Morgunblaðið - 04.12.1965, Page 2

Morgunblaðið - 04.12.1965, Page 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagirr 4. des. 1965 Umfangsmesta geimferð USA mun hefjast í kvöld Vísur um drauminn — ný Ijóðabók eftir Þorgsir Sveinbjariiarsoii * * Undirbúningur í fullum gangi þrátt fyrir fremur óhagstæða veðurspá Kennedyhöfða, 3. des. — NTB— AP — KLUKKAN 18:3« á laugardag að ísienzkum tíma er ráðgert að geimfarinu Gemini VII., með geimfarana James Lovell og Frank Borman innanborðs, verði skotið á loft frá Kenne- dyhöfða. Þrátt fyrir að veður- horfur væru ekki sem beztar, héldu sérfræðingar áfram að fullu kappi að undirbúa geim- ferðina í dag, en hún verður að öllu leyti hin veigamesta, sem Bandaríkjamenn hafa nokkru sinni framkvæmt. Er ráðgert að er Gemini VII. hef- ur verið á braut umhverfis jörðu í níu daga, verði öðru geimfari, Gemini VI., skotið á loft með geimfarana Walter Schirra og Thomas Stafford innanborðs. Er ætlunin að geimförin tvö hittist úti í geimnum, og svífi saman með aðeins nokkurra metra milli- bili með hraða, sem nemur um 28,140 km á klukkustund. Þetta stefnumót geimfaranna er talið til mikilvaegustu liða undirbúnings þess, að senda menn til tunglsins. Fullkomna verður þá tækni, að láta geim- för mætast út í geimnum, áður en hægt verður að leggja upp í síðasta áfangann varðandi tunglferðir. Er talið, að takizt þessi tilraun Bandaríkjamanna, sé stórt spor stigið í þá átt, að þeim takizt að senda menn til tunglsins fyrir 1970. A Kennedyhöfða vona menn, að sem minnst tjón verði á skot- pallinum, er Gremini VII, heldur af stað með Titan II. eldflaug á morgun, þannig að hægt verði að hefjast þegar handa um að reisa þar aðra Titaneldflaug, sem skjóta á Gemini VI. á loft. Fyrri Titanskot hafa ekki spillt skotpöllunum að neinu ráði, en komi eitthvað óhapp fyrir í þess um efnum á laugardag, er við- búið að fresta verði síðari Iið geimtilrauna þessara, þ.e. ferð Gemini VI. Ef ekkert óvænt kemur hins- vegar fyrir, munu þeir Bormann og Lovell setja nýtt heimsmet í geimferðum, og vera samtals 329 kls. og 30 mín úti í geimn- um. Núverandi met eiga þeir Gordon Cooper og Charles Con- rad, 190 kls. og 56 min. Ráðgert er að Gemini VII. lendi á Atfants hafinu 14. des. nk. „Árin, sem aldrei gleymast" ísland ag heimsstyrjöldin fyrri, eftir Gunnar Hi. Magnuss ísland og heimsstyrjöldin 1914 til 1918 eftir Gunnar M. Magnúss er að koma út á forlagi Olivers Steins, Skuggsjá. í fyrra kom út bók eftir Gunnar með sama nafni og undirtitlinum: ísland og heimsstyrjöldin síðari. Með þessari bók er þessu ritverki um ísland og heimsstyrjaldirnar báð ar lokið. Þetta er mikið rit, 367 bLs. og auk þess 24 myndsíður. Bókin um síðari heimsstyrjöld- ina varð metsölubók í fyrra, og líklegt er, að margan fýsi að kynnast frásögnum þessarar bók- ar um ísland á og fyrri heims- styrjöldina, en það timabil er eitt hið stórfenglegasta í sögu íslenzku þjóðarinnar. — Bókinni er skipt í marga kafla. Hún hefst á frásögn af morði hertoga- hjónanna í Sarejevo í Bosníu. Sagt er frá hinni ofsalegu her- væðingu um alla Norðurálfu sumarið 1914 og frá hernaðar- kapphlaupi stórþjóðanna, t.d. Þjóðverja og Breta. Þá er sagt frá þeim mikla ótta, sem greip íslenzku þjóðina, þegar stríðið brauzt út, þar eð líklegt var talið, að landið einangraðist, sigl ingar tepptust og vöruskortur yrði í landinu. Þegar fréttir um að stríðið væri skollið á, bárust til Reykjavíkur, var skemmtun- um og jafnvel þjóðhátíð aflýst, en fólk reyndi að kría út mat- væli úr verzlunum og búðir tæmdust af nauðsynjavörum á nokkrum klukkustundum. Nokk- ur kaflaheiti: Stjórnarkreppa, nýr maður, Sigurður Eggerz. — Á konungsfundi. — íslenzkur lög giltur fáni að hún. — „Þurrt land“. — Uppgangur Þjóðverja, Víkingaskipið Emden. — Auglýst ferð, en ekki farin, Goðafoss- strandið. — íslendingar á víg- völlunum. — Eldsvoðinn mikli 1915. — Fimbulvetur aldarinnar. — Eldur uppi í Kötlu. — Drep- sóttin 1918. — Farmenn og fiski- menn á stríðsárunum. — Styr- jöldin í algleymingi. — Einbú- Gunnar M. Magnús. inn í Atlantshafi. — Ýmislegt hefur verið skrifað um þau mál, sem ritið fjallar um, en samfelld saga tímabilsins hefur ekki verið dregin saman áður, segir höfundur í formála. Viihjátmnr Þýzkalandskeisari tatar við þjóðhöfðingja Evrópu um styrjöMina. ÚT er komin hjá forlagi