Morgunblaðið - 17.12.1965, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 17. des. 1965
Jtofgmtlfttfrifr
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Ritstj órnarf ulltr úi:
Auglýsingar:.
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 95.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinssoft.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
AFTURHALDSMENN
¥|eir þingmenn Framsóknar
flokksins, sem heimiluðu
Eysteini Jónssyni að gefa þá
yfirlýsingu á Alþingi, að
Framsóknarflokkurinn væri á
móti stóriðjuframkvæmdun-
um, sem fyrirhugaðar eru og
stórvirkjun við Búrfell, og
myndi beita sér gegn þeim
framkvæmdum, hafa sjálf-
sagt ekki gert sér grein fyrir
því, að þessi samþykkt kynni
að vera sú, sem nafn þeirra
yrði lengst tengt við. Sumir
þeirra hafa sjálfsagt haldið
að hér væri aðeins um að
ræða venjulega pólitíska ref-
skák; ekkert væri talið at-
hugavert við það að stjórn-
arandstaðan væri á móti
þessu máli eins og yfirleitt
öllum framfaramálum, sem
ríkisstjórnin hyggst hrinda í
framkvæmd. Aðrir hafa beygt
sig fyrir flokksvaldinu og
hugsað sem svo, að Eysteini
Jónssyni yrði kennt um þessa
ákvörðun.
í þingflokki Framsóknar-
flokskins eru nokkrir menn,
sem aldurs vegna hefði mátt
ætla að gerðu sér grein fyrir
umbreytingum þeim, sem eru
að verða um víða veröld og
nauðsyn þess, að við íslend-
* ingar verðum ekki eftirbát-
ar annarra í tækniframförum
og stóriðju. Sumir þessara
manna hafa raunar látið svo
sem þeir skildu þetta og
væru miklir baráttumenn
þess, að unnið yrði að stór-
felldum efnahagsframförum
hérlendis.
Nú er komið á daginn að
þessir menn hafa lyppast nið-
ur fyrir afturhaldssjónarmið-
um þeim, sem oftast hafa ráð-
ið lögum og lofum í Fram-
sóknarflokknum, nema þá að
þau séu þeim ekki eins and-
hverf og þeir hafa viljað vera
láta.
En með andstöðu Fram-
sóknarflokksins við mestu
framkvæmdir í sögu íslenzkra
atvinnumála hafa línurnar í
stjórnmálunum enn skýrzt.
Það er ekki einungis svo, að
Framsóknarflokkurinn vilji á
ný innleiða haftastefnu þá,
bitlinga og spillingu, sem hér
ríkti, heldur hefur flokkur-
inn einnig lýst því yfir, að
hann muni berjast á móti stór
framkvæmdum, sem að því
miða að styrkja íslenzkt efna
hagslíf og hefja iðnvæðingu
landsins, á þann hátt sem all-
ar þjóðir keppa nú að. Fram-
sóknarflokkurinn hefur kos-
ið sér það hlutskipti að vera
argvítugasti afturhaldsflokk-
ur, sem um getur, enda ekki
kunnugt um neinn stjórn-
málaflokk í lýðfrjálsum ríkj-
um, sem héfur stefnu neitt
svipaða því, sem Framsóknar
flokkurinh hefur markað sér
nú.
„Rök“ þau, sem formaður
Framsóknarflokksins týnir til
fyrir afstöðu flokksins, eru
líka harla léttvæg. Helzt eru
þau, að vinnuaflsskortur
hamli þessum framkvæmd-
um. En þess er þá að gæta,
að naumast mun til sá íslend-
ingur, sem heldur því fram,
að ekki verði að halda áfram
að byggja upp atvinnutæki
hérlendis og þegar um viiinu-
aflsskort er að ræða, ,er ein-
mitt frumskilyrðið að ein-
beita kröftum að framleiðslu,
þar sem það eru fyrst og
fremst vélarnar sem vinna, en
fáar hendur þarf til að fram-
leiða mikil auðæfi. Þess
vegna eiga einmitt stóriðju-
framkvæmdir að sitja í fyrir-
rúmi, þegar lagt er inn á ný
svið atvinnurekstrar.
