Morgunblaðið - 15.05.1966, Qupperneq 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 15. maí 1966
Ræðumaður kommún-
ista mætti efcki
— Fámennur fundur Framsóknar- og
kommúnista á Akranesi
STUÐNINGSMENN H-listans á
Akranesi, en að listanum
standa Framsóknarmenn og
ikommúnistar, efndu til fundar
ffL Bíóhöllinni þar í bæ á föstu-
<iagskvöld.
Á fundinum voru mættir að-
<eins um 180 menn, en salurinn
tekur um 400 manns. Aðalnúm-
erið á fundinum voru þætflír úr
Skugga-Sveini, sem fluttir
voru undir leikstjórn Jónasar
Árnasonar.
Aðalleitðogi H-listamanna,
Daníel Ágústínusson, bar m.a.
sakir af Framsóknarmönnum
13,42%
verðlags-
, uppbót á
• grunnlaun
KAUPGJALDSNEFND h e f u r
xeiknað visitölu framfærslukostn
aðar í maíbyrjun 1966 og reynd-
íst hún vera 191 stig, eða 6 stig-
um hærri en í aprílbyrjun, þar
af voru 3,8 stig vegna niðurfeli-
ingar niðurgreiðslu á verði fisks
og smjörlíkis og 1 stig vegna
hækkunar á húsnæðislið vísitölu.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út kaupgreiðsluvísitölu í maí-
byrjun og reyndist hún vera 185
stig. Samkvæmt því skal greiða
á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst
13,42% verðlagsuppbót á laun og
aðrar vísitölubundnar greiðslur.
Verðlagsuppbótin reiknast ekki
að viðbættri þeirri verðlagS'upp-
bót (9,15%), sem gildir á tíma-
bilinu marz-maí 1966. heldur mið
ast hún við grunnlaun og aðrar
grunngreiðslur.
um að þeir ætluðu að strika
fulltrúa kommúnista, sem er í
2. sæti á listanum.
Fundarstjóri, Guðmundur
Björnsson (F), kynnti tvisvar
aðalræðumann kommúnista á
fundinum, Brynjólf Vilhjálms-
son, en Brynjólfur mætti ekki
til fundarins, en var hins vegar
í sólinni akandi fyrir utan fund-
arhúsið í góða veðrinu.
Skjoldbreið í
heyflutningum
GUÐJÓN Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðar rikisins, tjáði
Morgunblaðinu í gær, að snjó-
þungt væri enn á Norðurlandi og
hefðu því hey- og fóðurbirgðir
gengið víða til þurrðar fyrr, en
búizt hafi verið við.
Þess vegna ætti strandferða-
skipið Skjaldbreið m. a. nú um
helgina að flytja allt að 20 tonn
af heyi, aðallega frá Hvamms-
tanga norður á Gjögur, Norður-
fjörð og Ingólfsfjörð.
Einnig gat Guðjón þess, að
óvenjumiklir flutningar hefðu
verið hjá strandferðaskipum
Skipaútgerðarinnar yfirleitt um
margra mánaða skeið að undan-
förnu. Hafi skipin mörg oft farið
út úr áætlun sökum annríkis og
aukaverkefna.
Stór millisíld
og stórsíld
1 FRÉTT blaðsins um veiði
Jóns Kjartanssonar á fyrstu
austur af Seley var sagt rangt
síldinni 150 sjómílur aust-'suð-
frá stærð síldarinnar. Skipið
fékk stóra millisíld og stórsíld
Apaspil, hin nýja ópera Þorkels Sigurbjörnssonar var frum-
flutt í Tjarnarbæ í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Leikendur eru
mest megnis börn og unglingar úr Barnamúsikskólanum, en
einnig fer Kristin Hallsson þar með stórt hlutverk.
Óperan verður endurtekin tvívegis í dag, kl. 14,30 og kl. 17,
en aðgöngumiðasala er í Tjarnarbæ í dag frá kl. 1.
Hið nýja sildarflutningaskip Síldarverksmiðja rikisics.
52 millj. kr. ríkisábyrgð
vegna síldarflutnings-
skips o. fl.
EINS og skýrt var frá i Morgun-
blaðinu í gær hafa Síldarverk-
smiðjur ríkisins fest kaup á 3.700
tonna tankskipi til sildarflutn-
inga. Verður skipið afhent í Ham
borg eða Rotterdam um næstu
mánaðamót. Gert er ráð fyrir, að
það geti hafið sildarflutninga i
júlíbyrjun.
— Smjörið
Framhald af bls. 32.
greiða bændum fullt verð fyr-
ir framleiðslu s.l. árs.
Framleiðsluráði landbúnað-
arins var á sl. hausti ljós þessi
vandi, sem að landbúnaðin-
um kreppir og um áramót
s.l. gerði það tillögur til að
mæta þessu á eftirfarandi
hátt:
1. Reynt yrði að örva smjör
neyzlu innanlands með verð-
breytingu þannig að smjör
yrði lækkað í útslu, en ný-
mjólk hækkuð tilsvarandi.
