Morgunblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 32
AFRAM MBI,. hefer aflað sér upplýsinga um þau áhrif, sem bin nýju bráðabirgðalög um að skattvísi- taia skuli einnig ná til eitsvara. kub hafa á álagningu útsvara. Skv. bráðabirgðalögunum mun Fersónufrádráttur einstaklinga hækka úr 35 þúsund í 39,5 þús. Persónufrádráttur hjóna haekkar úr 50 þúsnnd í 56 þúsund. Persónufrádráttur vegna barns hækkar úr 10 þús. í 11.250,00. Prep útsvarsstigans breytast þannig: Nú er borgað 10% af 0—20.000,00. Verður 10% af 0—22.500,00. Nú er næsta þrep: 20.000—60.000. Af þessu eru nú greiddar kr. 2000 af 20 þús. og 20% af afgangi. Verður 22.500— 67.500. Af þessu verður gneitt 2.250 af 22.500 og 20% af afgangi. Síðasta þrep er nú 60.000 og yfir. Af því er greitt 10 þúsund af 60 þús. og 30% af afgangi. Verður 67.500 og yfir. Af þessu verður greitt 11.250 af 67.500 og 30% af afgangi. Þar að auki má gera ráð fyrir að gefin verði afsláttur af útsvórum a. m. k. í Reykjavík, eins og borgarstjóri gat um í Mbl. í gær. Slökkviiiðsbifreiðar fyrir framan nýju slökkvistöðina við Reykjanesbraut. Nýja slökk vistööin tekin í notkun í gær Áhrif hráðahirgðaiagarma: Frádráttur hækkar útsvarsstiginn breytist — Ililkill mannfiöldi fylgdist með fEutningi siökkviliðsins Kosninga- sfóður Sjálf- sfæðis- flokksins Margt smátt gerir eitt stórt. Tekið við framlögum í skrifstofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu. Sírni 17100 og í ValhöII. Sími 18192. * ' ðrmaiui Snæ- vnrr endnrkjör- inn rektor BBKTORSKJÖR fór fram í Há- skóla ísiands í gær fyrir tíma- bilið 15. septeiwber 1966 til jafn- lengdar 1969. Armann Snævarr var endur- kjörinn rektor og er þetta í þriðja sinn sem hann er kjörinn til starfsins. A L L A R slökkvibifreiSir Slökkviliðs Reykjavíkur óku í gær stundvíslega kl. 14.00 út um dyrnar á gömlu Slökkvistöðinni við Tjarnar- götu I síðasta skipti. Merk tímamót voru skráð í bruna- varnarmálum Reykjavíkur- borgar. Slökkvilið Reykjavík- ur fiutti úr gömlu bækistöðv- unum, þar sem það hefur ver- ið til húsa í 53 ár, í hina nýju og glæsilegu slökkvistöð við Reykjanesbraut. Múgur og margmenni hafði safnazt saman í Tjarnargötu, til að fylgjast með atburðin- um. Kl. 14.15 steig slökkviliðs- stjóri, Valgarð Thoroddsen, upp á gamla stigabilinn og flutti stutt kveðjuávarp fyrir hönd slökkviliðsmanna. Sagði hann m.a., að slökkviliðsmenn kveddu sín gömlu húsakynni með talsverðum söknuði, þrátt fyrir að þeirra biðu nú nýtízkuleg og glæsileg húsa- kynni, þar sem starfsaðstaðan yrði ólíkt betri, „en það er Tjörnin og hið iðandi líf sem þar er, sem við munum sakna“. Þá þakkaði hann ná- grönnum slökkviliðsins það umburðarlyndi sem þeir hefðu ætíð sýnt því, þrátí fyrir að starfinu hefði oft á tíðum fylgt mikið ónæði. Að loknu ávarpi slökkvi- liðsstjóra þeyttu allar bifreið- irnar sírenur sínar í hálfa mínútu í kveðjuskyni. Var síðan ekið, sem leið liggur eftir Vonarstræti, Lækj argötu, yfir Tjarnarhrúna, beygt yfir á Hringbraut og þaðan ekið áleiðis að nýju slökkvistöðinni. í nýju Slökkvistöðinni við Reykjanesbraut tók Geir Hall grímsson, horgarst jóri, á móti slökkviliðinu. — Borgarstjóri hélt stutta ræðu um leið og hann afhenti Valgarði Thor- oddsen hina nýju Slökkvistöð og óskaði honum og starfsliði hans tii hamingju með hætt starfsskilyrði. Ræffa borgarstjóra RRUNAVARNIR eru senniiega ein fyrsta iþjónustustarfsemin, sem ReykjavikuTborg tók upp, og þær eiga sér lenigri sögu hér í bæ en kaupstaðarréttindin sjálf. Má rekja þá sögu allt til daga Skúla fógeta og Innréttin.g- anna, — sem raunar urðu fyrir stórtjóni af völdum elds, eins og kunnugt er. Nú hefur Revkjavíkurborg eins og kunnugt er tryggingar hús- eigna