Morgunblaðið - 25.03.1966, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
FSstudtagur 95. marz 1989
Árshátíð Harðar
Gísli EUertsson frá Mosfelli í Kjós með Sörla.
Árshátíð hestamannafélagsins Harðar í Kjósarsýslu verður
haldin að Hlégarði laugardaginn 26. marz og hefst kl. 9. Til
skemmtunar verða gamanvísur og fleira. Og í þetta sinn
sleppa menn að koma ríðandi til stefnumótsins.
íbúð óskast
Amerísk hjón óska eftir
4ra—5 herb. íbúð í eitt ár.
Uppl. í síma 19911 frá kl. 8
f.h. til 5 e.h. mánudaga —
föstudaga.
Húsmæður athugið
Afgreiðum blautþvott og
stykkjaþvott á þrem til
fjórum dögum. — Sækjum
— Sendum. Þvottahúsið
Eimir, Síðumúla 4. S. 31460
Blý
Kaupum blý hæsta verði.
Málmsteypa Ámunda
Sigurðssonar, Skipholti 23.
Sími 16812.
Læknakandidat
vantar 2ja til 3ja herb.
íbúð til leigu. Góð urh-
gengni og fyrirfram-
greiðsla. Vinsamlegast
hringið í síma 14878.
Hárgreiðslunemi
óskast strax. Tillboð send-
ist Mbl. fyrir mánudag,
merkt: „Stundvísi - 8468“.
Sniðkennsla
Tvö pláss laus á kvöld-
námskeið, sem hefst 28.
marz. Sigrún Á. Sigurðar-
dóttir, Drápuhlíð 48. —
Sími 19178.
Ung barnlaus hjón
óska eftir 1—2 herb. íbúð
sem fyrst. Má vera í Kópa
vogi eða Hafnarfirði. Al-
gjör reglusemi, og góðri
umgengni heitið. Upplýsing
ar í síma 20666 kl. 5—9
næstu daga.
Bílabónun
Hafnfirðingar, Reykvíking-
ar! Bónum og þrífum bíla.
Sækjum, sendum, ef óskað
er. Einnig bónað um helg-
ar og á kvöldin. Sími 50127
Óskast
Óska eftir að taka á Jeigu
bílskúr eða ámóta húsnæði
undir þrifalega vinnu, 20—
30 ferm. að flatarmálL —
Uppl. í síma 21978.
Sængurgjafir
Ungbarnanáttföt, ungbarna
kjólar, drengjaföt, pcysur,
barnateppi, bamabaðhand-
klaeði. Þorsteinsbúð Snorra
braut 61 og Keflavík.
Skrifborðsstólar
til fermingargjafa. Sent
meðan á fermingu stend-
ur. Húsgagnaverzl. Búslóð
við Nóatún. Sími 18520.
Drengjasundskýlur
allar stærðir. Dönsk nátt-
föt. Þorsteinsbúð, Snorra-
braut 01, og Keflavík.
Innréttingar
í svefnherbergi og eldhús.
Sóibekkir. ísetning á hurð
um. Sími 50127.
Nýr bíll
Volkswagen ’66, ekinn
8 þús.., til sölu. Upplýsing-
ar í síma 20046, laugardag
og sunnudag frá kl. 1—4.
Rokkur
Vel með farinn rokkur, til
sölu. Nán«iri upplýsingar í
síma 51678.
FRETTIR
Nemendasamband Kvenna-
skólans heldur aðalfund miðviku-
daginn 30. marz kl. 9 í Leikhús-
kjaliaranum. Sigríður Haralds-
dóttir húsmæðrakennari flytur
fræðs'luerindi og sýnir kvikmynd
Fjölmennum. Stjórnin.
Frá Guðspekifélaginu:
Stúkan VEDA heldur fund í
kvöld kl. 8:30. Sigvaldi Hjálm-
arsson flytur erindi: „Verðmæti
hversdagslífsins". Kaffiveiting-
ar að fundi loknum. Tónlist.
U t a nfélagsm en n velkomnir.
Langholtssöfnuður
Barnastúkan Ljósið. Fundur í
Safnaðarheimilinu laugardaginn
26. marz. kl. 2. Mætið vel og
stundvísJega. Gæzlumenn.
I Langholtssöfnuður
Spila- og kynningarkvöld verð
ur í Safnaðarheimilinu sunn-u-
dagskvöldið 27. marz kl. 8. Mæt-
ið vel og stundvíslega. Safnað-
arfélögin.
