Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 28
Helmingi útbieiddara en nokkurt annað íslenzkt blað iorgitnfrtafrt& 136. tbl. — Sunnudagur 19. júní 1966 Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins J«n SigurSæonar-húsið, sem Alþingi var giefið á Þjóðbátíffardaginn. Myndin er tekin á mið- viikudag. Sjá grein á bls. 3. Kröfur um stór- eignaskattfyrndar ÞANN 11. júní s.1. var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli, sem reis út af stóreignaskattin- um svonefnda, er iagður var á með lögum nr. 44. 1957. Aðilar máls þessa voru dánarbú Soffiu K. Haraldsdóttur og tollstjórinn í Reykjavík f. h. ríkissjóðs. Af hálfu tollstjórans í Reykja- vík voru þær kröfur gerðar, að lögtak yrði heimilað hjá dánar- búinu til tryggingar skatti á stóreignir að fjárhæð aðallega kr. 223.559,00, en til vara kr. 89.653,00 auk dráttarvaxta og máiskostnaðar. í binum áfrýjaða fógetaúrskurði hafði nirðurstað- an orðið sú, að lögtak var heim- ilað fyrir þeirri upphæð, sem varakrafa tollstjórans hljóðaði aðili í máli þessu, var höfð uppi upp á. Af háifu dánarbúsins, sem var krafa um frávísun svo og sýknu- kröfur. Ein af röksemdum dán- arbúsins fyrir því, að synjað yrði um framgang lögtaksins, var sú að lögtakskraían væri fyrhd. Hæstiréttur tók sérstaklega af- söðu til þessarar kröfu og segir svo i forsendum að dómi Hæsta- réttar: „Skattur á stóreignir sam- kvæmt lögum nr. 44/1957 fyrn- ist á fjórum árum samkvæmt 3. tbl. 3. gr. laga nr. 14/1905, sbr. 1. gr. laga nr. 29/1885. Skatt- krafa, sem (tollstjórinn kunni að eiga á hendur (dánarbúsins), féll í gjalddaga 16. ágúst 1958, Framhald á bls. 27 Hafnarfjarðarvegur í Kópavogi Nefndaraæilun um framtíðarsktpun MBL. hefur borizt álit nefnd- ar, sem Ingólfur Jónsson, sam göngumálaráðherra, skipaði í marz 1965 til þess að athuga tillögur um lagningu Hafnar- fjarðarvegar frá Fossvogs- læk að Kópavogslæk, gera til- lögur um hagkvæmustu og ódýrustu lausn málsins og athuga, hvort sanngjarnt væri, að ríkissjóður greiddi hluta kostnaðar á móti Kópa- vogskaupstað, þar eð vegur- inn hefði sérstöðu. í upphafi nefndarálitsins seg- ir, að Hafnarfjarðarvegur hafi verið þjóðvegur í fjöldamörg ár og lagning vegarins og við- hald verið greitt beint úr rikis- sjóði ailt til ársins 1964, er vega- lög nr. 71 frá 1963 tóku gildi. Eftir að Kópavogur fékk kaup- staðarréttindi 1955, bar kaup- staðnum skylda til þess að halda við þeim hluta Hafnarfjarðar- vegar, sem er innan kaupstaðar- markanna. Aldrei var þó gengið fast eftir því, að Kópavogskaup- staður tæki að sér viðhald veg- arins. Um Fossvogsbrú fóru árið 1’96'5 um 17.500 bílar á dag að meðaltali, en um Kópavogsbrú um helmingur þess fjölda. í Kópavogskaupstað fer því um helmingur umferðarinnar. Gert er ráð fyrir, að þessi hlutföil breytist lítt næstu 20 ár. Forscndur „Umferð um Hafnarfjarðarveg hefur á síðustu árum aukizt gíf- urlega, enda eðlileg afieiðing ört vaxandi byggðar sunnan Reykjavikur, ásamt aukinni bilaeign almennt. Mun ekki of- ætlað, að umferðin vaxi um 10% á ári, og er nú svo komið, að um brú á Fossvogslæk fara að meðaltali milli 17000 og 18000 bílar á dag og um brú á Kopa- vogslæk um helmingur þess fjölda. Ferðahraði á veginum er nú orðinn svo lítill, að ailsendis er óviðunandi, og við gatnamót í Framhald á bls. 21. Nóttin eftir 17. júní allsherjar viðurstyggi, — segiír légreglan ER MORGUN BtLAUI® hafði samband við götulögregluna í gær og spurðist fyrir um hvernig gengið hefði tii að- faranótt dagsins í gær. sagði hún að nóttin hefði verið ein allsherjar viðurstyggð. Fylli- ríið hefði verið óhugnanlegt, slagsmál Qánnulaus frá iþví kl. 11 um kvöidið og Iþar til kl. 6 í gærmorgun, umgengn- in svo fyrir neðan allar ’hell- ur að 'því fái vart orð lýst, glerbrot, rusl, æla, blóð og hversikonar öþverri út um a!)t svo miðbærinn var ein sam- felld svínastía. Allar geymslur lögreglunn- ar voru yfirfullar alian tim- ann og var ekki 'hæigt með nokkru móti að koma undir lás og slá öllum þeim mönn- um, er þar hefðu þurft að vera. Mannfæð lögreglunnar hamlaði að 'hæigt væri að ráða við ölóðan skrílinn, eins og nauðsynlegt hefði verið. í>á er þess enn að geta að eirm maður henti sót í sjóinn og hóf þar sund, en var bjargað að iokum og var þá svo illur viðskiptis að setja varö hann í járn. Þá velti piltur þifreið inn við Mik.latorg, en án þess að slys hlytist af. Það henti og, þótt ekki kæmi neitt ölvun við, að lúðrasveit ein, sem ieika átti við há'tiðahöldin, tafðist sök- um þess að sá er lyklavöldin hafði að hljómlistartækjum sveitarinnar lenti í slæmum árekstri á leið sinni til að opna húsið þar sem tækin voru. Löigregluþjónar segja, að öll hafi 'hótíðahöldin hér í borg hafi farið með ágætum fram eftir kvöidi og verið einkar prúðmannleg og skemmtileg þótt aldrei hafi verið jafn margt fólk, em nótt in eftir 'hafi verið sú versta sem menji muna við 'þessa hátíð. Þrír sovézkir blaða- menn hér í boði B.Í. ÞRÍR blaðamen.n, Georgíu- maðurin.n Mredlisjvi'li, Rúss- inn Ossipofif og Eistlending- ingurinn Saaremiagi, eru hér á ferð í vikuiboði Blaðamanna féi. íalands, sem er með því 8ð endurgjalda mánaðarboð Blaðamannasambands Sovét- ríkjanna til þriggja íslenzkra blaðamanna. Blaðamennirnir komu hingað á fimmtudag. 17. júr>í fóru þeir kynnisför um borgina f. hád. voru viðstadc ir hátíðahöldin um miðjai daginn og sátu boð Lottleiðí uð kvöldið. 1 gær litu þeii inn hjé Ríkisútvarpinu of Morgunblaðinu, en fóru Þjóðleikhúsið um kvöldið Þeir munu kynna sér starf' semi iðnfyrartækja, skreppí norður á Akureyri og hitts ráðberra og forseta Islandí að máti. t'fceo Áætlun að Hafnarfjarðarvegi um Kópavog. Austur snýr upp á kortinu (norður til vxnstri) * < / *Cáf ja _. i.J- }.<£££*•<*&*****:''* l''m f ; 1 4/ 14884: 1 j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.