Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 10
10 MORGUNBLADID Þriðjudagur 28. sept. 1965 Hvernig komiö vnr í veg íyrir þriöju heimsstyrjöldina HÖFUNDUK þessarar grein ar% Theodore Sorensen, sem var nánasti trúnaðarmaður og samstarfsmaður Kenne- dys Bandaríkjaforseta, er að skrifa bók um forsetatíð hans. Brezka blaðið Observ- er hefur birt kafla úr bók- inni, sem verður væntanlega gefin út innan skamms. Hér segir Sorensen frá hinum ör- lagaríku dögum í október- mánuði 1962 er veröldin var á barmi k'arnorkustyrjaldar vegna þess, að Rússar höfðu komið upp eldflaugastöðv- um á Kúbu, Bandaríkja- mönnum, og öllum heimin- um, að óvörum. Að Kenne- dy sjálfum undanskildum hafði enginn betri aðstöðu til að fylgjast með því sem raunverulega gerðist þessa ógnþrungnu októberdaga en Ted Sorensen. Fyrrihluti greinarinnar fer hér á eftir: Þann 9. október samþykkti forsetinn könnunarflug U-2 þotu yfir vesturhluta Kúbu, en persónulega heimild hans þurfti fyrir sérhverri könnunarferð U-2. Aðaltilgangur könnunar- flugsins var að afla upplýs- inga um sovézkar eldflaugar af S.A.M.-gerð, sem fyrst höfðu fundizt við ljósmyndun úr lofti í lok ágústmánaðar. Fluginu seinkaði vegna veð- urs þar til 14. október, en þann heiðskíra sunnudag flaug U-2 (þotan hátt yfir vesturhluta Kúbu. Hinar longu filmur voru framkallaðar þá um nóttina og þær voru rannsakaðar nákvæm lega og bornar saman við fyrri myndir. Allan mánudaginn voru þær grandskoðaðar á nýj- an leik af ijósmyndasérfræð- ingum leyniþjpnustu Banda- ríkjastjórnar. Seint þá um dag- inn tóku þeir eftir fyrstu fram- kvæmdum við byggingu sov- ézkrar eldflaugastöðvar á San Cristobal svæðinu. Mánudagskvöldið 15. október voru sérfræðingarnir næstum íullvissir um niðurstöðuna. — Milli klukkan 8 og 10 þá uf kvöldið var æðstu yfirmönnum bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) gert aðvart og þeir gerðu fyrir sitt leyti aðvart yfirmönn um upplýsingadeilda varnar- xnálaráðuneytisins og utanríkis- ráðuneytisins, svo og McGeorge Bundy, sem var á heimili sínu. Bundy gerði sér þegar grein fyrir því, að hér var ekki um að ræða óstaðfestar sögusagnir flóttamanna eða minniháttar at burð. Hann ákvað samt sem áð- ur — og réttilegá að mínum dómi — að hringja ekki til for- setans, heldur að gefa honum persónulega nákvæma skýrslu næsta morgun. Um klukkan 9 á þriðjudags- morgun sagði Bundy forsetan- um fréttirnar, þegar.hann var að líta yfir dagblöðin í svefn- herbergi sínu, én Bundy hafði áður aflað sér ítarlegra upp- lýsinga frá yfirmönnum CIA. Þótt Kennedy reiddist Krústjov fyrir þessa tilraun til að blekkja hann tók hann fréttun- úm með rósemi ,en lýsti undrún sinm. Hann hafði ekki búizt við því, að Sovétríkin aðheföust neitt með svo miklu kæruleysi á stað eins - og Kúbu. Hann hafðr fallizt — ef til vili of auuveldlega, þegar litið er aftur í tímann — á þá .skoðun sér- fræðinganna að slík dreifing kjarnorkuvopna væri í algjörU ósamræmi við stefnu Sovét- ríkjanna. Hvernig sem öðru leið þá var þessi möguleikj ekki nýr. Hann hafði fyrirskipað könnunarflug einmitt í þessum tilgangi. Heiti hans um að bregða þegar við var ekki framhjá komizt. Hann bað Bundy að leggja fram sönn unargögnin tvívégis þann morg un — fyrst fyrir forsetann ein- an og svo fyrir ákveðna emb- ættismenn, sem hann bað Bundy að kalla saman. Þegar hahn kom til skrifstofu sinnar skömmu síðar sendi hann eftir mér og sagði mér tíðindin. Hann