrði út frá byggingu 60 þús. tonna verksmiðju í þremur á- föngum. Er nánar gerð grein fyrir niðurstöðu þessara við- ræðna hér á eftir. Á öllum þeim þremur fundum, sem nú hefur verið drepið á, var rætt um ým- is önnur atriði, svo sem s’katta- mál, lengd samninga, endurskoð unarákvæði o.s.frv. Hefur þótt heppilegast að draga saman nið- urstöður þessara viðræðna allra í eitt yfirlit, þar sem greinilega komi fram öll helztu efnisatriði, sem um hefur verið fjallað í við- ræðum milli aðila síðan í des- ember 1964. Yfirlit um stöðu viðræðna við Swiss AEuminium 1. Grundvallarskipulag verksmiðjunnar. Gert er ráð fyrir því, að hér verði komið upp aluminium- bræðslu til vinnslu á breinmálmi úr aluminiumoxydi og öðrum innfluttum hráefnum. Mun Swiss Aluminium setja hér á stofn dótturfélag til að byggja og reka slíka verksmiðju, er verði skrásett hér á landi sam- kvæmt islenzkum hlutafélögum. Swiss Aluminium mun sjá um útvegun á öllu því fjármagni, sem þarf til byggingar og rekst- urs verksmiðjunnar, framleiðslu hennar, útvegun á hráefnum og sölu á afurðum. Er til þess ætl- azt af hálfu íslendinga, að verk- smiðjan verði jafnan rekin með fullum afköstum eftir því sem tæknilegar aðstæður leyfa, nema sérstakir markaðsörðugleikar komi til. Stofnkostnaður aluminium- bræðslu hér á landi með um 60 þús. tn. afköstum er áætlaður sem næst 60 milljónum banda- rískra dollara, eða sem svarar 2.500 milljónum íslenzkra króna. Búast má við þvi, að fé þetta verði að verulegu leyti lagt fram í formi hlutafjár, eða allt að helmingi. Annars stofnfjár verð- ur að líkindum aflað með mark- aðslánum í Sviss eða annars staðar og með bundnum lánum frá þeim aðilum, sem selja munu tæki til verksmiðjunnar. Ráðgert er, að Swiss Aluminium leggi fram svo til allt hlutafé verk- smiðjufélagsins. Það hefur þó í athugun þann möguleika að fá annað aluminiumfélag til- sam- starfs um venksmiðjuna sem minnihlutaeiganda í verksmiðju félaginu, og áskilur Swiss Al- uminium sér rétt til að semja við slíkan samstarfsaðila með samiþykki íslenzkra yfirvalda. Að öðru leyti er ráðgert, að hlutafé Swiss Aluminium og hvers konar samningsréttindi þess hér á landi verði ófram- seljanlegt nema með samþykki íslenzkra yfirvalda. Verksmiðjufélagið yrði stofn- að samkvæmt íslenzkum lögum, sem fyrr segir, og yrði jafnframt áskilið, að stjóm þess hafi að- setur sitt hér á landi. Verður það því innlent félag í hvoru tveggja þessu tilliti. Swiss Al- uminium er auk þess reiðubúið að fallast á það fyrir sitt leyti, að stjórn félagsins verði skipuð íslenzkum ríkisborguruim aS meirihluta til, en venja er víða um lönd og áskilja slíkt um fé- lög, sem stofnuð eru með er- lendu hlutafé. Loks er gert ráð fyrif því, að islenzka ríkisstjórn- in flái beina aðild að stjóm fé- lagsins, hvort sem um hlutafjár- framlag verður að ræða af hálfu íslendinga eða ekki, og eigi til dæmis jafnan sem svarar tveim- ur fulltrúum af sjö í stjórn fé- lagsins. Starfsgrundvöllur slíks fyrir- tækis hér á landi er háður því, að hægt sé að útvegá því næga raforku við samkeppnishæfu verði. Talið er, að verksmiðjan muni þurfa sem næst 15 þús. k Wst. af raforku fyrir hvert tonn af málmi, sem þar verður fram- leitt. Má búast við því, að orku- kostnaður verksmiðjunnar verði um 10—15% af heildarfram- leiðslukostnaði, eða um 30% af því verðmæti, sem