Morgunblaðið - 04.12.1965, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugarflagwr 4. des. 1965
T vö geimskot á 10 dögum
Annríki á Kennedyhöfða
Á KENNEDYHÖFÐA hefir
aldrei verið annað eins ann-
1 ríki og síðustu vikurnar —
enda er ætlunin að skjóta
tveim Gemini-förum á loft á
næstu tíu dögum.
Áætlað var í gær, að Gem-
ini-7 með tvo menn innan-
^ borðs verði skotið á loft kl.
7 í kvöld eftir íslenzkum tíma
og verði það á lofti í hálfan
i mánuð. Meðan þetta geimfar
verður á braut, verður öðru
tveggja manna fari, Gemini-6,
skotið á loft og er því ætlað
i að hafa „stefnumót" við Gem-
, ini-7, meðan bæði förin þjótá
um himinhvolfið.
1 í>etta táknar, að verkfræð-
ingar og aðstoðarmenn þeirra
verða að ljúka á tæpum tveim
vikum störfum, sem venjulega
taka se^: vikur. Raunar byrj-
i uðu nokkur hundruð starfs-
d manna á þessu verki í októ-
ber, þegar þeir framkvæmdu
venjulega frátalningu varð-
andi Gemini-6 og Titanflaug
þess. Þá átti Gemini-6 að
reyna „stefnumót" í geimnum
en Agena-flaugin, sem átti að
vera hinn aðilinn, tættist sund
ur af sprengingu nokkru eftir
að henni hafði verið skotið á
loft.
Þá var lagt til, að næsta
mannaða geimfar, sem senda
átti á braut, Gemini 7, skyldi
taka að sér hlutverk Agena-
flaugarinnar. Jafnskjótt og
fengið var samþykki fyrir
þeirri breytingu, var hafizt
handa um allan undirbúning.
Ný Titan-eldflaug var þá
reist á skotpalli 29. október og
samdægurs var Gemini-7-far-
ið sett framan á hana, og voru
þetta fyrstu skrefin af undir-
búningnum. Nokkrum dögum
áður höfðu sömu starfsmenn
James H. Lovell.
tekið Gemini-6 stundur til
geymslu, og er sú flaug að
mestu tilbúin til skots, þótt
margt handtakið sé vissulega
eftir. Jafnskjótt og Gemini-7
verður komin á braut, mun
starfsliðið, sem sendi hana út
í geiminn, hraða sér við að
ljúka tíu daga vinnu við að
koma Gemini-6 líka á braut.
Venjulega líða sex vikur á
milli geimskota frá sama skot-
palli. Pallurinn er látinn
kólna hægt, áður en starfs-
menn byrja 4ra daga eftirlit
til að athuga skemmdir af
völdum ofsahita á sjálfum
pallinum, skotturninum og
alls konar tækjum. Brunnin
eða brotin tæki eru fjarlægð
og allt málað hátt og lágt.
Leiðslur með kælivökvum eru
skolaðar, og allt eftirlit yfir-
leitt framkvæmt með mestu
hægð og gætni.
Sérfræðingar prófa Gemini-
farið og Titanflaugina hvort í
sínu lagi, en síðan tekur tvo
daga að ganga tryggilega frá
öllum rafhleðslum jnilli
þeirra. Þá tekur við eins dags
eftirlit á öllum stjórntækjum
og kerfum, svo að geimfararn-
ir geti tekið alla stjórn á
Titan-flauginni í upphafi, ef
þess gerist þörf. Hugsa verk-
fræðingar sér þá alls konar
aðstæður, sem fyrir geti kom-
ið, og hvernig geimfarar eigi
að snúast við þeim.
Þegar kerfin hafa verið
prófuð hvert í sínu lagi, er
tveim dögum varið til að prófa
þau öll í heild, en næstu fjór-
um dögum síðan varið til ná-
kvæmrar skotprófunar. Er þá
farið yfir öll handtök, sem
gera þarf, þegar geimfari er
skotið, og allt þaulreynt hvað
eftir annað.
Eins og þegar er sagt, mundi
allur þessi undirbúningur taka
sex vikur við venjulegar
kringumstæður, en þar sem
hann fór fram — að því er
Gemini-6 snerti — að mestu
og án vandkvæða um mánaða-
mótin september/október,
verður hægt að framkvæma
hann á miklu skemmri tíma.
