Morgunblaðið - 31.12.1965, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.12.1965, Qupperneq 15
Fostudagur 31. des. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 15 Bjarni Benedikfsson forsætisráðherra AIAMOT LÖNGUM hefur verið tal- ið, að sagan af Hólmfasti Guðmundssyni, hjáleigu- manni á Brunnastöðum, skýrði betur niðurlægingu íslendinga á einokunartím- unurn og orsakir eymdar þeirra, en ítarlegar frá- sagnir af lagaboðum og þjóðháttum. Að sögn Jóns AðiLs í Einokunarsögu hans, gerði Hólmfastur „sig sek- an í því ódæði að selja Kefla vík 3 löngur, 10 ýsur og 2 sundmagabönd árið 1698, í stað þess að láta Hafnar- fjarðarverzlun sitja fyrir kaupunum. Var hann hýdd- ur við staur í návist Miiliers amtmanns fyrir þetta til- tæki, af því hann átti eigi annað upp í sektirnar en gamalt bátskrifli, sem kaup- maður vildi eigi líta við.“ | Með svipuðum hætti varpa málaferli valdsstjóm arinnar gegn Ingvari Guð- jónssyni, sem frá er greint í Hæstaréttardómum ársins 1941 síðu 38 o-s.frv., Ijósi yfir stjómarhætti á árun- um fyrir síðari heirns- styrjöldina. Samkvæmt því, sem þarna er rakið, flutti Ingvar Guðjónsson árið 1938 m.a. út síldarsending- ar, sem hann fékk fyrir ísL kr. 32.836.75- í undirréttar- dómnum segir orðrétt: „Fé þessu ráðstafaði kærður síðan í erlendum gjaldeyri til greiðslu á skipi, m/s Gunnvör, sem hann keypti í Englandi um þessar mundir. Kærður tel- ur sig í árslok 1938 hafa haft rökstudda von um að fá leyfi gjaldeyris- og inn- flutningsnefndar til þess að greiða fiskiskip með and- virði útfluttrar síldar, en þó telur hann sig engan ádrátt hafa fengið um að mega ráðstafa andvirði út- flutningsins 1938 í því skyni. Kærður fékk síðan 7. febrúar 1939 heimild gjald- eyris- og innflutningsnefnd ar til þess að flytja inn vél- skip til fiskveiða og greiða það með andvirði útfluttrar síldar með 80 þúsund krón- um, sem skiptust jafnt á árin 1939—1941. Kærður hefur játað að hafa hagnazt á því að ráð- stafá framannefndu fé af útflutningi ársins 1938, í staðinn fyrir að ráðstafa af útflutningi ársins 1939, eins og hann hafði heimild til, um upphæð, sem nemur þeirri gengisbreytingu, sem varð á íslenzkri krónu gágn vart sterlingspundi, miðað við gengið 1938 annars veg- ar og gengið í júlí-ágúst hins vegar, en sá ágóði nemur, samkvæmt útreikn- ingi löggilts endurskoð- anda, ísl. kr. 7-190.00“. Síðar segir: „Rétturinn telur, að kærður........hafi með því að ráðstafa fyrmefndu and- virði útfluttrar síldar 1938 til nefndra skipakaupa, svo og með ráðstöfun umget- inna kr. 2.000 00 til ferða- kostnaðar og námskostn- aðar, án þess að hafa þar til heimild, gerzt brotlegur við 1. gr. gjaldeyrislaganna nr. 73 frá 1937 og 6. gr. reglugerðar nr. 50 frá 1938 tt Dómur Hæstaréttar varð: „Kærði, Ingvar Guðjóns- son, greiði 1.500 króna sekt í ríkissjóð, og komi 45 daga varðhald í stað sektarinnar, ef hún greiðist ekki innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa“. Hins vegar var ekki á það fallizt í Hæstarétti, að gengisgróðinn, kr. 7.190.00, yrði gerður upptækur til ríkissjóðs, vegna