Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.09.1965, Qupperneq 17
ÞriSjuðagör 28. aept. 1965 MORCUNBLAÐIÐ 17 Sjötugur í dag: Kristinn Ármannsson, frv. rektor Doctrina sed vim promovet insitam rectique cultus pectora raborant Hor. carm. IV. 4. 33. IÆNGI höfðu menn deilt um Iþað, áður en Hóraz orti þetta ljóð, hvort mætti sín meira, uppleg eða uppeldi. Hóraz ætlar eér heldur ekki þá dul að skera úr þeirri deilu. Engan veginn vill hann gera lítið úr náðargjöf- um náttúrunnar, en hann bætir við: „Menntunin ein fær komið meðfæddum hæfileikum til þroska og rétt uppeldi fyllt brjóstið manndómi og þrótti“. í anda þessara orða hins róm- Verska skáldspekings hefur Kristinn Ármannsson rektor, sem vér í dag hyllum sjötugan, innt af hendi langt og merkilegt kennarastarf. Við tvær helztu menntastofnanir þjóðarinnar, Há- skóla íslands og Menntaskólann í Reykjavík, hefur hann haldið á loft merki klassískra fræða. 1 fjörutíu og tvö ár er hann búinn að kenna latínu við Menntaskólann og grísku við Háskólann i fjörutíu ár. Hinum upprennandi menntamönnum vorum hefur hann þannig á undanförnum áratugum veitt trausta leiðsögn í þeim fræðum, sem að flestra dómi eru lykill að uppsprettulindum evrópskrar menningar. Starf hans hefur miðað að því að gera nemendur færa um að greina hismið frá kjarnanum, svo að þeir gætu orð- ið andlega sjálfstæðir og sjálf- (bjarga. Kristinn Ármannsson mun hafa byrjað að kenna við Mennta- skólann sama haustið, sem ég og mín bekkjarsystkin settumst í 1. bekk. Eigi duldist oss, hrif- næmum unglingum, að þessi nýi kennari bar oss með fram- komu sinni og kennslu boð frá menningarheimi, sem var glæsi- legri og fágaðri en sá, sem vér áttum þá að venjast í hinni ís- lenzku höfuðborg. Þokkadísirnar þrjár, góðvild, ljúfmennska og lítillæti hafa heldur aldrei sagt skilið við lærdóm Kristins Ár- mannssonar og hafa átt drjúgan þátt í að gæða kennslu hans einstaklega hugþekkum blæ. En Þó að allt væri lygnt á yfirborð- inu, þá urðum vér brátt varir við hinn þunga, djúpa straum alvöru, sámvizkusemi og alúðar, sem æ síðan hefur einkennt kennslu Kristins Ármannssonar og allt skóiastarf. Síðar lágu leiðir okkar saman aftur bæði við próf og við út- gáfústörf. Hef ég á þeim vett- vangi oft haft tækifæri til að dást að nákvæmni Kristins Ár- mannssonar, gerhygli hans, óbilandi elju og þrautseigju samfara miklum lærdómi. Og þessi maður, sem var svo ljúfur og mildur í samskiptum sínum við aðra, var harður og strang- ur við sjálfan sig, Jafnvel þótt hann gengi eigi ávallt heill til skógar, lét hann hvergi bilbug á sér finna. Verkið varð fram að ganga samkvæmt áætlun, hvað sem tautaði. Hér er skýr- jngin á því, hve mikið iiggur eftir Kristin Ármarinsson, þótt ritstörf sín hafi hann orðið að inna af hendi í fáum og strjál- um frístundum frá lýjandi kennslustörfum. Hvað var eðlilegra og sjálf- sagðara, þegar litið er á hinn langa og gagnmerka kennara- feril Kristins Ármannssonar, en að honum væri falið rektors- embættið, þegar það sæti varð autt með sviplegum hætti? í þeirri gömlu, en vandasömu virðingarstöðu hefur notið sín vel hin hávaðalausa festa, sem jafn- an hefur einkennt allt skólastarf hans. En ef ég þekki Kristin Ár- haanrisson rétt, þykist ég vita, að honum muni lítt um það gefið, að hlaðið sé á hann miklu lofi, i jafnvel þótt borið sé fram af heilum hug. Aiskýlas lætur Aga- memnon segja: „Ég vil vera virt- ur sem maður, en eigi tignaður sem Guð“. Og tæplega er hægt að hugsa sér nokkurn mann, sem ólíklegri væri en Kristinn Ár- mannsson til að drýgja hybris, synd hrokans og ofmetnaðarins, sem Grikkir töldu svo háskalega. Eins og að líkum lætur, hafa Kristni verið falin mörg trún- aðarstörf á sinni löngu og far- sælu starfsævi, bæði af stéttar- bræðrum sínum og opinberum stjórnvöldum, sem of lóngt yrði upp að telja. Auk kennslustarf- anna, er áður var getið, kenndi