Morgunblaðið - 17.08.1966, Blaðsíða 7
MiBvikudagur 17. Sgúst 1966
MORGU NBLAÐIÐ
7
VEL MÆLT
f mannfagnaði, sem haldinn var í Skagafirði eitt sinn voru meðal
gesta Sigurður Sigurðsson sýslumaður og Stefán Vagnsson. Var þar
glatt á hjalla og vel veitt.
I>egar halda skyldi heimleiðis, bauð sýslumaður Stefáni að sitja
í jeppa sínum, og þáði Stefán það, en lögregluþjónn var við stýrið.
Á leiðinni kastar sýslumaðu.r fram þessum vísuhelming:
Stefán einn höfðingi heitir,
sá hatar ei vínin brennd.
Stefán botnar:
Og tekur sér túr fram um sveitir
í tvöfaldri iögregluvernd.
Fallegur
skápur
Hér birtist mynd af einum
smíðisgripa Hallgríms Jóns-
sonar, er fæddur var 2. des-
ember 1717, hann fór til náms
í Hólaskóla, og lærði einnig
hjá séra Stefáni Ólafssyni á
Höskuldsstöðum, síðar varð
hann bóndi á Halldórsstöðum
í Laxárdal, hann var kvæntur
og átti 14. börn. — Hallgrím-
ur var vitsmuna maður mik-
ill og smiður góður og einn
kunnasti bíldhöggvari og
málari landsins á 18. öld. —
Hann var rómaður smiður og
einnig skar hann út og
skreytti litum marga ágæta
smíðisgripi, sem sannarlega
geta kallast hinar mestu
gersemar. — Ofan á skáp
þessum, sem hér er á mynd-
inni er fjöl, sem Hallgrimur
hefur skorið og málað.
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
(Úr Þjóðminjasafni).
eð hann hefði nærri því orðið
klumsa, þegar hann kom út í
morgunsárið í gær, og fann að
eitthvað óvanalegt var að ger-
ast. Og viti menn, ekki hafði
hann farið langt, þegar hann hitti
mann, sem sagði sínar farir slétt-
ar, og er það orðið fátítt um
menn á þessu landi allskyns fram
fara og ævintýra.
Storkurinn: Þú lítur út, eins
og þér hafi verið gefin „dúsa“
manni minn?
Maðurinn með sléttu farirnar:
Annað hvort væri. Þeir eru bún-
ir að taka það. Samþykkja það.
Ég verð sjálfsagt heimsfrægur
áður en lýkur.
Storkur: Talaðu skýrar, mað-
ur minn. Hverjir hafa tekið
hvað og samþykkt?
Maðurinn: Auðvitað þeir hjá
•jónvarpinu. Ég sendi inh nýtt
framhaldsleikrit um daginn:
Orustan um Klifið, skrifað í
Eonanza-stíl ofurlítið kryddað
tilvitnunum i „The Untoucha-
bles“, aðalleikendur Gamli bónd
inn á bænum, Vilhjálmur, sem er
mikill friðflytjandi, vill allra
manna mál leysa, yngri bróðir
hans, sem komist hafði til meiri
mannvirðinga, og svo alls kyns
Jnenn þeim handgengnir, og á
móti eru Eyjaskeggjar, harðsvír-
aðir, upptendraðir af sjálfstæðis-
baráttu, og þegar á að láta sverfa
til stáls, og ekki er beðið eftir
öðru, en að lögmenn eyjaskeggja
mæti við orustuna, svona til að
sjá um að allt fari nú löglega
fram, — skjóta eyjaskeggjar sam
an, gefa þeim sumarfrí í kringum
hnöttinn og máski lengra, — og
á meðan er ekkert hægt að gera,
orustunni er frestað, allt situr
við sama, þar til lögmenn koma
heim úr sumarfríi, og þá er mein
ingin, að þeim sé einnig gefinn
kostur á haustfríi.
Svona getur þetta framhalds-
leikrit mitt staðið til eilífðarnóns
mér og sjónvarpinu til frægðar,
og geri aðrir betur. En af þessu
sérðu, storkur minn, að Eyja-
skeggjar eru hinir klókustu
menn, og ekki beint lambið við
að eika, og að lokum, hvað vill
meginlandið líka vera að skipta
sér af fól'ki, sem stóðst sitt
Tyrkjarán?
Mér er nú svona um og ó að
vera þér sammála, maður minn,
sagði storkur en eitt er þó gott
við þetta framhaldsleikrit þitt,
og það er það, að máski getur
það opnað augu margra fyrir fá-
nýti þess að vera að setja sig að
ósekju á háan hest, og allt er
svo sem hégómi, eins og í Pré-
dikaranum stendur.
