Morgunblaðið - 14.11.1965, Qupperneq 32
Lang stærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi 'útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
5 hrepp-
stjórar af
12 segja
af sér
EINS og skýrí var frá í Morgun-
klaöinu í gær, skrifuðu átta
hreppstjórar af tólf í Gullbringu-
og Kjósarsýslu undir skjal, þar
sem mótmælt er veitingu sýslu-
maimsembættisins í sýslunni og
bæjarfógetaembættisins í Hafnar
fjarðarkaupstað. Enginn hrepp-
stjóri í Kjósarsýslu skrifaði und-
ir skjalið, sem farið var með
milli hreppstjóranna.
Nú hafa fimm hreppstjórar af
þeim átta, sem féllust á að skrifa
undir skjalið, sagt af sér hrepp-
stjórastarfi í mótmælaskyni. Eru
það hreppstjórarnir í Grindavík
urhreppi, Hafnahreppi, Miðnes-
hreppi, Njarðvíkurhreppi og
Vatnsleysustrandarhreppi.
Góð síldveiði
GOTT veður var á síldarmiðun-
irni eystra frá föstudagsmorgni
til laugardagsmorguns, og voru
skipin að veiðum á svipuðum
slóðum og áður. Síldin stóð
nokkru dýpra en fyrr, svo að
fremur erfiðlega gekk að ná
henni.
Samtals tilkynntu 39 skip um
afla, alls 30.800 mál.
iÞessi skip tilkynntu eftirfar-
andi afla (í máluim talinn tal-
inn):
Freyfaxi KE 700, Hannes Haf-
stein EA 1200, Kristján Valgeir
GK 700, Viðey RE 1300, Sigur-
von RE 1100, Sæiþór O'F 900,
Fagriklettur GK 500, Guðm. Pét-
urs ÍS 1300, Þorgeir GK 600,
Heimir SU 700, Arnarnes GK
700, Hólimanes SU 1100, Björg
NK 700, Anna SI 650, Ingitoer
Ólafsson II GK 1100, Skarðsvík
SH 000, Björgúlfur EA 1000,
Árni Geir KE 400, Búðarklettur
GK 1300, Faxaborg GK 750, Jón
á Stapa SH 700, Gullberg NS
1100, Sæhrímnir KE 900, Brimir
KE 450, Haraldiur AK 1250, Barði
NK 1400, Ásþór RE 1000, Kefl-
víkingur KE 1300, Ögri RE 1000,
Margrét SI 1300, Loftur Bjarna-
son EA 1100, Ólafur bekkur OF
600 og Hugrún ÍS 1100.
Hér sést hluti af útisundlauginni,, sem verið er að byggja í Laugardalnum. Hafa hliðar hennar þegar verið flísalagðar.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
HGH-skemmtun í
Austurbæjarbíói
ÍSLENZKIR skemmtikraftar
halda skemmtun til ágóða fyrir
Herferð gegn hungri í Austur-
bæjarbíói annað kvöld.
Þar koma fram margir þekkt-
ustu ske’mmtikraftar landsins. —
Sala aðgöngumiða hefst í bíóinu
kl. 4 í dag.
Framtsðaráform Hitaveitunnar:
Hitaö vatn úr Þingvallavatni
ÞEGAR hitaveituáætluninni verð
ur lokið innan tíðar er gert ráð
fyrir, að heita vatnið á Reykja-
víkursvæðiniu, Reykjum í Mos-
fellssveit og varastöðin verði
fullnýtt. Af þessum sökum hefur
nú verið hafizt handa um að
kanna ný heitavatnssvæði, sem
fullnægt geti þörfum Reykjavík-
ur og nágrennis í framtíðinni.
Miklar líkur benda til, að varma-
ork,a frá Nesjavallasvæðirai í
Grafningi verði notuð til þess að
hita upp lindarvatn úr Þingvalla-
vatni ,scm síðan verði veitt á
dreifingarkerfið í Reykjavík.
Mbl. hefur snúið sér til Jó-
hannesar Zoéga, hitaveitustjóra,
og staðfesti hann, að heitt vatn
í Reykjavík og nágrenni væri
brátt fullnýtt og þess vegna væri
nú verið að kanna aðrar leiðir
til útvegunar heits vatns fyrir
INiefnd skipuð til að atðiuga
hag og rekstrarhorfur
45—120 rúmlesta báta
RfKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að skipa fimm manna nefnd, til-
nefnda af þingflakkunuim, til að
rannsaka hag og afkomuhorfur
þess hluta bátaiflotans, sem er af
stærðinni 45—120 rúmlestix, en
bátar þessir mega ekk' stunda
dragnótaveiðar í landhelgi og
þeir þykja nú ekki hentugir til
eíldveiða. Ber nefndinni jafn-
framt að gera tillögur um rekst-
ur þessara báta, meðal annars
um það, hvort rétt sé að veita
þeim aukin réttindi til fiskveiða
frá því, sem nú er.
Samkværot þessu hefur sjávar-
útvegsmálaráðherra hinn 11.
þ.m. skipað eftirtalda aldþingis-
menn í nefnd þessa:
Birgir Finnsson, alþm. og er
hann jafnframt skipaðux for-
maður néfndarinnar, Jón Skapta
son, alþm., Lúðvík Jósefsson,
alþm., Matthías Bjarnason, alþm.,
og Sigurð Ágústsson, aliþm.