borgarinnar með höndum, — og er það verðmseti, sem í þeim er bundið, 22 þúsund mílljónir króna, — en var 1913 12 milljónir króna. Auk þess verndar slökkvilið Reykjavík'ur Framhald á bls. 31. Somninffar við Hugmenn? A® HNDANFÖRNU hafa staðið yfir samningaviðræður millj fiug félaganna og Vinnuveitendasam- bands Islands annars vegar og Félags ísl. atvinnuflugmanna hins vegar um launakjör flug- manna. Samningafundur hófst kl. 5 síðdegis á föetudag og stóð enn yfir, er blaðið fór í prentun síð- degis í gser. Samkomulag hafði þá ekki náðst, en likur þóttu til að sam- an genigi nú um helgina. Tómafarnir að koma á markaðinn Smjör lækkað úr 105,30 í 65 krónur hvert kg. FRA MLEIÐSLURÁÐ land húnaðarins hefur ákveðið, að selja smjör á niðursettu verði um óákveðinn tíma. Lækkár gæðasmjör úr kr. 105.30 í smásölu í 65 krón- ur hvert kg. Verðlækkunin kemur til framkvæmda eft ir hádegi nk. mánudag, en fyrir hádegi fer fram taln- ing á smjörbirgðum. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatiikynning frá Framleiðsluróði landbún- aðarins: „Á undanförnum árum hef- ur mjólkurframleiðsla vaxið mikið og allmiklu meira en nemur neyzluaukningu mjólk- ur- og mjólkurvara í landinu. Af þessum sökum hefur þurft að flytja úr landi til sölu á erlendum markaði vax- andi magn af vinnsluvörum úr mjólk. Verðlag á þessum vör- um er allt öðruvísi í við- skiptalöndum okkar en hér er, og er miklu lægra. Verðlagið þar hefur verið nokkuð stöð- ugt að undanförnu. Því hefur þurft síhækkandi útfiutnings- bætur á þessar vörur, svo hændur gætu fengið það verð fyrir framleiðslu sína, sem ætlazt er til í verðlagsgrund- velli hverju sinni. Jafnhliða vaxandi útflutn- inga á ostum, mjólkurdufti og ostefni hefur ekki tekist á s.l. ári að selja smjör er- iendis og hafa safnast allmikl- ar smjörbirgðir í landinu. Nú er augljóst að á þessu ári duga útflutningsbætur þær, sem landbúnaðurinn á rétt á skv. 12. gr. framleiðsluráðslaganna, ekki til þess að bændur geti fengið fulit verð fyrir alla í mleiðsluna. Þá er líka kom- í ljós, að smjörbirgðirnar valda ýmsum mjólkurbúanna miklum rekstrarerfiðleikum, sem m. a. koma fram í því að sum þeirra skortir fé til að Frarrrh. á bls. 2 MBL. spurðist fyrir um það hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, hvað liði tómötunum á þessu vori. Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, upplýsti að þeir væru um það bil að koma á markaðinn. Væri það á venjulegum tíma. Um miðjan mai kæmu fyrstu tómatarnir, en heldur dræmt fyrst í stað. Það færi svo ört vaxandi þegar iíð- ur á mánuðinn. Fyrir tómataræktunina skipt- ir birtan að vetrinum mestu máli, og í vetur var venjulegt birtuár. Verðuc því svipuð ti>m- atarækt og í fyrra. En nú orðið eru nægir tómatar á markaðin- um. frá mánaðamótum maí— júní og fram í desember. Þorvaldur sagði, að útirækt á grænmeti væri um það bil að íara í gang, þar sem klaki háði ekki. En varla væri hægt að vinna garða enn. Mætti því bú- ast við að útigrænmeti yrði f seinna lagi. Þó gaeti bað jafnast síðar, ef tiðin verður góð. Kjósendafundur D- listans á Akureyri ALMENNUR kjósendafundur D-listans á Akureyri verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Akureyri n.k. mánudagskvö,]d 16. maí og hefst hann kl. 8.30. Átta efstu menn D-Iisttans flytja ræður á fundinum þeir, Jón G. Sólnes, Árni Jónsson, . Jón H. Þoivaldsson, Gísii Jóns- son, Ingibjörg Magnúsdóttir, Vil helm Þorsteinsson, Sigurður Hannesson og Knútur Otter- stedt. Fundarstjóri verður Sig- urður Ringsted en fundarritarar Víkingur Guðmundsson og Óli D. Friðrbjörnsson. Stuðningsmenn D-listans á ; Akureyri eru hvattir til þess að i íjölmenna á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.