bað mig um að koma á fundinn, sem halda átti klukkan 11.45 árdegis í fundar- herbergi ríkisstjórnarinnar, og nota tímann þangað til til að fara yfir opinberar yfirlýsing- ar hans um, hver yrðu við- brögð okkar gagnvart árásar- eldflaugum á Kúbu. A þeim tíma, sem hann gaf þessar yfir- lýsingar, hefur hann ef til vill efazt um, að hann yrði nokkru sinni neyddur til að framfylgja þeim. En klukkan 11 árdegis hvarf allur efi, þegar næstráð- andi CIA breiddi úr stækkuð- um U2 Ijósmyndum fyrir fram- an hann og þær voru útskýrðar af sérfræðingi. Sovézku eld- flaugarnar voru þarna. Skot- mál þeirra og tilgangur var til árásar og þær yrðu fljótlega tilbúnar til notkunar. Klukkan 11.45 árdegis hófst fundurinn í fundarherbergi rík isstjórnarinnar. Þeir, sem kvadd ir höfðu verið saman sam- kvæmt persónulegum fyrirmæl um forsetans, voru helztu. með- limir þess, sem síðar var kall- að framkvæmdanefnd öryggis- ráðs ríkisins, einir 14 eða 15 menn, sem áttu lítið sameigih- legt ánnað en að forsetinn ósk- aði eftir áliti þeirra. Þeirra á meðal voru: Dean Rusk, utan- ríkisriðherra, og aðstoðarráð- herra, og aðstoðarráðh. hans, Roswell Gilpatric, John Mc- Cone, yfirmaður leyniþjónust- unnar (CIA), Robert Kennedy, dómsmálaráðherra, D o u g 1 a s Dillon, fjármálaráðherra, og tveir ráðgjafar forsetans í Hvíta húsinu, Bundy og ég sjálfur. Varaforsetinn, Lyndon Johnson, sótti fyrstu og síðustu fundina. Nokkrir aðrir komu á þessa fundi við og við, til dæm- is Dean Acheson og Adlai Stev- enson. Á þessum fundi sá ég í fyrsta skipti hinar miklvægu ljós- myndir, þegar Carter, hers- höfðingi, og ljósmyndasérfræð- ingar hans lýstu sönnuargögn- unum. í ljós kom, að strik, sem varla mátti greina berum aug- um, voru farartæki, lyftitæki og eldflaugavagnar. A súmum þeirra voru 73 feta langar eld- flaugar. Forsetinn sagði, að þær líktust bolta á leikvelli. Carter sagði, að meðallangdrægar sov- ézkar eldflaugar gætu náð til skotmarka í 1100 sjómílna fjar- lægð. Þær næðu því til Was- hington, Dallas, Canaveral- höfða, St. Louis, allra bæki- stöðva SAC (Strategic Air Command) og borga allt þar á milli. Það var talið, að stöðvar fyrir 16—24 eldflaugar yrðu til- búnar á tveim vikum. Ljós- myhdirnar sýndu engin merki um, að á þessu svæði væru geymdar kjarnorkuhleðslur, en enginn efaðist um að þær væru þar eða yrðu það fljótlega. Forsetinn var þungbúinn, en þó athugull. Fyrstu fyrirmæli hans voru um meiri myndatök- ur. Við urðum að vera fullviss- ir og vita, hvað var að gerast á ailri eynni. Það varð jafnvel að fást örugg vitneskja um, að ekki væri um stórkostlegt gabb að ræða. Daglegt könnunarflug var fyrirskipað og það átti að ná til allrar eyjunnar. Önnur fyrirskipun Kennedys var, að allir viðstaddir legðu til hliðar önnur verkefni og gerðu þegar rækilega og víð- tæka könnun á, hvaða aðgerða væri unnt að grípa til og hvaða hættu þær hefðu í för með sér. Aðgerðir máttu ekki bíða. Fleiri fundir voru skipulagðir. Jafnvel á þessum fyrsta fundi var rætt lauslega um þá kosti, sem fyrir hendi voru. Það var ekki komizt að neinni niður- stöðu, en útlitið var aivarlegt. Þriðja fyrirskipun forsetans var um strangan þagnareið okkar allra, þar til bæði stað- reyndirnar í málinu og mótað- gerðir okkar yrðu tilkynntar opinberlega. Hanh lagði ríka á- herzlu á, að upplýsingar, serh lækju út um málið of fljótt, gætu flýtt fyrir næsta leik Sov- étríkjana eða valdið ótta al- mennings