hann um langt skeið dönsku við ríkisútvarpið og ensku við Verzlunarskóla íslands. Við Verzlunarskólann hefur hann einnig verið stjórnskipaður próf dómari á stúdentsprófi, síðan farið var að brautskrá stúdenta þar. Hann var skipaður í milli- þinganefnd í skólamálum 1943- 1946. Sú nefnd lagði grundvöll að fræðslulögum þeim, sem síð an hafa gilt. Og nú er Kristinn formaður menntaskólanefndar- innar svonefndu, sem falið hefur verið að endurskoða námsefni menntaskólastigsins. Við öll þessi vandasömu störf hafa notið sín vel víðsýni Kristins og sann- girni, frábær eljusemi hans og lagni. Oft hef ég verið tíður gestur á heimili Kristins rektors Ár- mannssonar og hans ágætu konu, frú Þóru Árnadóttur. Hefur hvorki mér né öði'um getað dulizt, hve þokkafullur blær hvíldi yfir öllu innan þeirra helgu vébanda. Hefur verið auð- séð, að hlutur húsfreyju var að sýnu leyti á þeim vettvangi sambærilegur við störf hús- bóndans út á við. Hafa mér þá stundum komið í hug orð þau, er Odysseifur mælti til Násíku: „En guðirnir veita þér allt, er þú æskir í hjarta þínu, og gefi þér mann og hús og gott sam- lyndi; því ekkert er betra og ágætara en þegar maður og kona búa í húsi saman samlynd í hugum: er það stór skapraun óvinum þeirra, en gleði vinum þeirra, en bezt hafa þau af því sjálf“. Það er eins og þessi forna og fagra orðheill hafi fylgt þeim ágætu hjónum, Kristni Ármanns- syni rektor og frú Þóru Árna- dóttur, allt frá upþhafi og fram á þennan dag. Veitum því at- hygli, að þar sem Sveinbjörn þýðir: „en bezt hafa þau af því sjálf“, stendur í frumtextanum: „en bezt heyra þau það sjálf“. Oss kemur í fyrstu einkennilega fyrir sjónir, að í þessu sambandi skuli notuð sögnin að „heyra“. En hugsun skáldsins er sjálfsagt sú, að hjónin „heyri“, þ.e. „skynji" eða „nemi“ bezt sjálf mál sinna hjartna. Og ætli Hóm- er hafi ekki hér, sem oftar, hitt naglann á höfuðið. Á vorum dögum getur sjötugur maður átt von á að lifa í mörg ár við góða heilsu. Þó að Krist- inn Ármannsson láti nú af rekt- orsembætti,' mun hann ei við- fangsefni skorta, ef honum endist líf og heilsa, sem vér öll óskum af heilum hug. Enn á hann vonandi eftir að lifa marga yndislega daga, bæði á voru ætt- landi og einnig undir suðrænni sól. Þegar Kristni verður hugsað um Grikkland, gæti hann sjálf- sagt tekið sér i munn orð Hór- azar: Ille terrarum mihi praeter omnis / angulus ridet. „Það er sá blettur á jarðríki, sem hlær við mér öllum öðrum frernur". — En ég veit líka, að hann gæti sagt með Hallsteini Þengilssyni í hvert sinn, er hann ber aftur að fósturjarðarströnd- um: hlæja hlíðir við Hallsteini“. En þegar vér erum að lokum þangað komnir, sem þeir eru fyrir „faðir Eneas, Tullus hinn auðgi og Ancus“, Quo pater Aeneas quo Tullus dives et Ancus, þá kemur oss aðeins að haldi, segir skáldið, það sem vér höfum unnið sál vorri til heilla: Kristinn Armannsson amico / quae dederis animo. Óbrigðult einkenni hinna and- legu auðæfa er það, að af þeim stafar þeim mun meiri blessun, sem fleiri fá hlutdeild í þeim. Um þau gildir því ekki málshátt- urinn: „Eyðist það, sem af er tekið“. Meginverkefni Kristins Ár- mannssonar um ævina, eins og raunar allra góðra kennara fyrr og síðar, hefur verið að veita öðrum hlutdeild í andlegum auði. Slíkt er hvort tveggja í senn kærleiksverk og þjóðnýtt starf. Um leið og ég þakka þeim ágætu hjónum Kristni Ármanns- syni rektor og fnú Þóru Árna- dóttur ágæt kynni, þakka þeim langt og heillaríkt starf í þágu æskulýðs þjóðar vorrar, árna ég þeim gæfu og farsældar á ókomnum árum. Undir þær óskir veit ég að margir munu taka. Jón Gíslason. Bohdan Wodiczko P Ó L S KI hljómsveitarstjórinn 3ohdan Wodiczko, sem ráðinn hefir verið aðalstjómandi Sin- fóníuhljómsveitar íslands í vet- ur, á að baki mjög merkilegan og viðburðaríkan starfsferil, þótt hann sé aðeins rúmlega fimmtugur að aldri. Hann hefir skipað ^ýmsar mestu