Morgunblaðið - 17.10.1965, Blaðsíða 31
Sunnucfagur 17. október 1965
MORCU N BLADID
31
Svissneski fiðluleikarinn
Calame hjá Tónlistarfél.
SVISSNESKI fiðluleikarinn
Blaise Calame og píanóleikarinn
Jean-Claude Ambrosini eru vænt
anlegir hingað um helgina. >eir
koma á vegum Tónlistarfélagsins
og ætla að halda tvenna tónleika,
á mánudags og þriðjudagskvöld
18. og 19. þ.m. Á efnisskránni
eru verk efíir Vivaldi, Beethov-
en, Debussy, Paganini og Wieni-
awski.
Blaise Calame er fæddur og
Leiðrétting
í VIÐTALI við Vestur-íslend-
inginn Sigurð 'Brynjólfsson og
konu hans í Mbl. 6. þ.m. var
sagt að Sigurður hefði flutt með
foreldrum sínum til Vesturheims
1912. Þetta er rangt, því for-
eldrar hans fluttu aldrei til
Kanada, en sjálfur flutti Sig-
urður árið 1922. Eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á þess-
um mistökum.
FASTEIGNASALAiy
Hafnarstræti 4.
Nýtt s'imanúmer -
2 3 5 6 0
Ef þér þurfið að kaupa
eða selja fasteign,
þá hafið samband við
skrifstofuna.
Jón Ingimarsson, lögmaður
Sími 20555.
Kristján K. Pálsson,
fasteignaviðskipti
(Kvöldsími 36520).
uppalinn í Sviss. Fyrsti kennari
hans í fiðluleik var André Rib-
aupierre. Er hinn frægi fiðluleik-
ari og kennari Carl Flesch hafði
eitt sinn af tilviljun heyrt
Calame æfa sig, bauð Flesch hon
um að verða nemandi sinn. Hjá
honum var Calame nokkurn tíma
eða þar til Flesch lézt, en hélt þá
til Brtissel, þar lauk hann námi
við konunglega tónlistarháskól-
ann árið 1947. Kennari hans í
fiðluleik var Alfred Dubois. >að
ár hlaut hann fyrstu verðlaun í
fiðluleik (Artur Grummiaux
verðlaunin), og árið 1950, fyrstu
verðlaun fyrir kammermusik.
Frá Brussel hélt Calame til
Parísar þar sem hann hefir verið
búsettur síðan. í>ar stundaði
hann framhaldsnám hjá George
Enesco, hinum fræga fiðluleikara
og tónskáldi.
Calame hefir haldið tónleika
Afmæ’isrit Hins ísl.
biflíufélags komið út
víða um heim ,bæði í Evrópu,
Ameríku, Afríku og Asíu og hlot
ið ýms alþjóðleg verðlaun fyrir
fiðluspil. Hann eignaðist nýlega
Sti’adivarius fiðlu, sem ber nafn-
ið ,,Le Laurie“ frá 1722. Þessi
fiðla er úr Mendelssohns-safninu
og var á sínum tíma eign Josephs
Joachims.
Þessir tónleikar Tónlistarfé-
lagsins verða þeir níundu í röð
inni þetta ár.
Askorun vegna
Kjarvalssýningu
í SAMBANDI við áttræðis-
afmæli Jóhannesar Kjarval hef-
ur sýning verið opnuð í Lista-
mannaskálanum á nokkrum úr-
valsmyndum málarans. Allir eru
velkomnir á þessa sýningu og
a’ðgangur ókeypis.
í salnum geta gestir hinsvegar
keypt sýningarskrána, sem jafn-
framt er happdrættismiði, og
hefur listamaðurinn sjálfur gefið
málverk í ihappdrættisvinning.
Miðinn kostar 100.00 og rennur
allt andvirðið í sjóð, sem lista-
máðurinn mun afhenda J því
skyni að koma á fót nýjum Lista
mannaskála í höfuðborginni. Þeir
sem kaupa happdrættismiða á
sýningunni, minnast afmælis
listamannsins á þann hátt, sem
hann hefur sjálfur óskað, og er
ætlazt til að þeir riti nöfn sín í
sérstaka bók, Kjarvalsibók, sem
þar liggur frammi.
Foreldrar leyfið einnig börnum
yðar áð sjá Kjarvalssýninguna,
kaupa happdrættismiða og skrifa
nöfn sín í Kjarvalsbók og styðja
með því áform listamannsins um
byggingu nýs Listamannaskála.
Sigurður Sigurðsson
Sveinn Kjarval
Jón Þorsteinsson
Alfreð Guðmundsson
Kristján Jónsson
Ragnar Jónsson.
i
BIÐJID UM LAMPA F RÁ BAST
Þeir eru seldir á eftirtöldum stöðum: Verzl. Lampinn,
Laugavegi 68 — Lýsing s.f., Hverfisgötu 64 — Raf-
tækjav. Júlíusar Björnssonar, Austurstræti 12 — Hús-
gagnaverzl. Víðir, Laugavegi 166.
Viljum sérstaklega vekja athygli á
kcramiklömpum (model úr
íslenzkum hraunleir frá Glit.
Ef þér ætlið að kaupa góðan lampa,
þá hiðjið um lampa frá Bast.
i^erðið mjög hagstætt.
LAMPACERDIN BAST, Reykjavík
JARNSMIÐJUR
Skerpum hjólsagarblöð fyrir
öxulstál og profile.