' Þess er svo einnig að gæta,
að raforkuskortur er hér á
næsta leiti, ef ekki verða
hafnar nýjar virkjanir, og
ljóst er, að smærri virkjanir
útheimta hlutfallslega bæði
meira vinnuafl og fjármagn
og eru í alla staði óhagkvæm-
ari.
En hugsunarháttur kreppu-
áranna hefur sína fulltrúa í
Framsóknarflokknum, og e.t.
v. má segja, að ekki sé furða
þótt Eysteinn Jónsson sé nú
heltekinn þessum hugsunar-
hætti, úr því hann var það á
yngri árum sem mikill ráða-
maður. Hitt er vissulega
furðulegt, að menn, sem
yngri eru að árum, skuli vera
álíka skamsýnir og þessi full-
trúi kreppuhugsunarháttar-
ins.
BREYTIR ENGU
UM FRAMGANG
MÁLSINS
llfforgunblaðið harmar auð-
vitað, að Framsóknar-
flokkurinn skuli bregðast
þjóð sinni og stuðningi við
mestu framkyæmdir á sviði
atvinnumála, með andstöðu
gegn stórvirkjun og bygg-
ingu alúmínbræðslu, því að
æskilegast hefði verið að öll
lýðræðissinnuð öfl sameinuð-
ust um að hrinda þessum stór
verkefnum í framkvæmd.
Frá eigingjörnu sjónarmiði
mætti þó segja, að Sjálfstæð-
ismenn gætu glaðst yfir þess-
ari afstöðu Framsóknarfor-
ustunnar, því að nú vita allir,
að Framsóknarflokkurinn er
argvítugasti afturhaldsflokk-
ur sem um getur, og margra
áratuga gamall hugsunar-
háttur ríkir þar. Þess vegna
verður auðvitað auðveldara
að berjast við þennan flokk,
sem með afstöðu sinni firrir
sig öllu trausti yngri kyn-
slóðarinnar a.m.k.
Fjölskyldudeilur í Kuwait
Þar sem 300 þúsund tonn af olíu renna
úr jörðu á degi hverjum
FURSTADÆMIÐ Kuwait fyr-
ir botni Persaflóa er ekki fyr-
irferðamikið á landakortinu,
aðeins um tíu þúsfnd ferkíló-
metrar. Og veð»^4<an þar þyk
ir ekki sérlega eftirsóknar-
verð, því oftast er þar um 40
stiga hiti í skugga á daginn.
En á degi hverjum renna þar
úr jörðu um 300 þúsund tonn
af olíu, sem gerir Kuwait eitt
auðugasta ríki heims.
Um áratugi var Kuwait
verndarsvæði Breta, en fullt
sjálfstæði fékk landið um mitt
árið 1961. Átti ríkjandi fursta
ætt þó lengi í deilum við
stjórn íraks, sem gerði kröf-
ur til landsins. Og þessar dei'l-
ur voru ekki leystar fyrr en
seint á árinu 1963, eftir að
furstinn í Kuwait, Abdullah
al-Sabah, hafði veitt íraks-
stjórn 30 milljón dínara lán,
sem nemur í íslenzkum krón-
um um 3.600 milljónum. —
Nokkru áður hafði þó Kuwait
fengið aðild að Sameinuðu
þjóðunum, þrátt fyrir mót-
mæli íraks.
AUÐUG FJÖLSKYLDA
Fátt hefur gerzt þar frétt-
næmt síðan, þar til seint í
nóvember sl. er Abdullah
fursti lézt. Hann var meðal
auðugustu manna jarðar, ef
ekki sá auðugasti. Og margir
frænda hans, sem einnig bera
furstanafnbót, teljast hver
um sig eiga eignir, sem metn-
ar eru á þúsundir milljóna
króna. En Abdullah fursti
hafði áhuga á fleiru en að
safna auði. Og miklum hluta
tekna sinna varði hann til að
bæta lífskjör þjóðarinnar. —
Undanfarin fimmtán ár hafa
verið reistar 35 hallir höfð-
ingjanna í Kuwait. En þar
hafa einnig verið bygðir skól-
ar, sjúkrahús og bókasöfn, og
allt er þetta opið almenningi
ókeypis. Alls eru íbúar Ku-
wait um 450 þúsund, og eru
hvítir menn aðeins í meiri-
hluta. Og olian ein færir rík-
inu tíu þúsund milljón króna
tekjur árlega, svo skiljanlegt
er að aðrar þjóðir hafi litið
Kuwait hýru auga.