í Bandaríkjunum áð- ur en við værúm reiðubúnir að hefjast handa um aðgerðir. Af þeim ástæðum yrði útilokað að lýsa yfir neyðarástandi í land- inu, kalla út varalið eða hefja viðræður fyrirfram við banda- lagsríkin. Hann hafði þegar þenr.an morgun gefið í skyn á yfirborðinu að allt væri með eðlilegum hætti. Hann hafði tek ið á móti geimfaranum Walter Schirra, eins og áætlað hafði verið, og farið með hann og fjölskyldu hans á bak við Hvíta húsið til að sjá hesta Caroline og einnig hafði hann tekið á móti nefndinni, sem hann skip- aði til áð fjalla um málefni vangefinna. En jafnvel á meðan hann sinnti ýmsum öðrum skyldum sínum hugsaði forsetinn aðeins um, til hvaða aðgerða hann skyldi grípa, heldur einnig hvers vegna Sovétríkin höfðu á svo róttækan og hættulegan hátt horfið frá hinni venjulegu hegðun sinni. Á fundum okkar var komið fram með nokkrar kenningar, sem sumar voru of langt sóttar og sumar sjálfum sér ósamkvæmar: . Kenning 1. Pólitík kalda stríðsins. Krústjov trúði því, að bandaríska þjóðin væri of kjark laus til að hætta á kjarnorku- styrjöld og hugsaði of mikið um lagalegan rétt til að geta réttlætt það að gera nokurn mismun milli erlendra eld- flaugnastöðva okkar og hans sjálfs. Þess vegna þegar við stæðum raunverulega gagnvart eldflaugastöðvunum myndum við ekki aðhafast neitt nema mótmæla og virðast þannig veikir og óákveðnir í augum heimsins. Það myndi hvetja bandamenn okkar til að efast um loforð okkar og gefa komm únistum byr undir báða vængi, sérstaklega í Suður-Ameríku. Bohlen (ambassador í Frakk- landi) sagði, að það hafi verið orðtak Lenins í sambandi við landvinningastefnu, að hitti byssustingurinn stál fyrir skyldi hörfað, en hitti hann á sag skyldi sótt fram. Kenning 2. Gildra til sundr- ungar. Ef Bandaríkin brygðu við, væntanlega með því að ráð ast á hina „litlu“ Kúbu, myndi það valda klofningi meðal bandamanna. Sameinuðu þjóð- irnar yrðu skelfingu lostnar og Suður-Ameríkuríkin andsnún- ari Bandaríkjunum en nokkru sinni fyrr. Kraftar okkar yrðu sundraðir á meðan Krúsjov snerist í skyndi gegn Berlín. Kenning 3. Varnir Kúbu. Sovézkt leppríki L. Vesturheimi var svo mikilvægt fyrir Krú- sjov — bæði vegna útþenslu- stefnu hans og vegna samkeppn innar við Kína — að hann gat ekki leyft því að falla. Innrási frá Bandaríkjunum eða hinum óvinveittari ríkjum Suður- Ameríku, sem virtist óhjá- kvæmileg ef hrun yrði á Kúbu innan frá, varð að koma í veg fyrir hvað sem það kostaði. Mikoyan hélt því fram í einka- viðræðum við forsetann mörg- um vikum eftir að málið var um garð gengið, að vopnin væru einungis til varnar og þau hefðu verið réttlætanleg vegna hót- ana um innrás, sem hefðu verið bornar fram af Richard Nixoa og „hershöfðingjum varnar- málaráðuneytisins". Kenning 4, Verzlun. Krusjov ætlaði sér að verzla með þess- ar stöðvar á toppfundi meS Kennedy, eða innan Sameinuðu þjóðanna, til að fá framgengt sinni eigin lausn á Berlínar- vandamálinu eða fá Bandaríkja menn til að leggja niður her-r stöðvar erlendis. Kenning 5. Eldflaugaveldið. Sovétríkin gátu ekki lengur hagnazt á þeirri sögusögn, að þau réðu yfir meiri og betri eld flaugum en Bandaríkin. Það var of dýrt að ná Bandaríkjun um í smíði langdrægra eld- flauga eða koma eldflaugum fyr ir í kafbátum. Með því að byggja stöðvar á Kúbu fyrir hinar meðaltangdrægu eld- flaugar, sem þeir áttu fyrir, Framhald á bis. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.