Morgunblaðið - 15.07.1966, Síða 5
■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ iiiiiimTn■ ■■íniímiiiltiiiiiiHiii■■ iTraTaiVímiíimruílTli ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■<■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■!■■ rai■■■■■■■■'■ •■■■■■■■■■ ■«!■■ ■■■■■■■i
Föstudagur 15. júlí 1966
MORCUNBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
f GÆR komu þeir, sem ætl-
uðu að fá sér hressingu á
matsölubúsum borgarinnar að
lokuðum dyrum. Þegar nánar
var aðgætt gat víðast að líta
miða, er límdir voru á hurð-
ina, á hverjum stóð að staðn-
um væri lokað vegna vinnu-
deilna. Og menn sneru frá og
leituðu uppi gos- og kexsölu-
staði, eða fengu sér kaldan
sviðakjamma.
Óþarfi er frá því að segja
að þessi lokun matsölustaða á
rætur sínar að rekja til verk-
falls þjóna á vínveitingahús-
um, eu það hófst fyrir nokkr
Þrjar konur — erlendu: gestir voru i Gyllta salnum a Iiotel Borg.
Verða að láta sér nœgja
gos, kex, sviðakjamma
— vegna þjónaverkfallsins og
lokun veitingahúsanna
um dögum. Með því verkfalli
var tekið fyrir heimsóknir
borgarbúa á bari þess-
ara húsa. XJrðu menn því
að gera sér ferð á
útsölustaði Á.V.R. og kaupa
þar þær veigar er þá vanhag-
aði um Síðan hafa menn
sennilega drukkið af stút
undir vegg, líkt og gert er í
réttum á haustin. Áhrifin
létu ekki á sér standa og voru
óvenju margir menn er sáust
á rjátli um borgina undir á-
hrifum. Hafði því lögreglan
rétt einu sinni nóg að starfa
við að vísa mönnum veginn
heim eða eitthvað annað, ef
ástæða bótti til.
Hver ástæðan er fyrir verk
falli þjónanna er ekki svo
auðséð fyrir almenning og
setja menn það gjarnan í sam
band við þau erlendu
skemmtiferðaskip, sem hér
koma nú dag hvern. Það þyk
ir nefnilega dularfullt, að
þrátt fyrir hérvist þeirra var
gott veður í gær og fyrradag.
Telja menn útilokað annað en
að það komi fram í öðrum
myndum og nefna þá til þjóna
verkfallið.
Sagan er þó ekki nema hálf
sögð með verkfalli þjónanna
á vínveitingahúsunum. Starfs
stúlkur á veitinga- og mat-
söluhúsum boðuðu nefnilega
til santúðarverkfalls, sem
þær afboðuðu síðan á síðustu
stundu Eigi að síður voru
þessi hús lokuð í gær og mun
það hafa verið að frumkvæði
eigenda þeirra
Hér í borginni starfa marg
ir utanbæjarmenn er hafa
að staðaldri borðað á þessum
húsum. Okkur lék forvitni á
að vita hvar beir næðu sér í
fæði þessa daga og náðum
eftir nokV.ra leit í ungan Skag
firðing sem hefur atvinnu við
húsbyggingar Sagði hann að
hans fæði væri nú kex og gos
drykkir, en auk þess hefði
hann fengið sér sviðakjamma
í hádeginu og borðað hann í
bílnum sínum. Lét hann vel
yfir þessu fæði, en sagði að
það mundi vafalaust verða
þreytandi þegar til lengdar
léti.
Síðan höfðum við samband
við matvöruverzlun og spurð
um um það hvort sala hefði
aukizt á dósamat og kexi, —
fengurn við þau svör að svo
væri ekki, eða að minnsta
kosti ekki það mikil að hægt
væri að merkja það. Hinsveg-
ar létu pylsu- og súkkulaði-
seljendur vel yfir sínum hlut
í gær og sögðu sölu sína ó-
venju miida.
En hva? sem öðru líður er
það áreiðanlega von vel-
flestra að þjónaverkfallinu
ljúki sem fyrst og allt komist
í sínar gömlu, góðu skorður.
