Morgunblaðið - 31.12.1965, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 31. des. 1965
Móðursystir mín,
BORGHILDUK MAGNÚSDÓTTIR
lézt á Elliheimilinu Grund 30. þ.m. Jarðarförin verður
auglýst síðar.
F. h. ættingja.
Gunnar Guðjónsson.
Eiginmaður minn
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON
frá Fáskrúðsfirði,
andaðist í Borgarspítalanum 30. des. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
F. h. aðstandenda.
Valdís Tryggvadóttir.
Eginmaður minn og faðir okkar
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON
fyrrv. bankafulltrúi,
andaðist 24. desember sl. Bálför hans verður gerð frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. janúar 1966 kl. 10,30.
Þórey Hannesdóttir, Hannes Már Sigurðsson,
Pétur Friðrik Sigurðsson, Þórður Baldur Sigurðsson.
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR
Háteigsvegi 15,
frá Litla-landi í Ölfusi,
sem lézt 27. þ.m., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
í dag 31. desember kl. 10 V2.
Herdís M. Brynjólfsdóttir, Valdimar Sveinbjörnsson,
Jón Brynjólfsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Hólmfríður Brynjólsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Aldís Brynjólfsd. Schram, Björgvin Schram.
Móðir okkar,
ÁGtJSTÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Álftártungukoti,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4.
janúar kl. 1,30 e.h. — Bílferð verður frá Borgarnesi
sama dag kl. 9,30 f.h. frá Sæmundi og Valdimar.
Börnin.
Útför mannsins míns, föður okkar og afa
ORMS ORMSSONAR
rafvirkjameístara, Borgarnesi,
fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudagnn 4. jan. n.k.
kl. 13,30. Upplýsingar um ferð eru í síma 11319.
Helga Kristmundardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Eiginmaður minn,
ÞORSTEINN EINARSSON
fyrrverandi Lögskráningarstjóri,
Brekku við Sogaveg, áður bóndi á Höfðabrekku,
sem lézt 17. desember verður jarðsettur að Þykkvabæ
í Landakoti þriðjudaginn 4. janúar kl. 10 f.h. — Kveðju-
athöfn verður í Fossvogskirkju mánudaginn 3. janúar
kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. — Blóm
vinsamlegast afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hans,
láti Þykkvabæjarkapellu eða góðgerðarstarfsemi njóta
þess.
Fyrir mína hönd, bárna og tengdabarna.
Elín Helgadóttir.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁRNI EYÞÓR EIRÍKSSON
verzlunarstjóri, Stokkseyri,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju, þriðjudaginn
4. janúar nk., kl. 1,30 e.h.
Ingibjörg Kristinsdóttir,
Vigdís Árnadóttir, Eiríkur Guðmundsson og börn.
Innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu fjær og nær,
sem sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall sonar
okkar, bróður og mágs,
STEINARS GUÐMUNDSSONAR
Hamraendum, Dalasýslu.
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Gróa Sigvaldadóttir, Guðmundur Baldvinsson,
Halldóra Guðmundsdóttir, Lúðvík Þórðarson,
Sonja Guðmundsson, Sigvaldi Guðmundsson,
Baldvin Guðmundsson.
Þeim vinum, sem minntust 75 ára afmælis mins 21.
desember síðastliðinn, færi ég innilegar þakkir og ósk
um gleðilegt nýtt ár.
Níeljóhníus Ólafsson.
Innilega þakka ég öllum ættingjum og vinum, ásamt
hinum fjölmenna hóp símastarfsmanna, er glöddu mig
á 70 ára afmæli mínu, með gjöfum og árnaðaróskum.
Þakka liðin ár. — Gleðilegt ár.
Hallvarður E. Árnason.
Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim er sýndu mér
vinarhug á sextugsafmæli mínu. — Lifið heil,
Ámi Björnsson.
Faðir okkar
ÁGÚST MARKÚSSON
veggfóðrarameistari,
lézt á Landakotsspítala 30. des-.
Kristín Ágústsdóttir Houhoulis,
Erla Ágústsdóttir,
Hörður Ágústsson,
Jóhann Ágústsson.
Móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÚN SÍMONARDÓTTIR
Söndum, Akranesi,
lézt í Sjúkrahúsi Akraness 29. desember. Jarðarförin
auglýst síðar.
Börn og tengdabörn.
Móðir okkar
ALDA JÓNSDÓTTIR POLASKY
lézt í Fontana Californiu þann 28. desember. Útförin
hefur farið fram.
Fyrir okkar hönd og fjarstaddra ættingja.
Hrafnhildur Óladóttir,
Elsa S. Lorange.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÁSTRÁÐUR ÞORGILS GUÐMUNDSSON
bifreiðarstjóri, Álfheimum 60,
andaðist í Landsspítalanum miðvikudaginn 29. des.