Elliheimilið Grund
Föstuguðsþjónusta kl. 6:30
Stud. tiheol. Sigurður Örn Stein-
grímsson prédikar. Heimilisprest
urinn.
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20:30. Of-
ursti W. Fiskaa talar. Brigader
Driveklepp stjómar. Hermenn1 og
foringjar vitna og syngja.
Kristileg samkoma verður hald
in í Sjómannaskólanum í kvöld
kl. 8:30. Verið velkomin! John
Holm og Helmut Leitíhsenring
tala.
ODDI
Messa á sunnudag kl. 2.
Barnamessa að Hellu kl. 11.
Séra Stefán Lárusson.
Æskulýðsxika
A Æskulýðsviku K.F.U.M.
og K. í Laugarneskirkju í
kvöid kl. 8:30 talar Séra
Magnús Guðjónsson, Eyrar-
bakka og Jón Dalbú Hróbjarts
son. Æskulýðskór félaganna
syngur. Allir velkomnir.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur aðalfund þriðjudaginn
29. mrz kl. 8:30 i Iðnskólan-
um. Auk venjulegra aðalfund
arstarfa verða önnur áríðandi
mál á dagskrá. Sameiginleg
Kaffidrykkja. Ilermann Þor-
steinsson skýrir frá gangi
kirkjubyggingarmáilsins.
Barðstrendingafélagið. Munið
málfundinn í Barðstrending í
Aðalstræti 12 föstudaginn 25. 3.
Ikl. 8:30. Erindi, umræður, ein-
söngur og fleira til skemmtun-
Austfirðingafélagið í Reykja-
vík heldur síðasta spilakvöld
vetrarins að Hótel Sögu (hliðar-
sal) sunnudaginn 27. marz kl.
8:30. Allir Austfirðingar og gest-
ir þeirra velkomnir.
Storkurinn sagði
og þá skein sólin aftur á okk-
ar litlu jörð, og mönnum hlýnaði
um hjartaræturnar í þessu kulda
kasti, þegar Hitaveitan skapar
nýja treflatízku á heimilum
manna í gamla borgarhlutanum,
og leiðir vegu margra aftur til
náttúrunnar, annað hvort að
skjálfa sér til hita eins og dýrin
gera eða hátta og kúra sig undir
feldi, en aMt stendur þetta til
bóta, og vorsins er ei langt að
bíða, þótt því miði hægt Qg hægt.
En sem ég flaug niður í bæ í
gær, í allri hálkunni og renndi
mér fótskriðu niður Bókhlöðu-
stíginn, svona rétt eins og í
gamla daga, hitti ég reiðan bíl-
stjóra, sem sagði sínar farir
ekki allsléttar.
Storkurínn: Er þér komið eitt-
hvert svell í sinni, maður minn?
Maðurinn á Bókhlöðustígnum:
Ekki beinlínis, en mér sveUur
hinsvegar móður í brjósti ai til-
hugsuninni um tillitsleysi sumra
bílstjóra nú í þessu hálkukasti.
Oftlega verður maður vitni að
því, að bíistjórar eru að reyna að
feta sig með erfiðleikum upp
hála brekku, að á móti kemur
einhver asninn, og í stað þess
að stanza, ekur hann á móti þeim,
sem í erfiðleikunum á, svo að
hann byrjar að spóla, og verður
svo að bakka niður breikkuna.
Eða hitt, þegar svona spól'bílar
eru rétt að ná brekkubrún, geys-
ist einhver ökukappinn eiftir silétt
um vegi og stanzar ekki. Látum
vera að hann eigi réttinn, en
þetta er ekki hægt, og svo er
eins Qg sumir hafi sérstaka á-
nægju af að leika þennan leik, og
líkast sem þeir gefi bílstjóran-
um, sem í erfiðleikunum á, langt
nef og segi: Þarna lék ég á þig,
lagsi!
Stohkurinn var manni þeesum,
hinum sárreiða, alveg sammála.
Tillitsleysi þessara manna á
þessum tíma er áreiðanlegia ekki
bundið við það eitt að skapa
öðrum bifreiðastjórum erfiðleika
í hálku, því trúlega eru þetta
sömumennirnir, sem al'ltaf eru til
vandræða í umferðipni og slysun
um valda, beint og óbeint.