Að menn geti á ný fengið
keyptar steikur eða soðinn
fisk og brugðið sér síðan á vín
veitingarhús og . . . já, hlustað
á góða dansmússik og fengið
sér snúning.
Áhrif koxnmúnisfa
sferk d Mið-Jövu
Djakarta, 11. júlí. NTB.
# Um helgina héldu indónes-
ískir stúdentar enn hópfundi í
Djakarta til áréttingar kröfum
sínum um, að stjórn verði mynd
uð í landinu og verðlag á nauð-
synjavarningi lækkað. Jafnframt
var því mótmælt, að Sukarno,
forseti, taki þátt í stjórnarmynd-
uninni, svo sem hann krefzt í
krafti embættis sins.
Um tvö þúsund hermenn og
lögreglumenn tóku þátt í hóp-
fundunum að þessu sinni, sem
að sögn fréttamanna sýnir, að
Suhartoi, hershöfðingi styfjji
kröfur stúdenta. Að sögn AFP
fréttastofunnar tók um hálf
milljón manna þátt í hópfund-
unum um helgina.
Héraðsstjórinn á Mið-Jövu,
Munadi, hershöfðingi, hefur af-
hent Adam Malik, utanríkisráð-
herra skýrslu um ástandið þar
og starfsemi kommúnista. Segir
hershöfðinginn, að kommúnism-
inn eigi sér djúpar rætur í
íbúum Mið-Jövu og leggur til
að gerðar verði ýmsar ráðstaf-
anir til þess að bæta efnahags-
ástandið og vinna með því gegn
áhrifum kommúnista.
Adam Malik sagði sl. laugar-
dag, að því er AFP segir, að
Indónesía muni sækja aftur um
inngöngu í Sameinuðu þjóð-
irnar, þegar ný stjórn hefur ver-
ið mynduð. Stefnt er að því að
hún verði tilbúin fyrir 17. ágúst,
þjóðhátíðardag Indónesíu.
=3
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands, sem hér segir:
Brottf arardagar:
ANTWERPEN:
Bakkafoss 22. júlí*
Skip um 30. júlí
Goðafoss 12. égúst
Tungufoss 23. ágúst*
HAMBORG:
Dettifoss 1«. júlí
Askja 23. júlí**
Tungufoss 29. júli
Brúarfoss 5. ágúst
Goðafoss lö. ágúst
ROTTERDAM:
Dettifoss 20. júlí
Askja 26. júlá**
Brúarfbss 30. júlá
Goðaifoss 11. ágúst
L-EITH:
Gullfoss 25. júlí
Gullfoss 8. ág.
Gullfoss 22. ágúst
LONDON:
Bakkafoss 18. júli
Tungufoss 1. ágúst
HULL:
Bakkafoss 16. júlá
Tungufoss 27. júM
Askja 27. júlí**
GAUTABORG:
Skógaáoss 16. júlá
Mánafoss um 4. ág. **
KAUPMANNAHÖFN:
Goðafoss 16. júlá*
Gullfoss 23. júlí
Mánafoss 2. ágúst**
Gullfoss 6. ágúst
... foss um 16. ágúst
Gullfoss 20. ágúst
NEW YORK:
Fjallfoss lð.júlá*
Selfoss 5. ágúst
Brúarfoss um 7. sept.
Selfoss um 23. sept.
KRISTIANSAND:
Skiógafoss 19. júlá
Mánafoss um 6. ágúst
KOTKA:
Rannö 16. júlí
Lagarfoss um 12. ágúst
VENTSPILS:
. ...foss um 14. ágúst
LENINGRAD:
Reykjafoss 18. júlí
Lagarfoss um 4. ágúst
GDYNIA:
Reykjafoss 20. júlá
Fjallfoss um 10. ó-gúst
• Skipið losar á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
•• Skipið losar á öllum aðal-
höfnum og auk þess í
Vestmarmaeyjum, Siglu-
firði, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa í Reykja-
vík.
VINSAMLEGAST athugið, að
vér áskiljum oss rétt til breyt-
inga á áætlun þessari, ef
nauðsyn krefur.
AT.T.T MTCÖ
EIMSKIP