Jónas Ástrásson, Hrefna Gunnarsdóttir,
Greta Ástráðsdóttir, Jón H. Jónsson,
Anný Ástráðsdóttir, Pálmi Friðriksson,
og börnin.
Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og vináttu við
andlát og útför mannsins míns,
MAGNÚSAR JÓNSSONAR
vélstjóra.
Óska alls góðs á komandi ári.
Sigurborg Arnadóttir.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
ÚLFARS KJARTANSSONAR
Foreldrar og systkini.
Þökkum hjartanlega vináttu og samúð við andlát
eiginmanns míns, föður, sonar og bróður,
BJÖRGVINS ÓSKARSSONAR
Sérstakar þakkir viljum við votta Steingrími Magnús-
syni og starfsmönnum Fiskhallarinnar.
Erna Sigurðardóttir og synir,
Karólína Benediktsdóttir,- Óskar Jónsson,
Jón Óskarsson, Björn Óskarsson.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkar samúð og vinarhúg við fráfall og jarðarför
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa
MARKÚSAR E. JENSEN
kaupmanns frá Eskifirði.
F. h. aðstandenda.
Elín B. Jensen.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall og jarðarför mannsins mins og föður okkar
BRAGA EINARSSONAR
skipstjóra, Urðarfelli í Garði.
Fyrir mína hönd, barna minna og annarra ættingja.
Kristín Hansdóttir Wíum.
er þörf á strangari innistæðu
bindingum en áður og vaxta
hækkunum. Ástæðan er sú
m.a., hversu útlánaaukning-
in til reksturs fyrirtækja hef
ur orðið mikil. Þannig hafa
útlán vaxið um 22% til nóv-
emberloka á þessu ári miðað
við 15% á sama tíma í fyrra.
Þessar ráðstafanir eru gerð-
ar af illri nauðsyn og verða
ekki umflúnar, ef ekki á
verra af að hljótast. Á með-
an Framsóknarmenn átta sig
ekki á svo auðskildum sann-
indum, er það vitni þess að
þeir eru enn villtir í þok-
unni.
★
Hættuna á ofþenslu játa
allir í orðum, en þegar kem-
ur að því að reyna að hindra
hana, þá skjóta stjórnarand-
stæðingar sér undan þeim
vanda. Þeir tala fagurlega
um nauðsyn á allsherjarsam
starfi, æskja jafnvel öðru
hverju þjóðstjórnar, en um
lausn aðkallandi vandamála
reyna þeir ætíð að vekja sem
allra mesta stundrungu.
í Alþýðusambandinu er
hver höndin uppi á móti ann
arri. Flokksstjórnarfundur
Sósíalistaflokksins vill halda
sundrungunni við og lagði
áherzlu á að tryggja yrði
sjálfstæðan samningsrétt ein
stakra verkalýðsfélaga eða
félagsheilda. Forystumenn
BSRB hafa haldið þannig á
málum þeirra samtaka, að
ekki verður betur séð en
þaU séu í þann veginn að
sundrast. Alþýðusambandið
rauf í haust samstarf um á-
kvörðun búvöruverðs. Ýms-
ir Framsóknarmenn í bænda
stétt reyna að egna þar til
kröfugerðar, er útiloki til
frambúðar allt heilbrigt sam
starf um þessi efni og ein-
angri bændur frá öðrum
stéttum.
í þessu fer stjórnarand-
stæðingum mjög á annan
veg en ríkisstjórninni og
hennar stuðningsfiokkum.
Stjórnin lagði á það höfuð-
áherzlu í yfirlýsingunni, sem
gefin var í upphafi þings í
haust, að friður þyrfti að
ríkja milli stétta og hags-
munahópa. Berum orðum
var sagt:
„Til þess að draga úr
hættunni á áframhaldandi
kapphlaupi á milli kaup-
gjalds og verðlags, leggur
ríkisstjórnin áherzlu á mál-
efnalegt samstarf við al-
mannasamtök í landinu,
jafnt innan einstakra at-
vinnugreina og við stéttafé-
lög verkalýðs og vinnuveít-
enda. Vinna ber að því að
þessi samtök nái sem víðtæk
ustum samningum um á-
greiningsmál sín.
Þ. á m. verði reynt að end
urvekjá samstarf framleið-
enda og neytenda um ákvörð
un búvöruverðs“.
Ríkisstjórninni er ljóst, að
enn eru ótal vandamál ó-
leyst. En óhagganlegt er, að
verðbólgan hefur ekki hindr
að hraðan vöxt þjóðartekna,
sem síðustu ár hefur verið
staðfastari en nokkru sinni,
fyrr. Allur almenningur hef-
ur orðið þessa vaxtar aðhjót
andi og er staða þjóðarinnar
í reiðu fé nú mun sterkari en
verið hefur hingað til allt
frá því, að innstæður stríðs-