Morgunblaðið - 17.08.1966, Side 5
Miðvikudagur 17. ágúst 1966
MOHCUNBLAÐIÐ
5
Ingi Garðar Sigurðsson og kona hans, Kristrún Marinósd
óttir.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Á HINU sögufræga býli Reyk-
hólum í Reykhólahreppi er
tilraunastöð ríkisins í jarð-
rækt. Tilraunastjóri er ungur
mað'ur, Ingi Garðar Sigurðs-
son og er hann jafnframt ný-
kjörinn oddviti Reykhóla-
hrepps. Við brugðum okkur í
heimsókn til Inga Garðars, er
við áttum teið fram hjá nú
fyrir skömmu og áttum
stundarkorn með honum og
konu hans Kristrúnu Marinós-
dóttur.
Ingi Garðar er stórhuga um
framfarir hrepps sínsr og vild-
um við því gjarnan fræðast
um þau mál, sem hann hefur
hug á að koma í framkvæmd.
Fyrst spurðum við Inga Garð-
ar um skólamál hreppsins og
hann svaraði:
— Skólamál hreppsins eru
þannig að við höfum hér á
Reykhólum barnaskóla og er
námstími fjórir vetur, þrjá
mánuði á ári. Hins vegar er
mikill áhugi meðal hrepps-
búa að komið verði upp
unglingaskóla og á síðasta ári
héldu forráðamenn fjögurra
hreppa hér í A-Barðastrand-
arsýslu, Geirdals- Reykhóla-,
Flateyjar- og Gufudalshreppa
fund, þar sem samlþykkt var
að settur yrði á stofn unglinga
skóli hér að Reykhólum.
í fyrrahaust var sótt um
fjárveitingu til Aiþingis um
byrjunarframkvæmdir og
fékkst þá fyrsta framlag og er
nú næsta stigið að fá skóla-
húsið teiknað, svo að unnt
sé að hefja framkvæmdir sem
fyrst.
í samabndi við skólamálin
mætti og nefna það að sund-
laugin hér á staðnum var end
urbætt í fyrra og er nú verið
að endurbyggja sundlaugar-
húsið og vonumst við til að
hún verði komin í fullkomið
lag í vetur að sundkennsla
geti hafizt að nýju.
í>að er mjög mikið hags-
munamál byggðarlagsins að
hér verði komið á fót héraðs-
skóla, enda er mikill áhugi
hér meðal íbúanna, og von-
um við að ríkisstjóm og Al-
þingi taki fullt tillit til óska
okkar og þarfa í því máli.
— Hvað um samgöngumál?
— Það er okkar stóra mál
hér í A-Barðastrandasýslu.
Okkur finnst ekki nægilega
mikið fjármagn hafa fengizt
til samgöngumála hér. Gils-
fjörðxirinn er mikill farar-
tálmi. Á vetrum er vegurinn
beggja megin fjarðarins hálf-
ófær á köflum, þótt mikið
hafi verið lagfært á undan-
förnum árum. Austan fjarðar-
ins eru slæmir kaflar, en þó
eru mikið stærri og dýrari
verkefni eftir að vinna að
vestanverðu. Þá eru vegir hér
um allar sveitir ekki annað
en bráðabirgðavegir, sneiðing
ar og troðningar og mest öll
uppbygging þeirra eftir.
— Er mikil mjólkurfram-
leiðsla hér í hreppnum?
— Mjólkurframleiðslan hef-
ur aukizt ár frá ári, þótt ekki
sé um stórar tölur að ræða.
Hún jókst t.d. á sJ. ári um
tæp 30%, en allt mjólkur-
magnið er flutt til Búðardals.
Mjólkurframleiðsla hér er
mikil lyftistöng fyrir bændur,
þvi að sauðfjárhagar eru tak
markaðir og margar jarðir
betur fallnar til að bera kúa-
bú en fjárbú.
Verið er að reisa hér að
Reykhólum mjólkurbú, en
horfur um fjármagn hafa ekki
verið sem beztar. Gott gaeti
verið að fá hér einhverja vetr
arvinnslu á mjólk, þegar Gils-
fjörður teppist og er í athug-
un að koma hér upp rjóma-
og smjörvinnslu á þeim tíma,
sem minnst mjólkurmagn er.
Aðalatriðið er að bændur geti
losnað við mjólkina.
— Hefur verið hugsað nokk
uð um að koma hér upp gróð-
urhúsarækt?
— Hér eru ótvíræðir mögu-
leikar á slíkri starfsemi, en
nú er efst á baugi hér í sam-
bandi við jarðhitann að koma
á fót þaravinnslu. Sigurður
Hallsson efnaverkfræðingur
hefur unnið ötullega að rann-
sóknum á þara hér og hefur
hann nú sent niðurstöður.
rannsókna sinna til Nöregs.