2. Að heimilað yrði, að á
meðan framleiðsla mjólkur
eykst meir en söluaukningu
innanlands nemur, að leggja
innflutningsgjald á er-lent
kjarnfóður. Gjald þetta gæti
orðið til að draga úr kjarn-
fóðurnotkun til mjólkurfram-
leiðslu, sem bændur fá lítið
eða ekkert verð fyrir umfram
vinnslukostnað og á þann hátt
minnkað framleiðsluna, og
jafnframt fengist á þann hátt
fé til að jafna halla af útflutn
ingi mjólkurvara á milli fram
leiðenda, eða til að greiða
fyrir breytingu í framleiðslu-
háttum frá mjólkurfram-
leiðslu til kjötframleiðslu.
Hvorugt þessara úrræða
hefur fengizt samþykkt.
f ný samþykktum lögum frá
Alþingi um breytingar á
framleiðsluráðslögunum er
hinsvegar veitt heimild til að
innheimta innvigtunargjald af
mjólk, sem kemur til mjólkur-
búanna og nota það fé til að
jafna halla af útflutningi
mjólkurvara.
Framleiðsluráð hefur gert
áætlun um hve uppbótaþörfin
muni verða mikil á þessu ári
og telur að hún muni verða
auk útflutningsbóta ríkissjóðs,
(sem áætlaðar eru kr. 220
millj. á þessu ári) kr. 100 —
120 milljónir, þar af vegna
í gær undirritaði forseti fs-
lands bráðabirgðalög vegna kaup
anna og eru þau svohljóðandi:
„Fjármálaráðherra hefur tjáð
mér, að brýna nauðsyn beri til
að setja bráðabirgðalög um
heimild fyrir ríkisstjórnina til að
ábyrgjast lán fyrir Síldarverk-
smiðjur ríkisins til kaupa á skipi
minnkandi smjörbirgða allt að
40 milljónir króna.
Framleiðsluráð ákvað á
fundi sínum 7. þ.m. að mæta
þessu með því að taka 50
aura innvigtunargjald af állri
mjólk, sem kemur til mjólk-
urbúanna frá 1. maí s.l. og að
innheimta 50 aura til viðbótar
yfir sumarmánuðina, enda
lækki útborgun til bænda sem
gjöldunum nemur. Ennfrem-
ur ákvað það að hækka verð-
miðlunargjald af neyzlumjólk
úr 24 aurum í 30 aura á lítra.
Áætlað er að þessi fjáröfl-
un gefi í tekjur, miðað við
heilt ár, ca. 80 millj. króna.
Þá ákvað Framleiðsluráð að
selja smjör á niðursettu verði
þ. e. kr. 65.00 pr. kg. um
óákveðinn tíma. Er það gert
til að sjá hvort auka megi
með þessu sölu þessarar
sgætu vöru í landinu. Þar sem
fyrrgreindar tillögur Fram-
leiðsluráðs frá því um áramót
fengust ekki framkvæmdar,
verður ekki hjá því komizt að
gera þessar ráðstafanir.
Framleiðsluráð væntir þess,
að bændum verði af þessu
ljóst, að aukin framleiðsla
mjólkur til vinnslu er, eins og
nú standa sakir, þeim sjálf-
um mjög óhagkvæm.
Þess er vænzt, að þessar ráð
stafanir, sem að verulegu
leyti eru vegna söluerfiðleika
smjörsins, verði aðeins til
bráðabirgða, á meðan fram-
leiðslan samlagast markaðs-
aðstæðunum, og að takast
megi að selja þær smjörbirgð-
ir sem safnazt hafa og sigrast
á þeim erfiðleikum sem nú
eru.
Framleiðsluráð
landbúnaðarins."
til síldarflutninga á hafnir norð-
anlands svo og til endurbóta á
löndunartækjum verksmiðjanna
o. fl.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög, samkvæmt 28.
gr. stjórnarskrárinnar, á þessa
leið:
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að
takast á hendur sjálfskuldar-
ábyrgð á láni að upphæð allt að
52 milljón krónur, eða jafnvirðí
þess í erlendri mynt, sem Síld-
arverksmiðjur ríkisins munu
taka til kaupa á síldarflutninga-
skipi og til endurbóta á löndun-
artækjum o. fl.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi".
— Möskvastærð
Framhald af bls 1
mánuði n.k. til að ræða þetta
atriði, því mjög mikilvægt er
talið að koma á samræmdu eftir-
liti.“
Þá sagði Davíð Ólafsson:
„Við teljum það verulegan
ávinning, að samkomulag náðist
um aukningu möskvastærðarinn-
ar, þótt ekki hafi fengizt sam-
þykkt tillaga okkar um enn meiri
Davíð Ólafsson.
aukningu. En það er ekki þar
með sagt, að tillaga okkar nái
ekki samþykki síðar. Enda verð-
ur haldið áfram að vinna að
þessum málum innan nefndarinn
ar. En hafa verður í huga, að
árangurinn byggist á því, sem
unnt er að ná samkomulagi um
á hverjum tíma.“
Forseti Alþjóðanefndarinnar
um fiskveiðar á Norð-Austur
Atlantshafl hefur 3 sl. ár verið
Skotinn Aglen.
Á Edinborgarfundinum var
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri
kosinn forseti nefndarinnar fyrir
næstu 3 árin.