Morgunblaðið - 17.08.1966, Síða 10
10
MORGUNBLAÐID
Miðvikuiíagur 17 ágúst 1966
Búið að salta 75000
tn. upp í síldarsölur í ár
EINS og skýrt var frá í Mbl.
fyrir nokkru hefur Síldarútvegs-
nefnd gert samninga við Noreg,
Sviþjóð, Finnland, Danmörk og
Bandarikin um kaup á 383.240
tunnum saltsíldar. Þessi tala hef-
ur ekki breyzt síðan, en nú
standa yfir viðræður milli salt-
sildarkaupenda í Sovétríkjunum
og ísrael annarsvegar og Síldar-
kaupenda í Sovétríkjunum og
ísrael annarsvegar og Síldarút-
vegrsnefndar hins vegar um kaup
á saltsíld, en ýmislegt ber í
milli, um verð og aðra skilmála,
að því er Erlendur Þorsteinsson
framkvæindastjóri tjáði blaðinu
í gær.
Erlendur sagði, að Síldarút-
vegsnefnd hefðu borizt fyrir-
spurnir um saltsíld frá tveimur
vesturþýskum fyrirtækjum, en
ekkert hefði frekar frá þeim
heyrzt.
Erlendur sagði að nú hefðu
veri'ð saltaðar 75.000 tunnur síld-
ar, uppí þegar gerða sölusamn-
inga.
Norrænir sjálfboða-
liðar til Vietnam?
Kaupmannahöfn, 1G. ág. NXB.
" „Extrabladet" í Kaupmanna-
höfn skýrir svo frá, að 16 Danir
hafi lýst sig reiðubúna að fara
til Vietnam og berjast þar við
hlið Viet Cong skæruliða gegn
her S-Vietnam og Bandarikjanna
Nokkur samtök vinstrimanna
hafa hafizt handa um að kanna,
hversu margir Danir mundu gefa
sig fram sem sjálfboðaliðar og
eru þar fremstir í flokki nokkrir
menn, sem á sínum tíma veittu
Serkjum í Alsír stuðning í bar-
áttu þeirra við frönsku nýlendu
stjórnina.
Danirnir hafa spurzt fyrir um
það hjá Vietkong, hvort þeir
óski eftir aðstoð og hefur borizt
svar þess efnis, að æskilegt sé,
að komið verði á laggirnar í Ev-
rópu herþjálfuðu varaliði, sem
hægt sé að grípa til i skyndi,
gerist þess þörf. Blaðið segir, að
hafinn sé í Svíþjóð undirbún-
ingur að því að senda sjálfboða
liða til Vietnam.
Meintur morðingi og bunka-
ræningi hundtekinn í Svíþjóð
Gautaborg, 16. ágúst. NTB.
• Lögreglan í Gautaborg hefur
handtekið ungan mann, annan af
Síldveiði mjög
treg í gaer
Samkvæmt upplýsingu L.Í.Ú.
sem blaðinu bárust í gær hafði
verið gott veður á síldarmiðun
um undanfarinn sólarhring og
▼eiði góð 180—190 mílur ASA
og SA að austri frá Dalatanga.
Er blaðið hafði samband við
síldarleitina á Dalatanga í gær-
kvöldi hafði veiði verið mjög
treg um daginn og ekki frétzt af
neinu skipi, sem hafði kastað.
Veður var þá agætt á miðunum.
Sl. sólarhring höfðu 33 skip
tilkynnt um afla, samtals 5,976
lestir:
Dalatangi
Garðar GK lestir 160
Stapafell SH 50
Sigurfari AK 160
Lómur KE 280
Keflvíkingur KE 320
Reykjanes GK 170
Haraldur AK 190
Huginn II VE 250
Krosanes SU 245
Héðinn ÞH 200
Bára SU 120
Gullfaxi NK 230
Bjarmi II EA 386
Húni II. HU 82
Elliði GK 110
Gunnar SU 150
Siglfirðingur Sí 210
Árni Magnússon GK 210
Sig. Jónsson SU 212
Sveinbj. Jakobss. SH 140
Halldór Jónsson SH 160
Kristján Valgeir GK 340
Auðunn GK 160
Þrymur BA 150
Súlan EA 260
Ól. Friðbertsson IS 140
Helga Björg HU 86
Ólafur bekkur ÓF 145
Ingvar Guðjónss. SK 180
Skálaberg NS • 60
Vigri GK 150
Óskar- Halidórss. RE 170
Sólrún ÍS 100
tveimur, sem grunaðir eru um
að hafa skotið til bana lögreglu
þjón, er stóð þá að bankaráni
í Nyköping fyrir um það bil
þremur vikum.
