Morgunblaðið - 17.08.1966, Síða 2
2
MORGUNBLAÐID
MiSvíkudagur 17. ágúst 1966
Hafrannsóknaskipið Dana viðÆgisgarð í gær.
Ljósmynd Mbl. Ól. K. M.
Rannsaka göngu laxins
Hafrannsóknarskipið Dana í Reykjavik
DANSKA hafrannsóknarskipið
Dana liffgur nú við Ægisgarð í
Reykjavikurhöfn. Það hefur nú
i þrjá áratugi verið að hafrann-
sóknum í hafinu umhverfis ís-
land og við Grænland.
Hinagð kemur skipið nú frá
Grænlandsmiðum, þar sem það
hefur verið við rannsóknir á
laxagengd og hefur fundið
merkta laxa frá Skotíandi, Eng-
landi, Svíþjóð og Kanada. Til-
gangur þessara rannsókna er að
finna göngu laxins um úthöfin,
enda hefur menn lengi grunað
að laxinn leitaði norður á bóg-
inn.
Hafrannsóknarskipið E>ana er
byggt árið 1937 og er því komið
til ára sinna. Má segja að það
hafi skapað grundvöll allra haf-
rannsókna íslendinga, enda hafa
þekktustu vísindamenn fslend-
inga á sviði haf- og fiskirann-
sókna starfað um bprð 1 því. P.
H. Fjelde, skipstjóri tjáði blaða-
manni Mbl., er hann kom um
borð í gærdag, að nú væri talað
um það að smíða nýtt skip, sem
leysti þetta af hólmi. Svo gamalt
skip sem þetta væri orðið óhag-
kvæmt í rekstri, enda þótt því
hefði verið haldið vel við. Hins
vegar væri ekki vitað hvenær
yrði af hinni nýju skipasmíð.
Frede Hermann, haffræðingur,
sá sem hefur haft allan veg og
vanda að rannsóknum skipsins
tjáði Mbl. að aðalverkefni skips-
ins í þessari ferð hefði verið að
kanna göngu laxins til Græn-
lands og hefðu þeir veitt lax
í reknet. Einnig hefðu þeir verið
að leita að rækjumiðum, en
ekki hefðu fundist eins stór mið
og vænzt hafi verið. Hermann
sagði að fyrir strið hefðu Danir
rannsakað hafið umhverfis ís-
land, eða þar til íslendingar
hefðu tekið að sér rannsóknirnar
sjálfir og lýsti hann ánægju sinni
yfir því samstarfi, sem væri
milli þjóðanna.
Skipið fór í þennan leiðangur
hinn 18. júní frá Kaupmanna-
höfn og nú er það fer frá Reykja
vík mun það fara til Kaupmanna
hafnar, þar sem það mun dvelja
í um vikutima, áður en það fer
til sildarrannsókna í Norðursjó.
Kváðust þeir félagar ávallt hafa
gaman af að koma við í Reykja-
vik og hitta gamla kunningja,
sem þeir ættu marga eftir svo
mörg ár við rannsóknir um-
hverfis ísland.
Strokuhermaöur gaf
sig fram af s jálf sdáðum
Er kominn til Bandaríkjanna til
þess að afplána refsinguna
5
MICHAET* Burt, bandaríski her-
maðurinn, er strauk héðan úr
bandaríska hernum, og greint
hefur verið frá í blöðum fyrr,
er nú kominn til Fíaldelfiu í
Pennsylvariiafélki í Bandaríkj-
unum, þar sem hann mun af-
plána refsinguna, sem hann
hlýtur fyrir flótta sinn. Burt
gaf sig fram við heryfirvöld á
Keflavíkurflugvelli af sjálfsdáð-
um fyrir tilstilli foieldra sinna.
Margret Jónsdóttir, móðir
piltsins, greindi Mbl. frá því í
gær, að Michael hefði haft sam-
band við þau hjónin á þriðju-
dag sL, og var hann þá staddur
í Sandgerði, bar sem hann hafði
að undanförnu verið háseti á
v.b. Dagrúnu frá Reykjavík. Þau
óku rakleiðis til Sandgerðis, og
náðu í Mirhael, og óku honum
heim til Innri-Njarðvíkur. Þar
yfirveguðu þau málin, og töldu
foreldrar Hans rétt fyrir hann
að gefa sig fiam, og tók Michael
vel í það. Síðar um kvöldið óku
þau honum til Keflavíkurflug-
vallar, þar sem hann gaf sig
íram, og vai hann hufður í varð-
haldi um nóttina.
Kvöldið eftir höfðu þau hjón-
in spurnir aí því. að flytja ætti
Michael til Bandaríkjanna, og
óku þau þá samstundis til flug-
vallarins. Fengu þau hjónin að
ræða við Michael einslega í um
15 mínúíur, en síðan var farið
með hann út í flugvél, sem átti
að flytja hann til Fíladelfíu.
Margrét sagði, að henni hefði
borizt bréf frá syni sínum, sem
hann hafði skrifað í New Jersey,
en þar hacði flugvélin viðkomu.
Ennfremur hefði henni borizt
bréf frá yfirmanni fangelsins
þess, sem Michael á að dveljast
í Fíladelfíu, bar sem hann setur
þeim hjónunum reglur hvað
megi ser.da ,honum í fangelsið,
og sé því þar með kominn stað-
festing á því, að Michael háfði
komizt heilu og höldnu þangað.
