Morgunblaðið - 04.07.1965, Qupperneq 31
MORGUNBLADID
31
Sunnudagur 4. júlí 1965
Halifax
Framhald af bls. 32
flotinn líka að leita á suðlæg-
ari mið. Rússar tóku að veiða
þar ýsu, síld og silfurlýsu.
Jókst þá veiðin syðst á svæð-
inu af þessari sókn.
í stuttu máli má segja, að
heildarveiðin á öllu svæðinu
hafi þó aukizt, fyrst og fremst
fyrir aukna sókn í tegundir,
sem ekki voru veiddar áður,
þ.e. síld og silfurlýsu.
Flestir þorsk- og ýsustofn-
arnir hafa þegar gefið há-
marksveiði. Eina undantekn-
ingin eru þorsstofninn við
Labrador. >ví er ekki hægt að
gera ráð fyrir auknum heild-
arafla á þorski og ýsu á þessu
svæði, þó að sóknin aukist“.
— Hverjar afleiðingar getur
þetta ástand haft framvegis?
„Ekki hefur tekizt að á-
kveða með vissu hlutfallið
milli sóknar og afkastagetu
karfans á svæðinu, m.a. vegna
erfiðleika á því að ákvarða
aldur karfa. Þó er haldið, að
aukin sókn hafi í för með sér
minnkandi aflamagn á sóknar
einingu, t.d. 100 togtíma.
Lögð var fram skýrsla fiski-
fræðinga um þetta mál. Þar
kemur fram einróma álit um,
að hámarksarði sé náð, og í
skýrslunni er hugleiðing um
friðunaraðgerðir, sem hægt sé
að grípa til, og talið, að frek-
ari aukning á möskvastærð
muni ekki koma að notum.
Vísindamönnum virðist, að
heppilegasta leiðin til að við-
halda hámarksafla sé beinlínis
takmörkun heildarveiðanna, þ.
e. tekið verði upp kvótakerfi.
Þó er bent á, að framkvæmd
þessa kerfis yrði mjög erfið,
sérstaklega vegna tíðra og ó-
reglulegra breytinga á stærð
stofna, sem stafa af missterk-
um árgöngum. Því þurfi frek-
ari rannsóknir, ef vísindalegt
kvótakerfi eigi að komast á.
Þetta var þýðingarmesta
mál, sem lá fyrir, vegna fram-
+— tíðarinnar. Fulltrúarnir fóru
þó allir ákaflega varlegum orð
um um það, og enginn vildi
skuldbinda sig beint. Sú ósk
kom þó fram, að málið yrði
gaumgæfilega rætt hjá einstök
um aðildarþjóðum, svo að
skýrari afstaða einstakra aðila
gæti komið fram á næsta
fundi, að ári.
Það er greinilegt, að rann-
sóknir á fjárhagseðli á fisk-
veiðunum eru ekki eins
langt komnar á þessu sviði
og fiskirannsóknir, og
þyrfti að reyna að brúa það
bil“.
— Voru nokkrar aðrar ráð-
stafanir ræddar, sem komið
gætu þarna að liði?
„Lítillega var rætt um al-
þjóðlegt eftirlit á svæðunum.
Umræðum um slík mál er þó
lengra komið í NA-svæðis-
nefndinni (sérstök nefnd er
þar starfandi undir forystu
Davíðs Ólafssonar, fiskimála-
stjóra). Hefur verið ákveðið,
að þjóðir, sem ekki eiga aðild
að NA-nefndinni fái þar að-
gang að fundum, og reynt
verði að leysa þessa hlið mál-
anna í einu lagi, sameiginlega.
Það verður þó að taka fram
í þessu sambandi, að veiðar
okkar fslendinga hafa verið
tiltölulega litlar, miðað við
heildarveiðina, síðustu árin. f
fyrra var okkar veiði 4300
tonn af karfa, og svipað magn
af þorski. Þorskurinn veiddist
mest við V-Grænland, en karfi
við Nýfundnaland.
Nauðsynlegt er þó fyrir okk
ur íslendinga að fylgjast vel
með öllu því, sem gerist á NV-
svæðinu, sérstaklega ef tekin
yrði upp skömmtun, sem eng-
in ákvörðun hefur þó verið
tekin um“.
