Morgunblaðið - 17.08.1966, Blaðsíða 12
12
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. ágúst 1960
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 105.00
1 lausasöiu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. '
Aðalsfræti ð. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakiff.
MIKLAR FRAM-
KVÆMDIR í VEGA-
GERÐ FRAMUNDAN
llf'eð aukinni bifreiðaeign
landsmanna hefur þörfin
fyrir varanlega vegagerð, sér
staklega í mesta þéttbýlinu,
orðið mjög knýjandi. Fyrstu
skrefin í þá átt hafa þegar
verið stigm með lagningu
hinnar glæsilegu Reykjanes-
brautar, sem nú er lokið og
hefur bætt stórlega samgöng-
ur við Suðurnes, jafnframt
því sem viðhaldskostnaður
bifreiða, sem ekið er þessa
leið, hefur vafalaust minnkað
til muna.
Með vegalögunum hefur
ríkisstjórnin lagt grundvöll
að bættum vinnubrögðum í
vegagerð. Vegirnir hafa batn-
að og stórátak í varanlegri
vegagerð er á næsta leiti. A
síðasta ári valdatímabils
Framsóknarmanna var 80
millj. kr. varið til vegagerðar,
en á árinu 1965 fóru 400 millj.
króna til vegaframkvæmda,
og svipaðri upphæð mun
verða varið til þeirra á
þessu ári. Vegagerðarkostn-
aður hefur hinsvegar hækk-
um 90 af hundraði og er því
ljóst að veruleg aukning hef-
ur orðið á fjárframlögum dk
vegaframkvæmda frá því sem
var í stjórnartíð Framsóknar-
manna. Það situr því sízt á
þeim að ásaka núverandi
ríkisstjórn um slælega fram-
göngu í vegamálum, og
ennþá fráleitara er að eigna
Jóhanni Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, algjörlega ó-
sönn ummæli um vegamál.
Næstu framkvæmdir á sviði
varanlegrar vegagerðar verða
vafalaust Suðurlandsvegur
og Vesturlandsvegur, en
knýjandi nauðsyn er að
koma* varanlegu slitlagi á
þessa vegi, sem mjög erfitt
er orðið að halda við
á sómasamlegan hátt, en um-
ferð um þá hefur aukizt gíf-
urlega. Þessi mál eru nú öll
í athugun hjá ríkisstjórninni,
og er þess að vænta, að já-
kvæð niðurstaða fáist hið
fyrsta. Varanleg gatna- og
vegagerð hefur tekið miklum
framförum hér á landi síð-
ustu árin, og ber gatnagerðin
í Reykjavík og lagning
Reykjanesbrautar því glöggt
vitni. Við höfum tileinkað
okkur þá fullkomnu tækni
sem þarf til varanlegrar vega
gerðar og því ekkert að van
búnaði af þeim sökum að
hefjast handa um varanlega
vegagerð úti um land. Ríkis-
stjórnin hefur tekið á vega-
málunum af festu og fram-
sýni og svo mun einnig verða
í framtíðinni.
OPINBERAR
BYGGINGAR
Á vegum opinberra aðila,
■^ ríkis- og sveitarfélaga, og
annarra hálfopinberra aðila,
standa nú yfir, sem jafnan
áður, verulegar byggingar-
framkvæmdir við skóla,
sjúkrahús, barnaheimili og
byggingar fyrir aðrar opin-
berar stofnanir. Margar
þeirra bygginga, sem upp
hafa risið á undanförnum ár-
um, bæði í höfuðborginni >g
víðs vegar um land, eru hinar
glæsilegustu og stolt þeirra
sveitarfélaga, sem þær eru
staðsettar í.
Hinsvegar er ekki örgrannt
um, að þeir, sem fyrir þess-
um byggingarframkvæmdum
hafa staðið, hafi e.t.v. misst
sjónir af tilganginum með
þeim. Oft er meira í slíkar
byggingar borið en nauðsyn
er á, og þótt ánægjulegt sé
að eiga fallegar opinberar
byggingar í landinu, eru svo
mörg verkefni, sem að kalla
hér á landi, og fjárskortur
verulegur, að ástæðuiaust er
að eyða meira fé til opinberra
bygginga en brýnustu nauð-
syn krefur.
Þess vegna er ástæða til að
beina því til allra þeirra, sem
standa fyrir byggingarfram-
kvæmdum hins opinbera, að
fyllsta sparnaðar og hagsýni
sé gætt í opinberum bygging-
um. Þær ber fyrst og fremst
að miða við þær þarfir sem
þeim er ætlað að gegna, en
tildur og íburður á þar ekki
heima. Vafalaust er með
auknu aðhaldi og meiri hag-
sýni hægt að spara talsvert fé
við opinberar byggingarfram-
kvæmdir, og framkvæma
þannig meira fyrir sama fiár-
magn.
