Morgunblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnuðágur 15. maí 196®
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands.
Ilausasölu kr. 5.00 eintakið.
SJÓMANNADA GUR
ik.
Þetta eru „heiðamorðingjarnir", sem svo hafa verið nefndir í Bretlandi, en um fá mál hef-
ur meira verið rætt í því landi að undanfömu en réttarhöldin yfir þeim. Þau eru Myra
Hindley x (t.v.) og Ian Bradley. Þau voru bæði sek fundin um morð. Ian Bradley var sekur
fundinn um morð Edwards Evans. 17 ára, Lesley Ann Downey, 10 ára og John Kilbride, 12
ára, og var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir ÖU brotin, hvert í sinu lagi. Myra Hindley, unn-
usta hans, var sek fundin um morð Edwards Evans og Lesley Ann Downey, og talin með
sek í morði John Kilbride. Hún var dæmd í lifstíðarfangelsi fyrir fyrri tvö brotin, hvort í
sínu lagi, og til 7 ára fangelsis fyrir hið síðasttalda.
Hér sézt forsætisráðherra Rhodesíu, Ian Smith (lengst t.v.) ræða við sendinefnd þá, sem
af hálfu Rhodesíu ræðir við Breta í London. Myndin var tekin í garðinum fyrir utan skrif-
stofu Smith’s í Salisbury áður en sendinefndin lagði upp í Bretlandsferðina.
T dag er Sjómannadagur,
hvíldardagur og gleði-
stund þeirra manna, sem af
dugnaði og djörfung halda
uppi meginatvinnuvegi ís-
lenzkrar þjóðar.
íslenzk sjómannastétt á sér
stolta hefð. Hún hefur alizt
upp og þroskazt við erfið
kjör og harða lífsbaráttu.
Hvikul veðrátta hefur oftar
en einu sinni höggvið mikil
skörð í raðir hennar, en samt
sem áður hafa íslenzkir sjó-
menn jafnan sótt á sjóinn á
ný.
Þegar litið er til sögu ís-
lenzkra sjómanna, er kannski
engin furða þótt við eigum í
dag sjómannastétt, sem skar-
ar fram úr stéttarbræðrum
sínum um heim allan. Á síð-
ustu árum hafa sj,ómennirnir
okkar sýnt, að þeir eru ekki
einungis reiðubúnir til þess
að sækja'fast á sjóinn, heldur
hefur einnig komið í ljós að
þeir eru flestum öðrum skjót-
ari að tileinka sér ný vinnu-
brögð og nýja tækni við fisk-
veiðar. Þessi framsýni og
dugnaður á meginþáttinn í
því að' efnahags- og atvinnu-
líf íslendinga hefur blómg-
ast meir og örar á síðustu ár-
um, en nokkru sinni fyrr.
Á nokkrum áratugum höf-
ufn við einnig byggt upp öfl-
ugan kaupskipaflota og sjó-
menn okkar, sem honum hafa
siglt, hafa borið hróður ís-
lands til annarra landa. Ljóst
er að við hljótum að leggja
vaxandi áherzlu á uppbygg-
ingu kaupskipaflotans, enda
hefur reynsla t.d. Norðmanna
sýnt, að litlar þjóðir, sem
eiga dugandi sjómannastétt,
geta rekið öflugan kaupskipa-
flota í samkeppni við stærri
þjóðir.
Að sjómönnunum okkar á
vel að búa, og það höfum við
vissulega gert með glæsileg-
um fiskiskipaflota og vax-
andi kaupskipaflota. Morgun-
blaðið árnar íslenzkri sjó-
mannastétt og samtökum
hennar allra heilla á Sjó-
mannadeginum, og lætur í
ljósi von um, að sú framsýni,
djörfung og dugnaður, sem
einkennt hefur íslenzka sjó-
mannastétt muni áfram hald-
ast
TÍMAMÖT i
HEILBRIGÐIS-
MÁLUM BORG-
ARINNAR
I7yrsti áfangi Borgarsj úkra-
hússins í Fossvogi hefur
nú verið tekinn í notkun. —
Röntgendeild sjúkrahússins
var opnuð sl. föstudag, en
hún er búin fullkomnustu
tækjum sem völ er á til þeirr
ar starfsemi, og er mjög af-
kastamikíl, annar 15 þúsund
röntgenrannsóknum á ári.
