Morgunblaðið - 25.03.1966, Page 2
2
MORGU N BLADIÐ
i
Föstudagur 25. marz 1966
■JF
Verkamannafiokkurinn
enn sigursæll
— en dregið hefur úr yfirburðunum
London, 24. marz (NTB)
NÝJUSTU skoðanakannan
ir í Bretlandi benda til að
niðurstöður þingkosning-
anna, sem þar fara fram
hinn 31. þessa mánaðar,
verði ekki alveg eins glæsi
legar fyrir Yerkamanna-
flokkinn og spáð hefur ver
ið að undanförnu.
Að sjálfsögðu er ekkert
unnt að segja með vissu á
þessu stigi, því margt get-
ur breytzt, bæði íhalds-
flokknum og Verkamanna-
flokknum í hag. En flest-
ir eru á einu máli um
að Verkamannaflokkurinn
muni bæta við sig fylgi frá
því, sem nú er. Er einna
helzt talið að meirihluti
Verkamannaflokksins í
Neðri málstofunni verði
20 til 30 þingsæti, en að
undanförnu hefur flokkn-
um verið spáð allt að 150—
200 þingsæta meirihluta.
Þrátt fyrir sigurlíkurnar,
hafa fulltrúar Verkamanna-
flokksins sýnt fulla varúð að
undanförnu. Er það vegna
ótta við að niðurstöður skoð-
anakannananna setji deyfð í
kjósendur, og lítil kosninga-
þátttaka geti orðið flokknum
dýrkeypt. Harold Wilson, for-
sætisráðherra, gerir sér fulla
grein fyrir þessari staðreynd,
og hefur á prjónunum ákafa
herferð til að hvetja flokks-
menn sína til dáða.
Edward Heath, leiðtogi í-
haldsflokksins, sagði á fundi
með fréttamönnum í dag, að
niðurstöður síðustu skoðana-
kannana sýndu hæga en ör-
ugga þróun um land allt, sem
gæti komið íhaldsmönnum í
stjórnaraðstöðu. En síðasta
könnun National Opinion Poll
stofnunarinnar sýnir þó ekki
mikið tap hjá Verkamanna-
flokknum. Þar virðist meiri-
hlutinn umfram íhaldsflokk-
inn hafa lækkað úr 13% i
12,2%. Hjá Gallup-stofnun-
inni virðist hinsvegar meiri-
hlutinn hafa minnkað úr 12%
í 8,5%.
Fiestir sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar að meiri-
hluti Verkamannaflokksins í
dag sé meiri en svo, að íhalds-
flokknum takist að vinna á
lokasprettinum. En talsmaður
íhaldsflokksins segir að rann-
sóknir, sem flokkurinn hefur
látið gera í öllum 630 kjör-
dæmum, sýni mun betri stöðu,
en fram kemur í skoðanakönn
ununum.
Allt bendir til þess að
efnahagsmál haldi áfram að
vera ofarlega á baugi þessa
síðustu viku kosningabarátt-
unnar. Talsmaður Frjálslynda
flokksins sakaði í dag full-
trúa Verkamannaflokksins um
að tala tungum tveim að því
er varðaði áætlanir um efna-
hagsmálin. En Heabh, sem í
gær lýsti því yfir að Bretland
bærist fram að barmi gjald-
þrots, ef ekki væri gripið til
róttækra aðgerða, sagði í dag
að afstaða Verkamannaflokks
ins bæri vott ótrúlega mikilli
sjálfsgleði.
James Callaghan, fjármála-
ráðherra, sakaði hinsvegar
Heath um ábyrgðarleysi í um-
mælum um efnahagsmálin.
Sagði hann efnahagsástandið
nú betra en það var 1964.
Halldór Þormar doktor við
HafnarháskóBa fyrir ritgerð
um visnu og mæði
Nazistamálið í Svíþjðð
senn til lykta leitt
Stokkhólmi, 24. marz (NTB)
NAZISTAMÁLIÐ svonefnda í
Stokkhólmi, sem mikla athygli
vakti viða um heim í fyrra, er
sífellt að verða umfangsminni
ftir því sem tíminn líður, og í
eftir því sem tíminn líður, og í
Stokkhólmi að afnema ferða-
bann, er sett hafði verið á aðal
sa'kborninginn, Bjöm Lundal.
Málið er nú á því stigi að fram
eigá að fara yfirheyrslur yfir
nokkrum málsaðilum, og þá sér-
staklega yfir Göran Granquist.
En það var hann sem seldi Stokk
hólmsblaðinu Expressen gö'gn í
mæi sJ. varðandi nazistastarf-
semi Lundals að Expressen birti
þessar uppiýsingar, handtók lög-
reglan Lundal og sjö starfsbræð
ur hans í hreyfingunni. Starf-
bræðurnir sjö voru þó fljótlega
látnir lausir, n Lundal var sak-
aður um landráð, og átti í vænd-
um allt að 10 ára fangelsi.
