Morgunblaðið - 04.12.1965, Side 31

Morgunblaðið - 04.12.1965, Side 31
MORGU N BLAÐIÐ 31 1 Laugardagur 4. des. 1965 M.vnd þessi var tekin við undir ritun olíu.samningsins. — Við borðið sitja þeir Albert Tjunis til vinstri og dr. Oddur Guðjónsson. — Að baki þeim standa (talið frá vinstri) Árni Þorsteinsson, Rússinn Galutva, Þórhallur Asgeirsson, Vilhjálmur Jónsson, Rússinn Gratchev, HallgTÍmur Fr. Hallgrímsson, Lebedir, Hreinn Pálsson og Rússinn Nezedrov. Olía og benzín keypt frá Sovétríkjunum fyrir 350 milljónir króna CNDANFARNA daga hafa staðið yfir hér í Reykjavík samninga- viðræður um innflutning á bíla- henzini og olíuni, sem kaupa skal á árinu 1966 samkvæmt við- Skiptasamningi íslands og Sovét- rikjanna, sem undirritaður var í Moskva 11. nóvember s.l. Lauk viðræðum þessum í gær með undirskrift samnings um kaup á 50 þús. tonnum af bilabenzini, 235 þús. tonnum af gasolíu og 110 þús. tonnum af fuelolíu. Heildarverðmæti þessa innflutn- ings er áætlað um ísl. kr. 350 milijónir. VR og ASB segja upp samningum SAMNINGAR Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur renna út nú um næstu áramót, og hef- ur félagið samþykkt að segja þeim upp frá og með 1. jan. 1966, svo að gildistími þeirra framlengist ekki sjálfkrafa. Félag afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkursölubúðum hefur sagt upp samningum við bakarameistara, Alþýðubrauð- gerðina og Mjólkursamsöluna frá áramótum, en þá falla samning- •r þessara aðilja úr gildi. Happdrætti DAS 1 GÆR var dregið í 8. flokki Happdrættis D.A.S. um 200 vinn- inga og fqllu vinningar þannig: íbúð eftir eigin vali kr. 500 þús. kom á nr. 10640, umb. Kefla vík. Bifreið eftir eigin vali fyrir kr. 200 þús. kom á nr. 61767, umb. Aðalumboð. Bifreið eftir eigin vali fyrir kr. 150 þús. nr. 10765, umb. Sand- gerði. Bifreið eftir eigin vali fyrir kr. 130 þús. nr. 32164, umb. Akureyri Bifreið eftir eigin vali fyrir kr. 130 þús. kom á nr. 15513, umboð Flateyri. Húsbúnaður eftir eigin vali .fyrir kr. 25 þús. á nr. 53367, umb. Aðalumboð. Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir kr. 20 þús. á nr. 7609, Aðal- umboð, 16400 umboð Akureyri. Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir kr. 15 þús. á nr. 4827, 16972, 31158 Aðalumboð. Eftirtalin númer hlutu húsbún- að fyrir kr. 10 þúsund hvert: 4849 5075 5107 5271 18790 19786 219^6 29703 37981 57740 (Birt án ábyrgðar). Af hálfu íslands er viðskipta- ráðuneytið aðili að þessum samn- ingi, og undirritaði dr. Oddur Guðjónsson hann af þess hálfu. Hr. Albert Tjunis, forstjóri Sojuznefteexport undirritaði fyrir hönd seljanda. Samningaviðræður þessar önn- uðust fyrir fsland auk dr. Odds, forstjórar íslenzku olíufélag- Einkaskeyti til Mbl. Kaupmannahöfn 3. des. POUL Schmidt, lögfræðingurinn. sem fer með málið vegna hinna islenzku handrita fyrir hönd kenrislumálaráðuncytisins, hefur svarað þeirri spurningu, sem lögfræðingur Árnasafnsnefndar, Gunnar Christrup, hafði spurt i greimargerð sinni. Schmidt svar- ar að eftir umfangsmiklar at- hugamir í ráðuney tunum, hafi það komið í ljós, að engin rikis- stjórn, eftir að þjóðstjórn komst á í Danmörku 1849, hafi nokkru sinni hróflað við skipulagsskrá gegn vilja skipulagsskrárinnar. Christrup telur, það hljóti að hafa þýðingu hvort nokkur ríkis- stjórn kjörin af þjóðinni hefði fyrr notfært sér það leyfisvald, sem þjóðstjórn hefur erft beint frá hinum einvöldu konungum. Hann telur að þetta hafi þýðingu í þessu máli, þar sem hann álítur að gengið sé gegn vilja stjórnar skipulagsskrárinnar. Lögfræðing- ur kennslumálaráðuneytisins tel- ur þetta enga þýðingu hafa, og heldur því fram, að ekki sé um eignarnám að ræða. Hann segir að „Árnasafnsstofnunin hefur engan eignarrétt verndaðan af 73. grein stjórnarskrárinnar á handritum, bréfum og lausum aurum, og að réttindi stjórmar- stofnunarinnar veita henni aíeins leyfi til að fara með stjórn henn- ar.