Morgunblaðið - 03.12.1965, Side 3

Morgunblaðið - 03.12.1965, Side 3
Föstudagur 3. des. 1965 Af OR GUNBLAÐIÐ 3 ÞEGAR m.s. Gullfoss lagðist hér að bryggrju í gærmorgun kl. rúmlega átta með 175 far- þega innanborðs, voru Ijós- myndari og blaðamaður frá Mbl. þeir fyrstu sem stigu um borð. . Ástæðan: Það hafði verið skýrt frá því fyrir nokkru í Morgunblaðinu, að Ólafur Óskarsson forstjóri söltunar- stöðvarinnar Hafaldan á Seyð isfirði, hefði í hyggju að verð- launa fimm stúlkur fyrir fré- Ibær söltunarafrek með því að bjóða þeim öllum í utanlands ferð með Gullfossi þann 16. nóvemiber. Við þetta stóð hann Allur hópurinn saman kominn í Reyksalnum á Gullfossi. T.v.; Kristbjörg, Guðný, Gyða, Guðbjörg, Margrét, Guðrún, og loks Ólafur Óskarsson og frú. Kátar síldarstúlkur á ferðalagi Fengu ferð með Gullfossi fyrir söltunarafrek og hélt utan með söltunar- stúilkurnar á tilsettum tíma. Nú var Gullfoss kominn með þær aftur, og auðvitað vorum við sendir af stað til þess að rabba svolítið við þær og Ólaf um ferðina. Við hittum allan hópinn í reyksalnum. Við snerum okk- ur fyrst að Ólafi og spurðum hann, hver forsaga þessarar ferðar væri, alveg eins og við hefðum ekki minns.tu vitn- eskju um það, sem hér var getið að framan. — Nú, þetta eru stúlkur, sem búnar eru að vinna hjá okkur í liO ár eða uppundir það, svaraði hann. .— Allt saman harðduglegar stúlkur. Þær söltuðu allar um 1000 tunnur, en hún Kristbjörg þarna Jónsdóttir sló nú samt metið og saltaði 1017 tunnur. Rn það gerir sér enginn grein fyrir því, hvað það er, nema að hafa unnið sjálfur við söltun. Jæja, og svo ákvað ég, að launa þeim þetta með þessum hætti. — Hvað voruð þið mörg í a'llt, sem fóruð þessa ferð? spurðum við, þar sem við sá- um, að fjöldi stúlknanna var tveimur betur en fimm. — Átta, svaraði Óskar aft- ur. — Það eru söltunarstúlk- urnar,, þær Kristbjörg Jóns- dóttir, Guðný Gústafsdóttir, Gyða HeLgadóttir og Margrét Sigurðardóttir. Svo er það hún Guðrún Jónsdóttir, ráðs- konan okkar, ég og frúin. Þið skuluð bara kalla hana frú Óskarsson, sagði Ólafur, og allir hlógu. <— Og hvert var svo haldið fyrst, spurðum við nú stúlk- urnar. — Við sigldum fyrst til Hamborgar og skoðuðum þar borgina — undir ágætri leið- sögn Ólafs og frúarinnar. — Hvað fannst ykkur mark verðast þar? — Hópurinn skiptist nú á augnagotum, brosleitur mjög. — Hm. söfnin þarna ýru anzi skemmtileg, svaraði Ólaf ur svo, og allir hlógu. — Jæja, og var síðan hald- ið til Danmerkur? — Já, og þá fórum. við gegnum Kílarskurðinn til Kaup mannahafnar. Þar skoðuðum við borgina en fórum svo út á Sjiáland. Þar á eftir sigld- um við svo til Leith — það var dýrlegt, sagði ein stúlkn- anna af tilfinningu. — Höfðu einhverjar ykkar ekki farið út fyrir landstein- ana áður? Fjórar þeirra réttu upp hendina — þær Kristbjörg, Guðný, Gyða og Guðrún ráðs kona. — Og var ekki gaman? — Jú, alveg yndislegt. Þetta var eins og ævintýri. — Urðuð þið ekkert veik- ar? Fenguð þið ekki vont veður? — Það var dálítið slæmt á tímabili, en þær stóðu sig al- veg eins og hetjur, svaraði kona Ólafs. — Þær meira að segja dönsuðu hérna flest kvöldin. — En hvernig er nú að vera komin heim aftur? — Það er nú alltaf bezt heima, svaraði Gyða. — Við ætlum allar að salta næsta sumar, bætti hún svo við. — Já, örugglega, tóku hin- ar undir með henni. — Og við viljum að endingu þakka hjónunum fyrir allt það, sem þau hafa gert fyrir okkur. Þær skýrðu okkur að lok- um frá því, að þær ætluðu allar að halda strax heim, en engin þeirra er úr