Morgunblaðið - 17.12.1965, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADID
Föstudagur 17. des. 1965
Soaefset Maagham lézt í gæi Málflutningi htaldið dfram
i FiugvaHarmáSinu i gær
Sjá grein á bls. 17.
□—-------------:—-—□
Nice og l.oniton, 16. des.
(AP—NTB)
BREZKI rithöfundurinn
Wiliiam Somerset Maugham
andaðist að heimili sínu, „La
lMauresque“, skammt frá
Nice á _frönsku 'Miðjarðarhafs
ströndinni, 91. árs að aldri.
Hann hafði fengið slag 9.1.
föstudag, og legið raenulaus
síðan. Á laugardag var hann
lagður inn í sjúkrahús í Nice,
en nokkrum mínútum áður
en dauðann bar að garði var
hann fluttur heim til sín að
ósk einkaritara hans, Alans
Searles, sem sagði að rithöf-
undurinn hafi oft látið í ljós
þá ósk að fá að taka á móti
dauðanum í eigin sæng, á eig
in heimili.
Somerset Maugham var
einn auðugasti rithöfundur,
sem uppi hefur verið, og hef-
ur ritað 25 leikrit, 30 skáld-
sögur og um 120 smásögur á
undanförnum 60 árum. Hann
ferðaðist víða um heim í leit
að söguefni, og sögupersónur
sínar fann hann í Bretlandi,
Frakklandi, Ítalíu, Indlandi,
Borneo og á Suðurhafseyjum
— og um borð í skipunum,
sem hann ferðaðist með.
Leit hann svo á að hann
gæti ekki setið heima og beð-
ið eftir að söguefnið sækti
hann heim, heldur yrði hann
að fara á kreik sjálfur og
leita þess.
Ferðalöngunin yfirgaf
hann aldrei. En heilsubrestur
hindraði að hann gæti stund-
að ferðalög síðustu árin. Ár-
ið 1960 fór hann síðustu ferð
sína til Austurlanda, þá 85
ára. Eftir níræðisafmælið
hafði hann hug á að fara til
Capri og Marokkó ,en lækni
hans tókst að telja hann af
þeirri för á þeim grundvelli
að hún hefði orðið hans sið-
asta, og hann ekki komið
heim aftur.
Undanfarið hefur Maugh-
am þjáðst af heyrnarleysi,
sjóndepru og minnisleysi,
auk þess sem hann hefur átt
mjög erfitt með vinnu vegna
liðagigtar.
Lík Maughams verður
brennt í Frakklandi, en ask-
an síðan flutt til Englands og
grafin í grafreit dómkirkjunn
ar í Canterbury.
MUNNLEGUM málflutningi var
haldið áfram í Flugvallarmálinu
svonefnda í gær. Hélt fulltrúi
saksóknara, Hallvarður Ein-
varðsson þá áfram sóknarræðu
sinni og varð henni ekki lokið
en hún hefur staðið yfir í tvo
daga.
Ákæruskjalið á hendur hinum
ákærðu, Jósafat Arngrímssyni,
Eyþóri Þórðarsyni, Þórði Hall-
dórssyni, Áka Gránz og Albert
Sanders skiptist í tvo þætti. Sam
kvæmt þeim fyrra er Jósafat
Arngrímssyni gefið að sök skjala
fals við ýmiss konar verktaka-
starfsemi á Keflavíkurflugvelli
fyrir ýmsa áðila þar, með því að
framvísa til þeirra tilboðum,
reikningum, samningum og öðr-
um þess háttar gögnum tii hag-
nýtingar samkv. efni þeirra með
fölsuðum undirskriftum og síðan
eftir að hafa fengið í hendur
ávísanir til grefðslu á verkum,
framvísað þeim til innlausnar,
tíðast í Sparisjóði Keflavíkur, eft
ir að hafa falsað nafnritanir á
bakhlið tékkanna, sem framsöl
Sjö Afríkuríki slíta stjórn-
málasambandi við Bretland
Afríkufulltrúar gengu af fundi
þegar Wilson ávarpaði 8.Þ.