“ Schmidt segir ennfremur að verði safninu skipt, sé þar aðeins um breytingu á stjórn þess að ræða, þar sem fara eigi með handritin á íslandi eftir reglum skipulagsskrárinnar. Þá ræðir hann um eignarnám og afstöðu dómstóla til þess, og segir: „Ef lögin frá 1965 eru tal- in eignarnámslög, en hér er á móti því borið, eru lögin gild anna þeir Hallgrímur Fr. Hall-. grímsson, Hreinn Pálsson og Vil hjálmur Jónsson, en Árni Þor- steinsson var ritari ísl. nefndar- innar. Með hr. Tjunis tóku þátt í við- ræðunum hr. A.P. Gratchev við- skiptaráðunautur sovétsendiráðs- ins í Reykjavík og aðstoðarmenn hans. (Samkvæmt fréttatil'kynn- ingu frá Viðskiptamálaráðu- neytinu). sem heild. Almenningsheill hefur krafizt þeirra. Hvort heldur menn vilja telja, að dómstólarn- ir séu bundnir af ákvörðun lög- gjafarvaldsins varðandi eignar- nám, ellegar telja að dómstól- arnir hafi rétt til þess að dæma urn stjórnarskrárgildi lagasetn- inga, hafa dómstólarnir tekið þá stefnu að dæma ekki eftirá um stjórnarskrárgiidi laga ellegar breyta þeim. Spurningin um skaðabætur er ekki til staðar, sökum þess að ekkert efnahags- tjón er um að ræða.“ Handritamálið mun koma fyrir rétt í apríl. — Rytgaard. Páfagarði 3. des. — AP. LYFTA með Pál páfa VI. inn- anborðs festist í dag á milli hæða í skóla í Róm, sem páfi var að heimsækja. Sat lyftan föst í á aðra mínútu, en fór þá af stað aftur. , Jóla-kjörbingó á Akureyri SÍÐASTA kjörbingó FUS Varðar á Akureyri, á þessu ári, verður í Sjálfstæðishúsinu 5. desember og hefst kl. 8.30 síðdegis. Að þessu sinni verður spilað um 40 vinninga, er allir verða dregnir út, að verðmæti um 38.000 krón- ur. Er margt eigulegra gripa meðal vinninganna. Aðgöngu- miðar verða seldir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins Hafnarstr. 101, á sunnudag milli kl. 2—3 og Verða þá borð tekin frá. — Leifarstöð Framhald af bis. 32. Á fundi rneð fréttamönnum, í húsi Krabbameinsfélagsins að Suðurgötu 22, sagði Bjarni Bjamason læknir, sem jafnframt er formaður Krabbameinsfélags- ins m.a.: — Krabbameinsfélag íslands er aðili að norræna Krabba- meinssambandinu og halda þau furíd árlega, sem snýst um krabbameinsvarnir. Hafa tvær slíkar ráðstefnur verið haldnar á íslandi en þeim er skipt jafnt mður á Norðurlöndin. Tveir ís- lenzkir læknar hafa flutt er- indi á þessum ráðstefnum, Ólaf- ur Bjarnason dósent, og Margrét Guðnadóttir á Keldum, er rann- sakað hefur mæðiveiki í kind- um og sannað að um veirusjúk- dóm væri að ræða, og bendir það til þess að veirur valdi krabba- metni í dýrum. Verið getur einn- ig að veirur valdi krabbameini í mönnum. — Krabbameisfélag’ íslands heldur uppi ýmisskonar fræðslu starfsemi, og er þar efst á baugi sígarettureykingar. Á sínum tíma minnkuðu sígarettureyking ar um helming eða eftir birtingu bandarísku skýrslunnar um síga- rettureykingar sem krabbameins vald. Síðan hefði hún aukist mjög, en samt hefði náðsst nokk ur árangur í þessum efnum. Fréttamenn ræddu því næst við