Morgunblaðið - 17.12.1965, Qupperneq 3
Föstudagur IV. <?es. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
3
I
SOKKAVERKSMIÐJUNNI
KÚLIBRf HF.
Við framleiðum sokka í
ýmsum litum og þess má geta,
að hvíta sokka framleiðum
við nær eingöngu fyrir Kefl-
víkinga, hvernig sem á því
stendur, en þar er mikil eftir-
framkvæmdastjóra fyrirtækis
ins og verksmiðjustjórann Jón
Pétursson, sem tóku misjafn-
lega gáfulegum spurningum
okkar með jafnaðargeði.
— Hvenær hófuð þið starf-
rsekslu þessarar verksmiðju?
—. Við byrjuðum í maí 1963,
svaraði Ragnar, — og þá með
aðeins eina vél, en síðan höf-
um við bætt við okkur ellefu
vélum af ýmsum gerðum.
Við framleiðum nú um 12.000
pör af sokkum á mánuði og
það er fyrst núna að við full-
nægjum nokkurnveginn eftir-
spurn. Auk þess höfum við
hugsað okkur að færa enn út
kvíarnar efti náramót.
— Hafið þið nokkurn tíma
fengið kvartanir yfir fram-
leiðslunni?
— Við höfum tvisvar sinn-
um á þessum tveimur árum
fengið kvartanir í fyrra
skiptið frá einstakling og í
Á Tunguveg 10 er til húsa
sokkaverksmiðjan Kólibrí h.f.
sem á rúmurn tveimur árum
hefur náð því marki að vera
lang stærsti framleiðandi
herrasokka hér á landi.
Fréttamenn blaðsins brugðu
sér þangað eitt rigningarkvöld1
í desember, og þótt áliðið væri
kvölds var þar allt í fullum
gangi, sérkennilegar vélar
spunnu og spunnu, sokkar
hrúguðust upp og margar iðn-
ar hendur unnu að þrví að full
gera framteiðsluna til að koma
henni á jólamarkaðinn.
Við hittum þarna að máli
Ragnar Tómasson lögfrseðing, Úr vélasal. Jón Pétursson snýr við okkur baki (Ljósm. Sv. Þormóðsson).
Ragnheiður Tómasdottir gengur fra framleiðslunm.
seinna skiptið frá verzlun.
Hins vegar kom það í ljós við
nánari athugun, að í bæði
skiptin var um að ræða sokka
frá allt annarri verksmiðju.
— Hvað hafið þið margar
gerðir sokka á boðstólum?
— Við erum með þrjár
stærðir af drengjasokkum,
tvær gerðir af herrasokkum,
sem þannig skiptast, að í ann-
arri er crepe og í hinni 50%
ull og 50% nylon, mjög hent-
ugt fyrir menn sem mikið eru
á ferli, t.d. lögregluþjóna og
blaðamenn!
spurn eftir þeim. Auk alls
þessa framleiðum við einnig
tvær gerðir telpnasokka.
— Er ekki hörð samkeppni
á þessu sviði sem öðrum?
— Já, hingað eru fluttir inn
ódýrir sokkar frá löndunum
austan járntjalds og að sjálf-
sögðu starfa hérlendis nokkrar
sokkaverksmiðjur, en það
sem mest hefur hjálpað okkur
eru ótvíræð gæði þessara
sokka, og ber ég þar fyrir mig
ummæli verzlana, sem selja
þá, og spyrja i æ ríkari mæii
eftir þeim.
— Iceland food
Framhald af bls. 32.
íslenzkt lambakjöt, tilreitt og
fram borið á þann hátt, er bezt
verður á kosið, til þess, að hinn
sérstæði keimur, sem einkennir
Ikjöt af þesum fjallalömbum, fái
notið sín. Það er einlæg von mín,
eð opnun Iceland Food Center
hér í London í dag, verði enn
einn þáttur í góðum og vinsam-
legum samskiptum milli brezka
heimsveldisins og íslenzka íýð-
veldisins.
