Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 31
Sunnuáagur 14. nóv. 1965
MORCUN BLAÐIÐ
31
Ný bók um James
Bond — Þrunsufleygnr
NðLEGA er komin út hjá bóka-
útgáfunni Hildi, bókin „Þrumu-
fleygur“ eftir Ian Fleming. —
Þetta er önnur bókin um hinn
heimsfræga leyniþjónustumann,
James Bond, sem kemur hér út,
hin fyrri Goldfinger, og segir,
eins og aðrar bækur Fleming,
frá baráttu Bonds gegn óvinum
brezka heimsveldisins. Þrjár
sögur Flemings hafa verið kvik-
myndaðar og er nú verið að
vinna að þeirri fjórðu, sem er
einmitt ,,Þrumufleygur“.
í „Þrumufleyg“ á Bond í
höggi við alþjóðasamtök glæpa-
manna, sem kallar sig Spektra,
en þau vinna að gagnnjósnum,
fjárkúgun og hverskyns ógnun.
Þessi samtök hafa sent brezka
forsætisráðherranum bréf, þar
sem þau hóta að varpa tveimur
kjarnorkusprengjum á tvær
vestrænar stórborgir, ef þau fái
„Pósturinn4'
— nýtt blað
tÍT EE komif nýtt blað í
Reykjavík, „Pósturinn‘\ Er blað
ið, sem í fyrstunni mun koma út
hálfsmánaðarlega, einkum snið-
ið fyrir yngri kynslóðina. Af efni
fyrstu blaðsins má nefna grein
um Bítlana og Rolling Stones til
íslands, önnur um nýja útvarps-
stöð fyrir ungt fólk. Þá er við-
tal við Valgerði Dan leikkonu,
og fjölmargt annað efni er í
blaðinu. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður er ólafur Gaukur Þór-
hallsson. Fyrirhugað mun vera
að blaðið verði gert að vikublaði
er fram í sækir.
Meirihluti
Verkamanna-
flokksins aftur 2
atkv.
Loindon, 13. nóv. NTB.
VERKAMANNAFLOKKURINN
brezki fór með sigur af hólmi í
aúkakosningum í Erith Cray-
ford sl. fimmtudag og hefur nú
aftur tveggja atkvæða meiri-
hluta í Neðri málstofunni.
Frambjóðandi flokksins, Jam-
es Wellbeloved, sigraði með
7.072 atkvæða mun. í síðustu
kosningum vann frambjóðandi
flokksins með 8.855 atkv. mun,
en að sögn stjórnmálasérfræð-
inga skiptir þessi fækkun at-
kvæða engu máli, þar sem hlut-
fallstala flokksins í kosningun-
um hækkaði um 2.3%.
í neðri málstofunni er sætum
nú svo komið, að Verkamanna-
flokkurinn hefur 314 þingsæti,
íhaldsflokkurinn 303 og Frjáls-
lyndi flokkurinn 9. Þar fyrir
utan eru þrír þingmenn, einn f.rá
hverjum flokki, sem ekki taka
þátt í atkvæaðgreiðslum — og
eitt þingsæti laust. Það hafði
áður Verkamannafiokkurinn —
vann það í kosningunum í fyrra
með 2000 atkvæða mun — og
fara fram aukakosningar um það
ijman skamms.
ían Fleming.
ekki greidd 100 milljón pund í
gulli. Bond er settur til höfuðs
þessum samtökum — þetta verð
ur þungur róður fyrir hann, og
hann lendir í allskyns hættum,
en kvenhylli hans verður hon-
um enn einu sinni að liði....
BRIDGE
AÐ loknum fjórum umferðum
hjá karlmönnum og tveim um-
ferðum hjá kvenfólkinu í und-
ins. Er staðan þessi: Karlar: Stig:
1 Einar — Gunnar 21
2 Ásmundur — Hjalti 20
3 Jón — Gunnar 19
4 Símon — Þorgeir 19
5 Benedikt — Jóhann 18
6 Júlíus — Tryggvi 18
7 Stefán — Þórir 18
8 Jón — Sigurður 17
9 Steinþór — Þorsteinn 16
10 Eggert — Vilhjálmur 15
; 11 Hilmar — Jakob 15
,12 Ingólfur — Sigurhjörtur 14
1 13 Guðjón — Eiður 14
14 Ragnar — Þórður 12
15 Ólafur — Sveinn 11
16 Jóhann — Lárus 9
KONUR
1. Ásta — Guðrún 14
2. Magnea — Ósk 13
3. Eggrún — Guðríður 12
4. Kristjana — Margrét 11
5. Ingibjörg — Sigríður 10
6. Elín — Rósa 9
7. Vigdís — Hugborg 8
8. Margrét — Guðrún 8
9. Steinunn — Þorgerður 7
10. Sigríður — Kristrún 6
11. Ásgerður — Laufey 6
12. Júlíana — Louise 5
13. Soffía — Viktoría 5
14. Rósa — Sigríður 5
15. Kristín — Dagbjört 5
16. Sigríður — Unnur 4
Berlín, 4. nóv. — AP.
• Frumhandrit fyrsta þáttar
,,Kreutzersónötunnar“ eftir
Beethoven, var selt á upp-
boði í Berlín í dag. Var hand
ritið slegið á 105.000 v-þýzk
inörk, sem nemur um það
bil 1150 þúsundum ísl. króna.
Það var fornsali í Hamborg
Ernst L. Hauswell, sem
keypti.
• Flugfélög þau, er aðild
eiga að Alþjóðasambandi
flugfélaga — IATA hafa
samþykkt að auka fjárhags-
lega ábyrgð sina á farþegum
er farast kunna á leiðinni til
og frá Bandaríkjunum úr
$ 16.600 í $ 50.000.