Maðurinn, sem handtekinn var
ára að aldri — en ennþá er leit-
að 19 ára pilts að nafni Clark
Olofsson. Talið er víst að þeir
hafi síðan gerzt sekir um banka-
rán i Stokkhólmi, þar sem stolið
var s.l. föstudag um 400.000 kr.
ísl. Fingraför Olofssons fundust
á ránsstaðnum.
BISKUP íslands, herra Sigur-
björn Einarsson hefur auglýst í
síðasta Lögbirtingablaði laus til
umsóknar eftirtalin prestaköll og
er umsóknarfrestur til 1. sept-
ember: Bildudal í Barðastrand-
arprófastsdæmi, Hrísey í Eyja-
fjarðarprófastsdæmi og Skinna-
stað í N-Þingeyjarprófastsdæmi.
Unnið að uppsetningu sýningarstúkna.
Iðnsýningin:
Sýningarstúkur afhentar
ALLUR undirbúningur fyrir Iðn-
sýninguna 1966 gengur sam-
kvæmt áætlun. Er lokið uppsetn-
ingu sýningarstúkna fyrir um 140
sýnendur, sem munu nú taka við
stúkum sinum og hefjast handa
um skreytingu þeirra og koma
sýningarmunum fyrir. Þeir
fyrstu eru þegar byrjaðir á þvi
verki. Stærstu sýningarstúkuna
hefur Sláturfélag Suðurlands.
Hraðað hefur verið ýmsum
framkvæmdum við Sýningar- og
íþróttahöllina í Laugardal vegna
Iðnsýningarinnar, m.a. hefur ver-
ið unnið að frágangi í anddyri og
aðalsal.
Ymislegt verður gert utan húss
til skreytingar og til að vekja at-
hygli á sýningunni. Fyrirhugað
er að reisa stóra grind úr stál-
pípum í grennd við húsið og á
hún að vera táknræn fyrir iðn-
aðinn.
A Hópferðir á sýninguna.
Til að auðvelda fólki úti á
landsbyggðinni til að komast á
sýninguna verða sérstakar hóp-
ferðir skipulagðar í því skyni.
Mun ferðaskrifstofan Lönd &
Leiðir annast hópferöir frá flest-
um hinum stærri kaupstöðum og
kauptúnum.
Þá mun sérstakur strætisvagn
fara úr miðfoorginni á hálftíma
fresti með sýningargesti.
Auglýsingarspjöld á sýning-
arsvæðinu.
Fyrirtæki, stofnanir og aðrir
aðilar, sem ekki taka þátt í sýn-
ingunni eiga þess kost að aug-
lýsa á spjöldum, sem sett verða
upp á sýningarsvæðinu. Spjöldin
verða af tveim stærðum, IVz og
3 fermetrar.
Iðnsýningarnefnd hefur samið
við Jón Ragnarsson, veitinga-
mann, um að annast allar veiting-
ar á sýningunni. Verða á boð-
stólum heitir og kaldir réttir,
smurt brauð, kaffi og kökur, öl,
gosdrykkir, tóbak o.s.frv.
(Fréttatilky nning).
Enn um sjónvnrpsmól
Vestmnnnaeyingn
VEGNA ummæla hér í blaðinu
um sjónvarpsmái Vestmanna-
eyinga hefur Mbl. lengið eftir-
farandi unplýsingar hjá tækni-
fróðum mönnum:
„Það er ekki rétt, sem segir
í fyrirspurn „Krumma" í dálk-
um Velvakanda í gær, að sjón-
varpssenditækin í Vestmannaey.
séu „nákvæmlega eins og sjá
Kvennaþingi lokið
ÞINGI Alþjóðasamtaka háskóla-
kvenna, sem staðið hefur yfir
síðan 11. þ. m., lauk í gær. Að
þingstörfum loknum kvaddi sér
hljóðs fyrsti varaforseti sam-
takanna, próf. E. P. Steyn Parvé.
Sagði hún m. a., að sér hefði í
fyrstu þótt fráleitt að fara næst-
um á Norðurpól til að halda þing,
en nú færi hún á brott með það
í huga að sig langaði til að koma
aftur. Þá tók til máls forseti sam-
takanna, frú A. K. Hottel, og
sagði þingi slitið. í gærkvöldi sat
þingheimur boð menntamálaráð-
herra.
