Morgunblaðið - 30.06.1965, Blaðsíða 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. j’úfti 1965
Ein stærsta íþrótta - og útihátíð UMFÍ
undirhúin að Laugarvatni um helgina
Nýr Iþrottaieikvangur vígður að
Laugarvatni og keppt í plastsundlaug
LANDSMÓT UMFf, hið 12. í
röðinni verður að Laugarvatni
um næstu helgi, verður að öll-
um líkindum ein fjölmennasta
og mesta íþróttahátíð, sem hér á
landí hefur farið fram. Héraðs
sambandið Skarphéðinn, stærsta
spmbandið innan UMFl, hefur
undirbúið mótið nú á þriðja ár,
og að því er séð verður af frá
sögn forráðamanna mótsins, er
allur undirbúningur og skipu-
lag mjög vel af hendi leyst.
Á annað þúsund manns keppa,
sýna eða starfa að mótinu og
njóti mótið hylli veðuriguðanna
er ekki ósennilegt að álíta að
10—20 þús. manna komi til
Laugarvatns um þessa helgi.
Stórar sveitir lögreglumanna
úr Reykjavík, hjálparsveitir
skáta og aðstoðarmanna — svo-
kallaðs heimavarnaliðs — greiða
fyrir fólki á allan hátt varðandi
umferð, bílastæði, tjaldstæði og
fleira. Tugir eða hundruð manna
annast um matsölu í mötuneyt-
um skólanna eystra og í tjöldum,
fengin hafa verið heilu túnin til
bílastæða og skipulagðra tjald-
stæða og yfirleitt gífurleg undir-
búningsvinna verið lögð fram
vegna mótshaldsins.
ir Undirbúningur
PVrir tveimur árum rúmum
var skipuð framkvæmdanefnd
mótsins og sitja í henni: Stefán
Jasonarson Vorsa'bæ form., Her-
mann Guðmundsson, Hermann
Sigurjónsson, Björn Sigurðsson
og Ármann Pétursson. ' Réði
nefndin Hafstein Þorvaldsson,
Selfossi, framkvæmdastj., og hef-
ur hann haft skrifstofu opna
undanfarnar vikur og haft ærið
að gera. Forráðamenn þessir
ræddu við blaðamenn á mánu-
dag um mótið og gáfu þær upp-
lýsingar sem hér er byggt á. .
Stefán Jasonarson sagði að
undir'búningur mótsins hefði ver-
ið þríþættur: 1. Mannvirkja-
gerð og umfangsmikið skipulag
á mótsstað. 2. Vinna í héraði til
undirbúnings hópsýningum o.fl.
3. Samstarf við einstök héruð og
Pressuleikur-
inn fellur niður
EINS og um mörg undanfarin
ár hafði verið ákveðið nú að
hafa svokallaðan „pressuleik“
fyrir knattspyrnulandsleikinn
við Dani, þ.e. að landsliðið
fengi síðustu „alvöru“-æfing-
una fyrir landsleikinn og
landsliðsnefndin hefði tæki-
færi til síðustu breytinga, ef
henni hefði skjátlazt í vali
sínu.
Nú hefur verið ákveðið að
láta þennan „pressuleik“ falla
niður en hann var ákveðinn
annað kvöld. Ekki er getið um
ástæðu í tilkynningu frá
„mótanefnd KSÍ“, og gera má
ráð fyrir að ráðamenn lahds-
liðsins telji „keppnisæfingu"
óþarfa og ekki þurfi frekar að
reyna menn í stöður liðsins.
sambönd varðandi fyringreiðslu
er fólk hvaðtyp æfa af landinu
kemur til mótsins.
