Morgunblaðið - 17.08.1966, Qupperneq 23
Miðvikudagur 17. ágúst 1968
MORCU N B LAÐIÐ
23
Sukarno Indúnesíuforsefi:
„Vill fremur tala við
þjóðina en þingið...“
— Segist hafa öll völd í sínum
höndum
Kannar
djúpin
Nýlega er kominn helm
frá Bandaríkjunum Haraldur
Ólafsson, kafari. Lauk hann
prófi í almennri köfun frá
„Xhe Coastal School of Deep
Sea Diving“ í Óakland, Kali-
forniu, og iekur nú að sér
alla almenna köfun. Hefur
hann sérþekkingu í neðan-
sjávarsprengingum og rafsuðu
Hann vinnur hjá Vitamála-
stjórn. Myndin er af Haraldi,
lítt þekkjanlegum í kafara-
búningi sínum.
Sýrland
Framhald af bls. 1
halda áfrr.m yfirgangi, því að
ísraelsmenn væTu staðráðnir í
að svara hverri árás þeirra.
Ráðuneyticíundinn sat Rabin
yfirmaður hersins.
Áður hafði Levi Eshkol, for-
sætisráðherra,_ rætt við Odd
Bull, yfirmann herráðs gæzlu-
sveita S.Þ. og gert honum grein
fyrir afstöðu ísraelsmanna til
átakanna. Lýsti Eskhol algerri
sök á hendur Sýrlendingum og
sagði þá hvað eftir annað hafa
rofið gildandi vopnahléssamn-
ing landanna.
Að fundum þessum loknum
sendi Eshkol harðorð mótmæli
til Öryggisváðs Sameinuðu Þjóð-
anna — einkum var því mót-
mælt, að Sýrlenzka útvarpið
hefði birt tilkynningu, þar sem
sagði að héðan í frá yrði fylgt
sóknarstefnu í stað varnar-
stefnu.
Af hálfu Sýrlendinga segir
hinsvegar, að þeir muni ekki
lengur snúa sér til Sameinuðu
þjóðanna eða annarra alþjóða-
samtaka með kvartanir vegna
yfirgangs ísraelsmanna, heldur
svara umyrðalaust hverri árás
ísraelsmanna, hvað svo sem það
kosti.
Damaskus útvarpið segir,
að sökum þessara síðustu at-
burða, mnni Sýrlandsstjórn
taka upp sóknarstefnu í stað
þess að láta sér nægja að
Verjast eingöngu. Telur ísra-
elsstjórn þetta beina hótun
um áframhaldandi árásarað-
gerðir.
TJpplýsingar ísraelsmanna og
Sýrlendinga um það sem gerðist
á Génesarevatni í gær eru mjög
svo andstæðar og ekki gott að
henda reiður á þróun málsins.
ísraelsstjórn staðhæfir, að tvær
sýrlenzkar flugvélar hafi verið
skotnar niður, en Sýrlenzka
stjórnin staðhæfir, að 11 varð-
bátum ísraels hafi verið sökkt
og 50—100 manns hafi farizt.
Fékk uppreisn æru. Moskvu,
15. ágúst (NTB). — Sovézki
hershöfðinginn Jona Jakir,
sem tekinn var af lífi í
„hreinsunum,, Stalíns árið
1937, hefur nú fengið upp-
reisn æru. Jakir hershöfðingi
hefði orðið sjötugur í dag, og
er þess minnzt í Moskvublað-
inu Pravda. Þar er Jakir sagð-
ur hafa verið „innblásinn
bolsjevikki og framúrskarandi
herleiðtogi“. En fyrir 29 árum
var Jakir tekinn af lífi ásamt
sjö hershöfðingjum öðrum, án
dóms, fyrir „njósnir og land-
ráð“.
Djakarta, 16. ágúst. NTB-AP.
Súkarno, forseti Indónesíu,
sagði í ræðu, er hann hélt á
þingi í dag, að hann hefði ennþá
öll völd í landinu, og talaði um
nýskipaða stjóm landsins sem
„aðstoðarmenn" sína, har á meðal
Suharto hershöfðingja, sem tal-
inn er hafa öll tögl og hagldir
í landinu.
Súkarno ræddi ekki friðar-
samninginn, sem gerður var í
síðustu viku milli Malaysiu og
Indónesiu, en kvaðst mundu
ræða Malaysiu-málið á miðviku-
daginn, þjóðhátíðardag Indó-
nesíu, í stjörnmálayfirlýsingu, er I
hann þá gæfi. Til stóð, að forset-
inn gerði í ræðu sinni á þinginu
grein fyrir því, hvers vegna
kommúnistar fengu svo sterk
ítök í stjórn landsins, áður en til
byltingar kom s.l. haust. Hann
kvaðst hins vegar ekki hafa haft
tima til að ganga frá stjórnmála
yfirlýsingu, enda óskaði hann
etfir að gera þjóðinni allri grein
fyrir stefnu sinni, ekki þinginu
einu. Gagnrýndi hann þingmenn
harðlega og sagði að þeir skildu
sig alls ekki, né þá lýðræðishug-
mynd, sem staðið hefði að baki
stjórnarskránni frá 1945.