bætt er við hin innfluttu hráefni á þessu framleiðslustigi. Þessi orka þarf að vera stöðugt fyrir hendi, þann ið að það afl, sem verksmiðjan þarf að hafa til ráðstöfunar, nýt ist væntanlega ekki minna en sem svarar 8000 stundum á ári. Gert er ráð fyrir þvi, að verk- smiðjunni yrði látin þessi orka í té frá Búrfellsvirkjun og sam- tengdum virkjunum samikvæmt sérstökum orkusölusamningi er yrði uppistaðan í væntanlegum samningum íslendinga við hinn erlenda áðila. Með samningnum yrði verksmiðjunni tryggð tiltek in hámarksorka til langs tíma og yrði verksmiðjufélaginu jafn- framt gert skylt að greiða fyrir ákveðið lágmarksmagn raforku á ári hverju, hvort sem það nýt- íst í verksmiðjunni eða ekki. Með þessu móti er hægt að tryggja hinni fyrirhuguðu Lands virkjun fastar tekjur af orku- að fjáröflun til virkjunarfram- kvæmda hennar. 2. Staðsetning verksmiðjunnar. í viðræðum við Swiss Alumin- um hefur verið gerð ítarleg at- hugun á mörgum staðsetningar- möguleikum fyrir verksmiðjuna. Hefur ríkisstjómin talið það mjög æskilegt, að hægt yrði að staðsetja verksmiðjuna þar sem hún gæti stuðlað að auknu jafn- vægi í byggð landsins. Það hef- ur hins vegar komið ótvírætt í ljós á síðustu fundum aðilanna, að óhjákvæmilegt verður af fjárbagslegum ástæðum að stað- setja verksmiðjuna við sunnan- verðan Faxaflóa, ef hana á að byggja hér á landi á annað borð. Hafa fulltrúar Swiss Aluminium tekið það skýrt fram, að verk- smiðjan þyrfti að fá mun hag- stæðara raforkuverð, ef stað- setja ætti hana utan þessa svæð- is, þar sem stofnkostnaður henn- ar yrði þá hærri og önnur að- staða erfiðari. Á hinn bóginn hafa fulltrúar Alþjóðabankans bent á, að íslendingum yrði nauð synlegt að fá hærra raforkuverð í þessu tilfelli, þar sem stofn- kostnaður raforkukerfisins yrði 'þá meiri. Á þetta sérstaklega við um verksmiðjustæðið á Gáseyri við Eyjafjörð, sem einkum hefur verið talið koma til greina, en ýmsa aðra staði hefur auk þess orðið að útiloka vegna of mikils tilkostnaðar við hafnargerð. Af þessum ástæðum er nú gert ráð fyrir því, að verksmiðjan yrði staðsett við Straumsvík fyr ir sunnan Hafnarfjörð, sem er mjög ákjósanlegur staður í flestu tilliti. Búizt er við, að þar megi koma upp allgóðri höfn fyrir þau 10-—20 þúsimd tonna skip, sem annast mundu flutn- inga að og frá verksrniðjunni, með tiltölulega litlum tilkostn- aði. Sérstök vegagerð vegna verksmiðjunnar yrði að sjálf- sögðu ónauðsynleg, og. nægilegt vatn til starfrækslunnar er að finna í næsta nágrenni staðarins eða jafnvel á verksmiðjulóðinni sjálfri. Aukakostnaður við lagn- ingu háspennulína til verksmiðj- unnar verður óverulegur, þar sem notast má við háspennulín- una til Reykjavíkur svo til alla leið. Vegna hins óbyggða og ó- ræktaða umhverfis er við þvi búizt, að hægt verði að stilla kostnaði af hreinsun á útblást- urslofti verksmiðj unnar mjög í hóf. Loks er þess að gæta, að ekki verður teljandi þörf á sér- stökum byggingum yfir starfs- fólk verksmiðjunnar á þessum stað, þar sem gera má ráð fyr- ir, að starfsfólk verksmiðjunnar á þessum stað, þar sem gera má ráð fyrir, að starfsfólkið yrði yf- irleitt búsett í Reykjavík, Kópa- vogi eða Hafnarfirði. Starfslið verksmiðjunnar er ekki svo fjöl- mennt, að ástæða sé til að ætla, að gera þurfi sérstakar ráðstaf- anir í byggingarmálum í Reykja vík og nágrenni