Morgunblaðið - 14.11.1965, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. nóv. 19®
Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu
Ég þakka nemendum lýðháskólans á Hvítárbakka og
öllum þeim, sem minnugir eru skólans og stofnunar hans
fyrir 60 árum. Einkum beini ég þakklæti mínu til Rík-
isútvarpsins, þeirra, sem hlut áttu að dagskránni fyrsta
vetrardag, síðasta skólastjóra á Hvítárbakka, Lúðvíg
Guðmundssyni og konu hans Sigríði Hallgrímsdóttur, og
síðustu nemendum skólans.
Reykjavík, 10. nóvember 1965.
Ásdís Þorgrímsdóttir.
Konan mín og amma okkar,
INGIBJÖRG DANÍELSDÓTTIR RICHTER
andaðist 13. þessa mánaðar.
Stefán Richter og börn.
Móðir okkar,
MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR BERNDSEN
lézt að Landakotsspítala, 12. þessa mánaðar.
Sóley Berndsen, Margrét Berndsen,
Guðný Berndsen, Brynhildur Berndsen,
Pétur Berndsen, Ewald Berndsen.
Útför systur okkar,
FRIÐRIKKU KRISTJÖNU HALLGRÍMSDÓTTUR
frá Vogum,
er andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði 11. nóvember sL,
verður gerð frá Kálfatjarnarkirkju þriðjudaginn 16. nóv.
kl. 2 e.h.
Elínborg Hallgrímsdóttir, Lára Hallgrímsdóttir,
Egill Hallgrímsson.
Útför
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
fyrrum útgerðarmanns, Höfn, Hornafirði,
fer fram þriðjudaginn 16. nóvember. Athöfnin hefst kl.
11 f.h. í Barnaskólanum í Höfn. — Jarðsett verður frá
B j arnaneskirkju.
Aðstandendur.
Faðir okkar,
ÞÓRARINN JÓNSSON
Ásvallagötu 40 (Melnum),
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 16.
þessa mánaðar kl. 1,30 e.h.
Börnin.
Jarðarför elskulega mannsins míns, sonar, föður og
bróður,
GUÐJÓNS HJÖRLEIFSSONAR
múrarameistara, Brunnstíg 8, Hafnarfirði
er andaðist þriðjudaginn 9. þ.m. fer fram frá Keflavík-
urkirkju þriðjudaginn 16. nóvember kl. 1,30 e.h.
Fyrir mína hönd, foreldra, barna og systkina.
Sigríður Þorvaldsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför sonar okkar,
ÓLAFS
Eyvindur Ólafsson, Bjarndís Bjarnadóttir.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Ferjubakka.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
i
Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför konunnar
minnar, móður okkar og tengdamóður,
ÞÓRÖNNU FRIÐRIKSDÓTTUR
Einar Á. Scheving,
Sigurlín Einarsdóttir,
Árni Fr. Scheving, Auður Scheving,
Birgir Scheving, Guðbjörg Hákonardóttir.
Hraðritari
Stúlka, vön enskri hraðritun, óskast til starfa á
aðalskrifstofu okkar nú þegar, til þess að annast
enskar og íslenzkar bréfaskriftir.
Upplýsingar á skrifstofu okkar, Suðurlandsbraut 4.
Oliufélagið Skeljungur hf.
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu
sem fyrst. Fólk utan af landi. Fjórar fullorðnar í
heimili. Góðri umgengni og reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla, vinsamlega hringið í síma 40495
eftir kl. 19.
Skrifstofustúlka
óskast við gott fyrirtæki til þess að ánnast síma-
vörzlu og vélritun. Nokkur enskukunnátta nauðsyn-
leg. — Gott kaup. — Tilboð, merkt: „Skrifstofu-
stúlka“ sendist í pósthólf 604 fyrir laugardaginn
20. nóvember nk.
Hollenzkar handtöskur
loðhúfur og hattar
Ný sending tekin fram á morgun.
Bernhard LaxdaE
Kjörgarði
Höfum kaupanda
að einbýlishúsi eða 5—6 herb. sérhæð í tvíbýlis-
húsi í smíðum í Reykjavík eða KópavogL
FASTEIGNASALAN
Hafnarstræti 4.
Sími 23560 (á kvöldin 36520).
Smiðir öskast
til vinnu við innréttingar í kaupstað úti á
landi. — Upplýsingar í dag kl. 1—5 e.h.
í síma 12785.
Handbók
um íslenzk frímerki 1944—1964
er nýkomin á markaðinn og fæst í frímerkjaverzl-
unum borgarinnar. Félagsmenn í F. F. geta fengið
bókina í herbergi félagsins að Amtmannsstíg 2.