Að síðustu vil ég láta í ljós
þakklæti mitt til þeirra, er með
Btörfum sínum hafa rutt braut-
ina fyrir þessari matvælamiðstöð
hér í London, sérstaklega Björns
Björnssonar, sem tryggði þetta
mjög svo ágæta húsnæði, sem
nauðsynlegt er til þess, að ár-
angur náist, svo og öllum þeim
öðrum, sem eytt hafa tíma sínum
og fyrirhöfn í hið erfiða braut-
ryðjendastarf, sem svo auðveld-
lega gleymist, þegar því er lokið.
Ég færi einnig þakkir þeim á-
gætu gestum, sem heiðrað hafa
okkur með nærveru sinni við
þettá tækifæri. Ég óska stjórn,
framkvæmdastjóra og starfsliði
öllu við Iceland Food Centre til
hamingju við opnun þessarar
glæsilegu stofnunar.
Ég er sannfærður um að mið-
stöð þessi verður ein af máttar-
stoðunum undir góðum samskipt-
um Bretlands og íslands.
Ég hef þá ánægju að lýsa nú
yfir opinberlega opnun Iceland
Food Centre, og býð velkomna
gesti okkar og þá, sem í framtíð-
inni heimsækja þennan stað.
Ég vona, að hver sá, er heim-
sækir þennan stað, hverfi héðan
glaður og ánægður".
Þá tók til máfe John Mack-
ie aðstoðarlarDdlbúnaðarráðherra
Breta og talsmaður ráðuneytisins
í brezlka þinginu. í ræðu sinni
minntist hann m.a. á nýlega töku
brezkra togara í íslenzkri land-
helgi _og kvaðsit vona að dómar-
inn myndi taka mildum höndum
er hann álkrræði sekit þeirra. Ann-
ars sagði hann að ekkert jafn-
aðist á við hinar fallegu stúlkur
frá íslandi og hinn góða mat sem
hér væri fram borinn og hér
myndi verða á enskum marikaði
og auka myndi góð samskipti
þjóðanna.
Að sdðustu átti blaðið tal við
Hailldór Gröndal veitingamann
og lét hann mjög vel yfir opnun-
inni, sagði hana hafa bekizt í alla
staði vel, staðurinn smekklegur
og skemmtilegur. Atlhöfninni
lauk með því að hann þakkaði
gestum komuna um kl. 4 í gær.
Iceland Food Oentre verður
opnað almenningi um hádegið á
morgun og mun síðan daglega
opið frá kt. 9 að morgni til 11,30
að kvöldi .
— Gemini
Framh. af bls. 1
an komu þeir báðir út úr
úr geimfarinu, Schirra
og Stafford, brosandi út að eyr-
um. En hljómsveit Wasp lék her-
göngulög meðan áhöfnin hyliti
geimfarana.
Geimfarnarnir tveir voru næst
færðir í læknissikoðun, og var
svo skýrt frá því að geimferðin
hefði engin áihrif á þá haft. Sagði
læknirinn, dr. Howard Minners,
uim Schirra, að það væri rétt eins
og hann væri að koma úr öku-
ferð milli húsa.
Gemini 6 var vel búið kvik-
mynda- og Ijósmyndavélum, og
kvaðst Sehirra hafá ástæðu til að
ætla að myndirnar hafi tekizt vel.
Hann og Stafford halda á morg-
un flugleiðis til Kennedjyhöfða,
þar sem þeir gefa sérfræðingum
skýrslu um ferðina. Má vænta
þess að þá verði leyfð birting
mynda, sem teknar voru í ferð-
inni.
Maður fyrir bíl
UM KL. 6 í gær voru tveir af
götuhreinsunarmönnum bæjar-
ins á leið suður yfir Bringbraut-
ina á móits við Stúdenitagarðinn
oig drógu á eftir sér börur sínar.
Sá sem gekk á eftir, Lúter Jóns-
son, Grenim-el 10, varð fyrir
Volkswagenbíl, sem kom vestur
götuna. Hann fóitbrotnaði og var
fluttur á Landspítalann.