Síldarstúlkur
Nokkrar vanar stúlkur vantar til síldar-
söltunar að Haföldunni, Kaufarhöfn.
Upplýsingar í síma 12298.
Ólafur Óskarsson.
Síldarstúlkur
Nokkrar vanar stúlkur vantar til sfldar-
söltunar að Óskarsstöð, Iiaufarhöfn.
Upplýsingar í síma 12298.
Ólafur Óskarsson.
Ódýrt - Góð kaup
Sængurver
Koddaver
Handklæði
Þvottapokar
Vinnuskyrtur
Drengjaskyrtur
kr. 190,00
— 36,00
— 29,50
— 10,00
— 146,00
— 92,00
Nærfatnaður karla og kvenna.
SIGLUFJ ARDARFLUG
FLU6SÝNAR h.f.
HÖFUM STAÐSETT 4 SÆTA
FLUGVÉL A SIGLUFIRÐI
farþegaflug
varah lutaflug
SJÚKRAFLUG
Gestur Fanndal, kaupmaður
SIGLUFIRÐl
Soffia, fyrrum Grikkjaprinsessa, með manni sínum Juan Carlos og dætrum tveim, Eleno,
eins og hálfs árs og Cristinu( sem heitir fullu nafni Cristina Federica Victora Anb»nia
de la Santisima Trinidad og telst ekki óheyrilega langt nafn þar í landi), mánaðar-
gamalli Oq nýskírðrL
Og ekki
í þetta
sinn
varð það sonur
essu, sem einnig gera sér
vonir um að verða kóngur og
drottning á Spáni þegar
Franco fellur frá.
Þau írena og Hugo hafa
reyndar ekkert barnið átt
enn, en rúmt ár er nú liðið
síðan þau giftust. Carlistum,
fylgjendum Hugo þykir þó
ekki halla á þau hjón meðan
Soffía og Juan Carlos eiga
engan soninn, því það er upp
haf tiJkalts Carlista trl kon-
ungdæmis að þeir vildu ekki
hlíta settum lögum um að
konungsdæmi á Spáni mætti
erfast í kvenlegg jafnt og
karlegg.
SVO mikið veður hefur verið
gert út aí væntanlegum ríkis-
arfa í Grikklandi og svo
mikið um Önnu Maríu og
Konstantin rætt og ritað, að
eldri systir Konstantíns,
Soffía, sem gift er Juan
Carlos, þeim er talinn er lík-
legastur til ríkrserfða á
Spáni, íékk að ala annað barn
sitt sem næst laus við ásókn
og umtal allra þeirra sem
aldrei geta séð kóngfólk í
friði. Ekki er að efa, að þau
Soffía og Juan Carlos hafa
verið friðinum fegin, kannske
enn fegnari þegar barnið var
í heiminn bórið og reyndist
önnur dóttirin til.
Það fer ekki milli mála, að
Soffía hefði heldur viljað ala
manni sínum son, einkum
vegna þess að sonur myndi
styrkja aðstöðu þeirra gagn-
vart Carlosi Hugo hinum
navarrska og konu hans,
írenu, fyrrum Hollandsprins-
írena, fyrrum Hollandspri nsessa, meil manni sínum, Car-
los Hugo, sem margir Spánverjar vilja heldur fá fyrir
konung en Juan Carlos.
\
— Vief Cong
Framhald af bls. 1
ir í dag að sprengjuárás Banda
ríkjamanna á Nam Dinh sé nýtt
og alvarlegt skref í áttina til
þess að breiða styrjöldina út.
Verði Bandaríkjastjórn að taka
afleiðingum gerða sinna. „Því
meira, sem bandarísku árásar-
seggirnir færa út styrjö'dina,
því ákveðnari verða N-Vietnam
og Þjóðfrelsishreyfing S-Viet-
nam í barátva sinni“, segir í til-
kynningu Hanoi-stjórnarinnar.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
Agústs sigurmundssonar
myndskera,
sem andaðist 28. júní síðastliðinn, fer fram þriðjudag-
inn 6. þ.m., kl. 3 síðdegis frá Dómkirkjunni.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Elínborg Sigurjónsdóttír,
Auður Agústsdóttír,
Elín Ágústsdóttir,
Sigurður Ágústsson.