Nýjar og fullkomnar vélar.
bitstál Sín,; 2,-50°
Grjótagötu 14
UM þessar mundir eru 150 ár lið
in frá því er Hið íslenzka biflíu-
félag var stofnað. Það er ári
eldra en Hið íslenzka bókmennta
félag og því elzta starfandi félag
landsins, að því er biskup ís-
lands herra Sigurbjörn Einarsson
sagði blaðamönnum á fundi er
hann hélt i fyrradag ásamt tveim
stjórnarmönnum félagsins þeim
Ólafi Ólafssyni kristniboða og
séra Óskari J. Þorlákssyni, dóm-
kirkjupresti.
Tilefni fundarins var það, að
kynna blaðamönnum nýútkomið
afmælisrit félagsins, sem er allt
hið smekklegasta og rekur sögu
félagsins í höfuðdráttum.
Markmið Biflíufélagsins hefur
ávallt verið að gera almenningi
kleift að eignast ódýrar biflíur
og að sjá um sem víðtækastar
dreifingar hennar. Fyrsta biflíu-
félag heimsins, hið brezka, er
stofnað 1804 ,einungis 11 árum
áður en hið íslenzka var stofnað
Um það leyti mun biflían hafa
verið til á um 70 þjóðtungum
en nú mun hún hins vegar vera
til á um 1200. Er það því mikið
starf, sem biflíufélögin hafa innt
af hendi og hafa eftirfarandi fé-
lög unnið hvað ötulast að því
starfi: hið brezka, bandaríska,
hollenzka, skozka og þýzka.
Þá gat biskup þess, að fyrsta
biflían, sem Hið íslenzka biflíu-
félag hafi staðið að, hafi komið
út 1841. Árið 1866 kemur svo út
önnur biflía og er hún styrkt af
brezka biflíufélaginu, en það
studdi síðan allar íslenzkar biflí-
ur þar til Hið íslenzka biflíu-
félag tók við útgáfunni að fullu
árið 1956. Segir það sig sjálft,
að til frekari biflíuútgáfu þurfi
miklu meira fé, en verið hefur
og mun afmælisritinu ætlað að
styrkja biflíuútgáfuna að nokkru
leyti. Hins vegar tekur Biskups-
skrifstofan ávallt með þökkumi á
móti gjöfum.
í dag verður þessara
merku tímamóta Hins íslenzka
biflíufélags getið í kirkjum lands
ins og verður fólki gefinn kost-
ur á að eignast afmælisritið, sem
selt ver-ður í kirkjum Reykjavík-
ur og Hafnarfjarðar. í kvöld
verður svo afmælishátíð
í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Þar mun kirkjumálaráðherra Jó-
hann Hafstein flytja ávarp og
kveðju til biflíufélagsins. Flutt
verður kveðja frá Háskóla ís-
lands og ennfremur mun fram-
kvaémdastjóri Sameinuðu biflíu-
félaganna, en hið íslenzka er að-
ili þar að, segja nokkur orð. Að
síðustu mun Páll Kolka læknir
flytja ræðu. Viðstaddir verða
gestir frá hinu brezka og hinu
skozka biflíufélagi.
Þá gat biskup þess að nýlega
hefði ónefndur maður gefið bif-
líufélaginu veglega gjöf sem
væru allar biflíur ,sem gefnar
hefðu verið út af félaginu. Til
þessa hefði félagið engan bóka-
kost átt, ekki einu sinni sínar
eigin biflíur og væru þeir mjög
þakklátir fyrir þessa gjöf.
Kvaðst hann gjarnan vilja óska
að félagið mætti auka bókakost
sinn í framtíðinni.
Ávallt er verið að vinna að
nýrri þýðingu biflíunnar og væri
það dýrt þolinmæðisverk. Hins
vegar hefði Ásmundur Guðmunds
son biskup gefið handrit að þýð-
ingu Nýja testamentisins, er
hann hefði gert og hefði nefnd
sú er ynni að endurskoðun text-
ans texta Ásmundar til hliðsjón-
ar.
Að lokum skal mönnum bent á
að kaupa hið vandaða afmælisrit,
sem er góð ög falleg eign.
Kaupmannahöfn, 16. okt.
NTB.
• Um það bil eitt hundrað
vinstrisinnar söfnuðust sam-
an úti fyrir bandaríska sendi-
ráðinu í gærkvöldi og mót-
mæltu stefnu Bandaríkja-
stjórnar í Vietnam.
Nýtt blað BEAT m/mörg-
um litmyndum. Verð kr. 20,00.
Sendum burðargjaldsfritt ef
greiðsla fylgir.
FRÍMERKJASALAN
Lækjargötu 6 A
Saumanámskeið
Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA, Kópavogi, gengst
fyrir saumanámskeiði, sem hefst mánudaginn 18.
þ. m. kl. 20 í Sjálfstæðishúsinu Kópavogi.
Þátttaka tilkynnist í síma 40708 og 41286.
Konur, notfærið ykkur þessa aðstoð við undirbún-
ing jólanna.
Stjórn EDDU.
,t,
GIJÐMUNDUR B. JÓNSSON
frá Höfða, Reykjavíkurvegi 23,
andaðist í Landakotsspítala 15. þ. m. — Fyrir hönd
vandamanna.
Kristján Guðmundsson.