Svo mikill hiti myndast,
þegar geimfari er skotið á loft,
að ekki er hægt að ganga
nærri skotpallinum klukku-
stundum og jafnvel dögum
saman. Þess vegna verður
fyrsta verkið að kæla skot-
pallinn með miklu vatns-
magni, svo að hægt sé að vera
á ferli á honum. Þegar það
verður unnt, verður eldflaug
og geimfari — Gemini-6 —
komið fyrir við skotturninn og
undirbúningur hafinn af
krafti, en hann verður miklu
styttri en ella vegna þess und-
irbúnings, sem fram hefur far-
ið, svo sem getið var hér að
framan.
Eins og sagt hefur verið, er
vonazt til þess, að allur undir-
búningur fyrir Gemini-6-skot-
ið taki aðeins tíu daga, en
þar sem geimförin munu hitt-
ast sama dag og hinu síðara
verður skotið á loft, þolir það
þriggja daga bið til viðbótar,
að það verði sent á braut.
Geimrannsóknaráð Banda-
ríkjanna hefur tilkynnt John-
son forseta, sem samþykkti
„stefnumót“ Gemini-7 og Ge-
mini-6, að það eigi ekki að
draga úr öryggi geimfaranna,
þótt undirbúningi á síðara
skotinu sé hraðað eins og hér
hefur verið sagt.
S/ö bœkur frá Setbergi
BLAÐINU hafa borizt sjö í>æk-
■ur frá bókaútgáfunni Setberg.
Eru það ævisögur, skáldsögur og
frásagnarþættir.
Sveinn Sæmundsson, blaða-
„ful'ltrúi Flugfélags íslands hefur
ritað bókina í brimgarðinum.
Eru það fjórtán þættir um þrek-
raunir íslenzkra sjómanna.
Sveinn Sæmiundsson hefur lagt
gjörva hönd á margt. aHnn er
Akurnesingur, en fór snemtma
að heiman, hélt í siglingar og
dvaldist vestanhafs við nám og
störf um skeið. Þá gerðist hann
blaðamaður og síðan blaðafull-
trúi síðusfu átta árin hjá Flug-
félagi fslands. Þættirnir fjórtán
bera þessi nöfn: í brimgarðinum,
Þeir lftfðu allir drukknað, í kafi,
Giftusamleg björgun við Kögr-
ið, Es. Bahia Blanca, Björgun
við bæjardyr, Með síldarhleðslu
að skipbrotsmönnum, Það var
góður koss, Síðasta ferð Es.
Ceres, Skúli fógeti ferst við Eng-
land 1914, Flóra í stríðinu, Þor-
móður rammi við Sauðanes, Við
lokuð sund og Þegar Nirði var
sökkt. Bókin er prýdd fjölda
mynda.
Þá hefur blaðinu borizt bókin
Endurminningar Maríu Markan,
söngikonu, sem Sigríður Thorla-
cíus hefur ritað. Á kápusíðu seg-
ir svo um efni bókarinnar:
„María Markan er brautryðj-
andinn meðal íslenzkra kvenna á
erlendum vettvangi. Hún stund-
aði söngnám í Berlín og vakti þar
athygli þegar á námsárum sín-
um. María Markan er fyrsta ís-
Imzka söngkonan, sem sungið
he. ir í óperum og haldið tón-
^Jeika í þremur heimsálfum og
hlotið mikla frægð af. Hún starf-
aði við frægustu söngleikahús,
svo sem Glyndebourne-óperuna
og Metropolitan-óperuna í New
York, og fór hljómleikaferðir
um Ástralíu á vegum ástralska
útvarpsins. Frá því hún fyrst hélt
hljómleika á íslandi hefur María
Markan skipað sérstakan sess í
augum fslendinga. í þessari bók
segir María Markan frá æsku-
árum sínum í Laugarnesi, söng-
námi og starii við erlend söng-
leikjahús, vonbrigðum sínum og
sigrum.“ Bókina prýðir fjöldi
mynda.
