Morgunblaðið - 17.10.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.10.1965, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLADID Sunnudagur 17. október 1965 Geir Konráðsson, kaup- maður — Mmning EINN hihna gömlu, góðu Reyk- víkinga, einn af stofnendum Knattspyrnufélags Reykjavíkur 1899, heiðursfélagi þess félags frá 1929, Geir kaupmaður Kon- ráðsson, er fallinn í valinn. Þessi hógværi, sí-vinnandi og sí-glaði drengskaparmaður hefur nú lok- að augunum sínum mildu og fögru í hinzta sinn. Var hann far- inn að heilsu tvö síðustu árin, sem hann lifði, svo að dauðinn boðaði honum líkn og kærkomna lausn. Andaðist hann 10. þ.m. Hefði hann orðið áttræður 6. marz n.k., því að þann dag var hann fæddur, árið 1886. Foreldar Geirs voru Ragn- heiður Símonardóttir, bónda í Laugardælum, Bjarnasonar og Konráð Maurer Ólafsson, bók- haldari í Reykjavík. Stóðu þannig að honum góðar ættir. Bræður frú Ragnheiðar, móður Geirs, voru þeir Guðni gullsmið- ur Símonarson á Óðinsgötu 8 B, orðlagt góðmenni, og Björn Símonarson, gullsmiður og kaup- maður, sem Björnsbakarí er við kennt.- Voru þeir bræður miklir mannkosta- og merkis- menn og völundar að hagleik. Sjálf var frú Ragnheiður ein hin mesta ágætiskona, sem ég hef kynnzt. Hún var svo göfug og gagnmerk til orðs og æðis, ag hún mun fáa sína líka hafa átt. Frú Ragnheiður missti mann sinn, er synir hennar voru enn í bernsku. Æðrulaus barðist hún þá hinni góðu baráttu fyrir upp- eldi og menntun sona sinna, Kon- ráð Ragnars Konráðssonar, síðar læknis, og Geirs, sem nú er ný- látinn. Fósturson átti hún líka, Agúst Jónsson, bakarameistara, Njálsgötu 65. Konráð, faðir Geirs, var sonur Ólafs Ólafssonar, sem ættaður var úr Skagafirði og var um tíma dyravörður latínuskólans, og Jarðþrúðar Pétursdóttur á Steinsstöðum. Var það snotur bær, sem stóð, þar sem nú er Lindargatan. Eitt af því, sem Geir mundi bezt úr bernsku, var það, er hann fór að heimsækja Jarðþrúði, ömmu sína, á Steins- stöðum. Geir var óðara búinn að ná þar í nagla og hamar og far- inn að reka nagla í gólf og þröskulda hjá gömlu konunni, áður en við var litið. Var gamla konan engan veginn hrifin af þessum smíðum. „Og enn ber hann“, var viðkvæðið hjá henni. Hér sannaðist sem oftar, að snemma beygist krókurinn til þess, sem verða vill. Hagleiks- gáfuna, sem var svo rík í móður- ætt Geirs, hlaut hann í vöggu- gjöf. í rauninni er of vægt að orði kveðið með því að segja, að Geir hafi verið hagur, því að hann var tvort tveggja í senn smiður og listamaður, sem gæddur var óvenjulega næmum og þroskuðum smekk. Geir nam trésmíði hjá Jóni Setberg, trésmíðameistara. Að námi loknu vann hann m. a. hjá Eyvindi Árnasyni, trésmíða- meistara. Var æ síðan mjög kært með Geir og þeim hjónum. Ey- vindi Árnasyni og Soffíu Heil- mann. Þegar Konráð læknir, bróðir Geirs, var settur héraðslæknir á Eyrarbakka árið 1913, fluttust þau Geir og frú Ragnheiður, móðir þeirra bræðra með ungu læknishjónunum, Konráði og frú Sigríði Jónsdóttur, þangað aust- ur. Stundaði Geir iðn sína á Eyrarbakka, unz fjölskyldan flutti aftur suður árið 1917. Keypti Konráð læknir þá hús- eignina Þingholtsstraeti 21, og þar bjó Geir. þangað til hann kvænitst 30. júlí, árið 1927, gekk hann að eiga Guðbjörgu Guð- mundsdóttur, útvegsbónda í Ás- búð í Hafnarfirði, Sigvaldasonar, og konu hans Kristbjargar Ólafs- dóttur, barnakennara, Einarsson- ar á Álftanesi. Með þeim hjónum, Guðbjörgu Guðmundsdóttur og Geir Kon- ráðssyni, var mikið ástríki, enda var hjónaband þeirra einstak- lega farsælt. þó að eigi yrði þeim barna auðið. Eftir að Geir kvæntist, rak hann vinnustofu á Skólavörðu- stíg 5. En árið 1929 keypti hann húseignina á Laugavegi 12. Þar rak hann síðan vinnustofu og verzlun til ársins 1958, er heilsu hans var tekið að hraka. Árið 1935 byggðu þau hjón með öðrum húsið að Laufásvegi 60. Frú Guðbjörg hefur jafnan verið kona híbýlaprúð, en bæði voru þau hjón samhent um að veita gestum sínum vel og höfðing- lega. Eiga því margir