Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 11
SunnuðagUT 19. jfiní 1966 MORGUNBLAÐIÐ 11 etaðamúlanum þarf að fjarlægja yfir 400 þúsimd rúmm. af jarð vegi, bæði lausum og föstum. Við flutning á lausa jarðveginum verða notaðar mjög afkastamikl ar mokstursskóflur eða „scra- pers“, eins og slík tæki eru nefnd á erlendu máli. Tæki þetta vinnur þannig að neðan úr því gengur tönn skáhallt fram, sem losar jarðveginn upp og við það að tækið gengur áfram dregst jarðvegurinn upp í það, en síðan er tonninni lyft upp í botninn. Jarðvegurinn er síðan fluttur um 600 metra veg. Tæki þessi eru xnjög afkastamikil. Frá stöðvarhúsinu liggja svo neðanjarðargöng lárétt inn í hlíðina, síðan lóðrétt þar inni og loks enn nokkra leið lárétt að inntaksopi. Úr þessum göngum jþarf að fjarlægja sem svarar 160 þús. rúmm. af jarðvegi Verður það gert að mestu gegnum hlið- argöngin sem koma inn austan í múlanum. Fyrir ofan göngin taka svo við stíflugarðar og tveir skurðir miklir, annar m.a. fyrir íshröngl. Alls munu stíflu garðarnir um 5. km. á lengd. En frá upphafi mannvirkisins í hrauninu austan Þjórsár og fram fyrir' stöðvarhús eru alls um 8 km. Mannvirkið er allt gert með það fyrir augum að þar verði 6 túrbínur, í fyrri áfanga verða 3 settar niður en þær framleiða 35 þús. kw. hver. Verkinu á að vera lokið seint á árinu 1969. Við virkjunina er unnið alla daga frá því kl. 7,20 að morgni til 7 að kvöldi og annan hvern laugardag. Alls vinna við Búr- fell 6 verkfræðingar og tækni- fræðingar. Mikið hefir verið unnið við vegarlagningu upp Hreppa og Skeið. Þrjár stórar brýr byggðar á þessari leið, tvær hafa þegar verið fullgerðar en verið er að byrja á hinni þriðju. Hin stóra og glæsilega brú á Fossá skammt ofan við Hjálp í ÞjórsárdaL Bygging matskála. Ein.n hinna stóru flutningavagna, /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.