Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 15
Sunnudagur 19. júní 19W MORGU NBLAÐID 15 Þeir oft sizt sem kvnrta undan forustuleysi sættu sig við uð ruðin væru uf mundu þeim tekin Þjóðhátíðarræða dr. Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra ALLT frá upphafi íslands- byggðar hefur hér verið meira jafnræði manna á milli en víðast hvar annars- staðar. í hinu forna þjóð- veldi máttu menn sjálfir kjósa sér með hverjum goða þeir vildu vera í þingi og voru ekki bundnir á- kveðnum höfðingja sökum ætternis eða búsetu. Slíkt valfrelsi var þá a.m.k. fá- gætt. Einsdæmi voru ákvæð in um að firra menn efna- hagsáföllum með eins konar skyldutryggingu, þótt tak- mörkuð væri. Víðtæk fram- færsluskylda ættmanna mið aði að því að koma í veg fyrir, að nokkur kæmist á vonarvöl. Þessar réttarreglur sýna í senn jafnræði og náin inn- byrðistengsl meðal þjóðfé- lagsþegnanna allt frá upp- hafi. Réttarskipunin breytt- ist að ýmsu til hins verra eftir að þjóðin missti sjálf- stæði. En á þeim tíma, sem íslendingar hafa búið í landi sínu, hafa þeir blandazt svo sín á milli, að segja má, að gildi ættfræði sé hér meira í því fólgið að sanna skyldleika allra lands manna heldur en einkenni, sem haldist til langframa í tilteknum ættum, svo skjótt og margvíslega sem ættir allra koma hér saman. Jafnræðisvitund manna á milli er þess vegna rík og rótgróin. Þetta lýsir sér m.a. í því, að þótt stjórnmála- flokkar deili hér um margt, þá eru þeir allir sammála um það markmið að bæta kjör hinna lakast settu og gera viðhlítandi ráðstafanir gegn örbirgð og allsleysi. Nægir þar að nefna hina víð, tæku tryggingarlöggjöf, sem þróazt hefur síðasta manns- aldurinn, svo sem sjúkra- tryggingar, elli- og örorku- tryggingar og þarnalífeyri. Um einstök atriði þessarar löggjafar var raunar deilt, þegar þau voru sett. En um hana má nú segja, að allir vildu Lilju kveðið hafa. Eng inn lætur lengur uppi efa- semdir um, að rétt hafi ver- ið stefnt eða að hverfa eigi af þessari braut. Þvert á móti er nú í sameiningu unn ið að því, að undirbúa lög- gjöf um allsherjarlífeyris- sjóð. Þótt því verði ekki með nokkru móti neitað, að mik- ið hafi áunnizt í þeim efn- um, þá er enn verulegur lífs- kjaramunur manna á milli hér sem annarsstaðar. Eg endurtek hér sem annars- staðar af því, að ekki hef ég neinar spurnir af þjóðfélagi, þar sem slíkur munur sé enginn. Víðast hvar er hann miklu meiri en hér. Um það hefur löngum ver ið deilt, hvort unnt væri að afnema þvílíkan mun og þá ekki síður um leiðirnar til þess, svo sem það, hvort vænlegra sé að ná sem mestum jöfnuði með sem mestum ríkisafskiptum eða með einkaframtaki. Um öll þessi efni er hollast að láta reynsluna skera úr. Hagnýting allra auðlinda landsins er forsenda auk- inna og öruggra tekna þjóð- að í lýðfrjálsum löndum hefur lengst tekizt að sækja í þá átt að tryggja öllum sæmileg lífskjör og jafnvel verða aflögufær til að rétta hjálparhönd þeim yfirgnæf- andi meirihluta mannfólks- ins, sem enn á við beinan skort að búa. Þó að lítið muni um liðveizlu okkar til sem menn áður hirtu ekki um. Skiljanlegt er, að þeir, sem berjast verða fyrir brýnum lífsþurftum sínum, séu kröfuharðir. Kröfuharkan ein leysir þó engin vanda- mál; fyrir hendi þurfa að vera ytri skilyrði þeim til lausnar. Annars getur síðari Forseti og forsætisraöherra viö styttu Jons Sigurðssouar. arheildar og einstaklinga. í þeim efnum kemur öðru hverju fram furðulegt ósam ræmi í afstöðu. Svo er stund um að heyra sem það gangi landráðum næst að virkja vatnsföll og efla hag þjóðar- innar með því að selja er- lendum mönnum raforku, sem fæst við virkjun stór- fljóta, sem ella mundiumára tugi renna ónotað til sjávar engum til gagns, en mörg- um til trafala. Fáum finnst aftur á móti nokkuð athugavert við það, að seld- ur sé úr landi fiskur veiddur við strendur landsins, þó að yfirvofandi sé, að sumir fisk stofnar rýrni verulega, því að þar