þess að ekki hafði verið gerð lögmæt krafa um slíkt í málshöfð- unar-tilkynningu héraðs- dómarans- ★ Ekki verður um það deilt, að Hólmfastur Guð- mundsson og Ingvar Guð- jónsson höfðu báðir brotið á móti landslögum. Fyr- ir einvaldskonunginum danska, sem lögfesti einok- unina, og Eysteini Jóns- syni, sem bar stjómskipu- lega ábyrgð á gjaldeyrislög- unum frá 1937, og var við- skiptamálaráðherra, þegar Hermann Jónasson hóf málareksturinn gegn Ing- vari Guðjónssyni hefur og áreiðanlega báðum vakað það, að verða íslandi að gagni. Einokunar- og hafta- postulamir eru og hafa ætíð verið sannfærðir um, að án þeirra forsjár muni allt fara úr skorðum. Um hörmungar einokun- arinnar þarf ekki að ræða. Allir þykjast nú í orði kveðnu sannfærðir um, að þær hömlur og höft, sem þá voru í góðu skyni lögð á landsfólkið, hafi haft þver- öfug áhrif og valdið miklu um þá afturför, sem hér varð öldurn saman og nærri hafði leitt til landauðnar. En var það nokkm skyn- samlegrá’ afi elta menn með lögsókn á árinu 1939 fyrir það, að hafa án nægrar heimildar ráðstafað fé til kaupa á fiskiskipi til lands- ins? Að vísu var það borið fyrir, að kaupandi hefði hagnazt nokkrar þúsundir á því að hafa borgað hluta af skipinu fyrr en leyfið heimilaði loksins, þegar það fékkst, og þar með tryggt sér skipið nokkrum mánuðum eða jafnvel miss- erum fyrr en ella, Menn hljóta þó að velta því fyrir sér, hvort á þessum árum hafi verið slíkur ofvöxtur í skipakaupum íslendinga og skortur á sjómönnum, að ástæða hafi verið til að hundelta þá, sem vörðu fé sínu til að auka fiskiflota þjóðarinnar. Um þetta þarf ekki að fara mörgum orðum. Á þessum árum var meiri ör- birgð hér, en þeir, sem ekki kynntust af eigin raun, geta nú gert sér grein fyrir. Menn gengu atvinnulausir þúsundum saman, m.a. vegna þess, að hér skorti at- vinnutæki, þ.ám- fiskiskip, til þess að sjá öllum far- borða. Stjóm Hermanns Jónás- sonar kom til valda upp úr miðju ári 1934. í aprílmán- uði 1939 var þjóðstjórnin mynduð undir forsæti Her- manns Jónassonar. Sjálf- stæðismenn og Alþýðu- flokkur gengu þá til sam- starfs við Framsókn til að reyna að bjarga þjóðinni úr því öngþveiti, sem í var komið. í árslok 1933 nam fiski- skipastóll landsins, þ.e. tog- arar, línuveiðarar og vél- bátar, samtals 25.144 brúttó- rúmlestum. í árslok 1939 hafði þessi tala hækkað í 26,- 432. Sú aukning nemur 214 brúttórúmlesum á ári. Þegar svo stóð, sýnist ekki hafa verið brýn ástæða til þess, að standa fast gegn þeim, sem vildu kaupa ný fiski- skip til landsins eða hafa refsivöndinn hátt á lofti gegn þeim, þótt þeir yrðu ívið hraðvirkari um skipa- kaupin en hinum umhyggju sömu f orsj ármönnum þótti henta. Skiljanlegt er, að hinir forsjálu stjórnendur vildu fara spart með gjaldeyri- En sú hugsun virðist hafa verið þeim víðsfjarri, að ráðið til þess að auka gjald- eyristekjurnar væri að hraða sem mest útvegun þeirra tækja, sem helzt geta aflað hans. Síðan er langt um liðið og ekki þakkarvert þó að menn hafi ýmislegt lært á heilum aldarfjórðungi. Munurinn er líka mikill. í árslok 1958 nam fiski- skipastóllinn, þ.e. togarar og önnur fiskiskip með þil- fari, samtals 57.798 brúttó- rúmlestum. Hann hafði sem sé aukizt um 31.366 brúttó- rúmlestir á 19 árum, eða um 1650 rúmlestir á ári.