Reykjavík. Þegar við spurðum þær að endingu, hvort þær ætluðu nú ekki sarnt að eyða svo- litiu af sumarhýrunni hérna í höfuðfoorginni, svöruðu þær: — Sumarhýrunni? Hún er löngu búin. Við vorum ekki á síldanbát í sumar. Stewart skýrir málefni NATO — reynir að fullvissa sovézka leiðtoga um, að bandalagið immi ekki dreifa gereyðingarvopnum Moskva, 2. des. — NTB. HAFT er eftir áreiðanlegum brezkum heimildum í dag, að stjórn Sovétríkjanna kunni að breyta afstöðu sinni til sam- komulags um bann við frekari dreifingu kjarnorkuvopna. Var frá þessu skýrt, eftir fund Michael Stewart, utanríkisráðh. Breta og forsætisráðherra Sovét ríkjanna, Aleksei Kosygins, fyrr í dag. Sovézka stjórnin hefur fram til þessa talið, að ekki sé grund- völlur fyrir slíkum samningi, vegna fyrirhugaðs kjarnorku- hers Atlantshafsbandalagsins, — NATO. Hefux hún talið, að elíkur her kimni að gefa þjóðum 6em ekki hafa yfirráð yfir kjarn orkuvopnum, vald til að beita þeim. Stewart mun hins vegar hafa reynt að sannfæra sovézka valdamenn um, að áætlun um fyrirhugaðan kjarnorkuher feli alls ekki í sér, að fleiri þjóðir fái úrslitavald um notkun kjarn orkuvopna. Muni það vald verða í höndum þeirra, sem það hafa nú þegar. Sovézka stjórnin mun einkum hafa óttazt, að V-Þjóðverjar fengju undir hendur gereyðing- arvopn. Stewart er nú sagður þeirrar skoðunar, að stofnun kjamorku hers Atlantshafsbandalagsins muni ekki standa í vegi fyrir þvi, að Sovétríkin gerist aðili að samningi, sem bannar frek- ari dreifingu kjarnorkuvopna, — þótt sovézkir leiðtogar séu anmars lítt hrifnir af áætlunum bandalagsríkj anna. Stewart hélt í dag sjónvarps- ræðu í Moskvu, þar sem hann fór þess á leit, að Sovétríkin taki höndum saman við Bret- land um tilraunir til að binda enda á styrjöldina í Vietnam. Utanríkisráðherrann brezki heldur heim á föstudag. AKRANESI, 2. des. — 1 dag bárust hingað 5000 tunnur af síld af fjórum bátum austan af Skeiðarárdýpi. Aflahæstur var Óskar Halldórsson með 1860 tunnur. Meginið af síldinni er hraðfryst og flakað. Afgangur- inn er bræddur í Síldar- og fiski mj öls verksmiðj unni. — Oddur. — „Heilaþvottur" Framhald af bLs. 32. kennisetningarnar lesnar yfir viðkomandi dag eftir dag. Beitt er jafnframt ýmsum brögðum, sem miða að því að brjóta niður mótstöðuþrekið. Bréf frá ættingj- um eru athuguð, og hann fær að- eins þau bréf í hendur, sem flytja slæmar fréttir og sorgleg- ar, en öðrum bréfum baldið eft- ir. Um gang heimsmálanna fá menn ekkert að vita, utan þess, sem áróðursmenn kommúnista bera á borð fyrir þá. Þá eru þeir látnir rita nöfn sín á blöð, sem síðan eru útfyllt. Fangaverðir eru ákaflega vinsamlegir einn daginn, en ógnþrungnir næsta dag“. Handbók hersins er byggð á frásögnum fyrrverandi stríðs- fanga, sem hafa náð sér, eftir slíka meðferð, og getað skýrt frá aðferðum við „heilaþvott". — Aðvörun Framhald af bls. 32. artilrauninni, 30. september, þótt ekki sé beinlínis hægt að segja, að hún hafi staðið að henni. Seg- ir ráðherrann, að hann hafi beint þeim tilmælum til vinstrisinn- aðra manna í Indónesíu, að þeir hættu tilraunum sínum til að efna til æsinga. Dr. Subandrio hefur aldrei áð- ur verið svo berorður um þátt Kína í þróun mála í Indónesíu, og þykir nú fullvíst, að mikil breyting hafi orðið á, til hins verra, í samskiptum landanna. Nokkrir æðstu menn hers Indónesíu héldu í dag fund með fréttamönnum í Djakarta og Iýstu þeir því yfir, að hand taka kommúnistaleiðtogans Njono hefði sýnt, svo að ekki yrði um villzt, að kommún- istaflokkur Iandsins