Á þinginu var m. a. ákveðið að
veita félagi háskólakvénna í
Súdan aðild að samtökunum. Þá
var samþykkt að veita háskóla-
menntuðum flóttakonum í Evr-
ópu áframhaldandi styrki úr
hjálparsjóði samtakanna og auka
fjárhagslega aðstoð við kven,-
stúdenta í Hong Kong. Ákveðið
var að fela félögum háskóla-
kvenna í hinum ýmsu löndum að
glæða áhuga ungra kvenna á
verkfræði-, búfræði- og tækni-
fræðinámi og vekja athygli í þvL
kennslukvenna á möguleikum til
styrkja til að kynna sér skóla-
stjórn. Þá var samþykkt, að fara
þess á leit við félög háskóla-
kvenna að þau biðji ríkisstjórnir
landa sinna að skipa mennta-
konur í stjórnarnefndir á alþjóða
vettvangi og tilnefna konur í hin-
ar ýmsu deildir Sameinuðu þjóð-
anna. Að lokum var ákveðið að
aðalumræðuefni á ráðstefnunni,
sem fram fer í Karlsruhe, Þýzka-
landi árið 1968 yrði mannréttindi
og ábyrgð einstaklingsins í þjóð-
félaginu.
Erlendu háskólakonurnar voru
hinar ánægðustu með fundinn
og létu vel af fundarstað. í dag
halda þær í fimm daga férðalög
um Norðurland og þriggja daga
ferð um Snæfellsnes, ásamt tó-
lenzkum háskólakohum. Þá fara
nokkrar þeirra upp á eigin spýt-
ur í ferðalag að Gullfossi, Geysi
og Skálholti.
Næsta þing Aliþjóðasamtaka
háskólakvenna verður haldið í
Indlandi í sepember á komandi
ári ög óskað eftir að sém flestar
íslenzkar háskólakonur taki þátt
má á flestum fjölbýlishúsum
hér í Reykjavík“. Þeir magnar-
ar, sem hér eru notaðir á nokkr-
um stöðum í fjölbýlishúsum
dreifa sjónvarpinu í lokuðu
kerfi, sem aðrir geta ekki notað,
og um takrnarkað svið, en end-
urvarpa því ekki út. í Vestmanna
eyjum eru tækin hinsvegar not-
uð til þesi að varpa sjónvarps-
myndum út í loftið, þannig að
hver sem er getur tekið þær á
tæki sín. Þetta er því beint end-
urvarp og tækin, sem notuð eru
í Vestmannaeyjum, mastur og
magnarar, eru endurvarpsstöð.
Rekstur slíkra stöðva er óheimill
að lögum á veg ii ai narra en
Ríkisútvarpsins. Það er einnig
nauðsynlegl að setja skorður við
starfi slíkra endurvarpsstöðva
af því að þær geta truflað aðra
starfsemi. Vestmannaeyingar
hafa ekkert leyfi til þessarar
starfsemi. Sjónvarpsstarfsemi
þeirra er rekin í algeru heimi'd-
arleysi og er brot á lög-
um og alls ekki sambærilag
við þá innanhússmagnara, sem
„Krummi“ vill bera hana saman
við.
TíJdlr af — en
heilir á húfi
Genf, 16. ágúst. NTB.
• Tveir franskir fjallgönru-
menn, sem taldir voru af eru
nú komnir fram heilir á húfi.
Óttast var, að elding hefði orð
ið mönnunum að bana, en í Ijós
kom, að þeir höfðu aðeins misst
meðvitund nokkra stund en
rankað við sér aftur og voru
ómeiddir. Félagi þeirra, káþólsk-
ur prestur, varð hins vegar eid-
ingunni að bráð. Óveður mil ið
hefur geisað í frönsku og svi s-
nesku ölpunum að undanföi nu
og valdið mörgum fjallgöngu-
mönnum erfiðleikum.
Til athugunar
VEGNA þess hve margir menn
allstaðar frá leitast við að ná
sambandi við mig, með bréfa-
skriftum, símtölum og heim-
sóknum, Ivsi ég því hér með
yfir, að ég hefi ákveðið að hætta
viðleitni minrii, þeirri sem ég
hefi kosið að nefna „hjálp í við-
lögum“.
Þar, sém verið getur, að lof-
orð mín um svör og sambönd
í einstaka t.ilfellum hafi ekki
verið efnd. vegna anna og
gleymsku, yrði ég þakklátur,
værí ég minntur á. helst skrif-
lega. Slíkar misfellur eru skilj-
anlegar, í Öllum bókum felast
prentvillur
Þegar árm færast yfir, hætta
menn fyrst þeim störfum, sem
vandasömust eru og mest lífs-
afl þarf til að leysa.
Starfsdagur minn er þegar
liðinn.
Með þessari yfirlýsingu, gjöri
ég mitt tíl þess að spara fólki
ómök og fyrirhafnir, sem engan
árangur myndu bera og bæta úr
vanefndum, ef einhverjar eru. —
Akureyri 20. júlí 1966.
Ólafur l'ryggvason.