Fyrir valdatöku Abdullah
fursta var öðru vísi um að
litast í Kuwait, því þá var
olían ekki komin til sögunn-
ar. Þess vegna hefur honum
verið þökkuð þróunin. Marg-
ir hafa því látið í ljós áhyggj-
ur varðandi frámtíðina.
ÁGREININGUR
Við lát Abdullah, tók bróð-
ir hans, Sabah es-Salem fursti,
við völdum, en hann hafði áð-
ur gegnt forsætisráðherraem-
bætti hjá bróðurnum. Og
frændi þeirra bræðra, Jaber
al Ahmed, varð forsætisráð-
herra, en hann hafði áður
gegnt embætti fjármálaráð-
herra.
Þótt nýi furstinn og nýi for-
sætisráðherrann séu frændur,
tilheyra þeir hvor sinni grein
í Kuwait skiptast á gamalt og *uýtt
Nýi furstinn, Sabah es-Salem
fjölskyldunnar, og um langt
skeið hafa þessar tvær grein-
ar átt í deilum. Gætu þær
deilur einar haft talsverð á-
hrif á framtíð landsins. En
auk þeirra vil'l nýi furstinn
feta kyrfilega í fótspor bróð-
ur síns og engu breyta í stefnu
stjórnarinnar frá því sem var.
Er hann þar í andstöðu við
nýja forsætisráðherrann, sem
vill að Kuwait styrki aðstöðu
sína og áhrif innan Arabaríkj-
anna.
Jaber al Ahmed, forsætis-
ráðherrann nýi, hefur um
langt skeið haldið þessari
stefnu sinni á lofti. Meðan
hann var fjármálaráðherra
kom hann á fót 12 þúsund
milljón króna sjóði til að
stuðla að efnahagsþróun
Arabaríkjanna. Og á síðustu
tveimur árum hefur hann
veitt öðrum Arabaríkjum um
1.500 milljón króna lán. Með-
al lántakanna er Egyptaland,
og hefur fé það, sem Egyptar
hafa fengið frá Kuwaít, gert
þeim fært að halda áfram
hernaði í Jemen.
Þingið í Kuwait er skipað
60 fulltrúum, og hefur meiri-
hluti þess óskað að þessi að-
stoð yrði stöðvuð, en Jaber al-
Ahmed neitað að verða við
óskum þess. Þar greinir enn á
með furstanum og forsætis-
ráðherranum.
—★—
Olían í jörðu gerir það að
verkum að of mikið fé er fyr-
ir hendi í Kuwait. Svo mikið,
Framhald á bls. 31.
Þess er einnig að gæta, að
þessi afstaða Framsóknaraft-
urhaldsins breytir engu um
framgang stóriðjumálsins. —
Stjórnarflokkarnir báðir hafa
lýst því yfir, að þeir muni
hrinda því máli í fram-
kvæmd, svo framarlega sem
heilbrigðir og eðlilegir samn-
ingar nást við hið svissneska
fyrirtæki og Alþjóðabankann,
en eins og kunnugt er bendir
nú allt til þess að svo fari.
Stóriðja mun þess vegna
verða veigamikill þáttur í at-
vinnumálum íslendinga í
framtíðinni hvað sem líður
afstöðu Framsóknarflokksins,
og stórár landsins munu nú
verða beizlaðar hver af ann-
arri, enda ríður á miklu að
hraða raforkuframkvæmdum,
áður en samkeppnin frá kjarn
orkuverum harðnar. En allir
eru sammála um, að ódýrasta
orkan verður um alla fram-
tíð frá vatnsaflsorkuverum,
þegar tekizt hefur að afskrifa
þau í einn til tvo áratugi.
íslenzka þjóðin bar gæfu
til þess í síðustu þingkosning-
um að kjósa nógu marga fram
sýna menn á Alþingi, og þott
meirihlutinn sé naumur,
nægir hann til þess að
tryggja framgang þessa stór-
máls, eins og svo margra ann-
arra, en háðung og skömm
Framsóknarflokksins mun
lengi uppi, og ekki er ólík-
legt að afstöðu hans verði á
spjöldum sögunnar líkt við
baráttuna gegn símanum á
sinni tíð, enda fá afturhalds-
menn ætíð sinn dóm.
J