hefði staðið að baki uppreisnartil- rauninni. Njono er meðlimur miðflokks flokksins, og aðal- ritari kommúníska verkalýðs- samtaka. Á fundinum í dag var einn- ig skýrt frá því, að aðalforsprakki byltingarinnar hafi verið Aiditv, sem sagður er látinn. Sú frétt var þó ekki staðfest. í dag var starfsemi kommún- istaflokksins bönnuð á V-Borneó. Áður hefur starfsemi flokksins verið bönnuð á V-Jövu, S-Cele- bes og víðar í landinu. STAKSTFIIAR Flokksstjómarfundur Sósíalistaflokksins í kvöld hefst fundur flokks- stjórnar Sósíalistaflokksins, sam- kvæmt fregnum Þjóðviljans. Fróðlegt verður að fylgjast með þvi sem þar gerist, en þótt ástand ið hafi á síðustu árum verið mjög slæmt hjá kommúnistum hefur það þó líklega aldrei verið verra en nú. Glundroðinn innan Al- þýðubandalagsins og Sósíalista- flokksins er algjör, þar er hver höndin upp á móti annarri. Þeir, sem til skamms tíma hafa staðið saman á móti öðrum eru nú inn- byrðis klofnir, og segja má með sanni, að i þessari pólitísku hreyfingu, ef hreyfingu skyldi kalla, eru nú allir á móti öllum. Deilurnar í Alþýðubandalaginu eru nú raunar orðnar svo flókn- ar, að erfitt er að henda á þeim reiður, en þó er greinilegt, að tvö mál gnæfa upp úr í því sambandi nú á næstu mánuðum, en það eru annarsvegar stofnun Al- þýðubandalagsfélags í Reykjavik og hinsvegar framboð Alþýðu- bandalagsins við sveitarstjórnar- kosningar í vor. Alþýðubandalags- félag í Reykjavík Það hefur lengi verið krafa þeirra manna, sem stutt hafa Hannibal Valdemarssen, að stofn að yrði í Reykjavík Alþýðu- bandalagsfélag, en sem kunnugt er, er ekkert slík félag starfandi í horginni, en hinsvegar eru þau starfandi á ýmsum stöðum úti um land, og eru mjög öflug sums staðar, öflugri heldur en Sósíal- istafélögin á sumum stöðum. Þannig er það t. d. á Norður- landi eystra þar sem Björn Jóns- son hefur ÖU völd. Þar eru Sósíalistafélögin raunverulega dauð. Og sama má segja um Vestfirði, þar sem Hannibal Valdemarsson ríkir. En Sósíal- istaflokkurinn og sérstaklega Sósíalistafélag Reykjavíkur hef- ur jafnan reynt að koma í veg fyrir stofnun Alþýðubandalags- félags í Reykjavík, og hefur tek- izt það hingað tU þrátt fyrir stór orð og mikll’ loforð Frjálsrar þjóðar, málgagns Hannibals Vaidemarssonar og hans fylgis- manna um það, að stofnun Al- þýðubandalagsfélags í Reykja- vík sé nú alveg á næsta leyti. Á sl. vori mátti t. d. lesa í því blaði boðskap um það, að nú mundi Alþýðubandalagsfélag stofnað innan skamms, og sérstök skrif- stofa var opnuð við Skólavörðu- stíg til þess að taka á móti nýj- um félagsmönnum. Þeir munu hafa reynzt vera tiltölulega fáir og skrifstofunni fljótlega lokað. Kosningar í vor Þá er það einnig mikiff áhyggjuefni kommúnistum hversu fara muni um framboð til sveitarstjóriia í vor. Ýmislegt bendir til þess, að samstarfsað- ilar kommúnista í Alþýðubanda- laginu muni ekki hafa sérstakan áhuga á að bjóða fram með þeim á ný, og hyggi jafnvel á sjálf- stætt framboð. Kommúnistar hafa þegar hafizt handa um að forða slíkri þróun mála og hafa þeir haft samband við hina ólík- legustu aðila til þess að reyna að finna samkomulagsgrundvöll um sameiginleg framboð í sveit- arstjórnarkosningunum, en hann hefur ekki fundizt enn. Þessi tvö mál verða vafalaust mikið rædd á flokksstjórnarfundi Sósíalista- flokksins, en líklega hefur flokks stjórn kommúnistaflokksins aldrei komið saman til fundar við jafn iskyggilegar aðstæður og nú er í málefnum kommúnista- flokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.