Morgunblaðið - 16.03.1966, Side 24

Morgunblaðið - 16.03.1966, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. marz 1966 SUZANNE EBEL: ELTINGALEIKUR Hann brosti bara að þessari fyrtni minni, en í sama bili kom Steve aftur með vdnið, og sveifl- aði flöskunni, glaður 1 bragði, benti niður og síðan varkárnis- lega til eldhússins, og var á svip inn eins og fjórtán ára strákur. — Ég bið þið að fyrirgefa, að ég var ekkert sérlega altileg, sagði ég þegar við vorum að stíga út úr bílnum. — >að var fallega gert af þér að koma alla þessa leið til að sækja mig sagði hann, eins og hann hefði ekki tekið eftir af- sökunarbeiðni minni — Þú veizt vel, hvað ég á við. En þessi fáleiki milli okkar Rods eyddist, þegar við vorum koomin til Steve, þar sem allt var 1 drasli og plötuspilari suðaði 1 einu hominu og einhver nafn- laus vinkona Steve var að hita á katlinum íranuni i eldhiúsinu. Bróðir minn hellti í glös handa okkur, kallaði fram í eldhiúsið til sfcúlkunnar og skrafaði við Rod um bátinn. Ég sat á góifinu og starði í eldinn.. Hafði Maurice komið? Hafði hann verið leiður yfir því, að ég skyldi ekki vera heima? Álbyrgðin, sem fylgdi því að vera elskuð, kom aftur upp á yfirborðið. Ég leit uipp og sá, að Rod stóð við hliðina á mér. Steve vill að við komum bæði á morgun og reynum bátinn. svoWtinn skottúr út fyrir höfnina í Chichester. — Hann fór niður að sækja meira vín. Sagðist ætla að læð- ast niður svo að lítið bæri á, sagði Rod og benti á dyrnar út í eldhúsið þaðan sem 'heyrðust danskir söngvar og glamur í diskum. — Ég held, að það sé einhver stelpa niðri, sem lánar honum hitt og þetta. — Það hlýtur það að vera. — Þú ert ekki farin að segja, hvort þú ætlar að koma með okk ur á morgun, sagði hann og sendi mér heimsmannslegt bros. Ég leit á hann. Það var satt, að hann líktist dálítið froski í framan. Kn það var nú samt snotur froskur og með konjakábrún augu. Fötin hans voru vel sniðin og fóru honum næstum otfvel. Það var ekki eins og þykku vaðmálsföt- fötin á honum Steve. Ég var nú ekkert sérstaklega hrifin af Rod Armstrong, en hann var að minnsta kosti ekki leiðinlegur. — Það gæti komið til mála. — Hvað fallegar stúlkur geta orðið heimtufrekar. Þykir þér ekki leiðinlegt að gera okkur báðum vonbrigði? — O, hættu þessu, Rod Arm- strong. Þér er alveg hvínandi sama, hvort ég kem eða ekki Það var þoka og dálítið hvasst, þegar Steve reri okkur út í vél- bátinn. Ég vissi ekki, hversvegna ég hafði verið að koma með þeim. Ónei, ekki var það nú satt. Ég var ennþá á flótta frá Maur- ioe sem hafði skilið eftir miða við dymar hjá mér og beðið mig að hringja sig upp. Ég var ekki í sem beztu skapi, en hvorki Rod né Steve virtust taka eftir því, og skröfuðu glaðlega saman á leiðinni. Ég hafði kosið að sitja aíturí, fegin að mega þegja, og vera laus við allar fólagslegar skyldur við bróður minn, sem skemmti sér vel þegar ég var önug, eða við Rod Armstrong, sem mér var nákvæmlega sama um. □--------------------------□ 3 □—.—------------------------n Steve reri með okkur að illa höldnum, hvítum véibáti, sem var fallega lagaður, þrátt fyrir það, að málningin var farin að flagna. Hann lá á vatninu, eins og fugl með vængina kyrra. — Hann er tuttugu og átta fet og hraðgengur, sagði Rod í hrifn- ingu. — Og þú skalt sjá, að hann er Hka góður í sjó að leggja. Ég yfirfór hann ræki- lega. Þeir hjálpuðu mér nú um borð og héldu áfram að tala um 20 hestöfl, um leið og þeir opnuðu lúgurnar og töluðu saman, eins og kariamenn tala urn bíla. Ég skildi ekki orð af þessu, en sett- ist niður á rætfilslegan leður- bekk og horfði á vatnið, sem rann stríðum straumum um leið og fjaraði. Vetrarlandslag hafði alltaf haft djúp áhrif á mig. Ég gat orðið hrygg og full þráar af að horfa á það. Einu sinni, endur fyrir löngu, hafði ég sérstaklega verið hrjfin af því. Við Steve höfðum þá þotið út um svellin í kuldastígvélum, höfðum byggt okkur hús úr greinum og höfð- um gáð vandlega að fyrstu vor- blómunum, sem aldrei komu, og