Margrét upplýsti ennfremur
að á meðan hvað mest hefði
verið leitað að Michael hér í
Réykjavík fyrstu dagana eftir að
hann strauk frá herlögreglunni,
hafi hann dvaíið hjá KFIJM í
Reykjavík. Auk þess hafi hann
farið eina ferð með Kronprins
Olav til Kaupmannahafnar, en
síðustu dagana hafi hann verið
háseti á v.b. Dagrúnu.
Spossky
Fischer
Lorsen
sigruðu
í Kalifoiníu
Santa Monica, Kaliforníu,
16. ágúst. — NTB.
• Sovézki stórmeistarinn Bor
is Spassky bar sigur úr být-
um á alþjóðaskákmótinu
Santa Monica í Kaliforniu —\
og hlaut fyrstu verðlaunin
5.000 dali. Númer tvö varð
Bandaríkjamaðurinn Bobby
Fischer, sem hlaut 3.000 dali
og þriðji varð Daninn Bent
Larsen, sem hlaut í verðlaun
2.500 dali. 1
Jarðskjálftar
í Tashkent
Moskvu, 16. ágúst NTB.
Enn urðu jarðskjálftar i
borginni Tashkent í Sovétríkjun
um í dag. Mældust þrír kippir
að styrkleika 2—6 stig á 12 stiga
skala þeim, er notaður er í
Sovétrikjunum.
Aðalfundur Norræno
félngsins í gærkvöldi
Einar Pálsson tekur við framkvæmda-
stjórastarfi af Magnúsi Gislasyni
AÐALFUNDUR Norræna fé-
lagsins í Reykjavík var haldinn
í gærkvöldi. Fóru þar fram venju
leg aðalfundarstörf. Úr stjóim fé
lagsins áttu að ganga Vilhjálmur
Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, Thor-
olf Smith fréttastjóri og Sveinn
Ásgeirsson fulltrúL Voru þeir
Framk væmdast jóraskipti
Einar Pálsson forstöðumaður
Málaskólans Mímir hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Norr-
æna félagsins í stað Magnúsar
Gíslasonar námsstjóri, sem verið
hefur framkvæmdastjóri félags-
ins í tæplega 12 ár. Hann læiur
nú af störfum samkvæmt eigin
ösk og mun dveljast í Svíþjóð
næsta vetur.
Sigurður Bjarhason formaður
félagsins þakkaði Magnúsi Gísla
syni mikið og gott starf í þágu
þess um leið og hann bauð Einar
Pálsson velkominn til starfa.
Skrifstofa Norræna félagsins
er nú flutt í Brautarholt 4
(Málaskólhin Mímir, simi 10004).
Á aðalfundinum var gerð
grein fyrir starfsemi Norræna
félagsins á síðasta starfsáiri og
reikningar þess samþykktir. Að
lokum var sameiginleg kaffi-
drykkja.
Magnús Gislason
allir endurkjörnir. Aðrir I stjórn
félagsins eru: Sigurður Bjarna-
son ritstjóri formaður, Páll ís-
ólfsson tónskáld, frú Arnheiður
Jónsdóttir og Sigurður Magnús
son fulltrúL
í varastjórn voru kjörnir Bárð
ur Daníelsson verkfræðingur,
Gils Guðmundsson alþingismað-
ur, Páll Líndal borgarlögmaður
Hans R. Þórðarson stórkaupm.,
Helgi Bergs alþingismaður
og frú Valborg Sigurðardóttir
skólastjóri.,
Endurskoðendur voru kjörnir
Lúðvík Hjálmtýsson fram-
kvæmdastjóri og Óli J. Ólason
kaupmaður.
Einar Pálsson
EINS og veðurkortið ber með an, Þokuloft var og rigning
sér, var ísland á lægðarsvæði með köflum, en milt veður,
í gær cg í hægviðri. Mátti víða 10—15 stiga hiti. Á
heita áUleysa á landinu, þó veiðistöðvunum íyrir austan
helzt vestanátt á Suðurlandi land var svipað veður og ú
og norðaustanátt fyrir norð- sléttur sjór.
Vegur lagður yfír
Arnarvatnsheiði
VEGAGERÐAMENN úr Borgar-
firði ásamt Sigurði H. Sigurðs-
syni mxlingamanni og Krist-
leifi Þorsteinssyni bónda að Húsa
feli lögðu nýlega upp í könnun-
ar leiðangur yfir Ariiarvatns-
heiði. Var tilgangur leiðangurs-
ins sá, að kanna hvár heppileg-
ast myndi að leggja veg frá
Kalmanstungu í Borgarfirði yftr
í Víðidal i V-Húnavatnssýslu:1
Seinna fóru vegavinnumihn
með ýtum sömu leið og rudþu
fyrir vegi, að vísu nökkuð ófúll-
komnum en sæmilega akfærilm
bifreiðum með tveimur drifum.
Verkstjcrn við þessa vegavinnu
annaðist Elís Jónsson vegavinþu
verkstjóri í Borgarfirði. Er verk-
ið ..kostað aí Fjallvegafé. . ,