■k Margir hjálpast að
Keppendur í einstaklings-
greinum eru 311 auk boðhlaups-
og boðsundssveita, knattspyrnu-
liða og annarra hópa. Þá taka
um 180 manns þátt í fimleika-
sýningum, um 120 manns sýna
vikivaka — auk þess sem yfir
300 manns starfa að mótinu, ým-
ist við íþróttakeppni, löggæzlu
(en sérstakt lið ungra manna hef-
ur fengið tilsögn í umferðastjórn
og skipulagi á bíla- og tjald-
stæðum) veitingasölu ,hlið-
vörzlu o.fl. Allt starfið er unnið
í sjálfboðavinnu utan 2ö manna
sveitar lögreglumanna frá Reykja
vík, sem stjórnar umferð o. fl.
á mótinu.
Þá hleypur Hjálparsveit skáta
í Reykjavík undir bagga með
Skarphéðinsmönnum og verða
30—40 þeirra til aðstoðar og hafa
m.a. sjúkrabíl frá FÍB til taks
ef slys ber að höndum. Þá verða
4—5 bílar frá vegaþjónustu FÍB
á vegunum að og frá mótinu.
ir Dagskrá mótsins
Aðaldagskrárliðir mótsins
eru þessir:
Á laugardagsmongun verður
hópganga til íþróttavallar. Þar
flytur Árni Guðmundsson skóla-
stjóri ávarp, en dr. Gylfi Þ.
Gíslason ráðherra flytur vígslu-
ræðu. Fánar verða dregnir að
hún og fjöldasöngur og síðan
flytur sambandsstjóri UMFÍ, sr.
Eiríkur Eiríksson setningarræðu.
Kl; 9.45 hefst keppni í sundi,
frjálsum íþróttum og starfs-
fþróttum og kl. 11,30 knatt-
spyrnukeppni. Eftir hádegi verð-
ur íþróttakeppni haldið áfram í
sömu tgreinum og auk þess í
handknattleik. Kl. 18,30 verður
Vfirlýsing
frá IBV
Vegna gireinar sem bixtist á
iþróttasíðu Morgumblaðsins 23.
6. 1965 sem bar yfirsikriftina
„Vestmannaeyinigair sátu heima“
vill stjórn I.B.V. koma á fram-
færi eftirfarandi. Stjóm Í.B.V.
sótti um fire&tun á umræddum
leik til K.S.Í. vegna:
1. Loks átti flugvellinum í
Eyjum sokum viðgerðar frá há-
deigi þriðjud. 22. júní til kl. 20.00
fimmtudaginn 24. júni. Hefðu
piltarnir flogið til Reykjavíkur
að morgni 22 júní áttu þeir enga
ferð vísa til Eyja fyrr en fimmtu
daginn 24. júní.
2. Af fyrrgreindum ástæðum
hefði reynzt óigerlegt að fá marga
leikmenn lausa úr sinni vinnu.
3. A’ð ofangreindum ástæðum
frestaði mótanefnd K.S.f. um-
ræddum leik. Þá viill stjóm Í.B.V.
taka það fram að aldrei áður
hefúr þurft að fresta l’eik þeirra
vegna, en t.d. á síðastliðnu sumri
þurfti að fresta átta leikjum í
landsmóti hér í Vestmannaeyj-
um vegna þess að liðin, sem
keppa áttu komust ekki samdæg
urs með fluigvél til Eyja.
verðlaunaafhending og síðan
kvöldverður.
Kl. 8 um kvöldið hefst kvöld-
vaka við pallinn milli íþrótta-
vallanna. Sýndur verður körfu-
knattleikur og nemar í íþrótta-
kennaraskólanum sýna leikfimi
og dans. Þarna syngja og 3 kórar.
Loks verður dansað — nýju
dansarnir á tveim útipöllum en
gömlu dansarnir innanhúss.
Árdegis á sunnudag verður
íþróttakeppni í öllum greinum
haldið áfram, en að loknum há-
degisverði hefst sérstök hátíð.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson mess-
ar, Stefán Jasonarson flytur
ávarp og forseti íslands Ásigeir
Ásgeirsspn flytur ávarp.
