Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 19
Sunnuðagur 19. iúní 1966 MORGUNBLAÐIÐ 19 Helgi Pétursson, forstjóri Minningarorð AÐ Helga Péturssyni er sjónar- sviptir fyrir alla þá sem eitthvað höfðu kynnzt honum, og vinir hans finna nú skarð fyrir skildi er rúm hans er autt. Hann lézt 12. þ.m. eftir erfið veikindi síð- asta árið eða svo, mánifði betur en sjötugur því að hann var fæddur 11. maí 1896. Helgi átti ekki kost á langri ekólagöngu í æsku, varð þó gagn- tfræðingur frá Akureyrarskóla 1913. Síðan var starfsferill hans allur á sviði viðskipta og lengst af á vegum samvinnuhreyfingar- innar. I>ar hóf hann starf árið 1919, en á árunum 1930—33 var hann einn af þremur fram- kvæmdastjórum Síldareinkasölu ríkisins og bjó þá í Kaupmanna- höfn. Næstu árin á undan hafði hann frá 1924 verið kaupfélags- etjóri í Borgarnesi, en annars má kalla að eftir að honum tók að vaxa fiskur um hrygg værú •tarfskraftar hans ævinlega helg- •ðir útflutningi íslenzkra afurða. Helgi var hægri hönd Jóns Árnasonar meðan hann stjórnaði útflutningsdeild SÍS, og þegar Jón hvarf þaðan og ger'ðist landsbankastjóri tók Helgi við af honum og stjórnaði deildinni 1946—62. Önnur trúnaðarstörf hans voru þessu aðalstarfi ná- tengd, m.a. það að vera kjörinn «f ríkisstjórninni í fjölda samn- inganefnda um verzlunarvið- •kipti við erlend ríki. Á þessum vettvangi lágu leiðir okkar Helga saman, fyrst við ianga og leiðinlega samningagerð i Moskvu, og síðar í Prag þar sem hjólin snerust að vísu ögn hraðar þótt hægt færi. í bæði þessi skipti voru sendir ágætir menn að heiman til samninga- gerðarinnar og er það ekki I frá- sögur færandi heldur sjálfsögð meginregla. Hverjum nefndar- manna er ætlað að leggja sinn skerf á ákveðnu sviði til þess þekkingarforða er auðveldi starf- ið að sameiginlegu marki. HeJgi Pétursson var enginn eftirbátur annarra í þessu efni. I>ó er það ekki fyrst og fremst þetta sem gerir fyrstu kynnin við hann minnisstæð heldur framkoman, máðurinn sjálfur. J>að vita þeir gerzt sem í hafa komizt að það var ekki eilíf skemmtun fyrir hóp af fullfrísk- um mönnum að sitja vikum og mánuðum saman í Moskvu yfir samningagerð eftir þvi ritúali sem þar gilti þegar við Helgi vorum þar saman, — og allir vissu um fjölda verkefna sem hrúguðust upp og biðu þeirra heima. J>að er engin furða þótt stundum geti stríkkað á taugun- um þegar svona stendur á. En það gat ekki komið fyrir Helga Pétursson. Á hverjum morgni sama glaðlynda smitandi bjart- sýnin. Hvaða dægrastytting var á við það að spila bjálfalegt spil sem vi'ð höfðum skýrt gambít, á spil sem voru svo slitin að sum varð að næla saman með papp- írsklemmum? Jafnvel hádegis- verður á Hótel National var til- efni daglegrar tilhlökkunar. Það var eins og jafnaðargeði og þol- inmæði þessa manns væru eng- in takmörk sett. Og þessi maður sem tók aðgerðarleysinu með svo Ráðskona og sildarstúlkur oskast Ráðskona óskast á Söltunarstöðina Neptún h.f. Seyðisfirði. Einnig stúlkur til síldarsöltunar. Upplýsingar Neptún h.f. Seyðisfirði í síma 174 eða hjá Karli Jónssyni í síma 211 Seyðisfirði. VINSÆLDIRNAR l.lJTLUl VAXA STÖÐUGT es x, Virfgerrfa-og varahlutaþjónusta er framkvæmd af fagmönnum hjá OTTO A. MICHELSEN h,f. Klapoarstig 17. S.20560 REGNA ITE MIZ ER^rafknúínn. REGNA STANDARD rafknúínn. REGNA STANDARD handknúinn. REGNA-búðarkassinn er norsk framleiðsla eftir ströngustu kröfum nútímans. REGNA-búðarkassinn er traustur, fljótvirkur og auðveldur í notkun. E.TH. MATHIESEN h.f. VONARSTRÆTI4 • SiMI 36570 hátíðlegri stillingu var orðlögð hamhleypa til verka þegar hann var htima í ííki sínu. Oít má bregða upp iitlum speg- i.myr.dum í visuorðum eða máJs- háttum af almennu viðhorfi manna til þess sem að höndum ber. „Góðmennskan gildir ekki“ er upphafið að alkunnri vísu sem margir dá — og kannski getur ráðlegging hennar stundum átt við fyrir suma. Hvað sem