Þá hefur Setíberg látið frá sér
fara skáldsögu eftir sænsku skáld
konuna Selmu Lagerlöf. Heitir
skáldsaga þessi Anna Svárd, og
er þetta framhald bókarinnar
Charlotta Lövenskjöld. Selma
Lagerlöf fæddist árið 1858. Hún
var kennari að menntun og um
nokkurt skeið kennslukona við
kvennaskóla. í fyrstu fékkst hún
einkum við ljóðagerð, og birtust
sonnettur eftir hana í sænska
tímaritinu Dagný. Selma Lager-
löf gerðist mikilvirkur rithöfund
ur og samdi fjölda skáldrita á
langri ævi. Fjölmrg verka henn-
ar hafa verið þýdd á íslenzku;
þeirra á meðal tvö þau, er hæst
ber, Gösta Berlings saga og
Jerúsalem. Selmu Lagerlöf hlotn
uðust margvíslegar sæmdir fyrir
ritstörf sín. Hún hlaut doktors-
nafnbót í heimspeki við Uppsala
háskóla árið 1907 og bókmennta-
verðlaun Nóbels tveimur árum
síðar. Árið 1914 var hún kjörin í
sænsku Akademíuna fyrst
sænskra kvenna. Hún lézt árið
1940.
Skáldsagan Anna Svard, er í
þýðingu Arnheiðar Sigurðardótt-
ur, og hlífðarkápu hefur Friðrika
Geirsdóttir teiknað.
Jónas Þorbergsson, fyrrum út-
varpsstjóri, hefur ritað bókina
Ljós yfir landamærin. Þar er
fjallað um áratuga kynni höfund
ar af dulrænum fyrirbærum. í
bókinni greinir frá öllum megin-
dráttum eigin reynslu höfundar
á miðilsfundum og í samstarfi
með ýmsum miðlum. Höfundur
fjallar einnig um trúaibrögð
mannsins, og hvernig „ljós hins
vísindalega spíritisma" rennur
upp yfir mannkyn um miðbik
19. aldar og framgang spíritism-
ans. Bókinni er skipt í þrjá meg-
inhluta, fyrstu, aðra og þriðju
bók. Fyrsta bókin segir frá tveim
ur af mörgum dæmum um það,
hversu tekizt hefur með aðstoð
Hafsteins Björnssonar miðils og
stjórnanda hans að koma af reim
leikum. Önnur bók er um undur
spíritismans og segir frá megin-
dráttum eigin renyslu höfundar-
ins á miðilsfundum. Þriðja bók-
in heitir Ljós yfir landamærin,
og fjallar í fyrsta lagi um það,
hversu trúarþörf hefur verið
mannkyninu eðlislæg frá árdög-
um þess á jörðunni. í öðru lagi
um forsögu kristindómsins og
sögu hans og í þriðja lagi, hversu
„ljós hins vísindalega sypírit-
isma“ rennur upp yfir mannheim
um miðbik 19. aldar. Bókin er
prýdd fjlda mynda, margar af
miðilsfundum.
Þá er komin út önnur útgáfa
af endurminningum Eyjólfs frá
Dröngum, sem Vilhjálmur S. Vil
hjálmsson hefur ritað og nefnist
bókin Kaldur á köflum. Á kápu-
síðu segir:
„Lífssaga Eyjólfs frá Drnögum
lýsir ævikjörum á Breiðafjarðar-
eyjum og á Fellsströnd, embættis
n'önnum og búhöldum fyrir alda
mót og átökum milli þeirra. Eyj-
ólfur var bóndi og sjómaður. Af
hrífandi frásagnargleði segir
hann sögur sínar af örlögum sam
ferðarmanna og atburðum. En bú
skapur var ekki alltaf sældar-
brauð, né sóttu menn ætíð gull
í greipar Ægi, því að hann var
kaldur á köflum.
Þá hefur blaðinu borizt bókin
Winston Churchill eftir Thorolf
Smith. Thorolf Smith er lands-
kunnur blaða- og útvarpsmaður,
og hann hefur áður ritað tvær
ævisögur, ævisögu Abrahams
Lincolns árið 1959 og ævisögu
Johns F. Kennedys 1964. 1 þess-
ari bók Thorolfs er ýtarlega rak-
in saga Churehills, uppruni,
æskuár, menntun, fjölskyldulíf,
ennfremur starf hans sem blaða-
manns, rithöfundar og stjórn-
málamanns um áratuga skeið.
Hér koma við sögu flest stór-
menni Evrópu og Ameríku síð-
ustu 70 árin. Ævisaga Winstons
Churchill er stórbrotin saga mik
iimennis. Bókina prýða yfir 100
ljósmyndir.