- Á næstu 6 árum þ.e. 1959- 1964 óx skiptastóllinn aftur um 21.234 bróttórúmlestir, eða 3.539 rúmlestir á ári. Árleg aukning er meira en tvöfalt hærri en var á tíma- bilinu 1940 til 1958, og nær 16 sinnum meiri en 1934 til 1939- Ef menn bera hinsvegar einungis Vinstri stjórnar árin 1956-1958 saman við árin 1959-1964, þá varð aukningin á vinstri stjórn- artímanum, 3.188 brúttórúm lestir eða 1.063 á ári miðað við 3.539 árlega á seinna tímabilinu. Oft er sagt, og vissulega með réttu, að veðurfar, gróður og fiskigöngur séu ekki að þakka ríkisstjórn. Gamal-kunnugt er, að jafnt rignir á réttláta sem rang- láta. En ríkisstjórn ræður því, hvemig hún bregst við atburðunum. Treystir hún eingöngu á forsjá sína og bannar þegnunum að bjarga sér eftir því, sem þeirra eigin vit og þroski segir til um? Eða treystir hún fyrst og fremst á frum- kvæði, manndóm og dug borgaranna og telur skyldu sína að greiða fyrir fram- kvæmdum þeirra, en legg- ur ekki á þær hömlur og hindranir? Aukið lánstraust þjóðar- innar erlendis og athafna- frelsi, fyrirgreiðsla til handa borgurunum um lánaútveganir, ekki sízt hjá Fiskveiðistjóði og Stofn- lánadeild sjávarútvegsins, eiga sinn mikla hlut að því, að íslendingar hafa nú getað hagnýtt sér fiski- göngur, og þá éinkum síld- araflann, mun betur en áð- ur. Vísindi, tækni og dugn- aður sjómanna og fram- kvæmdamanna hefur feng- ið að njóta sín vegna frels- isins. Þeirn aflavaka fram- fara og hagsældar megum við aldrei gleyma. Án hans hefðu aflabrögð íslendinga orðið lítil síðari árin. ★ Hin ólíka afstaða ríkis- stjórna fyrr og síðar til fiskiskipakaupa hefur verið rakin svo ítarlega, vegna þess að hún lýsir afleiðing- unum annarsvegar af við- leitninni til að hafa vit fyr- ir öllum og hins vegar af því að heimila mönnum að hafa vit fyrir sér sjálfir. Ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar að hverfa frá allsherjar- forsjá til frjálsræðis er for- senda þeirra umskipta, sem hér hafa orðið. Frjálsræðið hefur fengið bezt að njóta sín í sjávar- útveginum, enda er árang- urinn þar mestur. Afla- brögð hins nýja fiskiflota hafa reynzt með ólíkindum. Vegna hinna skjótu fram- fara er þar þó einnig um nokkra örðugleika að ræða- Nýrri tækni fylgir sá galli, að eldri tæki verða úrelt og duga ekki lengur í sam- keppninni. Þessa gætir nú í vaxandi mæli um minni fiskibáta. Togararnir, sem ekki hafa a.m.k. enn getað hagnýtt sér hina nýju tækni við síldveiðar, eiga við mikil vandræði að etja vegna útfærslu landhelg- innar. Undramáttur frelsisins hlýtur að gagna fleirum at- vinnugreinum en sjávarút- veginum einum. Ljóst er, að iðnaður fær því aðeins staðizt, að hann geti þróazt við frjálslega verzlunarhætti, ella hlýtur hann að skapa svo hátt verðlag í landinu, að út- flutningsframleiðslan verði ósamkeppnisfær. Þá mundi DK. BJARNI BENEDIKTSSON.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.