því líður er það víst að ekki var leiðarsteinn Helga fólginn í þess- ari ferskey tlu. „Þolinmæðin þrautir vinnur allar“ gat miklu frekar verið hans einkunnarorð. Samt vantar enn eitthvað í mynd ina. Þolinmæðin getur veri'ð leið, dapurleg, mædd, — en það var hún ekki hjá Helga, heldur sjálf- sögð og lífgandi eins og dags- birtan. — ★ — Helgi fæddist að Núpum í Að- aldal. Pétur Stefánsson bóndi þar og kona hans Helga Sigurjóns- dóttir voru foreldrar hans. Voru þau af góðum þingeyskum bænda ættum, hæfilega söltuðum presta- blóði þegar rakið er nokkra ætt- liði aftur í tímann. Fjögur systkin átti Helgi og mun Stefán þjóðskjalavörður þeirra kunnastur. Annar bróðir aeirra er -nn á lífi norður á Húsavík.Sigurjón sem áðar bjó að Heiðarbót í Reykjahverfi og var söngstjóri í hjáverkum. — Kristján sjómaður og útgerðar- maður á Húsavík er löngu dáinn, einnig Hólmfríður systir þeirra sem gift var Héðni Jónssyni, en synir þeirra — Jón viðskiptafræð ingur og þeir bræður — eru orð- lagðir athafnamenn. Það er sagt að listhneigðina megi rekja til langömmu þeirra systkina, Guðlaugar Björnsdótt- ur kona síra Hjörleifs Guttorms- sonar áð Skinnastað. Hvað sem því líður var Sigurjón í Heiðar- bót ekki einn um að vera söngvinn og söngelskur, þar var Helgi og mjög liðtæk- ur og ekki aðeins sem áheyr- andi. Lagði hann einkum stund á píanóleik á yngri árum. — ★ — Árið 1924 kvæntist Helgi Soffíu dóttur Björns yfirkennara Jens- sonar, og er hún yngst þeirra ágætu systkina. I»au eignuðust þrjú börn: Björn lögfræðingur kvæntur Soffíu Einarsdóttur. Helga, ógift, starfar við rann- sóknarstofnunina á Keldum. Gunnlaugur Pétur flugmaður, giftur Erlu Kristjánsdóttur. Heimili Soffíu og Helga hafði sama svip hógværrar fyrir- mennsku og dagfar þeirra allt, ekki borizt á. í neinu en smekk- urinn allstaðar í fyrirrúmi, utan húss sem innan . „Þetta er allt gott og blessað", lætur Voltaire Candide segja í lok samnefndrar frægrar sögu. „en maður verður að rækta garð inn sinn“. Skeytingarleysi þessa gáfaða dugmikla manns um all- an opínberan rrama og me.orð. um önhur manaaforráð en þau sem aðrir heimtuðu að hann tæki að sér, hafa oft minnt mig á þessi alkunnu orð. Og þessi garður athafna og menningar var vel hirtur. Pétur Benediktsson. ÉG VAR rétt í þessu að heyra lát hans tilkynnt. Þessi fregn kom ekki á óvart, því hann var búinn að vera sjúkur æði lengi. En vfð lát hans rifjast upp fyrir mér langt og ánægjulegt sam- starf. Helgi var einn af allra samvizkusömustu og dugmestu samverkamönnum, sem ég hefi unnið með. Og hann var óvenju- lega reglusamur og hagsýnn starfsmaður. Það var algengt áð- ur en Helgi byrjaði að vinna með mér, að talsvert af verkefnum dagsins var geymt til kvölds og þá unnið að lausn þess fram eft- ir nóttu. Helgi breytti þessu fljót- lega. Ég undraðist oft hvað vel honum tókst að skipuleggja starf ið svo að unnt var að ljúka öllu sem þurfti á venjulegum vinnu- tíma. Og það var ekki kastað höndum áð þessum störfum, því allt var unnið af einstakri vand- virkni og snyrtimennsku. Einu sinni hafði Helgi farið frá SÍS og byrjað á eigin fyrir- tæki. Ekki veit ég nema þetta hefði orðið honum til meiri fjár- öflunar og frama heldur en iauna starf í þjónustu SÍS. En ég var alltaf nokkuð þröngsýnn og taldi mest um vert að vinna fyrir SÍS. Ég skýrði stjórn SÍS frá því að Helgi væri að byrja á eigin fyr- irtæki, en ég teldi kröftum hans betur varið í þjónustu Samvinnu félaganna og færi því fram á að hafa um það óbundnar hendur að reyna að ráða hann aftur í þjón- ustu SÍS. J>etta var samþykkt og tóskt mér að fá Helga til sam- vinnu á ný. Þegar ég svo fór úr þjónustu SÍS í ársbyrjun 1945 tók Helgi vfð starfi mínu sem framkvæmdastjóri útflutnings- deildar, og tel ég það eitt af því bezta, sem ég hef gert fyrir samvinnufélögin, að fá þessu framgengt. Það var ekki meining mín með þessum fáu línum