London, 16. des. (AP—NTB)
Sjö Afríkuríki hafa slitið
stjórnmálasambandi við
Bretland vegna ástandsins í
Rhodesíu, þrátt fyrir tilmæli
Harolds Wilsons forsætisráð
herra um að stjórn Bretlands
yrði veittur frekari frestur
Eigandi
Hvals IX.
LOFTUR Bjarnason, útgerffar-
maður, hafði samband við blað-
ið í gær og bað um aff leiðrétt
yrði það ranghermi í fréttinni
um komu Hvals IX til landsins,
að hann væri eigandi skipsins.
Sagði Loftur, að eigandinn
væri hlutafélagið Hvalur, sem
margir menn væru a'ðilar að, en
hins vegar -væri hann fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. —
Ætti Hvalur h.f. einnig önnur
hvalveiðiskip landsins. Þykir
blaðinu leitt að þessi missögn
skyldi vera í fréttinni og biður
hlutaðeigandi velvirðingar á því.
til að vinna að lausn máls-
ins.
Wilson er staddur í New
York, og flutti í dag ávarp á
fundi Allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna. Þegar
hann gekk að ræðustólnum
stóðu upp fulltrúar nokkurra
Afríkuríkja og gengu út úr
fundarsalnum.
Fyrst til að slita stjórnmála-
sambandi við Bretland voru
Tanzanía og Guinea, sem til-
kynntu sambandsslitin strax í
gærkyeldi. í dag bættust svo
hin ríkin við, Ghana, Mali,
Mauritania, Arabiska sambands-
lýðveldið, og Kongólýðveldið.
Nkrumah forseti Ghana til-
kynnti ákvörðun stjórnar sinn-
ar um sambandsslitin í þinginu
í Accra í dag, og var tilkynn-
ingunni ákaft fagnað. Sagði for
setinn að hann hefði einnig í
huga að segja Ghana úr ,Brezka
Samveldinu. Skoraði hann á
önnur lönd í bandalagi Afriku-
ríkja að rjúfa öll tengsl við
þau nýenduríki, er stæðu í vegi
fyrir einingu Afríku. En meðal
þeirra ríkja taldi , hann Bret-
land, Frakkland, Spán, Portúgal
og Belgíu.
Önnur Afríkuríki þeirra á
meðal Alsír, Nigería, Uganda,
Kenya o.fl., hafa enn ekki fram-
fylgt ákvörðuninni frá Addis
Abeba um að slíta stjórnmála
sambandi við Bretland. Vonast
þau bersýnilega til þess að Bret-
ar taki málið alvarlegum tök-
um, og reyni enn einu sinni að
koma stjórn Ians Smiths frá
völdum í Rhodesíu, án þess að
grípa þurfi til hernaðaraðgerða.
Ríkisstjórnirnar í Japan Belg
íu og á Kýpur tilkynntu í dag
að hert yrði á viðskiptabönnum
við Rhodesíu. Eisako Sato, for-
sætisráðherra Japans, skýrði frá
því að hætt yrði við að flytja
inn sykur og járnmálm, sem
samið hafði verið um kaup á í
Rhodesíu, en áður höfðu Japan-
ir bannað alla vopna- og olíu-
sölu til Rhodesíu. Belgíska
stjórnin skýrði frá því að hætt
hafi verið losun á sykri úr Pan-
amaskipinu „Pericles“ í Ant-
werpen. Sk.'p þetta var á leið
til Bandaríkjanna þegar John-
son forseti setti verzlunarbann á
Rhodesíu. Sneri skipið þá til
Belgíu^ en varð að fara þaðan
í dag án þess að fá afgreiðslu.