góðar minningar frá skemmtilegum sámverustundum á hinu fagra heimili þeirra. Aldrei var Geir glaðari en þegar stofurnar voru fullar af vinum og vandamönn- um. Þá geislaði af honum ánægj- an, enda leið öllum vel í návist hans. Eftir önn dagsins var heimilið honum friðhelgur griða- staður hjá ástríkri eiginkonu. Þangað var sótt þrek og þor til að mæta nýjum degi. Geir var frábær eljumaður og mjög eftirsóttur til starfa, enda féll honum aldrei verk úr hendi, á meðan kraftar entust. Hann sá einnig mikinn ávöxt sinnar iðu, því að hann varð maður vel efnaður. Átti einnig hin ráð- deildarsama og duglega eigin- kona hans ríkan þátt í því, að þeim farnaðist giftusamlega. Mörgum skyldmennum sínum reyndust þau miklar hollvættir. Hafa börn eða unglingar oft dvalið lengri eða skemmri tíma á heimili þeirra. Einkum tóku þau miklu ástfóstri við bróður- son frú Guðbjargar, Guðmund Krstinsson, sem reynzt hefur þeim sem góður sonur. Fyrstu kynni mín af Geir Konráðssyni voru á heimili bróður hans, Konráðs læknis Konráðssonar, þar sem ég dvaldi öll ár mín í menntaskóla. Er mér í fersku minni, hve friðsælt var í stofu frú Ragnheiðar, þar sem við Geir sátum oft á kvöldin. Hvergi kunni ég betur við mig en þar. Þar var að finna þægi- lega samúð, ef ekki lélc allt í lyndi. Og ekki var legið á liði sínu, ef hægt var að greiða úr einhverjum vanda. Var Geir hinn mesti drengskaparmaður og tryggðatröll, eins og hann átti kyn til. Ýmsir listamenn skiptu við hann árum saman, er hann rak innrömmunarvinnustofuna. Bundu sumir þeirra við hann vináttu. þ. a. m. Jóhannes S. Kjarval. Þó að engum gæti komið á óvart andlát Geirs, eins og heilsu hans var farið síðustu árin, þá þykir ástvinum hans engu að síður skarð fyrir skildi. Mestur harmur er auðvitað kveðinn að eftii-lifandi eiginkonu, sem reynd ist honum ævinlega tryggur og ástríkur lífsförunautur, en þó bezt, þegar mest á reyndi. Þó að frú Guðbjörg væri engan vegin heilsuhraust sjálf, hjúkraði hún manni sínum af einstakri ástúð og fórnarlund í hinum löngu og erfiðu veikmdum hans. Fyrir það veit ég, að Geir hefði viljað láta þakka nú fyrir sína hönd sér- staklega. Hitt veit ég einnig, að honum hefði engan veginn verið að skapi, að menn grétu sáran eðlilega brottför hans af þessum lega brottför hans af þessum heimi. Ef nokkur maður getur átt góða heimvon eftir þessa jarðvist, þá er ég sannfærður um, að við þurfum nú ekki að harma hlutskipti Geirs Konráðs- sonar. Jón Gislason. Skorað á aðila að semja um vaktavinnu við Strákaveg Siglufirði, 14. okt.: —• UNDANFARNAR vikur hefir aðeins verið unnið áð gerð Strákavegar með einum vinnu- flokki frá kl. 7 að morgni til 19 að kvöldi, í stað þess, sem fyrirhugað var að vinna með þremur vinnuflokkum í 8 stunda vöktum þannig að unnið væri allan sólarhringinn, Slíkt var talið auðsynlegt til að verk ið ynnist með áætluðum hraða og væri lokið fyrir tilskilinn tíma samkvæmt verkútboði þ.e. 1. október 1966. Orsök þessa er að ekki hefir náðzt samkomulag milli verka- mannafélagsins Þróttrr hér í bæ annars vegar og hins vegar verktaka og vegamálastjórnar- innar. í tilefni af þessu samþykk'i bæjarstjórn Siglufiarðar a fundi sínum í gær óskorun á greinda aðila um að leitast við að ná nú þegar samkomulagi um þessa vaktavinnu svo verktð geti unn izt með eðlilegum hraða. Göngin í Strakavegi eru nú orðin 63 m að Jengi, en er verkinu á að vera lokið veroa þau milli 700 og 800 m. ^ Vantar bílskúr Þá er hann byrjaður að snjóa. Sigluf jarðarskarð og Breiðadalsheiði ófær, aðrir fjall vegir fara óðum að spillast af vatni, sem ýmist rennur í lækj- um og sundurgrefur vegina — eða myndar klakabungur, þegar frystir. Þeir, sem einungis nota bíla sína að sumrinu, eru að setja þá inn um þessar mundir. Að vísu eru þeir tiltölulega fáir, sem geta sett bíl sinn inn í skúr, einfaldlega vegna þess, að bíl- skúr er ekki á hverju strái. Hvarvetna í Reykjavík standa bílar úti hvernig sem viðrar. Við stórar sambyggingar standa þeir í löngum röðum — og þrátt fyrir að reiknað sé með bílskúr- um á flestum byggingarlóðum virðast húseigendur vera harð- ánægðir (eða pyngjan orðin tóm), þegar teppin eru komin út í horn í stofunni. Þannig líða ár og dagar, áratugur frá því að lokið er við smíði íbúð- arhúss þar til byrjað er á bíl- skúrnum. + Furðulegt íslendingar aka yfirleitt í dýrum bílum, því hér eru engir bílar ódýrir aðrir en þeir, sem ekki eru í ökufæru ástandi. Nýir bílar, hvaða nöfn um sem þeir nefnast eru rán- dýrir — og enginn efast um að þeir rýrni fyrr en ella, ef þeir eru látnir standa úti allan árs- ins hring, hvort sem það er rok og rigning, eða hörkufrost og fannkoma. í rauninni má segja, að stór hluti af bílaeign lands- manna liggi undir skemmdum að vetrinum — og margir fara illa. Þess vegna er það furðu- legt hve menn virðast áhuga- litlir um að koma upp þaki yfir bíia sína. ★ Malbik En úr því að minnzt er á bíla verð ég að vekja athygli á öðru, sem bíleigendum kemur við — og reyndar flestum ferðamönnum, sem til borgar- innar koma. Það er nefnilega búið að malbika brautina, sem ekin er upp að afgreiðslu Flug- félags íslands við Reykjavíkur- flugvöll — svo og bílastæðið framan víð afgreiðsluna. Sannarlega var kominn tími til að' koma þessu í fram- kvæmd. Þarna hefur ríkt hið mesta hörmungarástand og ber að fagna Því, að loks er byrjað að bæta úr. Njarðargatan, frá gamla Tivoli að Hringbraut er samt enn ómalbikuð -— og mig minnir að hún sé aftarlega í röðinni í malbikunaráætlun borgarinnar. Væri þá ekki veg- ur að framlengja malbikið á Suðurgötu alla leið út að enda flugbrautarinnar — þannig, að hægt væri að aka malbiki alla leið að flugafgreiðslunni? ■fa Daglegt mál Undanfarna mánuði hefur nýr maður látið til sín heyra í útvarpsþættinum Daglegt mál. Hann heitir Svavar Sigmunds- son. Ég veit að það er óþarfi að kynna nafn hans hér, því að ég efast ekki um að mikið er á hann hlustað. Að öllum fyrir- rennurum hans í starfinu ólöst- uðum langar mig til að segja það, að langt er síðan jafn- áheyrilegir móðurmálsþættir hafa heyrzt í útvarpinu. Bless- uðum fræðimönnunum hættir otf til að vera þurrir og of fræðimannslegir — jafnvel svo, að þeir, sem áhuga hafa á að hlusta, verða dauðleiðir' og fá óbeit á efninu. Það sama gerist' oft í skóla. Leiðinlegur kenn- ari getur drepið áhuga nem- enda á námsgreininni. En Svavar Sigmundsson er venjulega skemmtilegur, lipur — og stundum örlítið gaman- samur. Hann sendir okkur blaða mönnum oft kveðju sína, eins og vera ber, en stundum hef ég það á tilfinningunni. að þeir verði líka að taka á sig meist- araverk. prentvillupúkans svo- T nefnda. Við því er auðvitað ekkert að gera. Hins vegar hvet ég fólk til að hlusta á Svavar. Það er ekki á allra færi að gera þetta viðfangsefni jafn skemmti legt. ^ Veiðibjallan Loks kemur hér stutt bréf um veiðibjölluna: Mig langar til að þakka Hail- dóri Jónssyni, verkfræðingi fyrir greinarkornið til þín um veiðibjölluna. Það eru sannar- lega orð í tíma tluð. Þeir sem nú eiga leið um Skúlagötuna geta séð hvernig þessi vargur er alinn þar í sláturtíðinni. En það er ekki bara hér í Reykja- vík, sem við erum að ala veiðibjölluna. í hverri verstöð allt í kring um landið er sama ástandið, og jafnvel verra, og allstaðar er þetta friðaður fugl innan bæjar- eða hafnarmarka. Ég vildi mega gera það að tillögu minni (Qg það veit ég að vinur minn Jón á Laxamýri og margir fleiri taka undir) að í hverjum bæ eða verstöð verði löggiltir menn, sem hefur heim ild og skyldu að skjóta veiði- bjölluna alltsaðar þar sem hún sækir í slor og úrgang. Mætti segja mér að það hefði meiri áhrif til eyðin ar þessum vargi, en öll þau lög, sem enn hafa verið sett og sam- þykkt af okkar háa Alþingi veiðibjöllunni til höfuðs. Rvík, 12/10 1965 Benedikt Jónsson. Kaupmenn - Kaupfélög Nú er rétti tíminn til að panta -------‘•'V$ RafhlöSur fyrir veturinn. Bræðurnir Ormsson hf. Vesturgötu 3, Lágmúla 9. Sími 38820.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.