virðingar- og ábyrgðarstöður í pólsku tón- listarlífi og oft hefir staðið um hann mikill styr. Á árunum 1955-58 var hann forstjóri og aðalstjórnandi Fílharmonísku hljómsveitarinnar í Varsjá, og nú síðast, frá 1961, forstjóri Ríkisóperunnar í Varsjá. Báðar þessar mikilsverðu Stofnanir end urskipulagði hann frá grunni, og munu þær lengi að því búa. En á milli þess sem hann gegndi þessum háu embættum í heima- landi sínu starfaði hann m. a. eitt ár hér á íslandi (1980-61) og var aðalstjórnandi Sinfóníu- hljómsveitarinnar þann vetur. Bohdan Wodiczko er fæddur í Varsjá árið 1912. Faðir hans og afi voru báðir tónlistarmenn, og var hirm síðarnefndi inn- fluttur til Póllands frá Bæheimi. Bohdan Wodiczko byrjaði ungur nám í fiðluleik, en lærði síðan tónfræði og að leika á píanó og sláttarhljóðfæri við Tónlistarhá- skólann í Varsjá. Tvítugur að aldri fór hann til Prag og lærði þar hljómsveitarstjórn, m. a. hjá hinum fræga tékkneska stjórn- anda Waclaw Tilich, sem sjálfur hafði verið nemandi Nikisch. Jafnframt stundaði hann nám í tónsmíði. Að þrem árum liðnum hvarf hann aftur til Varsjá, og 1939 lauk hann tvöföldu prófi við Tónlistarháskólann þar, bæði í hljómsveitarstjórn og tónsmíði. Hrakningar styrjaldarinnar end uðu fyrir Wodiczko í þýzkum nauðungarvinnubúðum, þar sem smíðaðar voru eldflaugar. En frá styrjaldarlokum hefst hinn raun verulegi starfsferill hans. Á næstu árum stjórnar hann hverri eftir aðra Fílharmoníuhljótri- sveitunum í Sopot (1945-49), Lodz (1949-51), Krakau (1952-55) og loks frægustu hljómsveit Póllands, Fílharmoníusveitinni í Varsjá (1955-58). Auk þess var hann um tíma samstarfsmaður G. Fitelbergs við pólsku útvarps hljómsveitina í Katowice. Eins og áður er vikið að, hafa orðið talsverðar deilur um störf Wodiczkos. Hann hefir átt marga ákafa stuðningsmenn, en líka marga eindregna andstæðinga. Morgunblaðinu hafa borizt þýð- ingar á nokkrum greinum um hann úr pólskum blöðum og tímaritum. Þar segir m. a.: „Hann breytti vinnuaðferðum hljómsveitanna, menntaði áheyr- endur og víkkaði sjónhring þeirra. Verkefnavalið varð fjöl- breyttara en áður og náði til fjölda tónverka eftir samtíma- höfunda, sem ekki höfðu fyrr verið flutt....Eitt bezta verk Wodiczkos, sem mun verða í minnum haft, er það, að hann kynnti tónlistarunnendum í Varsjá, sem á þeim tíma voru algerlega einangraðir frá höfuð- stöðvum tónlistarinriar í Vestur- Evrópu, hið merkasta af sinfón- ískum tónverkum áranna 1935-55. V Þessi kynning hélt áfram í þrjú ár. Á sama tíma voru fluttar nýjustu tónsmíðar pálskra höf- unda og hin ágætustu klassísku tónverk. Vorið 1958 fór Fíl- harmoníusveitin frá Varsjá tón- leikaför til útlanda, á heimssýn- inguna í Brússel, til Vestur- Þýzkalands og loks til Englands. Henni var hvarvetna tekið með miklum fögnuði, og gagnrýn- endur útlendra blaða voru hrifn- ir. Eftir héimkomuna var Wod- iczko sagt upp stöðu sinni sem forstjóri hljómsveitarinnar og að alstjórnandi.“ Eftir þetta starfaði Wodiczko á ýmsum stöðum í Póllandi og loks hér í Reykjavík sem áður segir veturinn 1960-61“ Var gert ráð fyrir, að hann yrði hér ann- að ár, en þá var hann skyndi- lega kallaður heim til að takast á hendur yfirstjórn óperunnar í Varsjá. Hún átti þá skömmu síð- ar að flytjast í nýja stórbygg- ingu og þurfti endurskipulagn- ingar við. „Hver vai þessi atvinnulausi Wodiczko?" segir í einni grein- inni, sem fyrr var nefnd. Og greinarhöfundur svarar sér sjálf- ur: „Hann hafði valdið tímamót- um í pólsku tónlistarlífi, hvorki meira né minna, ráðið mestu um verkefnaval fílharmoníu- sveitanna eftir stríðið, skipulagt og alið upp margar hljómsveitir, rutt brautina nýju tónlistarlífi. .... Áhrif hans voru svo rík, að ótölulegur fjöldi þeirra, sem honum voru andstæðir, hefir hlotið að feta í fótspor hans.“ Framhald á bls. 23. Bohdan Wodiczko

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.