Telur Sigurður hér gott hrá-
efni og skUyrði góð til þara-
mjölsvinnslu. Vatn það, sem
nú rennur hér upp á yfirborð
ið 80 til 100 stiga heitt mundi
tæplega nægja til þaravinnsl-
unnar, þess vegna er mjög að
kallandi að hér verði borað
eftir meira heitu vatni og það
sem fyrst til upphitunar húsa
hér á staðnum og þá sérstak-
lega fyrirhugaðra skólamann-
virkja. Yrði þá ef til vill um
samveitu skólanna og þara-
vinnsluverksmiðjunnar að
ræða.
— Hve margir íbúar eru I
hreppnum nú?
— Þeir eru 224 og fækkar
ekki, heldur stendur íbúafjöld
inn í stað. Hér hafa nokkrir
ungir menn hafið búskap
hvort tveggja á nýbýlum og á
gömlum og grónum jörðum.
Meðalaldur bænda í hreppn-
um er þannig alls ekki hár.
— Hvað um félagslíf?
— Félagslíf er hér fremur
lítið. Hér eru allmörg félög,
en þar sem aðstaða er fremur
léleg til að koma saman hefur
starfsemi þeirra verið fremur
dauf. Til er hreppssamþykkt
fyrir félagsheimili að Reyk-
hólum, sem jafnframt yrði
íþróttahús, en takmarkað fé er
til og er ætlunin að láta
unglingaskólann sitja í fyrir-
rúmi.
— Viltu taka eitthvað fram
að lokum?
— Já, hér hefur verið lækn
islaust í sumar, að vísu gegn-
ir læknirinn í Búðardal störf-
um læknis hér, en við erum
uggandi um það ástand, sem
getur skapazt hér á komandi
vetri. Það er skýlaus krafa
okkar hér að heilbrigðisstjórn
in geri eitthvað til úrbóta í
þessu alvarlega máli. Þetta er
í fáum orðum sagt uggvæn-
legt ástand, sagði Ingi Garðar
að lokum.
Reykhólar í Reykhólasveit. Á myndinni sést bæði gamla og nýja kirkjan.
Læknisleysiö uggvænlegt
— Rætt við Inga Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóra að Reykhólum
Við viljum leigja
til geymslu nokkurn hluta af verksmiðjubyggingu
okkar sem er í smíðum í Árbæjarliverfinu.
Sími 21220.
Húsasmiðir óskast
í mótauppslátt við skólabyggingu Upplýsingar í
síma 33805 á daginn og 34098 milh kl. 12—1 og
eftir kl. 7 á kvöldin.
Afgreiðslnraaður — Framtíðarstarf
Handlaginn, ábyggilegur og reglusamur maður
óskast nú þegar. Aldur 25—40 ára. Umsóknir í
skrifstofu LUDVIG STORR, Laugavegi 15 2. hæð.
Glersl'ipun & Speglagerð hf.
Klapparstíg 16.
Atvinnurekendur
Ungur reglusamur maður ósk-
ar eftir vel launaðri atvinnu
úti á landi. Er vanur margs
konar trésmíði, bifvélavirkj-
un og keyrslu stórra bifreiða.
Margt annað kemur til greina.
Lítil íbúð þarf helzt að fylgja.
Þeir, sem vidu sinna þessu,
sendi tilhoð á afgr. Mbl.,
merkt: „Mikíl vinna — 4070
— 4637“.
RACNAR JÓNSSON
Lögfræðistörf
Og eignaums.vsla.
hæstaréttarlögmaður.
Hverfisgata 14. — Sími 17752.
LOGI GUÐBRANDSSON
héraðsdómslögmaður
Laugavegi 12 — Sími 23207.
Viðtalstími kl. 1—5 e.h.
Við Reynimel
Til sölu eru 2ja og 3ja herbergja íbúðir á hæðum
í sambýlishúsi við Reynimel. íbúðivnar seljast til-
búnar undir tréverk og sameign úti og inni fullgerð.
Hitaveita. Malbikuð gata. Örstutt í Miðbæinn.
Teikning til sýnis á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
• Suðurgötu 4. — Sími 14314.
íbúð óskast til leigu
Flugvélstjóri í millilandaflugi óskar eftir 3ja til 4ra
herbergja íbúð til leigu í Hafnarfirði eða Reykja-
vík. Upplýsingar í síma 30698
Atvinna
Stúlka óskast við afgreiðslustörf scm fyrst. Einnig
kona við hreingerningu nú eða um mánaðamót.
Upplýsingar á skrifstofu SÆI.A C’AFÉ Brautar-
holti 22 í dag og næstu daga.