svo þotið heim í tedrykkjuna með foreldrum okkar. Nú voru foreldrarnir horfnir og við Steve aðskilin, af því einu, að við vor- um fullorðin, líklega. Jæja, ég var víst bara með þessar rauna- legu hugsanir, af því að ég var ekki skotin, ætli ekki það? Nei, málið var ekki svo einfalt. Það var ekki nóg að vera bara ást- fanginn. Maður þurfti að vera — Hvar er Steve? Léreftstuskur Óskum ettir hreinum léreftstuskum JiftripwfrWHIr Prentsmiðjan Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Kjartansgata JWtrgwwM&Mlr SÍMI 22-4-80 Kona óskast til að smyrja brauð. — Einnig kona til aðstoðar í eldhúsi (Vaktaskipti). — Upplýsingar á skrifstofu Sæla café, Brautar- holti 22 frá kl. 10—12,30 og 2—5 e.h. í dag og næstu daga. — SÍMI 1-1400 — nytsamur. — Og — svo að notað sé úrelt orð — göfugur! Láta eitthvað gott af sér leiða. Þetta var ekki til þess að tala hátt um það, en svona hugsanir gerðu mér áhyggjur. Ég horfði á vatn- ið, sem rann tilibreytingarlaust framhjá, rétt eins og dagarnir mínir 1 auglýsingastotfunni, sið- ustu þrjú árin, í önnum og amstri — stefnulaust. Eftir nokkra stund settu þeir Steve og Rod bátinn í gang, og við tókum að smjúga innan um seglfbáta, sem flestir lágu graf- kyrrir í logninu. Þegar við vor- um laus við iþá, jók Steve ferð- ina og báturinn þaut áfram. Þetta var eins og sitja á bakinu á einhverjum svani. Stefnið lyft- ist upp úr vatninu og við þutum á óskaplegri ferð, hoppuðum á sjónum sem mér fannst harður eins og steinsteypa, en véiin gnauðaði og kuldinn beit í and- litið. Það var eins og eitthvert litf fœrðist í mig og ég leit í átt- ina til Rod Armstrong. Aldan frá bátnum reis til beggja handa og ég var hræddust um, að hún myndi steypa sér yfir okkur, á hverri stundu. Allt í einu fór vélin að hvæsa og hósta, við hægðum á okkur og loksins stönzuðum við alveg. Það varð óhugnanleg þögn. Loksins rak Steve upp skelli- hlátur. — Við erum orðin bezínlaus! Hversvegna sagðirðu mér ekki, að hann væri tómur, skepnan þín? Rod andvarpaði. — Þvá gleymdi ég alveg, Ég ætlaði að segja henni Virginiu í gær, að við þyrftum að fá benzín á hann. Ég bið þig afsökunar. Ég skal fara með brúsa og ná í eitthvað. Notaðu hjálparvélina. Hún dug- ar til að koma_okkur að landi. Steve setti hana í gang og niá dróst báturinn í áttina að landi líkastur sjúklingi en engum svani á flugi. Við vorum langt burtu frá Itchenor-höfninni, og þarna voru bara leirur og sef- gresi. Þetta var óhugnanlegt og lítt aðlaðandi, og þegar Rod fór úr skónum og tók að bretta upp þröngu buxnaskálmarnar, gat ég ekki annað en vorkennt honum. — Ég skal koma með þér, sagði ég. — Láttu þér ekki detta það 1 hug. Hann stakk sokkunum sín- um snyrtilega í tærnar á skón- um. — Já, en ég vil koma. Ég vil gjarna ganga með þér. Við verð- um að fara til Bosham, þama, og þar þekki ég allar búðirnar. Steve kveikti í pípunni sinni. — Láttu hana fara með þér,- drengur, hvort sem þér er það Ijúft eða leitt og vertu ekki að malda í móinn, iþví að það er þýðingarlaust. Ginny er köld og ákveðin, og nú er hún ákveðin að gera þér greiða. En þú verður að bera hana. Henni er meinilla við að vaða í fæturna. Rod sendi mér stutt augnatillit, sem hefði getað þýtt vanþóknun, og steig svo út í límkennda leðj- una og hallaði sér fram, til þesa að taka mig í fangið. Hann lét mig halda á skónum sínum og sokkunum. Uppörvaður af stríðn ini í Steve, stiklaði hann gegn um seiga lieðjuna og bar mig upp á þurrt land. — Er ég þung? spurði ég, þvi að ég var óvön því að karlmenn bæru mig, án þess að bafa eín- hvern aukatilgang með því. — Þú veizt vel sjálf, að þú ert ekki þyngri en fjöður. fSTANLEY] Með læsingu og handföngum. Bílskúrshurðajárn — fyrirliggjandi — STANLEY-járn fyrir hurðarstærð 7x9 fet. LUDVIG STORR Sími 1-33-33. LITAVER hf. H ÚTI - INNI MÁLNÍNG í ÚRVALI Afsláttarkerfi gegn staðgreiðslu. — Gerið hagstæð kaup á Grensásvegi 22 og 24. — SÍMAR 30280 — 32262 — i LITAVER hf. mmmm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.