Þarna verða vikivakar sýndir
og flutt sérstök „Sögusýning":
Áshildarstaðasamþykktin, eftir
sr. Sigurð í Holti. Taka 28 manns
þátt í þeirri sýningu. Ávörp
flytja og Bjarni Bjarnason fyrr-
um skólastj. og Sigurður Greips-
son form. Skarphéðins.
Þessari útihátíð á að vera lokið
kl. 15,35 og hefst þá hópsýning
karla úr Skarphéðni (leikfimi)
og síðan hópsýning kvenna.
Kl. 16.00 verður glímukeppni
síðan úrslit í knattspyrnu og
handknattleik.
Að afloknum kvöldverði á
sunnudag verður einnig dansað
úti og inni.
fþróttakeppnin er nuög um-
fangsmikil. í sundi er keppt í 10
greinum, 14 greinum frjáls-
íþrótta, knattspyrnu (undan-
keppni hefur farið fram), hand-
knattleik, glímu að ótgleymdum
starfsíþróttunum, sem fá vegleg-
an sess á dagskránni. Af keppn-
isgreinum þar má nefna, dráttar-
vélaakstur, að leggja á borð,
nautgripadómar, sauðfjárdómar,
hestadómar, gróðursetning trjá-
plantna, jurtagreining, blóma-
skreyting o. fl. — f sambandi
við starfsíþróttakeppnina fer
fram mikil vélasýning, sem sjö
innflutningsfyrirtæki standa að
og sýna söluvöru sína.
A Góð aðstaða til íþrótta-
keppni.
Forráðamenn landsmótsins
fóru hiýjum þakkarorðum um
aðstoð þá, er íþróttakennaraskól-
inn hefði látið í té og rómuðu
skólastjórann Árna Guðmunds-
son mjög fyrir margháttaða að-
stoð. Hefur hann staðið í hópi
þeirra sjálfboðaliða er undirbúið
hafa mótið hörðum höndum, auk
þess sem skólinn lánar velli sína
og ýmislegt annað til mótsins.
Aðstaðan _ til íþróttanna er
mjög góð. Á laugardaginn hefst
mótið á nýjum íþróttavelli
íþróttakennaraskólans, grasvelli
með 400 m hlaupabraut, kast-
geirum, stökkigryfjum og öllu til-
heyrandi byggt eftir ströngustu
kröfum þar um. Verður mót
þetta vígsluhátíð vallarins sem
íþróttakennaraskólinn hefur þráð
mjög. Auk þess verður notaður
malarvöllur skólans, svo og hand-
bolta- og körfuboltavöllur hans.
Framh. á bls. 27
JÓHANN ÞORKELSSON, I
héraðslæknir — að sigri unnum.
Hann er 62 ára og hellur tryggð
við golfíþróttina — nýtur henn-
ar og skemmtir sér. Golfið er —•
eins og af þessu má sjá — jafnt
fyrir ungia sem gamla.
Vann bikarinn 62 ára
Skemmtileg golfkeppni á Akureyri
NÝLEGA er lokið hjá Golfklúbb
Akureyrar keppni um ,JHikes
Cup". Þetta er 18 holu höggleik
nr með % forgjöf. Sigurvegari
varð Jóhann Þorkelsson héraðs-
læknir, og þykir þetta mjög at-
hyglisverður árangur hjá Jó-
hanni, því hann er orðinn 62 ára
gamall — en heldur þó fyllilega
í við þá sem yngri eru að árum.
En einmitt þetta sýnir hinn sér-
stæða eiginleika golfíþróttarinn-
ar, að jafnt ungir sem gamlir
geta stundað hann til árangurs
og gamans.
Jóhann tók þegar í upphafi
forystu í keppninni, en er 9 hol-
ur voru eftir var staðan nokkuð
jöfn, Jóhann 41 högg; Hörður
Steinbergsson 41; Sigtryggur
Júlíusson 41. Sigtryggur er einn
ig með eldri félögum í klúbbn-
um, var I úrslitum um íslands-
meistaratitilinn 1942 og Islands-
meistari 1946 og margfaldur
Akureyrarmeistari. Enn í dag er
hann með betri kylfingum í GA.