Seinna skýrði svo Granquist
frá því að frásagnir hans um
nazismann væru uppspuni, og
vakti sú yfirlýsing ekki minni
athygli en fyrri fréttin. Þegar
svo mál Lundals var tekið fyrir,
var hann aðeins sakaður um að
beita vopnuðum ógnunum gegn
löggjafarvaldinu, en það brot
varðar fcveggja ára fangelsi. Lun-
dal var svo látinn laus, en gert
að skyldu að mæta reglulega hjá
lögreglunni, og jafnframt var
sett á hann ferðabann. Því ferða
banni hefur nú verið aflétt.
Granquist átti að mæta fyrir
rétti í dag, en hafði þá hringt frá
Vasa í Finnlandi. Kvaðst hann
vegna flugmannaverkfalls ekki
komast þaðan í tæka tíð. Kem-
ur hann því ekki fyrir rétt fyrr
en fyrsta apríl, og er gert ráð
fyrir að yfirheyrslurnar taki
þrjá daga.
Þangað til verða hinsvegar
réttarhöld yfir forstjóra einum,
sem var þekktur fyrir nazisma
á stríðsárunum, en hefur að und-
anförnu verið lögfræðilegur ráðu
nautur Björns Lundals. Hafa
vitni borið það að hann hafi haft
í hótunum við Granquist ti.l að
fó hann til að segja að sagan
væri uppspuni.
Lundal var viðstaddur í rétt-
inum í dag, og sagði að Express-
en hefði stjórnað því að ákærurn
ar voru upp fundnar. Kvaðst
hann feginn því að ferðabanninu
væri aflétt, því nú hefði hann
öðlast það mikið fé að hann lang
aði til að ferðast. Að sögn hefur
Lundal fengið 16 þúsund sænsk-
ar krónur fyrir myndir er Ex-
pressen og önnur blöð hafa birt.
Myndirnar voru frá Carlsberg
stofnuninni, og gerði Lundal
kröfur á hendur margra blaða
fyrir að birta þær án heimildar.
Deilt um Starfighter-
þotur í v-þýzka þinginu
51 þeirra liefir farizt frá 1961
Kaupmannahöfn, 24. marz.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Rytgaard.
feLENZKI vísindamaðurinn Hall
dór Þormar hefur verið gerður
doktor við Hafnarháskóla, án
munnlegrar varnar, fyrir ritgerð,
náttúruvísindalegs eðlis.
Halldór Þormar hefur starfað
við Tilraunastöðina á Keldum,
og fjallar ritgerð hans um veirur
og sjúkdóma í sauðfé. Hann hef-
ur áður birt ritverk um sama
efni, en nú hefur háskólinn í
Kaupmannahöfn veitt honum
doktorsgráðu, án þess að venju-
leg vörn fari fram með andmæl-
endum og umræðum um ritgerð-
ina. Þetta er óvenjulegt.
Hinn nýkjörni doktor hefur
rannsakað visnu og mæðiveiki í
sauðfé. Visna eyðileggur mið-
taugakerfið í sauðfé á löngum
týjna og verður kindunum að
lokum að bana. Sjúkdómsins
varð vart á íslandi á árunum
1935—1951. Lungnas j úkdómur-
inn mæðiveiki fannst fyrst í
Pétur Thor-
steinssoii
í l^exíkó
Mexioo City, Mexikó, 23. marz
(AP)
PÉTUR Thorsteinsson, sendi-
herra íslands í Mexico, kom til
Mexíkóborgar á þriðjudagskvöld
með flugvél frá Washington, og
er einnig sendiherra íslands í
Bandaríkjunum, Kanada, Brazi-
líu og Argentínu.
Við komuna til Mexíkó sagði
sendiherrann fréttamönnum, að
fulltrúar íslands og Mexíkó
hefðu hinn 1. marz s.l. undir-
ritað samkomulag um að enga
vegabréfaáritun þyrfti til gagn-
kvæmra heimsókna milli land-
anna.
Dr. Halldór Þormar.
kindum á íslandi á árunum 1935
til 1940.
Veirur valda báðum sjúkdóm-
unum, og hefur dr. Halldór Þorm
ar sannað, að þær eru skyldar,
og einnig, að þær eru skyldar
veiru, sem veldur hvítblæði í
músum og hænsnum.
— ★ —
Mbl. hafði í gærkvöldi sam-
band við foreldra Halldórs Þorm
ars, Þorvarð G. Þormar, fyrrv.
prest í Laufási, og konu hans,
Ólínu Jónsdóttur. Sögðu þau, að
Halldór hefði unnið að ritgerð
þessari sl. sjö ár, aðallega við
Tilraunastöð háskólans á Keld-
um, en einnig vfð Statens Seru-
minstitut í Kaupmannahöfn. Rit-
gerðin nefnist á ensku „A Study
EKKI SELJA TIL KÍNA.
