Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 4
4 MORGU N BLAÐIÐ Sunnudagur 19. júní 1966. BÍLALEIGAN FERÐ Daggjald lcr. 400. Kr. 3,50 per km. SÍMI 34406 SENDUM SÍM' 3-íl-BO mnif/m Volkswagen 1965 og ’66. LITLA bíloleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. m——*BÍLALEICAN Falur t* RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 » BIFREIÐALEIGAM VECFERÐ Grettisgötu 10. Sími 14113. MAGIMUSAR SKIPHOLTI21 símar21190 eftir iokun slmi 40381 Fjöivirkar skurðgröfur I ö L V I R K I Vf3) áli I ÁVALT TIL REIÐU. N Sími: 40450 Schannongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá K0benhavn 0. 0. Farimagsgáde 42 Jóhann Ragnarsson héraðsdómslögmaður. Simi 37400 og 34307. Vonarslræti 4. — Sími 19085. BOSCH Flautur 6 volt, 12 volt, 24 volt. Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. — Sími 38820. "Ar Þjóðhátíð Þjóðhátíðin virðist hafa farið vel fram og er það vel. Hið ánægjulegasta í sam- bandi við hátíðahöldin var verið gagnrýnd fyrir að vera sem vildu. Ef veður hefði verið lakara hefði hátíðin orðið lítil hjá mörgum. Þjóðhátíðarnefnd hefur oft verið gagnrýnd fyrir að vera miður hugmyiidafrjó — hvort sem það er slæmt eða ekki í þessu tilliti. Gott er að smíða þjóðhátíðinni fastan ramma og skapa einhverjar venjur í sambandi við hana, en varla gæti þó skaðað, að einhver ferskur blær væri yfir hluta hátíðahaldanna. Um þessa há- tíð má segja eins og þær, sem haldnar hafa verið undanfarinn áratug, að fastir liðir hafi verið eins og venja er til — og lítið þar fram yfir. ýt Hátalarakerfið Miðborgin iðaði af fólki, sem var í sparifötunum og komið til þess að sýna sig og sjá aðra, eins og sagt er, og til þess að njóta góða veðursins — því dagskrá hátíðahaldanna fór fyrir ofan garð og neðan hjá fjöldanum. Þeir, sem vildu í raun og veru fylgjast með því, sem fram fór, hefðu átt að vera heima og hlusta á út- varpið. Svæðið, sem hátíðahöldin fara fram á, er orðið of lítið fyrir Reykvíkinga. Aðeins hluti mannfjöidans gat fylgst með því, sem fram fór á Arn- arhóli og við Austurvöll. Leik- ur hefði þó verið að koma hinu talaða orði til þorra hátíðar- gesta, ef hátölurum hefði verið komið upp víðar. Hátalara- kerfið var satt að segja mjög ófullnægjandi. Bílastæði og viðskipti Blíðviðrið olli því, að minni orka fór í sælgætiskaup en oft áður og er það vel. Mér finnst þessir söluturnar, sem settir eru upp í tilefni dagsins, setja leiðiniegan svip á hátíð- ina. Eða er ég svona gamal- dags? Erfitt var að komast inn í veitingahúsin í miðborg- inni — og þeir. sem ekki kom- ust að, sluppu vel. Hjón með tvö börn fengu sér smáhress- ingu í Sigtúni: Tvo kaffibolla, tvær flöskur aí Pepsi Cola og sex smákökur á diski. Tvö hundruð og þrjátíu krónur, takk. Það þarf meira en litla hreysti til þess að stunda slík viðskipti. Á degi sem þessum kom ber lega í Ijós, að okkur vantar stór bílastæði í miðborginni. Að vísu má segja, að þetta sé hversdagslegt vandamál, sem bíleigendur glími við — oft á hverjum degi. En alltaf fjölgar bílunum og þótt bílastæðin í borginni taki drjúgt, eru þau orðin ófullnægjandi. Umræður um bílageymslu hafa alveg dottið niður. Hafa allar ráða- gerðir verið lagðar á hilluna? Úðun í görðum íbúi í Austurbænum hringdi til Velvakandi og sagð ist hafa orðið vitni að ófagurri sjón í vikunni. „Nú er verið að úða trágarða um allan bæ“, sagði hann“ og mér skilst, að þetta úðunarefni sé baneitrað. Þar sem ég