Morgunblaðið - 04.12.1965, Blaðsíða 23
I^augarðagtrr 4. des. !•§►■
MORGUNBLAÐIÐ
23
SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN
RITSTJÓBAR: SIGURÐUR HAFSTEIN OG VALUR VALSSON
Ráðstefnur SUS um sjávarutveg og fiskiðnað
Fyrstu ráðstefnurnar í Keflavík og Vestm.eyjum
öllum er heimill aðgangur að
SAMBAND ungra Sjálfstæðis-
manna hefur ákveðið að gangast
á næstu mánuðum fyrir ráðstefn-
um víða um landið. Ráðstefnur
þessar munu fjalla um sjávarút-
veg og fiskiðnað. Tvær fyrstu
ráðstefnurnar verða haldnar í
Keflavík og Vestmannaeyjum.
Árni Grétar Finnsson, formað-
ur Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna segir m.a. í Víðsjá er
Ihann ritar í Stefni, tímarit ungra
Sjálfstæðismanna, sem út kem-
ur innan skamms.
„Að undanförnu hefur mikið
verið rætt og ritað um nauðsyn
etóriðju á íslandi. Bygging al-
umíníum-verksmiðju er efst á
foaugi, og er þess að vænta að
tnál það nái fram að ganga í
nánustu framtíð. Ungir Sjálf-
stæðismenn hafa ótrauðir hvatt
til framkvæmda í þessu máli,
enda telja þeir, að með stóriðju
ekapist auknir möguleikar fyrir
enn bættri velmegun þjóðarinn-
er.
En jafnframt þvi, sem ungir
Sjálfstæðismenn vilja auka fjöl-
breytni atvinnuhátta þjóðarinnar
og fara inn á ný svið, þá leggja
þeir jafnframt áherzlu á nauð-
6yn áframhaldandi uppbyggingu
þeirra atvinnuvega, sem fyrir eru
í landinu.
Okkar gjöfulasti atvinnuvegur
er sjávarútvegurinn. Með stöðugt
vaxandi tækni hefur sjávarút-
vegurinn vaxið hröðum skrefum
og átt stærstan þáttinn í að færa
landsmönnum sí hækkandi þjóð-
artekjur ár frá ári. Gjaldeyris-
tekjur þjóðarinnar, sem aukast
nú árlega, eru að lang mestu leyti
komnar frá þessari atvinnugrein.
Enda þótt framfarir hafi orðið
miklar í íslenzkum sjávarútvegi,
nú á síðustu árum, og mörg vel
foúin skip bætzt fiskiskipastóln-
um, þá blasa enn við margvís-
legir möguleikar, sem fyllsta
ástæða er til að gefa gaum. Fyrst
og fremst er það þó aukin hag-
nýting aflans, sem vinna ber að.
Það auðveldar sóknina að íslenzk
ur sjávariðnaður hefur þegar náð
að þróazt verulega. Engu að síð-
ur er hér stórra átaka þörf, enda
líklegt, að á næstu árum muni
stefnan verða sú, að kappkosta að
auka verðmæti aflans með full-
vinnslu hans innanlands, fremur
en að auka sjálft aflamagnið.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa nú
ákveðið að taka málefni íslenzks
sjávarútvegs og fiskiðnaðar til
meðferðar. Mun á næstunni
verða efnt til ráðstefnu á vegum
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna víðsvegar um landið, þar
sem sérstaklega verður fjallað
um fiskiðnað og síldariðnað. Eru
ráðstefnur þessar vel til þess
fallnar, að efla áhuga manna fyr-
ir þessum málum, jafnframt því,
sem þær munu veita þátttakend-
um fræðslu um málin. Ungir
Sjálfstæðismenn vilja sérstaklega
með þessu undirstrika mikilvægi
sjávarútvegs og fiskiðnaðar, sem
hið frjálsa framtak einstakling-
anna í þjóðfélaginu hefur byggt
upp, sem höfuðatvinnuveg lands
manna.“
VESTMANNAEYJAR
Svo sem áður er getið verður
fyrsta ráðstefnan haldin í Vest-
mannaeyjum á morgun, sunnu-
dag, og hefst hún kl. 14.00. Dag-
skrá ráðstefnunnar verður sem
hér segir: Sigfús Johnsen, for-
maður Eyverja, FUS setur ráð-
stefnuna og stjórnar henni. Er-
indi flytja þeir Guðmundur H.
Garðarsson viðskiptafræðingur
um „Framtíð íslenzks fiskiðnað-
ar og markaðsmöguleika", Hilm-
ar Björgvinsson, stud. jur. um
„Gildi sjávarútvegsins í íslenzku
atvinnulífi" og Jóhann Pálsson
útgerðarmaður um „Framtíðar-
horfur í íslenzkum sjávarútvegi."
KEFLAVÍK
önnur ráðstefnan verður hald-
in í Keflavík þriðjudaginn 7. des.
kl. 20.30 í Aðalveri. Dagskráin
þar verður sem hér segir: Kristj-
án Guðlaugsson, verzlunarmaður
setur ráðstefnuna og stjórnar
henni. Erindi flytja þeir
Árni Grétar Finnsson, form.
SUS, um „Gildi sjávarútvegsins í
íslenzku atvinnulífi", Guðm. H.
Garðarsson viðskiptafræðingur,
um „Framtíð íslenzks fiskiðnað-
Aðalfundur F.U.S. Stefnis í
Hafnarfirði var haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu fimmtudaginn 21.
okt. sl. Fundurinn var vel sótt-
ur og einhugur ríkjandi. Fund-
arstjóri var kosinn Ragnar
Magnússon og fundarritari Æv-
ar Harðarson.