Með opnun fyrsta áfanga
Borgarsjúkrahússins hefur
merkum tímamótum verið
náð í heilbrigðismálum
Reykjavíkurborgar. Borgar-
sjúkrahúsið er mikil bygging
og hefur lengi verið í smíð-
um. Margir hafa furðað sig á
því, hversu lengi bygging
þess hefur staðið, en ástæðu-
laust er að undrazt það, eftir
að menn hafa lesið úrdrátt úr
ræðu Jóns Sigurðssonar,
borgarlæknis, við opnun
röntgendeildarinnar, sem birt
ur var í Morgunblaðinu í gær,
en þar kemur fram, að fjár-
festingarhöft háðu mjög
framkvæmdum við spítalann,
svo að á árunum 1954, þegar
hafizt var handa um bygging-
arframkvæmdir, til 1960 fékk
Borgarspítalinn fjárfestingar-
leyfi, er námu samtals 26
milljónum króna, eða að
meðaltali 3.7 milljónum króna
á ári í tæp sjö ár. Eftir að fjár
festingarhömlur voru afnumd
ar brá fljótt til batnaðar, og
á árunum 1961 til 1965 var
fjárveiting til sjúkrahússins
síaukin, nam á þessum árum
alls 106 milijónum króna, þar
af 51,5 milljónum á sl. ári.
Á fjárhagsaætlun yfirstand-
andi árs er áætlað til bygg-
ingarinnar 55 milljónir króna.
Þetta er þa skýringin á því,
hve lengi bygging Borgarspít-
alans hefur staðið, og ætti það
enn að sýna mönnum hversu
haftastefna fyrri ára hefur
haft neikvæð áhrif á alla upp
byggingu hér á landi, jafnvel
í sjúkrahúsmálum.
í ræðu, sem Geir Hallgríms
son, borgarstjóri, hélt við opn
un röntgendeildarinnar lét
hann í ljós þá von, að sem
fyrst yrði hægt að vígja
sjúkrahúsið formlega eftir að
allar deildir þess hefðu tekið
til starfa. Og undir þá ósk
munu borgarbúar allir taka.
ÚTSVÖR MIÐUÐ
VIÐ SKATT-
VÍSITÖLU
Oráðabirgðalögin, sem gefin
" hafa verið út um breyt-
ingu á lögum um tekjustofna
sveitarfélaga og kveða svo á,
að frá og með gjaldárinu 1966
sé skylt að hækka eða lækka
útsvör og þrep útsvarsstiga í
samræmi við skattvísitöluna,
verða til þess að útsvars-
byrðin á lágtekjúfólki og
barnafjölskyldum verður létt
ari en ella.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, lét svo ummælt í við-
tali við Morgunblaðiö í gær,
að gerð hafi verið úrtaksat-
hugun á skattaframtölum, og
benti hún til þess, að svo
mikil tekjuhækkun hefði orð-
ið, að auk þess að nota skatt-
vísitöluna, • sem er 112,5 stig
miðað við 100 stig í fyrra,
mundi vera unnt að gefa af-
slátt af útsvörum. Hann
kvaðst telja þessi nýju lög
réttmæt, þar sem þau leiddu
til þess að útsvarsbyrðin á
lágtekjufólki og barnafjöl-
skyldum yrði léttari, þótt
stóraukinn afsláttur hefði ver
ið gefinn almennt a£ útsvör-
um
Útsvarsgreiðendur í Reykja
vík og annars staðar á land-
inu, munu vafalaust fagna
þessum bráðabirgðalögum,
sem tryggja réttmæta álagn-
ingu útsvara.
LAUSN FRAM-
SÓKNARMANNA
k vegum Reykjavíkurborg-
ar hefur umfangsmikil
starfsemi verið rekin til þess
að veita æskufóiki borgarinn-
ar kost á hollri tómstunda-
iðju og heilbrigðu skemmt-
ánalífi. Samt sem áður hafa
Framsóknarmenn og aðrir
fjargviðrast út af því að ekki
væri nóg að gert fyrir unga
fólkið.
Á fundi, sem Framsóknar-
flokkurinn hélt fyrir ungt
fólk í Lídó fyrir nokkrum
dögum, voru vínstúkur opnar
og vín selt hverjum sem hafa
vildi. Telja Framsóknarmenn,
að með þessu hafi þeir fund-
ið lausnina á vandamálum
æskufóiksins í Reykjavík?