Þá tilkynnti Kýpurstjórn að frá
og með deginum í dag yrði all-
ur innflutningur bannaður frá
Rhodesíu.
1 DJÚPA lægðin, sem var út af
Reykjanesi í fyrrinótt . _ var
þá um 945 mib djúp var kom-
in út á mitt Grænlandshaf um
hádegið og mikið farin að
grynnast. Vindur var þá orð-
inn fremur hægur á sunnan
hér á landi, létjtskýjað fyrir
norðan og austan, en sums
staðar skúrir eða krapaél á
Suður- og Vesturlandi. Hiti
var 1-6 stig á láglendi.
Suður í hafi var vaxandi
lægð á leið norður og mun
valda austan hvassviðri við
suðurströndina síðdegis í dag.
og síðan framselt þá með eigin
nafni.
Eyþóri Þórðarsyni er gefi’ð að
sök að hafa átt þátt í ýmsum
fölsunarafbrotum Jósafats Arn-
grímssonar.
Þætti ákæruskjalsins um skjala
fals er skipt í þrjá kafla. Fjallar
1. kafli um nafnfalsanir í sam-
bandi við reikninga, tilboð, samn
inga og önnur slík gögn, en 2.
kafli um ávísanir með fölsuðum
nafnritunum á bakhlið þeirra
sem framsöl og sem síðan var
framvísað, eftir áð ákærðu höfðu
sjálfir framselt tékkana með
eigin nöfnum og þannig fengið
fjárhæðir þeirra greiddar. 3.
kafli fjallar um meint brot Jósa-
fats Arngrímssonar um fölsun í
sambandi við firmaskráningu á
fyrirtæki í Keflavík, er bera
skyldi heitið Guðmundur Jóns-
son.
Annar þáttur ákæruskjalsins
fjallar um brot í sambandi við
sendingu símapóstávísanna um
pósthúsið á Keflavíkurflugvelli.
Samkvæmt 1. kafla þess er Jósa-
fat Arngrímssyni gefið að sök að
hafa náð að svíkja út úr sjóðum
póstmálastjórnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli fé að upphæð kr.
2.667.245,42 á þann hátt að senda
símapóstávísanir pro forma um
pósthúsfð á Keflavíkurflugvelli
Tuniii koma græn
undan snjónum
EGILSSTAÐIR, 16. des.: — Stillt
og gott veður er hér á Héraði í
dag, má segja mjög yndislegt og
hefur vissulega mjög róandi
áhrif, alger mótsetning við veðr-
ið í gær, en þá var sunnan og
suð-austan stormur með helli-
rigningu og 5 stiga hita, enda var
snjórinn ekki lengi að bráðna og
renna burt. Og nú koma túnin
græn undan snjónum, sem var
talsvert mikill og hlífði jörðinni
vel fyrir frostinu, sem oft steig
hátt þennan kuldakafla, sem bú-
inn er að vera um mánaðartíma.
Þess má geta að sl. mánudags-
kvöld komst frostið í 15 stig, en
daginn eftir orðið frostlaust og
farið að rigna. Nú er snjórinn
aðeins eftir hér og þar og góð
færð um alla vegi, enda jólainn-
kaupin og undirbúningurinn í
fullum gangi, og allir þá væntan-
lega að komast í jólaskap.
— M. G.
Fé fækkar á
Akranesi
AKRANESI, 16. des. — Sauð-
fjáreign Akranesinga er nú um
600 kindur í bænum og hefur
farið fækkandi síðustu árin
Fénaðarhöld hafa verið ágæt
hér í sumar, sagði mér í dag
helzti forsjármaður fjáreigenda,
Guðmundur Ó. Ólafsson.
—• Oddur.
til ýmissa aðila í Reykjavík. —
Samkvæmt 2. kafla annars þáttar
er Þórði Einarssyni gefið að sölc
hlutdeild í þessum svikum Jósa-
fats Arngrímssonar og brot í op
inberu starfi og til vara misnotlc
un á fjárvörzlu póstafgreiðslunn
ar á Keflavíkurflugvelli og brot
í opinberu starfi.