þess vegna. Enda þótt ekki hafi tekizt að koma viðræðum um aðra stað- setningu verksmiðjunnar á þessu stigi á raunhæfan grundvöll, hef ur það komið skýrt fram af hálfu fulltrúa Swiss Aluminium í viðræðum um möguleika á starfrækslu norðanlands, að fé- lagið mundi vera reiðuibúið til að taka þátt í byggingu og rekstri aluminiumverksmiðju á Norðurlandi í helmingafélagi við íslenzka aðila ef ríkisstjórn- in hefði hug á því að koma upp slíku fyrirtæki á síðara stigi til- dæmis á næstu 10—15 árunru Mundi Swiss Aluminium þá jafn framt reiðubúið til að láta slkri verksmiðju í té viðskiptalega og tæknilega aðstoð með sanngjörn- um kjörum. 3. Stærð verksmiðjunnar. Niðurstaða viðræðnanna hefur orðið sú svo sem áður greinir að rétt sé að miða við, að sam- ið verði þegar í upphafi um 60 þúsund tonna verksmiðju, er byggð verði í tveimur eða þrem- ur áföngum. í fyrsta áfanga verði byggð ein 30 þúsund tonna keraröð, er væntanlega geti tek- ið til starfa í árslok 1968 eða á árinu 1969. Síðan verði verk- smiðjan stækkuð um Vi kera- röð, ekki síðar en þremur árum frá þvi, að fyrsti áfangi tæki tiil starfa. Þriðji áfanginn mundi svo bætast við þremur árum síðar, í síðasta lagi, og yrði þá fullum afköstum náð. Gert er ráð fyrir því, að styttra geti orð ið á milli áfanga, ef um bað verður samkomulag milli aðila. Ekki er þó við því búizt, að síð- ari áfangar verksmiðjunnar geti báðir tekið til starfa fyrr en á 3. eða 4. starfsári í fyrsta lagi. Samið verður þannig um bygg ingu verksmiðjunnar í 1. áfanga, að hann verði fullbyggður á þeim tíma, sem 1. áfangi Búr- fellsvirkjunar, 105 MW, er til- búinn til afhendingar á raforku, Á þeim tíma verður verksmiðm- félagið skuld'bundið til að greiða fyrir það lágmarksmagn raforku, sem því er skylt að kaupa tii þessa áfanga, hvort sem hann er þá tilbúinn til starfrækslu eða ekki. Sami háttur yrði hafður á um síðari, áfanga verksmiðjunn- ar. Verðúr félagið í hvert sinn skyldað til að greiða fyrir það lágmarksmagn, sem svarar til orkuþarfar þess áfanga, hvort sem á því þarf að halda eða ekki. Um byggingu verksmiðjunnar í 1. áfanga er þess að gæta, að hún tekur mun styttri tíma en bygging 1. áfanga Búrfellsvirkj- unar. Er við því búizt, að ekki þurfi að hefja byggingu verk- smiðjunnar fyrr en 1—IV2 ári eftir að hafizt er handa um Búr- fellsvirkjun. Ástæða verður þvi til að krefjast þess, að Swiss Aluminium leggi fram geymslufé eða aðra fullnægjandi tryggingu fyrir því að það muni standa við skuldbindingu sína um byggingu verksmiðjunnar. Fulltrúar Swiss Aluminium hafa talið sig reiðu- ■búna til að fallast á slíkt skilyrði og hafa einkum rætt þann mögu- leika, að félagið léggi fram trygg- ingu sína í formi bankaábyrgðar, 4. Orkukaup og orkuverð Það er grundvallaratriði f skipulagi verksmiðjunnar. sem fyrr segir, að fyrirtækið geri samninga úm föst kaup á raf- orku til langs tíma og skuldbindi sig með þeim til að greiða fyrir tiltekið lágmarksmagn raforku á ári hverju, hvort sem það nýtist í verksmiðjunni eða ekki. Er við iþví búizt, að fyrirtækið verði þannig skyldað til að greiðá fyrir a. m. k. 450 millj. kwst. á ári vegna 1. áfanga og 900 millj, kwst. á ári eftir að verksmiðjan er fullbyggð. Leyfileg hámarks- notkun verksmiðjunnar verðL þá á sama hátt 530 og 1060 kwst. ^ Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.