læknana frú Ölmu Þórarin- — Vb. Hanna Framhald af bls. 32. sem við gerðum var að ná í gúm- björgunarbátinn. Þegar við höfð- um gert það, var eldinn farinn að leggja upp í stýrishúsið, og var ekki hægt að komast þar inn. Magnaðist eldurinn mjög ört. — Ég hljóp því næst fram í, þar sem talstöðin er, og byrjaði að kalla á neyðarbylgjunni. Við náðum ekki strax sambandi, en því hefur ef til vill verið um að kenna, að maður var gripinn flaustri. En þegar Árni kom og hafði stillt tækið, tókst okkur að ná sambandi við varðskipið Albert. Munu þá hafa verið liðn- ar um það bil 15 mínútur frá því að við byrjuðum að kalla upp, en klukkan hefur þá verið um 7. — Við báðum Albert um að kalla út á bátabylgjunni, og tókst honum þá að ná sambandi við Tálknfirðing. Við fórum þá strax upp og skutum upp rakettum, og var Tálknfirðingur kominn til okkar eftir svo sem 17—20 mín- útur. Þegar Tálkfirðingur kom að, mátti báturinn heita alelda að aftan, og þá ætluðum við að fara á milli í gúmbátnum, en hann blés sig þá ekki upp. Sigldi Tálknfirðingur þá upp að hlið- inni á Hönnu, en við stukkum síðan yfir. Við tókum gúmbátinn með okkur til þess að hægt væri að kanna hvað valdið hefði því, að hann blés sig ekki upp, en það er tiltölulega skammt síðan hann var skoðaður. — Skömmu eftir að við vorum komnir um borð í Tálknfirðing, urðum við varir við sprengingu í Hönnu, og var þá kominn svo mikill eldur í hana að þýðingar- laust var að reyna að slökkva son er umsjón hefur með Leitar- stöð B, Óaf Jenson kvensjúlt- dómasérfræðing og Ólaf Bjarna- son dósent. Þeim sagðist svo frá að rannsóknir þessar væru mjög kostnaðarsamar en almenntngur hefði stutt þessa starfsemi með því að kaupa happadrættisnsiða Krabbameinsfélagsins, og auk þess hefðu heilbrigðisyfirvöldm verið þeim mjög hliðholl. Lækn- arnir bentu á nauðsyn þess, að konur létu endurtaka rannsókn- ina reglulega og á brýna nauð- syn þess að konur sem ekki hefðu komið til rannsóknar gerðu það hið fyrsta. í Noregi. til dæmis hefðu 80% kvenna sinnt boðu-m leitarstöðvanna þar og mættu íslenzkar konur ekki verða eftirbátar þeirra í þeina efnum. íslenzkar konur hefðu þó þegar áunnið sér sæmd í þessu máli og mundu rannsókn- irnar hér á íslandi vekja athygli vísindamanna víða um heim. í fyrrgreindri greinargerð um starfsemi Leitarstöðvarinnar ís- lenzku var á það bent að sé rekstrarkostnaði hennar þetta fyrsta ár jafnað niður á þær 8030 konur, sem rannsakaðar voru, kæmu krónur 154 á hverja konu og er það mjög svipað vgrð og gerist erlendis. Eins og fyrr segir eru flestar þær konur, sem rannsakaðar hafa verið úr Reykjavík, en í vetur og næsta sumar munu konur utan af landi sitja fyrir rarmsóknum stöðvarinnar. hvar vb. Hanna sökk. hann. Við lónuðum þó þarna nokkra stund, en sigldum að lok- um í burtu. Þegar Tálknfirðingur hafði núna í dag samband við Albert, skýrðu varðskipsmenn frá því, að þeir hefðu komið að Hönnu um kl. 9, og gert tilcaun til þess að slökkva eldinn, en hann var þá orðinn of magnað- ur. Varðskipið fylgdist síðan með bátnum þar til hann sökk rétt rúmlega kl. 12. Eyvindur kvað þá að undan- förnu hafa verið á línuveiðum. Hann hefði verið með Hönnu í rúm fjögur ár, en báturinn var byggður 1940 og stækkaður 1052. Fyrir tveimur árum hefði verið skipt um vél í honum. Hann var 21 tonn, smíðaður úr eik. Handlritamálið enn: Engin stjórn hefur breytt skipulagsskrám

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.