Meðal Sukarno talaði, voru
brynvarðar bifreiðar og vopnað-
ir hermenn á verði við þinghúsið.
Skömmu síðar las Suharto hers
höfðingi, upp stjórnmálayfirlýs-
ingu í 20 liðum. Sagði hann þar
meðal annars, að hlutleysisstefna
Indónesíu í utanríkismálum
væri óbreytt. Hann kvaðst vona
að friðarsamningurinn við Malay
síu skapaði pólitískt jafnvægi í
Suð-austur Asíu, en lét þó að
því liggja, að það væri ekki alls
kostar fullnægjandi. Indónesía,
sagði hann, að mundi taka upp
öfluga samvinnu við önnur lönd
Suð-austur-Asíu, enda væri slík
samvinna sterkasta vopnið í bar
áttunni gegn heimsvaldastefnu
og nýlendustefnu.
Indónesískir stúdentar hafa
gagnrýnt nýju stjórnina í Indó'
nesíu og segja, að ítök hersins
séu þar of mikil. Eru 12 herfor-
ingjar í stjórninni af 29 mönn-
um, er hana skipa. Þá saka stúd
entar stjórnarvöldin um tvískinn
ung í stefnumálum.
í tilefni þjóðhátíðardagsins á
miðvikudag, — en þá eru liðin
21 ár frá því Indónesía hlaut
sjálfstæði — verður dregið úr
refsingum u.þ.b. 50.000 fanga, að
því er yfirmaður fangelsismála
landsins, Bahrudin Surjobroto.
upplýsti í dag. Verður fangavist
stytt um 12 mánuði, sem verður
til þess, að fjögur Iþúsund manns
verða látnir lausir.
Þing Indónesíu hefur sam-
þykkt einróma, að Indónesía
sæki á ný um aðild að Samein-
uðu þjóðunum og taki virkan
iþátt í starfsemi samtakanna.
Arabiskur þotuflug-
maður lendir í Israel
Tel Aviv, 16. ágúst — NTB
HÖFUÐSMAÐUB úr flugher
íraks lenti í dag, að eigin ósk,
herþotu sinni af gerðinni „MIG-
21“ á flugvelli í ísrael, að því
er fregnir frá ísrael herma. Var
hann samstundis færður til yfir-
heyrslu og er sagt af hálfu
Israelsmanna, að hann hafi ósk-
að eftir landsvist. Talsmaður
stjórnar fraks segir, að hér sé
um að ræða staðleysu — óhugs-
andi sé, að írakskur flugmaður
hafi gert slíkt — enda ekki vit-
að til þess, að neinn herflugmað
ur hafi horfið.
Að sögn Israelsmanna varð
vart við þotuna rétt eftir að
hún kom inn yfir ísraelskt land-
svæði hjá Jórdaníu landmærun-
um. Voru herþotur fsraels af
gerðinni „Mirage" þegar sendar
á loft og vísuðu þotunni frá, en
flugmaðurinn gaf þá merki um,
að hann óskaði að lenda. Var
þotunni þá beint að herflugvelli,
þar sem hún lenti um áttaleytið
í morgun.
Fyrir hálfu þriðja ári kom
égypskur þotuflugmaður til ísra
els á tékkneskri æfingavél af
gerðinni YAK-2 — og óskaði
landvistar. Ekki eru þess önnur
dæmi, að Arabar leiti á flug-
vélum yfir til erkióvinanna,
ísraelsmanna.
stóð, þrívegis „nei“ og einu sinni
„já“.
Ýtarleg leit var gerð á ýmsum
stöðum í London í nótt, meðal
annars í veitingastofum og klúbb
um í og umhverfis London. Á
öllum flughöfnum og höfnum í
landinu var eftirlit hert til þess
að hindra að hinir eftirlýstu
kæmust burt úr landi.
Lögreglan í London viður-
kennir að hafa notið aðstoðar
ýmissa aðila úr undirheimum
stórborgarinnar vegna máls
þessa. Hafi morðið á lögreglu-
mönnunum gengið fram af öll-
um borgarbúum, jafnt hinum
harðskeyttustu sem hinum heið-
virðustu.
Stofnaður hefur verið sjóður
til styrktar fjölskyldum lögreglu
mannanna og hafa peningagjafir
streymt í hann í dag. Hafði síð-
degis safnazt um 1000 sterlings-
pund og að því er lögreglan
segir, höfðu tvær telpur fimm
og sex ára keypt blóm fyrir
sparifé sitt, til að leggja á leiði
lögreglumannanna.