Washington, 24. marz (AP)
Sendiráð Bandaríkjanna í
Bonn hefur fengið fyrirmæli
um að benda vestur-þýzku
stjórninni á að sú bandaríska
líti það illum augum ef Vest-
ur-Þjóðverjar selji kínverj-
um stálbræðsiu fyrir 150
milljónir dollara.
of Visna and Maedi Viruses and
Their Relationship to Other
Viruses of Animals". Aðalniður-
stöður hennar eru þær, að visnu-
og mæðiveirur séu í flestu tilliti
náskyldar; jafnvel ein og sama
veiran; og að þeim svipi mest til
veira, er valda illkynjuðum æxl-
um og hvítblæði í hænsnum og
músum.
Halldór Þormar dvelst nú 1
Caracas í Venezuela í Suður-
Ameríku, þar sem hann er ráð-
inn til eins árs við veirurann-
sóknir á hrossum og nautgripum
við „Centro de Virologia, Insti-
tuto Venezolano de Investiga-
ciones Cientificas". — Hann er
væntanlegur heim í sumar.
Bonn, 24. marz (NTB)
MIKLAR deilur hafa að und-
anförnu verið í Vestur-Þýzka-
landi vegna tíðra slysa á
„Starfighter“ orustuþotum
flughersins. í dag var mál
þetta til umræðu í þinginu í
Bonn, og sakaði stjórnarand-
staðan varnarmálaráðherr-
ann, Kai-Uwe,von Hassel, um
lygar, og að leyna staðreynd-
um í umræðunum.
Orustuþota þessi er af
bandarískri gerð, og hefur 51
þeirra farizt frá því þær voru
teknar í notkun árið 1961, og
með þeim 27 flugmenn.
Aðaltalsmaður sósíaldemó-
krata í varnarmálum, Helmut
Schmidt, spurði ráðherrann hvað
þyrfti að gerast, til að vekja hjá
honum áhyggjur. „450 þúsund
manna her, 200 þúsund manna
starfslið, og 18 þúsund milljón
marka fjárveiting er meira en
þér fáið við ráðið“, sagði þing-
maðurinn.
Von Hassel hélt uppi vörnum
fyrir þá ákvörðun stjórnarinnar
að kaupa Starfighter-þotur, og
neitaði að slys væru tíðari á
þeim en öðrum vélum. Sagði
hann þoturnar vera meðal beztu
orustuvéla heims enn í dag, og
fullnægðu þeim kröfum, sem til
þeirra eru gerðar. Sem svar við
ásökunum, sagði von Hassel að
allt hafi verið gert, sem í mann-
legum mætti stæði, til að tryggja
öryggið í þeim um 650 Starfight-
er-þotum, sem flugherinn á. En
rannsóknir á orðnum slysum
hafa ekkert leitt í ljós er bendi
til galla á vélunum, né heldur til
kunnáttuleysis flugmannanna.
Varnarmálasérf ræðingurinn
Karl Wieland, úr flokki sósíal-
demókrata, sakaði von Hassel og
fyrirrennara hans, Franz Joseph
Strauss, um vanrækslu: „Þetta
er yðar sök, herra ráðherra, —
yðar, fyrirrennara yðar og leið-
togum ríkisstjórnarinnar. Það er
ekki unnt að ásaka hermennina,
heldur ykkur“, hrópaði Wieland,
og hlaut glymjandi lófatak
flokksbræðra sinna.
Á áhorfendabekSjum sat
fjöldi einkennisbúinna herfor-
ingja úr flughernum, þeirra á
meðal Stqrfighter-flugmenn. Og
Framhald á bls. 31
Um miðjan dag í gær var
stillt og bjart veður vestan-
lands, en enn þá var norðan-
strekkingur austanlands. Á
norðaustanverðu landinu voru
él, en léttskýjað með suður-
ströndinni til Austfjarða. —
Frostið var fimm til tíu stig.
Lægðin suðvestur í hafi fær
ist nær og ætti að valda suð-
astanátt og dálítilli snjókomu
vestanlands í dag og jafn-
framt að draga úr frosti.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi:
SV-land til Breiðafj. og
miðin: Þykknar upp með SA-
kaida, stinningskaldi og snjó-
koma á föstudag, allhvasst og
slydda í miðum og út við sjó-
inn um kvöldið.
Vestf. og miðin: SA-gola og
síðar kaldi, snjókoma sunnan
til.
N-land til Ausfcfj. og miðin:
SA-kaldi, víðast úrkomulaust
og dregur úr frosti.
SA-land og miðin: Norðan
hægviðri. léttskýjað, þykknar
upp með sunnanátt um kvöld-
ið.
Austurdjúp: Hvass NV fyrst,
síðan kaldi. Éljagangur.