Er þetta fyrsti hluti handbókar um íslenzk frímerki
frá 1873. — Frímerkjasöfnurum er bent á, að upplag
bókarinnar er einungis 500 eintök.
Peysujakkar dönsk úrvalsvara
Höfum fengið þessar fallegu flíkur í öllum stærðum
og 3 litum — gráum, brúnum og bláum.
Þetta er kjörinn jólajakki á litla soninn og hlýleg
og skemmtileg jólagjöf handa eiginmanninum.
' *
Verzlun O. L.
Traðakotssundi 3 (á móti Þjóðleikhúsinu).
95 dra í dag:
Olofía Klemenz-
dóttir
\
hjúkrunarkona
í DAG, fjórða sunnudag í vetri,
er 95 ára afmæli í Elliheimilinu
í Skjaldarvík. Ólafía Klemenz-
dóttir fyrrverandi hjúkruinar-
kona í Reykjavík, sem undan-
farin 9 ár hefur dvalizt á Skjald
arvíkurheimilinu minnist þess
nú með vinum sínum þar, að 95
ár eru að baki. Ólafía á ekki börn
eða niðja. 1 svana hárri elli er
tilfinnanlegt, að allt hið fyrra
er farið, ættingjar ungu áranna
dánir og vinir mið-ævinnar horfn
ir af vettvangnum.
Ólafía Ingibjörg Klemenzdótt-
ir er fædd í Eystri-Saltvík á
Kjalarnesi 14. nóv. 1870. Voru
foreldrar hennar hjónin Klemenz
Björnsson og Ragnheiður Jó-
hannsdóttir, sem þá bjuggu i
Eystri-Saltvík, bæði húnvetnsk
að uppruna. Heitir Ólafía eftir
langafa sínum Ólafi bónda á
Vindihæli Sigurðssyni, föður Guð
mundar bónda á Vindhæli föður
síra Davíðs á Hofi. — Ólafía var
ein 17 systkina, en alsystkyn
hennar 8. í þessum stóra hóp ólst
Ólafía upp fyrst í Eystri-Saltvík,
en síðan í Brautarholti, er faðir
hennar fór þangað búnaði sín-
um. Og í Brautarholtsgarði eru
nú óðum að týnast leiði foreldra
hennar og margra systkina. Á
nítjánda ári réðst Ólafía í hús í
Reykjavík. Var þar aldanskt
heimili og ekki talað íslenzkt
orð. Mun sú reynsla hafa orðið
til hagræðis síðar, er leið Ólafíu
lá til Danmerkur, en þar stund-
aði hún hjúkrunamám, aðallega
í Árósum. Þegax ekki var eftir
nema lokaprófið skall styrjöldin
á, svo halda varð heim við svo
búið. Aftur ætlaði Ólafía að
fara utan og ljúka náminu form-
lega, en læknarnir í Reykjavík
löttu fararinnar og varð ekki af.
En eins og aðstæðumar voru
mun hafa þótt slæmt að missa
Ólafíu burt, jafnvel aðeins um
sinn, en allt frá því er hún kom
heim frá Danmörku vann hún á
vegum Reykjavíkurlæknanna að
heimilishjúkrun. Mikil þörf var
fyrir sjúkrahjáip í heimahúsum,
en erfið skilyrði, ekki sízt hjá
Ólafíu Klemenzdóttur, sem alltaf
hjúkraði þeim helzt, sem ekki
áttu en mest þurftu. Er margs
að minnast af löngum starfsferli,
þegar hvergi var hlífzt, ein dagur
og nótt urðu að einni vöku. Og
fyrir alla sína fórnarlund og fá-
tækrahjálp fyrri ára hlýtur Óla-
fía nú blessun góðrar elli, er
hún hefur setzt að í vökulokin,
Hún, sem minnist æskunnar á
Kjalamesi, dvaldi ung með Dön-
um og vann sitt mikla ævistarf
í Reykjavík, imir vel um' af tan-
inn norður við Eyjafjörð. Þar
hefur húm mætt vináttu framandi
fólks og þakkar nærfærni og ein
staka velvild Stefáns Jónssonar,
forstjóra heimilisins.
Ólafía Klemenzdóttir ber ekki
einkenni hins tíuinda áratugs.
Erfiði og áxeymsla starfsáranna
hefur verið henni eðlilegra og
kærara en svo, að þess sjái merki
eftir á. Hún er há og grannvax-
in og ber vel uppi hinn þjóðlega
búning. Og hún er svipmikil eins
og allir, sem búa yfir mikltim
gáfuim, svipfalleg eins og þeir,
sem eru góðir.
Ágúst Slguiðsson,
Möðruvöllum. J