eyðist vissulega það, sem af er tekið með allt öðr- um hætti én vatnsaflið. Um þetta og margt annað er deilt. ðOB^ilanlegt er, annarra, þá erum við nú komnir í hóp þeirra þjóða, sem eru svo efnum búnar, að þær telja sér skylt að miðla öðrum af auðlegð sinni. Það er ævaforn reynsla, að á meðan hætta steðjar að, þá þjappast menn saman og þykir sjálfsögð sú forsjá, sem þeir munu ella trauðla sætta sig við. Þegar leika fer í lyndi, þykjast flestir sjálf- um sér nógir, kvarta að vísu stundum undan forystuleysi, og þeir þá oft mest, sem allra sízt mundu sætta sig við, að af þeim sjálfum væru tekin ráðiti. Þess er og að gæta, að þótt einhver vandi sé leystur, þá vakna ætíð ný úrlausnarefni og nýjar þarf- ir. Enda kemur einnig þegar léttir til og hagur batnar, ýmislegt upp í huganum, villan orðið verri hinni fyrri. Komið yrði í veg fyr- ir margvíslegan árekstur og þýðingarlaust þrátefli, ef menn fengjust til þess að fylgja þeirri gömlu reglu, að í upphafi skyldi endirinn skoða. Hvað sem um það er, þá á samskonar kröfuharka og þvingunarráð ekki við til að knýja kröfur fram fyrir þá, sem búa við allsnægtir og hina, sem eru að brjótast úr örbirgð. Allt annað er að berjast fyrir auknu jafn- rétti eða til að skapa sjálfum sér forréttindi umfram aðra. Svo mikilvægt sem efna- hagslegt jafnræði er, þá er hitt þó enn mikilsverðara, að allir séu jafnir fyrir lög- unum. Lagareglur nú á dög- um eru raunar svo marghátt aðar, að fáir munu þeir finn ast fullvaxta, hvar sem leit- að er, sem aldrei hafa brotið á móti neinu lagaboði. Hneykslun vegna yfirskins- sakleysis í þeim efnum fer því flestum illa, og er þó helgi lagaboða mjög misjöfn - í hugum almennings. Lög- gæzla getur og aldrei orðið svo fullkomin, að hún nái til allra lögbrota. Tökum dæmi af þeirri réttarvörslu, sem segja má að eðli máls- ins samkvæmt fari fram fyr- ir allra augum. Nú þegar tí- undi hver íslendingur fer til annarra landa ár hvert, hafa tugþúsundir með eigin aug- um séð, hvernig tollgæzlu er yfirleitt hagað, hvert sem komið er. Einungis er ræki- lega skoðaður farangur fárra, en enginn veit fyrir- fram hver fyrir verður, né mundi nokkurn stoða að bera fyrir sig, að ekki væri skoðað jafnrækilega hjá öll- um. Þeir sem gerast sekir um lögbrot, hvers eðlis, sem er, verða að skilja, að þeir gera það á sína áhættu en ekki þess, sem laganna á að gæta. Ef hann lætur undan fallast að gera reka að broti, sem uppvíst er, þá verður hann sjálfur sekur. Þar má ekkert manngreinarálit til koma, hvorki staða, stétt, kunningsskapur, vild eða ó- vild. Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða. Hagsældin má ekki veikja manngildið. Styrkur okkar er í því fólginn, að allir fái að njóta sín. En allir verðum við og að samlaga okkur landsháttum og leggja okkar af mörkum til þess þjóðfé- lags, sem komið hefur okk- ur til þroska. Okkar mikla þjóðhetja, Jón Sigurðsson, sem við heiðrum í dag sam- tímis því, sem við minnumst endurreisnar lýðveldisins, lét aldrei sitt eftir liggja. Þegar innan við fermingu var hann settur til sjóróðra, þótt eigi væri það sökum féleysis, og efldist við það að þreki og kunnugleik á þjóð- arhögum. Sagan segir, að hann ungur að árum hafi viljað hafa fullan hlut á við þá, sem eldri voru og hlotið hann eftir nokkurt þóf, enda til þess unnið. Mjög eru nú allir hagir ís- lenzku þjóðarinnar breyttir til hins betra frá því, sem var í æsku Jóns Sigurðsson- ar. Enginn skyldi og jafna sér við hann, því að fordæmi hans sýnir, að seint verða allir jafnir að viti, dug og stórhug. En enn er það eins og á dögum Jóns Sigurðs- sonar, að þekkingin er ör- uggasta ráðið til að koma góðum málum fram: Þekk- ing á þeim viðfangsefnum, sem við er að etja og þekk- ing á hvers annars högum, enda munum við þá skjótt sannfærast um, að það, sem sundurskilur, er smáræði miðað við hitt, er sameinar hina íslenzku þjóð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.