Með það flaug storkurinn upp á
turninn á Búnaðarfélagshúsinu
og lagði höfuðið dapur undir
væng, og varð óglatt á vonzku
mannanna, og það í þessari sól.
í dag er föstudagur 25. marz og er
það 84. dagur ársins 1966.
það 84. dagur ársins 1966.
BoðunardaguT Mariu. Mariumessa
á ftístu. Árdegisháflæði kl. 7:10
Siðdegisiiáflæði kl. 19:28.
Skunda til liðs við mig, Drottinn
þú hjálp min (Sálm. 23).
Lrpplýsingar um iæknapjon-
nstu í borginnl gefnar i sím-
svara Læknafélags Reykjavikur,
Símin er 18888.
Slysavaröstoian i Heilsuvernd
arstöðinn). — Opin allan sólir-
kringinn — síml 2-12-30.
Næturvörður er Vesturbæjar
apóteki vikuna 19. marz til 26.
marz.
Næturlæknir í Keflavík 24/3
til 25/3 Arnbjörn Ólafsson sími
1840, 26/3—27/3 Guðjón Klem-
enzson sími 1567, 28/3 Jón K.
Jóhnnsson sími 1800, 29/3 Kjart-
an Ólafsson sími 1700. 30/3 Arn-
björn Ólafsson sími 1840.
Næturlæknir í Hafnarfirði að-
faranótt 26. marz er Jósef Ólafs-
son simi 51820.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga frá kl. 9:15—20. lang-
ardaga frá kl. 9:15—16, helgidaga
frá kl. 13—16.
Framvegis vert>ur telclC á mótl þetm,
er gefa vilja blóð 1 Blóðbankann. sem
bér' segir: Mánuðaga, þi'iðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9—11
t.h. og 2—4 e.n. MIÐVIKUDAGA frA
kl. 2—8 e.h. Laugardaga fra kl. 9—11
fJi. Sérstök athygli skai vakin á mió-
vikudögum, vegna kvöldtimans.
Holtsapótek, Garðsapótek, Sog»
veg 108, Laugarnesapótek og
Apótek Keflavikur eru opin alla
virka daga kl. 9. — 7., nema
laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgi
daga frá kl. 1 — 4.
Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á skrifstofutima 18222. Nætur
og helgidagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta AA samtak
anna, Hverfisg. 116, sími 16373.
Opin alla virka daga frá kl. 6-7
Orð lifsins svarar 1 síma 10000.
I.O.O.F. 1 = 1473258*6 = 9.O. {
^ HELGAFELL 59663257 VI. 2.
□GIMLI 59663287 — 1. Frl.
Málverkasýning
Frá sýningu Sigurðar Kristjónss onar að Týsgötu 3 i fyrradag.
(Ljósm.: Sv. Þ.) 1
UM þessar mundiir stendur yfir
í sýningarsalnum á Týsgötu 3
hjá Kristjáni Fr. Guðmundssyni
á 25 verkum málarans Sigurðar
Kristjánssonar, sem oft hefur
áður haldið sýningar bæði hér
í borg og víðar. Eir þessi sýning
jafnframt haldin sem einskonar
kynningarsýning á verkum hans.
Sigurður er fæddur 14/2 1897
að Miðhúsum í Garði, lærði
teikningu Qg húsgagnasmiði í
Kaupmannahöfn, var í siglingum
víða um heim, hefur unnið að
listmunaviðgerðum bæði fyriir
söfn og almenninig.
7 sýningar hefur hann haldið
áður, sú síðasta var haldin að
Týsgötu 1 í okt. 1962.
Þessi sýning verður opin frá
kl. 2—7 alla daga fram til 8.
apríl, og er þetta jafnframt sölu-
sýning. Gengið er inn í salinn
é horni Týsgötu og Lokastígs.
Ceispandi köttur
Þessi köttur var læða og hét Lipurtá. Ég og fjölskylda mín
áttum hana í sex ár — þá hvarf hún — eða fyrir tveim árum
og þrátt fyrir miklar fyrirspumir og auglýsingar höfum við
ekki fengið vitneskju um afdríf hennar.
sá NÆST bezti
Fylliraftur var á leið heim til sín að kvöldi til 'í glaða tungls-
Ijósi. Hann leit upp til mánans ag sagði:
„Vertu ekki að glenna þig! Þú ert ekki fullur nema einu sinni
í mánuði, en ég er fullur á hverjum degi“.