Næsta umferð verður spiluð
á þriðjudagskvöldið að Hótel
Sögu og hefst hún kl. 7,30.
Hver ók é
trippið
Á TÓLFTA tímanum á föstu-
dagskvöld tilkynnti Guðbjörn
Einarsson, hreppstjóri á Kára-
stöðum í Þingvallasveit, að þá
skömmu áður hefði fundizt á
Þingvallavegi, nokkru fyrir aust-
an Kárastaði, dautt trippi, vet-
urgamalt, sem hann átti. Mikil
og Ijót sár voru á .rippimu.
Greinilegt er, að ekið hefur
verið á hrossið og það skiíið eftir
helsært á veginum. í dag hafði
ökumaðurinn ekki enn gefið sig
fram, en allir þeir, sem einhverj-
ar upplýsingar gætu veitt um
málið, eru beðnir að láta rann-
sóknarlögregluna í Reykjavík
vita (sími 21100). Sérstaklega er
fólk beðið að hafa samband við
iögregluna, sem veit eitthvað um
un.ferð þarna á veginum á föstu-
dagskvöld, svo og fól’.:, sem eitt-
hvað hefur séð athugavert við
útlit bíla, er þarna haf.a fa.rið
um, því að líklegt er, að eitthvað
sjáist á bílnum.
- Utan úr heimi
Framhald af bls. 16
ur glæpamaður í Frakklandi
og hefur lengi haft góð sam-
bönd við hina og þessa aðila
í Marokko. Ekki hefur verið
hægt að yfirheyra hann, því
að hann hafði flogið til Casa-
blanca nokkrum dögum, áður
en Lopez gaf þessar upplýs.
ingar.
Stuðningsmenn Barka halda
því fram, að hægri öfl innan
stjórnarinnar í Rabat hafi
haíi staðið að ráni hans. Hafi
þessir aðilar viljað koma í
veg fyrir, að sættir tækjust
með þeim Hassan II konungi
og „Barka, en að því hafa þeir
báðir unnið að undanförnu.
Var jafnvel talið liklegt, að
Barka fengi að koma heim
úr útlegðinni og yrði gefhar
upp sakir, með vissum skil-
yrðum þó. Af hálfu stjórnar-
innar í Marokko er harðlega
neitað aðild að ráninu.
Aðrir geta þess til, að
flokksmenn Barka sjálfs
hafi verið þarna að verki.
Hafi þeir óttast, að þeirra
eigin áhrif færu þverrandi
heima fyrir, ef Barka fengi
aftur að koma þangað, með
samþykki konungs. Loks
hefur sú tilgáta komið fram,
að bandaríska leyniþónustan
hafi staðið að baki ráninu
sökum þess, að Barka hafi
verið einn aðalhvatamaður
ráðstefnu byltingarsinna frá
ýmsum löndum Asíu, Afriku
og Suður-Ameríku, sem fyrir
hugað er að halda í Havana
innan skamms. Halda fransk
ir kommúnistar þessari til
gátu mjög á lofti og leggja
alla áherzlu á að finna verði
hina seku og refsa þeim.
Kaupmenn — Kaupfélög
Fyrirliggjandi dakron sloppaefni 115 cm.
Kr. Þorvaldsson & Co.
Heildverzlun — Grettisgötu 6.
Símar 24478 og 24730.
Unglingstelpa
óskast til sendiferða á skrifstofu vora.
Vinnutími 1—6 e.h.
JHtffgijtnÞfftfrtfe
Verzlun—Verzlunarhúsnaeði
Matvöruverzlun óskast til kaups (kjöt-nýlendu-
vörur). Einnig koma til greina kaup eða leiga í verzl
unarhúsnæði til samskonar reksturs. -— Tilboð send
ist afgr. Mbl., merkt: „Strax — 2888“.
Nýjungar í bsöherbergi
Höfum fengið nýja gerð af baðherbergis-
hillum, handklæðahengjum o ,fl.
Sérstaklega vandaðar vörur.
Verzlunin Orynja
Laugavegi 29.
Getum útvegað frá Englandi
hverskonar vélar og verksmiðjur. Sérlega hagkvæm
ir greiðsluskilmálar. — Vinsamlegast sendið fyrir-
spurnir í pósthólf 293, Reykjavík, merkt:
„ Verksmið j u vélar
MICRO
SJÓNGLER
Hefi enn lausa nokkra tíma fyrir þá er ætla aö fá
sér CONTACT-SJÓNGLER fyrir jól.
Mátun og afgreiðslutími 3—4 vikur.
Tímapantanir í síma 24868, miðvikudaga og föstu-
daga, kl. 1—5, aðra daga í síma 30395.
JÓHANN SÓFUSSON, gleraugnasérfr.
Garðastræti 4. — II hæð.
Svartir sjóliðajakkar
með gylltum hnöppum
Ný sending.
Bernhard Laxdal
Kjörgarði
ir í smíðum
Höfum til sölu mjög skemmtilegar 4ra og 5 herb.
íbúðir á faiiegum stað, mcð góðu útsýni í Árbæjar-
hverfi. — íbúðirnar seljast með fulifrágenginni
sameign. — Hagstæð greiðslukjör.
MGJSS Q0Q3 MÝDBÝCLD |
B H 0 HARALDUR MAGNÚSSON Viöskiptafræöingur Tjarnargötu 16, simi 2 09 25 og 2 00 25,
Fiskibátar til sölu
3 góðir, 70 rúmlesta bátar með öllum fullkomnustu
tækjum til veiða. — Greiðsluskilmálar eindæma
hagstæðir og útborgun stillt í hóf.
SKIPA-
SALA
_____OG____
SKIPA-
LEIGA
IvesturgOtu 5
Talið við okkur um
kaup og sölu fiskiskipa.
Sími 13333.