Bóka- útgáfu Menningarsjóðs ljóðabók- in VÍSUR UM DRAUMINN eftir Þorgeir Sveinbjarnarson, skáld. Þorgeir er ljóðaunn<endum að góðu kunnur frá því hann gaf út ljóðabók sína VÍSUR BERG- ÞÓRU 1955. Sú ljóðabók vakti mikla athygli, þegar hún kom út, eitts og mörgum mun vera minnis stætt, enda þótti skáldið slá sér- kennilegan og persónulegan tón í þessari fyrstu bók sinni. Var mikið um hana skrifað og hlaut hún yfirleitt ágætar viðtökur. Þorgeir Sveinbjarnarson er Borgfirðingur að ætt og upp- runa, en hefur búið í Reykjavík síðustu tuttugu ár og verið for- stjóri Sundhallar Reykjavíkur. Fréttamaður Morgunblaðsins hefur komið að máli við-skáldið og spurt hann frétta af þessari nýju ljóðabók, þar á meðal á hvern hátt hann héldi að hún væri frábrugðin hinni fyrri. Þor- geir svaraði því til, að hann gæti lítið um það mál sagt sjálfur, enda eðlilegast að lesendur fyndu það út við lestur bókarinnar. Þessi nýja ljóðabók Þorgeirs Sveinbjarnarsonar, Vísur um drauminn, skiptist í fjóra kafla, og heita þeir: Kjarrið á rætur sín ar í himninum, Hærri þrá, stærri Þorgeir Sveinbjamarsoa. skuggi, Með deginum nýr tonn í þitt land — og loks heitir fjórði og seinasti kaflinn Sá sem lifir í morgundeginum deyr ekki í nótt. í bókinni, sem er 112 blaðsíður að stærð, eru yfir 40 Ijóð auk tveggja ljóðaflokka, Landslag og Kjarvalsstemmu, sem er síðasta Ijóði bókarinnar, skipt í sjö kafla og er helgað Jóhannesi Kjarval. Rússar skjdta upp tunglflaug Moskvu, 3. des. — AP — NTB — SOVÉTRÍKIN skutu í dag á loft fjórðu tunglflaug sinni á þessu ári, Luna 8., og var jafn- framt gefið í skyn að tilgang- urinn með tilraun þessari væri sá, að reyna enn að fram kvæma svonefnda „mjúka lendingu“ á tunglinu, en þrjár slíkar tilraunir Sovétríkjanna. hafa misheppnazt á þessu ári. Luna 8. vegur 1552 kg., og að því er tilkynnt var seinna, er tunglflaugin því sem næst á þeirri braut, sem henni var ætlað. Eins og fyrr getur hafa þrjár tilraunir Rússa til þess að fram- kvæma mjúka lendingu á turvgl- inu misheppnast í ár. Tvær af eldflaugunum skullu á yfirborði tunglsins en sú þriðja hitti það ekki. í opinberri tilkynningu um tunglskotið í dag, segir að aðal- tilgangur þess sé að „kanna nán- ar hinar ýmsu hliðar mjúkrar tungllendingar auk vísindalegra mælinga af öðru tagi.“ Talið er fullvíst að með þessu sé gefið til kynna, að reynd verði lend- in*g á tunglinu. „Mjúk lending“ mælitækja á tunglinu er talin mikilvægt skref í kapphlaupinu um mann til tunglsins. Auk þess, sem slík mælitæki gætu sent radíóskeyti til jarðar með ýmsum upplýs- ingum, gætu þau einnig sent þangað nærmyndir af yfirborði tunglsins og efnagreiningu á því. öll mælitæki í þeim tungl- flaugum, sem Rússar hafa kom- ið áður til tunglseins, hafa eyði- lagzt er þau skullu á yfirborði þess. Talið er, að takist Rússum að framkvæma árangursríka _mjúka lendingú*, fái þeir a.m.k. hálfs árs forskot í kapphlaupinu um að senda menn til tunglsins. í opinberri tilkynningu í gær, sagði að Luna 8. væri því næst á þeirri braut, sem tunglflaug- inni hafði verið ætlað, en slíkt tunglskot gera ráð fyrir að stefnu flaugarinnar verði breytt á leiðinni. Ef allt gengur að óskum, ætti Luna 3. að ná til ‘tunglsins á 3V2 sólarhring, eða um kl. 20 að ísl. tíma nk. mánu- dag. — Afríkurikin ''umh. af bis. 1. bindast samtökum um þetts. Utanríkisráðherra OAU-ríkj-. anna komu saman til fyrsta fundar síns fyrir luktum dyrum. í dag. Stóð fundurinn í sex kLst, og auk úrslitakostanna, sem sett- ir voru Bretlandi á fundinum, var samþykkt að: 1. Öll lönd innan OAU skull þegar setja fullkomið viðskipta- bann á Ródesíu á meðan hvíta minnihlutastjórnin ræður þar ríkjum. 2. Frysta allar bankainnistæð- ur Ródesíumanna í bönkum land- anna. 3. Lýsa ógild öll vegabréf og vegabréfsáritanir, sem stjórn Smiths hefur eða kann að gefa út. 4. Afnemá öll samgöngurétt- indi — einnig loftferðaréttindi. 5. Stöðva allt samband síma, símskeyta og útvarp til Ródesím 6. Hleypa af stokkunum. her- ferð í öllum þeim löndum, sem vinveitt eru Afríkuríkjum, og- æskj’a aðstoðar, sem rniði að því að steypa núverandi stjórn Ródesíu. 7. Beina því til allra landa heims að setja olíuviðskiptabann á Ródesíu og sjá um að Afríku- ríki vinni að því á vettvangi SÆ» að olíubannið verði tekið upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.