stóð og horfði út um gluggann hjá mér fylgdist ég með úðunarmönnum í húsi nágrannans. Börn stóðu í hnappi hinum megin við trjá- runnann, sem verið var að úða. Þau voru ca. 3 metra frá runn- anum — og golan bar. mökk af úðunarefninu 5—6 metra frá úðunarstað. Börnin stóðu í mesta mekkinum, en sá, sem úðaði, hafði ekki vit á því að segja börnunum að fara frá. Eru slíkir menn hæfir til þess að fara með þessi eiturefni?" Ruddar „Lögmál skógarins gilda á þvottaplönum borgarinnar". sagði bíleigandi nokkur, sem hingað hringdi' Það virðist eiga mjög ilia við íslendinga að bíða í röð eins og siðmenntað fólk úti um allan heim gerir, þegar beðið er afgreiðslu. Þetta kunna íslendingar ekki — og yfirgangur og frekja hvers og eins ræður oft hve lengi fólk þarf að bíða. Þetta er oft áber- andi á þvottabílaplönunum. Ég skora á alla sanngjarna og rétt sýna menn, að veita þéssum ruddum ákveðið aðhald með því að segja álit sitt, þegar ruddarnir vaða uppi. Alltof oft standa þeir sem ekki verða fyrir átroðningi aðgerðarlausir og horfa á — en aðstoða ekki þá, sem verða fyrir barðinu á þessum mönnum." 'A Gönguleiðir Það kom fram í blaðinu hér fyrir nokkru, að vöntun væri á kortum yfir gönguleið- ir á íslandi. Ritstjóri Ferða- handbókarinnar hefur haft sam band við Velvakanda og beðið hann að láta þess getið, að slík kort sé að finna í Ferða- handbókinni. Gröm skrifar: „Ég var að lesa Morgun- blaðið þegar ég rak augun í fyrirsögni^a „Apar í umferð- inni“. Finnst þessu svokallaða sterka kyni það rétta orðið yfir eiginkonur sínar eða kven kynið í heild? Mér finnst þetta sterka kyn aldrei geta verið án þessara „apa“ sem eru fyrir þeim í umferðinni. Ég veit að það er mörgu ábóta- vant í umferðinni( sem er óaf- sakanlegt), en það ey óþarfi að skella allri skuldinni á kven- fólkið. Það er eitt sem eigin- menn ættu að athuga og það er að lofa konum sínum að æfa sig í akstri. En það gera þeir ekki, því bíllinn er eiginmann- inum allt. Hann segist elcki geta farið nema á bílnum. En ef konan þarf að fara í búðir til að kaupa til heimilisins, þá má hún fara með stóran barna- hóp í eftirdragi, nóg að hafa barnavagn eða kerru. En þegar þær fá bílinn af náð, þá eru þær titrandi og skjálfandi af hræðslu um að eitthvað muni koma fyrir og líklega kallaðar bölvaðir apar. Þegar hnútar verða í um- ferðinni er ekki óalgengt að karlmaður segi: Nú það hlaut að vera, það er kerlingarskrattL Hvað halda þessir grobbhan ar sig vera? Ég veit vel hvað ég er að segja. Ég er búin að keyra bíl í mörg ár og hef ég ekki við neinn að rífast. Á minn bíl sjálf. Karlmenn ættu að athuga að við konurnar er- um hættar að láta bjóða okkur allt, við erum farnar að bera hönd yfir höfuð okkar. Margt væri hægt að segja um karl- mennina viðvíkjandi akstrL Eitt dæmi get ég sagt ykkur. Fyrir nokkrum árum var ég a<5 keyra í Keflavík. Á eftir mér voru tveir einkennisklæddir þifreiðaskoðunarmenn. Allt 1 einu skelltu þeir sér fram úr öfugu megin. Hvað skyldu þeir hafa sagt ef ég hefði gert þetta? Karlkynið er dularfullt. Ég treysti því Velvakandi góður, að þú birtir þetta fyrir mig. — Kær kveðja. ' Ein gröm“. Byggingameistarar! Byggingameistarar! Munið Runtal! 4 Munið Runtal! Runtal-ofninn má tengja beint við hitaveituna. Runtal-ofninn má tengja beint við hitaveituna. Runtal-ofninn er ódýrastur í dag RUNTAL-ofnar hf. Síðumúla 17. — Sími 3-55-55.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.