að skrifa ævisögu Helga, sem er það merki leg að henni þarf að gera betri skil, heldur aðeins að þakka á- gætt samstarf og óska ekkju hans og börnum alls hins bezta á ókomnum ævidögum. Jón Árnason. Guðloug J. Jónsdóttir Minningurorð Á MORGTJN, mánudag, verður Guðlaug Jónína Jónsdóttir Skip- holti 44 Reykjavík, jarðsungin frá Akureyrarkirkju og jarðsett í kirkjugarðinum þar, en hún andaðist sviplega á heimili sínu aðfaranótt 13. þ.m. öllum svo óvænt, er til þekktu. Guðlaug var fædd að Nolli, Grýtúbakkahreppi í Suður- Þingeyjarsýslu 15. febrúar 1921. Foreldmr hennar voru Jón f»or- geirsson og Bjarney Guðbjarts- dóttir, er bjuggu þar. Á bernsku- árum Guðlaugar fluttu for- eldrar hennar til Akureyrar með 'börnin, og þar hefur móðir henn- ar búið síðan. Um fermingarald- ur missti Guðlaug föður sinn. Ólst hún síðan upp til fullorðins- ára hjá móður sinni og seinni manni hennar, Guðlaugi Stefáns- syni, nú starfsmanni hjá Akur- eyrarbæ, ásamt stystkinum sínum. Strax og Guðlaug hafði þrek til, fór hún að vinna fyrir sér, bæði heima á Akureyri og í Reykjavík og vann við ýmis störf. 30. júní 1956 giftist hún eftirlifandi manni sínúm, Sveini C. Jónssyni fiskkaupmanni frá Ólafsfirði og settust þau að hér í Reykjavík. Bjuggu þau að Miklulbraut 90 þar til sl. haust, er þau keyptu fbúð í Skipholti 44 og fluttu þangað. Á Miklu- braut 90 hafði Guðlaug húið þeim lítið en fagurt heimili, þar sem öllum leið vel, er þangað komu. En í hinum nýju húsa- kynnum, er bæði voru stærri og hentugri á margan hátt hugðist hún skapa þeim friðsælan sama- stað sem fyrr; við það starf var hún vakandi og sofandi, að fegra og prýða, er hún var kölluð svo skyndilega burtu. Þeim hjónum varð ekki barna ÍSÍRSSSÉS auðið. Tóku þau bróðurson Guð- laugar, Héðin 9 ára, í fóstur er hann var í vöggu. Stuttu síðar ættleiddu þau hann og hafa síð- an alið hann upp sem sitt eigið barn. Naut hann ástríkis og um- önnunnar Guðlaugar í ríkum mæli og mun honum seint bætast móðurmissirinn, svo ríkur var kærleikur hennar til hans. Guðlaug var orðvör kona og grandvör í dagfari. En þeir eðlis þættir hennar, sem framar öllu birtust í orðum hennar og athöfn um voru fórnfýsin og gleðin af þvi að gleðja aðra. Þar áttu jafnan hlut að máli ættingjar hennar og fjöl- skyldunnar allrar og vandalaus- ir vinir. Hús þeirra hjóna stóð öllum opið er þangað leituðu og ekki voru sporin talin eftir, ef það gat orðið einhverjum tdl hagræðis. Það vitum við hjónin bezt, svo oft greiddu þau Sveinn götu okkar. Auk umsvifamikilla og tíma- frekra heimilisstarfa vann Guð- laug jafnan nokkuð utan heim- ilisins. Hin síðustu ár við af- greiðslustörf hjá íþróttavöllum Reykjavíkur. Þar ávann hún sér, sem fyrr, trúnað og traust yfir- manna sinna, sem fólu henni oft vandameiri verkefni. Því trausti brást hún ekki heldur. Þótt lífssaga Guðlaugar sé ekki löng að árum, er hún björt og fögur. Saga, sem segir ekki frá harðræðum eða stórum átök- um, heldur saga um konu, sem færði frið og fegurð til sam- ferðarmannanna, miðlaði þeim af kærleika sínum og fórnarlund og skilur eftir í hugum þeirra minningar, sem ekki mást út, en ylja þeim um hjartað er þær leita á. Er unnt að lifa betur? Við fráfall Guðlaugar hafa hinir fjölmörgu ættingjar og vinir misst mikið. Systkinin eiga á bak að sjá traustri stoð í erfið- leikum og stríði daglegs lífs, sem jafnan lagði gott til og bætti um til hins betra. Sjúk og öldruð móðir missir fórnfúsa og kær- leiksríka dóttur, sem ávallt var reiðuhúin til að rétta hjálpar- hönd, ef með þurfti. En mestur er söknuðurinn og sárastur harmurinn hjá eiginmanni og syni, sem hafa misst ástríka eiginkonu og móður og standa eftir, sviftir því skjóli, sem var þeim allt. Megi Alvaldur Guð, sá, sem lífið gaf og tók aftur, sefa söknuðinn og blessa þær dýrmætu minningar, sem eftir lifa. Tómas Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.