Þór Gunnarsson flutti skýrslu
stjórnar fyrir liðið starfsár og
kom þar greinilega í ljós, að
starfið hefur verið mikið og
blómlegt.
Stjórnin kom reglulega saman
til funda einu sinni í viku og
stundum oftar, þegar þurfa
þótti.
Stefniskaffi var haldið þrisvar
á tímabilinu — ávallt við mjög
góða aðsókn.
Þrír almennir félagsfundir
voru haldnir. Á þeim fyrsta tal-
aði Árni Grétar Finnsson form.
S.U.S. um Sjálfstæðisstefnuna
og á eftir voru almennar um-
ræður. Á næsta fundi talaði Haf-
steinn Baldvinsson, bæjarstjóri.
Þriðji fundurinn var hádegis-
verðar fundur, — nýtt fundar-
form, sem tókst mjög vel. Haf-
steinn Baldvinsson, bæjarstjóri,
flutti erindi á fvmdinum um bæj-
armál. Tókst fundur þessi mjög
vel og var ákveðið á aðalfund-
inum að þessu fundarformi yrði
haldið áfram.
Unglingadansleikir voru fjórir
á árinu, — ávallt við húsfylli.
Farið var í kynnisferð á
Keflavíkurflugvöll.
Stefmr sendi 12 fulltrúa á 18.
þing S.U.S. er haldið var á Akur-
eyri í septembermánuði sl.
Unnið var að endurbótum á
húsnæði félagsins í Sjálfstæðis-
húsinu og félagatalið var tekið
til endurskoðunar.
Sigurður Þórðarson gjaldkeri
félagsins flutti skýrslu um reikn
inga félagsins. Voru þeir ásamt
skýrslu stjórnarinnar samþykkt
ir samhljóða.
Þá fór fram stjórnarkjör.
Þór Gunnarsson var einróma
endurkjörinn formaður.
Aðrir í stjórn: Ævar Harðar-
son (varaform.), Sigurður Þórð-
arson (gjaldkeri), Matthías G.
ar og markaðsmöguleika“ og Jón
Sæmundsson, útgerðarmaður,
um „Framtíðarhorfur í íslenzkum
sjávarútvegi."
SUS mun gangast fyrir ráð-
stefnum um sömu málaflokka
víðar um landið, m.a. á Akra-
nesi, Hellissandi, Flateyri og Pat-
reksfirði.
Mathiesen (ritari), Skúli Böðv-
arsson (spjaldskrárritari).
Meðstjórnendur: Egill Svanur
Egilsson, Reimar Sigurðsson,
Ludwig H. Gunnarsson, Sigur-
dór Hermundarson, Sturla Har-
aldsson.
Að loknu stjórnarkjöri fóru
fram almennar umræður og tóku
margir til máls. Einhugur ríkti
um að gera starfið í vetur sem
bezt.
Frá því aðalfundi "félagsins
lauk, hafa þegar verið haldnir
ýmsir fundir í félaginu.
Efnt var til bæjarmálafundar,
þar sem Páll V. Daníelsson bæj-
arfylltrúi hafði framsögu. Einn-
ráðstefnum þessum en frjálsar
umræður verða að framsögu-
erindum loknum. Er þess að
vænta að ráðstefnurnar verði vel
sóttar og veki menn til tíma-
bærrar umhugsunar um þessi
mikilsverðu mál, sem öll framtið-
arafkoma þjóðarinnar byggist svo
mjög á að farsællega verði fram
úr ráðið.
ig var efnt til fundar um hafn-
armál Hafnfirðinga, þar sem
Eggert Isaksson, bæjarfulltrúi,
hélt framsögu. Var sá fundur í
hádegisverðarformi og fór mjög
vel fram.
22. nóv. sl. minntist Stefnir
þess, að 2 ár voru liðin síðan
hinn hryggilegi atburður átti sér
stað, að Kennedy Bandaríkja-
forseti var myrtur. Flutti þá
Styrmir Gunnarsson formaður
Heimdallar erindi um hinn látna
forseta og á eftir var sýnd kvik
myndin ,Years of lighting, day
of drums".
Trúnaðarmenn félagsins hafa
haldið með sér fundi og ýmislegt
er á döfinni. M.a. er í undir-
búningi fjöltefli eftir áramót.
Stefnir, F.U.S. er nú langstærsta
stjórnmálafélag ungs fólks í
Hafnarfirði og ríkir þar mikill
áhugi félagsmanna um að efla
það enn meir.
Stjórn og trúnaðarmannaráð F.TI.S. i A-Skaftafellssýslu. A mynd-
inni eru sitjandi í fremri röð frá v.: Unnsteinn Guðmundsson, for-
maður, og Björn Eymundsson. Af tari röð frá v.: Jón Helgason, Pét-
ur H. Jónsson og Sigþór Hermannsson. Á myndina vantar nokkra
af embættismönnum félagsins.
H eimdallarfélagar!
Klúbbfundur í Tjarnarbúð í dag kl. 12,30.
Sveinn Benediktsson, framkvæmdastjóri,
ræðir um síldariðnað og síldarmarkaði.
Fjölmennið.
Fjölþætt starfsemi
Stefnis í Hafnarfirði
Þór Gunnarsson endurkjörinn
formaður
STJÓRN F.U.S. Stefnis. Fremri röð frá v.: Matthías G. Mathiesen,
Þór Gunnarsson, Sigurdór Hermu ndsson. Aftari röð: Ævar Harðar-
son, Reimar Sigurðsson, Skúli Bö ðvarsson, Ludwig Gunnarsson og
Sturla Haraldsson.