50 ára er í dag Greipur Ketils-
son, Austurvegi 33, Selfossi. Hann
verður að heiman í dag.
FRÉTTIR
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum Mjóuhlíð 16 í
kvöld kl. 9. Allt fólk hjartanlega
velkomið.
Kristniboðssambandið: Almenn
samkoma í kvöld kl. 8.30 í Beta-
niu. Allir velkomnir.
Rangæingafélagið, minnir fé-
lagsmenn á skemmtiferðina um
Þjórsárdal og uppsveitir Árnes-
sýslu nk. sunnudag.
Kvenfélag Laugamessóknar
minnir á saumafundinn miðviku
daginn 17- ágúst kl. 8.30. Stjórn-
in.
Orðsending til konunnar, sem
spurði eftir skyrtuhnappi, er
tapazt hafði á Austurvelli: Hnapp
urinn er fundinn og má vitja
hans til umsjónarmannsins.
Orlof húsmæ®ra í Ámes- og
Rangárvallasýslum verður að
Laugarvatni dagana 1. — 8. sept.
Bræðrafélag Nessóknar býð-
ur öldruðu fólki í Nessókn til
skemmtiferðar, fimmtudaginn
18. ágúst. n. k.
Lagt verður a stað kl. 13 frá
Neskirkju og farinn hringurinn:
Þingvellir, Þrastarskógur,
Hveragerði.
Perðapöntunum er veitt mót-
taka í símum: 11823 (Þórður
Halldórsson), 10669 (Sigmundur
Jónsson) og 24662 (Hermann
Guðjónsson.
Undirbúningsnefndin
Kennaranemi
óskar eftir 2—3 herb. íbúð,
helzt í nágrenni Kennara-
skólans. Kennsla kemur til
greina. Uppl. i síma 35130
á kvöldin.
Leiguíbúð
Ungan tæknifræðing vant-
ar íbúð frá 1.. nóv. Til
greina gæti komið íbúð,
sem aðeins væri til leigu
fram á næsta vor eða sum-
ar. Uppl. í síma 40703.
Tvær systur
óska eftir 2 herb. og eld-
húsi. Uppl. í síma 21874.
ATHUGIB
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Riffill — Haglabyssa
Til sölu tvíhl. haglabyssa
cal 22 og riffill með kíki
cal 22. Einnig 2 gæsir upp-
stoppaðar. Uppl. í síma
14407.
Vatnabátur
Sem nýr vatnabátur, ásamt
18 ha mótor á tengivagni
til sölu. Uppl. í síma 41453.
Vantar ráðskonu
strax. Má hafa barn. Uppl.
í sima 52251 milli 2 og 5.
Lítil íbúð til leigu
við Langholtsveg. Fyrir-
framgr. 1 ár. Tilboð merkt:
„Reglusemi 8862“ sendist
M'bl. fyrir laugardag 20.
ágúst.
Vegna linubrengla birtist erindi Kjartans ólafssonar um
Hræðsluna aftur i dag að beiðni hans.
Hvað veldur því ef vonir mínar deyja?
Því veldur efans neyð, og trúardeyfð.
Það er svo margt, sem má um lífið segja,
og mér er gatan frjáls til enda leyfð.
Ég villist oft, og sjálfum Guði gleymi,
og get ei vakið mína þakkargjörð.
Ég spyr, sem lítið barn í hörðum beimi,
og hræðist þessi stríð um alla jörð.
Kjartan ólafsson.
ÞRIHJÓL
VESTUR ÞÝZK
VERÐ KR. 475.00
— — «75.00
Stenbergs
Maskinbyrá AB
Stokkhólmi, bjóða alls konar tiésmíðavélar og tæki
til trésmíða, svo sem:
Sambyggðar vélar.
Sérstæðar vélar, alls konar.
Kílvélar.
Spónaplötusagir.
Spónlagningapress ur.
Hitaplötur til spónlagninga.
Fyrirliggjandi sambyggðar trésmíðavélar .gerð
K.L.A. með 31 cm. borði hentar vel fyrir einstakl-
inga — verkstæði og byggingan.eistara. — KRAFT-
MIKIL, LÉTT OG AUÐVELD í FLUTNINGI.
Einkaumboð fyrir ísland:
Jónsson & Júllusson
Hamarshúsinu Vesturenda — Súni: 15-4-30.