Þá hefur blaðinu borizt bókin
Mozart ,undraharn og snillingur,
í þýðingu Freysteins Gunnarsson
ar. Höfundur bókarinnar er Hel-
en L. Kaufmann. Þetta er fimmta
bókin í bókaflokknum frægir
menn, sem Setberg hefur gefið
út. Áður hefur komið í þessum
bókaflokki ævintýrið um Albert
Schweitzer, Thomas Alva Edison,
Friðþjófur Nansen og Henry
Ford. Mozart var fæddur 1756 í
Salzburg og dó í Vínarborg árið
1791. Hann var einn af frægustu
tónsnillingum sem uppi hafa ver
Bókaforlag Odds Björnssonar
á Akureyri hefur sent blaðinu
fjórar nýjar bækur, tvær skáld-
sögur eftir Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur og tvær barnabækur.
Skáldsögur Ingibjargar Sig-
urðardóttur heita Sjúkrahúsiækn
irinn og Feðgarnir á Fremra-
Múla. Ingibjörg Sigurðardóttir
hefur nú látið frá sér fara alls
tíu skáldsögur og eina Ijóðabók.
í skáldsögunni Sjúkrahúslækn-
irinn er fjallað um ást ungrar
stúlku til læknis. Skáldsagan.
Feðgarnir á Fremra-Múla er
hinsvegar sveitaróman.
Þá hefur bókaforlag Odds
Björnssonar gefið út barnabók-
Sátu boð ísl.
konsúlsins
í Hanover
ÍSLENZKI konsúllinn í Hanover,
V-Þýzkalandi, dr. Werner Blunk,
forstjóri, og kona hans, Hilde-
gard, héidu 20. nóvember boð
fyrir íslenzka stúdenta, að árlegri
venju.
Hjónin eru mörgum íslending-
um að góðu kunn, en þau komu
í heimsókn hingað til lands á sl.
ári.
Allmargir íslenzkir stúdentar
við tækniháskólana í Hanover og
Braunschweig sátu boð konsúls-
ins: Guðm-undur Samúelsson og
ið. Eitt kunnasta lag Mozarts
með almenningi hér á landi er
lagið við jólasálminn 1 dag er
glatt í döprum hjörtum. Það lag
er úr Töfraflautunni. í íslenzk-
um söngbókum eru á milli tíu
og tuttugu Ig eftir Mozart. Einna
kunnast þeirra mun vera iagið
við ljóð Þorsteins Erlingssonar,
Nú tjaldar foldin fríða. Saga
Mozarts er sögð í þessari bók í
stórum dráttum, en það er hug-
ljúf saga öllum þeim sem tóniist
unna .
ina Jóa Gunna eftir Ingibjörgu
Jónsdóttur. Þetta er ævintýri
litlu, brúnu bjöllunnar. Bók
þessi er fyrst og fremst ætluð
krökkum upp að tíu ára aldri.
Bókin hefur Oddur Björnsson
myndskreytt.
Hin barnabókin heitir Adda í
kaupavinnu og er eftir Jennu
og Hreiðar Stefánsson. Þetta er
fimmta öddubókin sem nú kem-
ur út í annarri útgáfu. Bókin er
prýdd teikningum eftir Halldór
Pétursson.
Allar eru bækurnar prentaðar
í prentverki Odds Björnssonar á
Akureyri og hinar smekklegustu
að öllum búnaði.
kona hans, Helga; Einar Ásgeirs-
son og kona hans, Auður; Ingi-
mar H. Ingimarsson og kona
hans, Kristín; Þorsteinn Magnús-
son, Friðrik Adólfsson, Halldór
T. Thorsteinsson, Guðmundur
Tulinius og Pálil Pétursson.
íslenzkir stúdentar við þessa
háskóla eru nú fleiri en árið
1964. Nokkrir þeirra eru nú að
hefja nám ytra.
Miami, Florida, AP.
• Havanaútvarpið skýrir
svo frá að innflutningur til
Kúbu frá Spáni hefði á fyrstu
níu mánuðum ársins numið 16
milljónum dollara. Væru við-
skipti þessi meiri en milli Kúbu
og nokkurra ríkja Suður-Amer-
íku.
Tvær skáldsögur og
tvær barnabækur