(Fréttatilkynning frá sjávar-
útvegsmálaráðuineytinu.
Reykjavík í framtíðinni.
Hitaveitustjóri sagði, að þrjú
svæði hefðu aðaliega komið til
greina. Þau væru Norður-Hengils
svæðið, þar sem Hitaveitan hefur
keýpt Nesjavelli í Grafningi,
Hveragerðissvæðið, sem ríkið á
og boranir hafa verið gerðar á
undanfarin ár og Krísuvík.
Hveragerðissvæðið væri bezt
þekkt af þessum svæðum, vegna
þeirra borana, sem þar hafa ver-
ið framkvæmdar undanfarin ár.
Einnig hefur verið borað í Krísu-
víkf þótt árangurinn hafi ekki
verið eins afgerandi og á Hvera-
gerðissvæðinu. Á þessum þremur
sVæðum er heita vatnið mengað,
í því er mikið af uppleystum
efnum, sem eru hættuleg venju-
legu efni í leiðslum, stáli og eir.
Sagði Jóhannes Zoéga, að ekki
væri talið fært að nota þetta
vatn beint, heldur yrði að taka
lindarvatn og hita það upp með
þessu vatni. Þetta þýðir að hafa
verður hliðsjón af því hvar hægt
er að fá nóg af hreinu vatni.
Á Hveragerðissvæðinu er það
mjög takmarkað. Lágmarksvatns
magn Varmár er ekki nema 300
sekúndulítrar á þeim tíma þegar
Spilakvöld
í Hafnarfirði
SPILAKVÖLD Sjálfstæðisflokks
ins í Hafnarfirði verður haldið í
Sjálfsæðisihúsinu nk. miðviku-
dagskvöld, 17. nóvember, og hefst
kl. 20.30. Næstu spilakvöld verða
haldin á sama stað og tíma mið-
vikudagskvöldin 1. og 15. des-
ember. Heildarverðlaun verða
veitt í vor, þegar spilakvöldun-
um lvkur.
mest þörf er fyrir vatn og nægir
það ekki nema fyrstu árin.
Við Krísuvík er Kleifarvötn,
sem er afrennslislaust vatn og
veit því enginn hve mikið vatn
er til ráðstöfunar ef dælt er úr
því.
Nesjavallasvæðið hefur þá tvo
kosti að vera í eigu Hitaveit-
unnar og liggja að Þingvalla-
vatni, sem hefur í þessu skyni
ótakmarkaða vatnsmagn. Unnið
er að athugun á þessu svæði og
hafa verið gerðar nokkrar rann-
sóknarholur. Ekkert er hægt að
fullyða ennþá um það, hver leið
verður valin, sagði Hitaveitu-
Rússar undan
Norðfjarðarhorni
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunn-
ar flaug umhverfis landið að-
faranótt laugardag og taldi um
100 togara. Langflestir voru að
veiðum fyrir vestan eða undan
norðvestanverðu landinu; þar af
fáeinir islenzkir.
Undan Norðfjarðarhorni voru
12 sovézk „móðurskip" og 30
til 40 fiskiskip.
Crænlandsfari
fluttur í sjúkra-
hús
DANSKA Grænlandsfarið
„Brika Dan“ kom til Reykjavík-
ur á laugardagsanorgun með
sjúkan mann, sem hafði veikzt
fyrir hjarta. Maiturinn var flutt-
ur í sjúkraihús, en skipið héit
láifiraim för sinni.
stjóri, en margt bendir til, að
það verði Nesjavallasvæðið og
í þvi sambandi hafa verið gerðar
áætlanir um virkjun varmans á
iþessu svæði og gerð aðveituæðar
til borgarinnar.
Áætlun þessi sýnir, að ekki er
hagkvæmt að virkja minna en
100 gcal. á klst. sem er álika og
varmamagn Reykjavíkursvæðis-
ins nú, en gert er ráð fyrir, að
Nesjavallasvæðið hafi miklu
meiri getu.
Þetta er að vísu meira varma-
magn, en Reykjavík þarf á að
halda á næstu árum og til þess
að skapa markað fyrir þetta
varmamagn hefur einkum verið
Frainhald á bls. 31.
JðMotmrakLaAsMt#
fylgir blaðinu í dag og er efnl
hennar sem hér segir:
Bls.
— 1 Verkefnl íslendinga I Her-
ferð gegn hungri.
— 2 Svipmynd: Anvntore Fanfani
— 3 Ofbeldi, smásaga eftir Will-
iam Carlos Williams.
— - Uppdráttur — Tuttugasta
öldin, ljóð eftir Gunnar Rafn
Valdimar Halldórsson á
Kálfaströnd.
— 5 Bókmenntir: Eftirmáli um
nóttina, eftir Pétur Ólafsson
— - Rabb. eftir hjh.
— 7 Símaviðtal og hljómplötu-
þáttur.
— 8 íslenzk heimili: Skroppið i
kaffi í Heimunum.
—- 9 Hverjir fundu ísland og
Ameríku, eftir Árna Óla,
fyrri hluti.
— 10 Pankarúnir og þáttur af er-
lendum bókamarkaði.
— 13 Gylfaginning, teikningar eft-
ir llarald Guðbrajuditóoii.
— 15 Ferdinand.
— 16 Krossgáta.
— - Bridge.