SIAKSTFIIUAR
Ekki ágreiningslaus
ákvörðun
Líklegt er, að sú ákvörðun
þingflokks Framsóknarflokksins,
sem Eysteinn Jónsson skýrði frá
á Alþingi í fyrrakvöld, að leggj-
ast g-egn stóriðjuframkvæmdum
á íslandi, hafi ekki verið átaka-
laus. Vitað er, að ýmsir hinma
yngri manna Fnamsóknarflokks-
ins eru málinu hlynntir, og sum-
ir þeirra hafa barizt fyrir því, að
erlent einkafjármagn yrði fengið
til framkvæmda hér á landi í
fjöida ána. Enda hefur það ber-
lega komið í ljós í skrifum hinna
ynigri Framsóknarmanna í mál-
gagni flokks þeirra undanfarna
mánuði, að þeir hafa síður eo
svo verið andvígir b.vggingu
alúmínverksmiðju hér á landi,
og er því greinilegt, að hin
garnla og afturhaldssama flokks-
forusta hefur pínt þá til undir-
gefni í þessu máli. Það er t.d.
fróðiegt að lesa nú greini, sem
Helgi Bergs, ritari Framsóknar-
flokksins, skrifaði um stórvirkj-
un og stóriðju í Tímann hinn
25. marz s.l., en þar ræðir hann
ítarlega um þessi mál, og kemur
þar fram með ýmis sjónarmið.
í grein þessari segir Helgi Bergs
m.a.: „Atvinnuvegir okkar íslend
iniga og þá sérstaklega útflutn-
ingsatvinnúvegirnir eru mjög
einhæfir. Aukin fjölbreytni í
framleiðslunni er nauðsyn og hún
hlýtur að koma. Framleiðsla á
alúmíni eða önnur framleiðsla
af þvi tagi á sviði efnaiðnaðar
eða málmiðnaðar, sem nota mikla
raforku yrði tækniþróun okkar
íslendinga tvímælaiaust lyfti-
stöng. Það mundi opna okkur ný
svið og veita okkur ný viðfangs-
efni í næstu framtíð“.
Áhrif erlendra
f j ármagnseigenda
minni en áður
Helgi Bergs ræðir síðan í grein
sinni um erlenda fjármagnið og
hætturnar af því, og segir m.a.:
„Til skamms tíma hefur það
verið háttur erlemdra fjármagns-
eigenda, sem festa fé sitt á öðrum
löndum, að krefjast margs konar
fríðinda og sérstakra réttinda,
sem sums staðar hafa leitt til
þess, að fyrirtæki þeirra hafa
ekki lotið sömu lögum og lands-
menn sjálfir, og náð óeðlilegum
tökum á atvinnulífi og þjóðfélags
málum. í þessum efnum eru skil-
yrði nú á seinustu áratugum orð-
in nokkuð breytt. Erlemdir fjár-
magnseigendur verða nú víðast
hvar að sætta sig við að lúta
sömu lögum í einu og öllu og
landsmenn sjáifir, og kemur auð
vitað ekki til greina annað, en
þannig verði gengið frá málum
hér á larndi, ef til kæmi. Áhrif
hinna erlendu fjármagnseigenda
eru einnig minni en áður tíðkað-
ist vegna þess að með síaukinni
tækni hafa slík fyrirtæki færra
fólk í þjónustu sinná og áhrif
þeirra á atvinnulífið og þjóðlífið
eru því að sama skapi minni“.
Þetta eru aðeins örfáar til-
vitnanir í grein Helga Bergs frá
því í marz síðastliðnum, en af
meiru er að taka. Greinilegt er,
að hann telur, að alúmímiðnaður
á fslandi mundi verða tækniþró-
un okkar mikil lyftistöng. Hann
telur einnig, eins og allar aðstæð
ur eru, að ekki verði hjá þvi
komizt, að erlendir aðiiar eigi og
reki slík alúmínfyrirtæki, og
loks tciur hann, að sú hætta af
erlendu eimkafjármagni, sem
menn jafnan tala um, sé ekki
lengur eins mikil og áður var,
og ljóst er af grein hans, að hann
telur ekki sérstaka ástæðu tii
þess að óttast slíkt f jármagn hér
á landj nú. Þessi maður, sem
þannig skrifaði fyrir mokkrum
mánuðum, hefur nú verið kúgað
ur af afturhaldinu í Framsóknar
flokknum.