Morgunblaðið - 14.11.1965, Page 1

Morgunblaðið - 14.11.1965, Page 1
32 síðtir oy LesiioK í LAUGARDALNUM verður íþróttainiðstöð höfuðborgar- innar. Fullkominn íþrótta- völlur hefir þegar verið tek- inn í notkun þar — og nú er unnið kappsamlega að því að fullgera íþrótta- og sýningar- höllina. Byrjað er að leggja parket-gólfið. Myndin hér að ofan er úr höllinni. Á bak- síðunni er svo mynd af sund- lauginni, sem verið er að gera í Laugardalnu'm. — Ljósm. Mlbl. Ól. K. M. Marcos sigurviss Manila, 13. nóv. — NTB. Fréttastofa Filippseyja til- kynnti seint i gærkvöldi að allt benti til þess að framíbjóðandi Þjóðernisflokksins, Fernando Marcos, muni fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum í Bandinu. Kosningarnar fóru fram eríemma í vikunni, en talningu atkvæða er enn ekki að fullu lokið. 6. skákin fór í bið Einkaskeyti til Mbl. Moskva 13. nóv. — AP. Sjötta skák þeirra Boris Spas- eky og Mikhaije Tais fór í bið eftir 42 leiki, og hefur Spassky betur, að því er Tass skýrði frá í frétt frá Tiflis. Þeir Tad og Spassky eru nú jafnir, með tvo og hálfan vinning hvor. Stórt farþegaskip brennur í hafi og sekkur Saigon, 13. nóv. — NTB. BANDARÍSK heryfirvöld í Sai- gon eru að rannsaka tilkynning- ar, sem þangað hafa borizt, um að bandarískar flugvélar hafi í dag gert árás á landssvæði þáð, sem skiptir Suður- og Norður Víetnam, en á svæði þessu hefur ekki verið haldið uppi hernaöi. Bandarískar flugvélar hafa tvis- var áður gert árásir á þessu svæði, vegna mistaka. Fyrstu fregnir sem uni þetta bárust til Saigon sögðu að banda- rísk flugvél hefði gert árás á iþorp eitt á svæðimi, og lögreglu- stöðina þar sérstaklega. Margir lögreglumenn hafi farizt í árás- inni og allmargir borgarar hafi særzt. Sama lögreglustöð og þo*ÍP varð fyrir árás bandarískr her- flugvéla í septemiber sl. op fór- ust þá um 30 lögreglumenn og borgarar. Var árásin gerð vegna mistaka flugmannanna. Hermt er nú að lögreglumenn á staðnum hóti að yfirgefa lögreglustöðina. Eins og fyrr getur er rannsókn hafin í Saigon á tildröguim árás- arinnar í dag. 54 manna af 546 var enn saknað í gær Nassau, Bahamaeyjum, 13. nóv. — APNTB: — f NÓTT varð eldur laus í skemmtiferðaskipinu „Yarmouth Castle" og sökk það snemma í morgun. Með skipinu voru 546 manns, 371 farþegi og 175 manna áhöfn — og urðu allir að yfirgefa skipið brennandi úti á rúmsjó nm 176 km austur af Miami í Florida. Vitað var með vissu í morgun, að 140 manns hafði ver ið bjargað. Síðar í morgun hafði öllum verið bjargað nema 54 far þegum og áhöfn, og sagði banda ríska strandgæzlan að von manna væri, að fólk þetta væri á reki í björgunarbátum. „Yarmouth Castle* sökk síðar í morgun. — Sumir farþeganna, sem björguð- ust hafa hlotið alvarleg bruna- sár. Skip þetta, sem skrá'ð er í Pan ama, er 5002 lestir að stærð. Það hefur að undanförnu farið tvær ferðir í viku hverri milli Miami og Nassau á Bahamaeyjum og hafði iagt upp frá Miami í gær, föstudag. Flestir farþeganna voru bandariskir, aðrii frá ýmsum ríkjum S-Ameríku og Kanada. Eidurinn brauzt út í stefni skipsins iaust eftir kl. 2 í nótt og var strandgæzlunni banda- rísku fyrst tilkynnt um hann kl. 2,20, að sta’ðartíma (6,20 að ísl. tíma). Varð eldurinn brátt svo magnnður að ekkert varð við ráð ið og var því ákveði'ð að yfirgefa skipið. Veður var sæmilegt og ekki mikill sjór en niðamyrkur. Nærstöddum skipum var gert við vart og kom fyrst á vettvang finnska skipið „Finnpulp**. Tók það um borð 90 farþega og skömmu sfðar bar að skipið „Bahama Star“. sem tók 50 far- þega. Fleiri skip og flugvélar Öryggisráðið (ordæmir stjóriiina í Rhódesíu New York, London og Lus- aka 13. nóv. — NTB — AP. Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna sam,þykkti á fundi sínum scint í gærkvöldi á- lyktun, þar sem því er lýst yfir að stjórn Ians Smiths í Salisbury, Rhódesíu, sé ó- lögleg, og ætti engin þjóð að viðurkenna hana eða veita henni stuðning á nokkurn hátt. Þá er hin einhliða sjálf- stæðisyfirlýsing Rhódesíu for dæmd harðlega í ályktun- innL Tiu lönd greiddu álykt- uninni atkvæði í Öryggisráð- inu, en ekkert á móti, Hins vegar sat Frakkland hjá á þeim forsendum «ð Rhódesíu málið væri eiginlega ekki al- þjóðamál, heldur innanríkis- mál Breta. Ályktun þessi var borin fram af Jórdan, sem er eitt þeirra sex ianda, sem kjörin eru til setu í Öryggisráðinu ásamt stórveldun um. Brezki utanrikisráðherrann, Framh. á bls. 2 voru á leiðinni að slysstaðnum, þegar síðast fréttist og hafði bandaríska strandgæzlan góða von um að flestum eða öllum yrði bjarga'ð, svo framarlega sem fólkið hefði allt annaðhvort komizt í björgunarbáta eða ver ið klætt björgunarvestum, er það fór í sjóinn. Skipið brann alveg niður a'ð sjávarborði og sökk síðan kl. 6,03 að staðartíma (10,03 að ísl. tíma). Þyrlur sóttu þá sem þjáðust af brunasárum um borð í björgunai-skipin og fluttu til „Princess Margaret'* sjúkrahúss- ins í Nassau. Eisenhower á batavegi Fort Gordon, Georgia, 13, nóv. — NTB. Dwight D. Eisenhower, fyrr- um Bandaríkjaforseti, er nú á batavegi eftir hjartakrampann, sem fyrr í vikunni varð til þess að hann var lagður í sjúkrahús og settur í súrefnistjald. Segja læknar að hann muni ná sér að fullu eftir áfallið. Boeing 727 nauö- lendir í lllinois Oeðlilegur titringur í stjelinu orsökin Springfield, Illinois, 13. nóv. — NTB. ÞOTA frá American Air- lines, af gerðinni Boeing 727, varð í gærkvöldi að nauðlenda á flugvellinum við Springfield, Illinois, að því er tilkynnt var í nótt. Engan sakaði um borð. Þotan varð að nauð- lenda sökum þess að stéli hennar. óeðlilegur titringur var í Frá því í ágúst sl. hafa á annað hundrað manns farizt með þotum af gerðinni Boeinig 727, en fluigvélin hefur verið í notkun í uim það bil tvö ár. Nú í vikunni usrðu tvö meiriháttar flugslys, og var um Boein.g 727 að ræða í bæði skiptin. Þota frá American Airlines rakst á hæð við Cin- cinnati í Ohio og fórust með henni 58 manns, en fjórir komust af. í gær fórst Boeing 727 frá United Airlines í lendingu við Salt Lake City í Utah. Kom vélin harkalega niður í lendingunni, og' kom upp í henni mikill eldur. 42 fórust en 48 komust af, sumir ilda hrenndir. Munu hjól þotunnar hafa farið í gegnum malbikið á flugbrautinni. Sex þuml- unga djúpar holur voru i brautinn, og lagðist lendincar útbúnaðiur þotunnar sa<man við höggið. Hún skall á flug- brautinni og koon þá oldiurinn upp. Ráðizt á þorp í mis- gripum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.