„KOMINN INN l)R
OG ER Ntí BÝSNA
KULDANUM
HEITT...“
Um mál Hans V. Tofte og
bandarísku leyniþjónustunar
Frá því var skýrt í frétt-
um fyrir nokkru að starfs-
menn bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, hefðu gert hús
leit hjá einum af yfirmönn-
um hennar og haft á brott
með sér mikilvæg skjöl. Mál
þetta hefur vakið mikla
athygli og virðist, sem að
baki því liggi valdaharátta
innan leyniþjónustunnar og
ágreiningur um skipulag henn
ar.
Yfirmaðurinn, sem hér um
ræðir er danskrar ættar Hans
V. Tofte að nafni, en banda-
rískur borgari og hefur unnið
hjá leyniþjónustunni hátt á
annan áratug. Hann hefur
upplýst, að skjöl þau, er tekin
voru heima hjá honum, hafi
verið heildaráætlun um endur
skipulagningu CIA. Miði á-
ætlun þessi að því, að banda
ríska þingið fái meiru að
ráða um skipan þjónustunnar
en nú. Tofte segir, að skipan
mála CIA sé nú með þeim
hætti, að einræðishneigð og
kaldrifjuð stjórn gæti sem
bezt misnotað hana til þess
að koma á lögregluríki í
Bandaríkjunum.
Tofte, sem er 55 ára að
aldri, hefur verið vikið frá
um stundarsakir meðan málið
er ransakað. Hann skýrði
fréttamanni Berlingske
Tidende svo frá fyrir helg
ina, að hann hefði árum
saman unnið að áætlun um
endurskipulagningu CIA.
Kvaðst hann þeirrar skoðunar
eins og margír bandariskir
stjórnmálamenn, að skipulag
CIÁ sé nú með þeim hætti,
að leitt geti til ástands, er
fengi flesta forvígismenn sjálf
stæðis og lýðræðis í Banda-
ríkjunum til að snúa sér við
í gröfum sínum.
Mál þetta komst í hámæli
í lok síðasta mánaðar, er
Tofte skýrði frá því, að nokkr
ir ungir starfsmenn leyni-
þjónustunnar hefðu tekið hjá
honum fyrrgreind skjöl. Hefði
honum verið tilkynnt, að ekki
sæmdi að slík leyndarskjöl
væru höfð á glámbekk, og
hann sakaður um brot á
öryggisrelum CIA. Þá til-
kynnti Tofte jafnframt, að
horfið hefðu, um leið og
leyndarskj ölin, skartgripir að
verðmæti um 100.000 krónur
ísl. Tofte heldur því og fram,
að algengt sé, að yfirmenn
CIA taki heim með sér skjöl
yfir mál, er þeir vinni að
utan venjulegs vinnutíma.
Mál þetta vakti þegar
geysimikla athygli og hefur
ekki verið um annað meira
talað í Washington. Brátt fór
að kvisast að ekki væru öll
kurl komin til grafar, hér
væri um að ræða vísi að stór
máli. Tofte lét sjálfur frá
upphafi að því liggja, að svo
væri en sagði ekkert opin-
berlega fyrr en á föstudag.
Af hálfu CIA var skipuð
nefnd til að kanna málið og
var skorað á Tofte að sýna
samstarfsvilja og hjálp til að
upplýsa það. Var það talin
vísbending þess, að yfirmenn
CIA vildu um fram allt reyna
að halda málinu „innan
veggja fjölskyldunnar“, ef
svo mætti að orði komast.
Hans V. Tofte var hinsvegar
ekki á því, hann kvaðst áður
hafa látið hjá líða að gagn-
rýna CIA opinberlega fyrir
ýmis störf hennar og haldið
gagnrýni sinni innan marka
stofnunarinnar, en nú væri
nóg komið. Á mánudag
skrifaði hann samhljóða bréf
til tveggja öldungadeildar-
þingmanna, sem fjalla um
málefni CIA, þeirra Eugen
McCarthy frá flokki republi
kana og Bourke Hickenlooper
frá demókrötum. Skýrði hann
þar mál sitt í smáatriðum og
skoraði á þá að gangast fyrir
breytingum á skipan CIA.
Við fréttamann Berlingske
Tidende sagði Tofte, að vildu
menn skilja aðstöðu hans
skildu þeir lesa bókina „Leyni
stjórnin", og það vandlega:
CIA gerði allt, sem í hennar
valdi stóð til þess að koma
í veg fyrir útgáfu þeirrar
bókar. Allt var gert til þess
að kasta rýrð á höfundana,
grafa undan þjóðfélagsað-
stöðu þeirra og eyðileggja
persónulegt líf þeirra. CIA
tókst þó ekki að „kæfa“ bók
ina. En sú er skoðun mín,
að þan dag, er þingið hættir
að henda reiður á leyniað-
gerðum þjónustunnar-aðgerð
um, sem hún getur fram-
kvæmt í skjóli opinberrar stö
ðu sinnar, upphefst lögreglu-
ríki í Bandaríkjunum. Leyni
þjónustuna er hægt að mis-
nota hræðilega, — segjum að
í Hvíta húsið setjist kald-
rifjaðir menn með sterka ein
ræðishneigð. Og meðan yfir-
stjórn leyniþjónustunnar er
í höndum atvinnumanna í
greininni, getur komið til
slíks ástands, að forvígsmenn
sjálfstæðis og lýðræðis í
Bandaríkjunum snúi sér við
í gröfum sínum“.