— A eigin
Framhald af bls. 1
í gúmmibát sinn. Maðurfan
var á reki í gúmmíbátnum
úti fyrir hafnarmynninu í
Brest, er hafnsögumenn urðu
hans varir og færðu i hend-
ur lögreglunni.
Maður þess heitir Jósep
Papp og er búsettur í Montra
al. Lögreglan sneri sér þegar
til sendiráðs Kanada í París
en starfsliðið þar kvaðst eng
ar upplýsingar geta gefið um
manninn eða bát hans. Er
sent var skeyti til Montreal
barst það svar, að eiginkona
Papps hefði tjáð blaðamönn-
um að hann hefði horfið í
sl. viku eftir að hafa haft við
orð að hann ætlaði yfir At-
lantshafið til Bretlands á eig-
in kafbáti. Fjölskylduvinur
kveðst hafa séð teikningar að
báti Papps, og segir að hann
hafi verið níu metra langur.
Hafði báturinn legið við akk
eri við Sorel, utn 65 km frá
Montreal 10. ágúst s.l., er
Papp fór að heiman. Banda-
rískir kjarnorkuknúnir kaf-
bátar geta farið yfir Atlants-
hafið á tæpum þremur dög-
um.
— Dauðadómur
Framhald af bls. 1.
inovitsj hlutu hina þyngstu
fangelsisrefsingu.
Rabinovitsj hefur verið þekkt-
ur í Moskvu sem „milljónamær-
ingurinn í Arbatstræti". Hann
er sagður hafa notað sér aðstöðu
sína sem tæknilegur yfirmaður
allmargra vefnaðarvöruverk-
smiðja til kerfisbundins þjófn-
aðar á vefnaðarvarningi ýmiss
konar og tilbúnum fatnaði. Vör-
urnar voru síðan seldar víðsveg
ar um landið. Sagt er, að Rab-
inovitsj hafi tekizt að halda
þessari starfsemi uppi í meira
en áratug. Hafði komizt upp um
viðskipti, sem námu um 370 000
rúblum en talið er, að þau hafi
alls numið miklu hærri fjárhæð.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
Rabinovitsj hafði keypt gull og
önnur iverðmæti fyrir það fé, er
honum áskotnaðist og fjrrir
nokkrum árum hafði hann
keypt ríkistryggð skuldabréf
fyrir rúmlega milljón rúblur.
—- Danir
Framhald af bls. 1
aðilar að bandalaginu — jafn-
vel án þess að Bretar fái aðild
að því.
Anders Andersen, forseti land
búnaðarráðsins, og aðrir forystu-
menn í dönskum landbúnaði
ræddu í dag við fulltrúa utan-
ríkisráðuneytisins, danska sendi-
herra og aðálræðismenn. Var
fundurinn upphaf ýtarlegra við
ræðna um stöðu Danmerkur
gagnvart Efnahagsbandalaginu
Fiskiskipi
hvolfdi — 13
fórust — 20
saknað
Agadir, 16. ágúst NTB.
Að minnsta kosti 13 manns
drukknuðu er fiskiskip fórst á
Agadir flóa við Marokko. 20 var
enn saknað er síðast fréttist.
Skipið var á skemmtisiglingu
með um fimmtíu manns um borð
er því hvolfdi nokkur hundruð
metrum frá bryggju. Flestir far-
þeganna voru konur og börn og
er talið að skipinu hafi hvolft
við, að flestir farþeganna hlupu
út að öðrum borðstokknum.
Óttast er að flestir þeir, sem
saknað er hafi borizt með
straumi til hafs og drukknað.
— Lýst eftir
Framhald af bls. 1
Maurice, þrítugUr að aldri og
John Duddy, 37 ára, báðir af-
brotamenn, sem struku úr fang-
elsi fyrr á þessu ári. Talið er
víst, að þeir séu vopnaðir og
hefur lögreglan varað fólk við
að koma nærri þeim, en skorað
á þá, er kynnu að geta veitt upp
lýsingar um þá, að koma þeim
á framfæri við Scotland Yord.
John Edward Whitney, 36 ára
að aldri hefur verið ákærður
fyrir morð lögreglumannanna
þriggja. Hann var leiddur fyrir
rétt í dag, þar sem honum var
lesin ákæran óg síðan var hann
úrskurðaður í sjö daga gæzlu-
varðhald. Gekk þetta fljótt fyrir
sig — athöfnin öll tók aðeins
tvær mínútur. Mikill öryggis-
viðbúnaður var viðhafður og var
Whitney allan tímann hlekkjað-
ur við varðmann. Whitney sagði
aðéins fjögur orð meðan á þessu
Decoratör
Tek að mér gluggaútstillingar, búðar-
skreytingar, skiltaskrift og fleira.
Upplýsingar í síma 35153 kl. 9—12 f.h.
Blaðburðarfólk
Röskir krakkar, eða fullorðið fólk óskast
strax til blaðberastarfa í hús við
Hveifisgötn 4-62