Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 18

Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 18
18 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 14. nóv. 1965 * / •• SJiiÖRP - HILISUTVORP - BILAUTVORP - FER9ATÆKI SÖLUUMBOÐ: Reykjavík: Akranes: Keflavík: Vestmannaeyjar: Radíóver sf., Skólavörðustíg 8. EINKAUMBOÐ: Verzlunin Óðinn. .. Stapafell. GUIMIMAR ÁSGEIRSSON HF. Raftækjaverzlun Suðurlandsbraut 16 — Sími 35-200. Haraldar Eiríkssonar. INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1965 2. FL. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI ÚTBOÐ Fjórmálaráðherro hefur ákveðiS o3 nota heímitd í tögum nr. 59 frá 20. november 1964, sbr. lög nr. 23 frá 4. maí 1965, til þess að bjóða út 28 milijón króna innlent Ián ríkissjóðs með eftirfarandi skilmálum: SKILMÁLAR t. GREIN Hlutdeildarbréf lánsins eru nefnd spariskírteini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í tveimur stærSum, 1.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í oðalskuldabréfi. 2. GREIN Skírteinin eru lengst til 12 ára, en frá 20. janúar 1969 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini innleyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við inniausn. Fyrstu 4 árin nema þeir 5% á ári, en meðaltalsvextir fyrir allan lánstímann eru 6% á ári. Innlausnarverð skírteinis tvöfaldast á 12 árum og verður sem hér segir að meðtöldum vöxtum og vaxtavöxtum: Skírteini 1.000 kr. 10.000 kr. Eftir 3 ór 1.158 11.580 — 4 ór 1.216 12.160 — 5 ór 1.284 12.840 — 6 ór 1.359 13.590 — 7 ór 1.443 14.430 — 8 ár 1.535 15.350 — 9 ár 1.636 16.360 — 10 ár 1.749 17.490 — 11 ár 1.874 18.740 — 12 ár 2.000 20.000 Við þetta bætast verðbætur samkvæmt 3. gr. 3. GREIN Við innlausn skírteínis greiðir ríkissjóður verðbót á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skír- teinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa íslands reiknar vísitölu byggingarkostnaðar, og eru núgildandi lög um hana nr. 25 frá 24. apríl 1957. Spariskírteinin skulu innleyst á nafn- verði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnaðar lækki á tímobilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skirteini verða ekki innleyst að hluta. 4. GREIN Fastir gjalddagar skírteina eru 20. janúar ár hvert, í fyrsta sinn 20. janúar 1969. Innlausnarfjárhæð skírteinis, sem er höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verðbótar, skal auglýst í nóvember ár hvert í Lögbirtingablaði, útvarpi og dagblöðum, í fyrsta sinn fyrir nóvemberlok 1968. Gildir hin auglýsta inn- lausnarfjárhæð óbreytt frá og með 20. janúar þar á eftir í 12 mánuði fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem inn- leyst eru á tímabilinu. 5. GREIN Nu rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu verðbótar á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til nefndar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki fslands tilnefnir einn nefndarmann, Hæstiréttur annan, en hagstofustjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fellir fullnaðarúrskurð í ágreiningsmálum, sem hún fær til með- ferðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu byggingar- kostnaðar, skal nefnd þessi koma samon og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vfsitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnaðarúskurðir. 6. GREIN Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á sama hátt og sparifé, samkvæmt heimild í 3. gr. nefndra laga um lántöku Joessa. 7. GREIN Handhafar geta fengið spariskírteini sín nafnskráð í Seðla- banka íslands gegn framvisun þeirra og öðrum skilríkjum um eignarrétt, sem bankinn kann að áskilja. 8. GREIN Innlausn spariskírteina fer fram í Seðlabanka íslands. Eftir lokagjalddaga greiðast ekki vextir af skírfeinum, og engin verðbót er greidd vegna hækkunar vísitölu byggingarkostn- aðar eftir 20. janúar 1978. 9. GREIN Allar kröfur samkvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekki lýst hjá Seðlabanka íslands innan 10 ára, talið frá 20. janú- ar 1978. 10. G R E I N Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðlabanka íslands. Sporiskírteinin verða til sölu í. viðskiptabönkum, bankaúti- búum, stærri sparisjóðum og hjá nokkrum verðbréfasölum í Reykjavik. Vakin er athygli á því, oð spariskírteini eru einnig seld í afgreiðslu Seðiabankans, fngálfshvoli, Hafnarstræti 14. Salan hefst 15. nóvember n.k. 12. nóvember 1965 SEÐLABANKI ÍSLANDS Bókahillm í teak og eik. Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13. S. 13879 - 17172. GuniíJa hringbakarofnar Vöfflujárn, 3 gerðir. Slraujárn með og án gufu. Brauðristar, 5 gerðir. G.E. hraðsuðupönnur Rjksugur Vatnshitarar, 2000 vött. Suðnplötur, 1 og 2 hellu. Eldavélahellur, 3 stærðir. Rafmagnshitapúðar Gigtarliampar Kafmagnsofnar með og án viftu. KáfjallasóLarlampar. Hraðsuðukatlar, sem slökkvs á sér um leið og vatnið sýður. Hárliðunarjárn Baðvogir Rafmagnsvekjaraklukkur með 1 ljósi. Saumavélamótorar Element í katla. Xeiknilampar. Rafmagn hL Vesturgötu 10. — Sími 14005. að auglýsing í útbreiddasta blaðim, borgar sig bezt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.