Berlingske Tidende bendir
á, að fyrir skijmmu hafi Willi
am Fulbright, öldungadeildar
þingmaður demókrata á ný
hafið baráttu fyrir því, að
þingið fái sterkari tök á leyni
þjónustunni. Tofte segir, að
áætlun Fulbrigt sé góð svo
langt sem hún nær — en
ekki nálægt því nógu víðtæk
„Ég veit, hvað ég er að
segja — og yfirmenn CIA
vita, að ég veit það“ segir
Tofte.
Hann staðhæfir við Ber-
lingske Tidende, að skjölin
sem tekin voru heima hjá
honum hafi verið áætlanir
hans um breytíngu á CIA, er
hann hafði unnið að í frí-
stundum sínum árum saman.
Sé þar lögð á ráðin um það,
hvernig CIA getur unnið hag
kvæmar og án hörmulega
mistaka, er verði oft sam-
fara starfi hennar.
Tofte ræðir sérstaklega um
innrásina á Svínaflóa í upp-
hafi valdaferils Johns F.
Kennedys og fordæmir, að
ekki skyldu gerðar breytingar
á starfsliði CIA eftir þau mis
tök. „Sömu menn, sem ráð-
gerðu og framkvæmdu þá
vitleysu sitja enn sem fastast
í aðalstöðvum CIA í betri
stöðum en áður. Ég öfunda
þá ekki af þessum stöðum
Mér virðist aðeins að aðrir
menn ættu að skipa þær“.
segir Tofte.
Þá segir Tofte, að hann
hafi sjálfur verið spurður að
því í spaugi — á fundi með
Kennedystjórninni í Hvita
húsinu hvort hann vildi ekki
taka að sér yfirstjórn CIA.
Því hafði hann svarað, að
það væri ekkert gamanmál".
Ég hefði ekki aðeins hafnað
slíku tilboði samstundis, held-
ur og leyft mér að segja,
að forseti Bandaríkjanna gæti
tæpast gert meiri vitleysu en
að skipa yfirmann CIA úr
hópi starfsmanna stofnunar-
innar, þ. e. atvinnumann í
leyniþjónustu. Mér létti því
mjög, er Kennedy skipaði
John McCone eftirmann All
ens Dulles.
Fréttamaður Berlingske Ti-
dende í Washington segir, að
svo virðist sem deilur Tofte
og CIA hafi hafizt um það
leyti, er árásin var gerð á
Kúbu. Tofte kveðst hafa
verið meðal þeirra, er mæltu
gegn árásinni og þá hafi verið
reynt að svæla hann frá starfi
Ekki hafði það tekizt, en þó
hafði hann skipt um starf
þar, verið flutur yfir í
þj álfunardeild CIA, þar sem
honum gafst betri tími en
til þess að kynna sér skipan
stofnunarinnar. Þá hefði hann
byrjað á breytingaráætlun
sinni„enginn einn maður get
ur unnið slíkt starf til hlítar,
segir Tofte, en þó lagt sinn
skerf til þess — og það gerði
ég á kvöldin, um helgar og í
frístundum mínum öðrum“.
Þessar áætlanir fundust á
heimili hans, svo og ýmis
mikilvæg skjöl varðandi
' Svínaflóaárásina, Domini-
kanska lýðveldið, Vietnam og
fleiri mál.
Tofte kveðst viss um, að
ráðamenn CIA hafi vitað að
hann vann að þessari breyt-
ingaráætlun og húsrannsóknin
hjá honum hafi verið vand-
lega undirbúin. Kveðst hann
hafa verið svo heppinn, að
ásamt skjölunum hafi horfið
dýrmætir skartgripir, e.t.v. í
skjóli þess að málið yrði
aldrei uppvíst, — og því hafi
hann ákveðið að gera það,
sem enginn hafi búizt við, —
að skýra frá málinu opin-
berlega.
Ekki kveðst Tofte vita
hvern enda mál þetta fær.
Hann, segir, að kona hans
sé undir stöðugu eftirliti
leyniþjónustunnar og hann
geri sér full ljóst, að þau
séu bæði í hættu stödd. Hann
segir, að enn séu í sínum
höndum dagbækur og minnis
blöð frá síðustu árum, þar
sem finna megi fjölmargar
upplýsingar um ýmis við-
kvæm mál CIA. „Ég er nú
kominn inn úr kuldanum og
segi ykkur satt að hér er
býsna heitt“. Sagði Tofte.
Fréttamaður Berlingske Ti-
dende segir að mál Tofte veki
feikna athygli í Washington.
Framhald á bls. 14
>■#