Morgunblaðið - 31.12.1965, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.12.1965, Blaðsíða 5
Föstudagur 31. des. 1965 5 MORGUNBLADIÐ Nátttröllið í glugganum Nátttröllið á glugganum. Málverk eftir Ásgrím tónsson. Á einum bæ var það, að sá sem gæta átti bæjarins á jóla nóttina meðan hitt fólkið var við aftansöng, fannst annað- hvort dauður að morgni eða æðisgenginn. Þótti heimamönnum þetta illt og vildu fáir til verða að vera heima. Einu sinni býðst stúlka ein til að vera heima. Urðu hinir því fegnir og fóru burt. Stúlkan sat á palli í bað stofu og kvað við barn eitt, sem hún hélt á um nóttina er komið á gluggann og sagt: „Fögur þykir mér hönd þín, snör mín, en snarpa, og dillidó". Þá segir hún: „Hún hefur aldrei saur sópað, ári niinn, Kári, og korriró". Þá segir hinn á glugganum: „Fagurt þykir mér auga þitt, snör mín, en snarpa, og dillidó". Þá segir stu livun, „Aldrei hefur það illt séð, ári minn, Kári, og korriró '. Þá er sagt á glugganum: „Fagur þykir mér fótur þinn, snör mín, en snarpa, og dillidó“. Þá segir stúlkan: Aldrei hefur hann saur troðið, ári minn, Kári, og korriró“. Þá er sagt á glugganum: „Dagur er í austri, snör mín, en snarpa, og dillidó“. Þá segir stúlkan: „Stattu og vertu að steini, en engum þó að meini, ári minn, Kári, og korriró". Hvarf þá vætturinn af glugg- anum. En Um morguninn, þegar fólkið kom heim, var kominn steinn mikill í bæjar- sundið, og stóð hann þar æ síðan. Sagði þá stúlkan frá því, er fyrir hana hafði borið um nóttina, og hafði það ver- ið nátttröll, sem á gluggann kom. (Úr Þjóðsögum Jóns Árna- sonar, eftir handriti Magn- úsár Grímssonar, „eftir sögn gamallar konu úr Kangár- þingi“.) Stork- urinn sagði svona rétt aðeins, mínir elsk- anlegu, þolinmóðu lesendur og svona rétt aðeins, mínir elsk- enlegu, þolinmóðu lesendur og aðrir velunnarar, samt óvinir á fleti fyrir, ætla ég að óska ykk- ur allrar árgæzku og friðar á komandi ári með angurblíðri og kærri þökk fyrir liðna árið. Megi nýja árið verða ykkur bæði frjó- samt og gjöfult, og vonandi fæ ég oft að koma í heimsókn til ykkar, þótt ég verði þá auðvitað að heimsækja ykkur á Fæðing- erdeildina. Sem ég flaug hérna fyrir fram- an Morgunblaðshúsið í gjólunni í gær, hitti ég mann, sem þegar var byrjaður að áramótast og söng við raust hinn gullfallega smálm: Nú árið er liðið í ald- anna skaut. Storkurinn: Ekki ert þú með neitt víl út af því að vera búinn að tapa árinu, góði? Maffurinn áramótaglaði: O, ekki. Þetta er bara eins og að skipta um strætisvagn. Maður fer úr einum og inn í annan. Aðalatriðið er að fara ekki inn i skakkan vagn. Þetta er mjög skarplega at- hugað hjá þér, sagði storkurinn, nema það, að ég myndi segja, að yfiraðalatriðið væri að missa ekki af strætisvagninum í þess- ari dæmisögu, og með það var hann floginn upp á einn bálköst- inn hjá krökkunum og söng eins og maðurinn: Nú áriff er liffiff í aldanna skaut, og ajdrei það kemur til baka. FRÉTTIR Kristilegar samkomur verða í samkomusalnum Mjóuhlíð 16. nýjárskvöld og 2. í nýári kl. 8. Allt fólk hjartanlega velkomið. Fíladelfía, Reykjavík. Fórnar- samkoma vegna kirkjubygging- arinnar, sem með réttu átti að verða fyrsta sunnudag í janúar, flyzt til sunnudagsins 9. janúar. Hjálpræffisherinn. Úthlutun á fatnaði verður þriðjudag og mið- vikudag milli 10—12 og 2—5. Hjálpræffisherinn. Gamlárs- kvöld kl. 23:00 Áramótasam- koma. Brigader Driveklepp og majór Svava Gísladóttir stjórna. Nýjársdiag kl. 16:00. Jólatrés- hátíð fyrir börn og fullorðna. kl. 20:30. Hátíðarsamkoma. Kaf- teinn Ernst Olsson og frú stjórna. Sunnudag kl. lil: Helg- | unarsamkoma. Kl. 20:30. Hjálp- ræðissamkoma. Majór Aima Ona, lautenant Bent Vold, og lauten- ant Alma Kaspersen stjórna. Kl. 14: Jólafagnaður Sunnudagaskól- I ans. Mánudag 3. janúar: Jóla- fagnaður fyrir sjómenn og Fær- eyinga. Þriðjudag 4. janúar: Norsk juletrefest. Majór Óskar | Jónsson og frú stjórna. Sunnudagaskóli Hjálpræffis- hersins. Sunnudag 2. janúar kl. 14: Jólafagnaður Sunnudagaskólans. I Jólatrésskemmtun K.F.U.M. og | K. í Hafnarfirði verffur sunnu- daginn 2. janúar kl. 2:30 og kl. 5. i Affgöngumiffar verffa seldir í dag milli kl. 4 og 6 í húsi félaganna, j Hverfisgötu 15. Kvenfélag Laugarnessóknar. I Munið fundinn mánudagskvöld 3. janúar kl. 8:30. Spilað verður j Bingó. Stjórnin. VEKTU MÍCt þEGflE ÞÚ KEÁlUR/ SfcMú/jfí— INGÓLFS-CAFÉ GÖMLU DANSARNIR k. 9 sunnud- 2. jan. Hljómsveit GARÐARS JÓHANNESSONAR. Söngvari: BJÖRN ÞORGEIRSSON. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826. Silfurtunglið Nýársdagur 1. janúar — laugardagur. Gömlu dansarnir til kl. 2. Magnús Randrup og félagar leika. ☆ ☆ ☆ Unglingaskemmtun kl. 3—5 e-h. FJARKAR leika. ☆ ☆ ☆ Sunnudagur 2. janúar. Toxic leikur frá kl. 9-1 ☆ ☆ ☆ Unglingaskemmtun kl. 3-5 FJARKAR LEIKA Silfurtunglið ART FARMER Þar sem tekist hefur að fresta för FARMERS til New York, verður efnt JAM SESSION í GLAUMBÆ KL. 3—6 Á NÝÁRSDAG. JAZZKVÖLD í TJARNARBÚÐ mánud. 3. janúar kl. 9—1. JAZZKLÚBBUR REYKJAVÍKUR. Þökk fyrir gamla árið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.