Jóhann og Tryggvi háðu
skemmtilegt einvígi um bikarinn,
en á 16. holu hlekktist Sigtryggi
á. Kostaði „slysið“ hann 3 högg
og Jóhann sigraði örugglega.
Hinir yngri kylfingar eins og
Gunnar Sólnes og Hörður Stein-
bergsson lögðu sig alla fram, en
tókst aðeins að jafna metin við
Sigtrygg.
ii
Úrslit urðu: Jóhann Þorkelsson
79 högg; 2. Sigtryggur Júlíusson
80; Gunnar Sólnes 80 Hörður
Steinbergsson 80; Hafliði Guð-
mundsson 82 og Árni Ingimundar
son 84.
Í.B.V. EFST í B-RIÐLI
Hafa hlotið 8 stig — Unnu Breiðablik 5:1
VESTMANNAEYINGAR unnu
stóran sigur í gærkvöldi, er þeir
sigruðu Breiðablik í Kópavogi
5 : 1, í skemmtilegum og fjörug-
um leik, sem þó á köflum var
nokkuð gróft leikinn. Rok og
rigningarskúrir settu sinn svip
á leikinn, en leikmönnum tókst
samt furðanlega að halda knett-
inum niðri.
Vestmannaeyingar voru mun
ágengari við mark Breiðablitks,
og byggðu upp hverja sóknarlot
una á fætur annarri, en þeim tekst
ekki að skora fyrr en á 30. mín.
Vörn Breiðabliks var illa leikinn
og hinir hröðu sóknarmenn Í.B.V.
voru ekki seinir að notfæra sér
mistökin og skoruðu auðveldlega.
Skömmu seinna fá Breiðabliks
menn víti, en það mega þeir
þakka línuverðinum; dómarinn
var ekki í þeirri aðstöðu að geta
séð þegar varnarmaður Í.B.V.
varði knöttinn með báðum hönd
um. Jón Ingi framkvæmdi spyrn-
una og skoraði örugglega.
Á síðustu 5 mín. hálfleiksins
skorg svo Vestmannaeyingar 2
mörk og staðan í leikhléi var
3 : 1 fyrir Í.B.V.
í síðari hálfleiknum léku eyjá-
menn undan vindinum og var
búizt við að þeir myndu skora
fjöldann allan af mörkum, en
reyndin varð önnur. Þeim tókst
aðeins að skora 2 mörk, og bæði
snernma í hálfleiknum.
Breiðabliksmenn voru nú mun
lakari en í leiknum við ísafjörð
"á dögunum. Það vantaði alla
snerpu í liðið og vamarmenn
voru sér í lagi eitthvað miður
sín. Eg held að það sé rangt að
láta Guðmund leika í stöðu út-
herja, hann nýtisf áreiðanlega
betur sem innherjL
Lið Í.B.V. er harðskeytt og á
köflum ýf harðskeytt. Þeir era
ákveðnir og ófeimnir við að
skjóta á mark.
Dómari var Steinn Guðmunds-
son og kom hann vel frá þessum
leik.
— R.M.
Sambandsþing
UMFÍ.
24. samibandsiþing Unigmenna-
félags íslands verður haldið I
sambamdi við landsmótið á
Laugarvatni dagana 1. o.g 2. júlL
Þingið verður sett í samkomusal
menntasikólans á fimmtudag kL
4 e.ih. Þingslit fara fram á föstu-
dag.
Rétt til þinigisetu eiga 74 fu'll-
trúar og samlbandsstjórn.
Nokkrir gestir eru boðnir.
A'ðalmiái þingsins eru: félags-
mái, ilþróttamáil og starifsiþróttix,