Samkvæmt 3. kafla annara
þáttar er Áka Gránz og Albert
Sanders gefið að sök að hafa gef
ið út tékka að upphæð
krónur 2.159.969,53 og hag-
nýtt þá til þess að halda við
ávinningnum af broti Jósafata
Arngrímssonar, sem rakið var I
1. kafla í því skyni að blekkja
póstmálastjórnina svo og hlut-
deild í ýmsum brotum Þórðar
Einarssonar, sem opinbers starfs-1
manns.
Samkvæmt ákæruskjalinu er
krafizt refsingar 'yfir hinum sak
felldu og greiðslu sakarkostn-
áðar.
f dag átti málflutningur að
hefjast kl. 10 árdegis og var þá
ráðgert, að fulltrúi saksóknara
héldi áfram sóknarræðu sinni.
ívar Guðmunds-
sonístuttri
heimsókn
ÍVAR Gúðmundsson, forstöðu-
maður upplýsingaskrifstofu
Sameinuðu þjóðanna á Norður-
löndum, kom til landsins í gær-
kvöldi á vegum SÞ. Mun hann
ræða hér við stjórn Félags Sam
einuðu þjóðanna og ýmsa ráða-
menn áðra.
ívar heldur aftur til Kaup-
mannahafnar á mánudagsmorg-
un. Á meðan hann dvelur hér býr
hann á Hótel Borg.
— Sykurneyzla
Framhald af bls. 32.
var 1,61 að meðaltali, árin 1901-
1905 3,3 1 á mann, mesta öldrykkj
an er árin 1941-1945, þá 13.3 1 á
mann, en nú síðustu árin hefur
meðaltals öldrykkja á mann ver-
ið 7,7 — 9,6 1 á ári.
Áfengisneyzla minni en 1881-’85
Áfengisneyslan umreiknuð í
hreint alkohol var 1881-1885
samkvæmt skýrslunni 2.38 1 að
meðaltali á ári á mann. 1901-
1905 var áfengisneyzlan á mann
1,57 1 og 1956-1960 1,66 1, en síðan
1.60 — 1.95 1 á mann á ári.
í skýringum er þó tekið fram
að árin 1881-1935 sé miðað við
innflutt áfengismagn og talið að
það jafngildi neyzlunni. Þá sé og
allur innfluttur vínandi talinn
áfengisneyzla, þó að hluti hans
hafi farið til annarra nota, en
hluti vínandans hafi á þessu tíma
gera megi ráð fyrir að megin-
bili farið til drykkjar. Frá 1935
er miðað við sölu Áfengisverzl-
unar rikisins á sterkum drykkj-
um og léttum vínum, en vínanda
innflutningur ekki talinn með.
Ekki er heldur talið með áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og
farþegar frá útlöndum taka með
; sér inn í landið, sem muni vera
mikið magn.
Að því er snertir kaffi, sykur
og tóbak er miðað við innflutt
magn og talið að það jafngildi
neyzlunni og varðandi ölið er
miðað við innflutt framan af, en
i eftir að ölgerð var komið hér á
fót, er miðað við innlent fram-
I
I leiðslumagn.
Það var mikil ös í pósthúsinu
í Reykjavík í gær, en þá var
auglýstur síðasti skiladagur
jólapóstsins og var tekið á
móti lionum á þremur stöðum
í borginni. Yinna er byrjuff
við flokkun á póstinum og
stór hópur aukafólks kominn
tii starfa.
Leiðrétling
í fyrradag kom fram í blaðinu
að niðurstöðutölur fjárlaga hefðu
verið þrjár billjónir 8 milljónir
I og 475 þús. kr., en standa átti
. 3 milljarðar 800 millj. 475 þús.
I kr.