Morgunblaðið - 17.08.1966, Síða 24
Heimingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
sekur um
af gáleysi
I GÆRMORGUN spuröist sa -/i--
fáheyrði atburður, að ein f
elzta timburkirkja landsins, ■
Krísuvíkurkirkja, hefði verið :
rænd. Frá kirkjuráninu er ■
sagt á bls. 3. Þessi mynd var ;
tekin í gær af hinni litlu I
kirkju. •
(Ljósm. Mbl.: Sv. í>orm.) '
Fundinn
manndráp
Hafði einnig átt skotvopn án leyfis
Stormsvalan
slitnaði upp
STORMSVALAN, hin 25 tonna
seglskúta, sem keypt var til
landsins í fyrrahaust, slitnaði
upp þar sem hún lá við legu-
færi í Fossvoginum um kl. 17
í gær. Rak skipið upp í grýtta
fjöruna við sunnanverðan vog-
inn.
Hvasst var og mikið flæði er
seglskútan slitnaði upp. Skemmd
ir á því munu hafa orðið til-
tölulega litlar, þar' sem trillu-
bátaeigendur í Fossvoginum
brugðu skjótt við og drógu skút-
una aftur út á voginn, þar sem
það liggur nú og bíður þess að
skemmdir á því verði nánar
kannaðar.
í GÆR, var í sakadómi Reykja-
víkur kveðinn upp dómur í
máli sem höfðað var af ákæru-
valdsins hálfu 11. marz s.l. gegn
Kristjáni Helgasyni, verkamanni,
Stað við Tómasarhaga, fyrir að
hafa hinn 23. nóv. f.á. orðið af
gáleysi valdur að dauða Haralds
Þorsteinssonar, Bjargi við Tóm-
asarhaga, og fyrir að hafa átt
skotvopn án tilskilins leyfis.
Kristján hafði, er hann var við
drykkju heima hjá sér ásamt
Haraldi og bróður hans, verið að
handleika hláðinn riffil og hljóp
skot úr honum og lenti í Haraldi
með þeim afleiðingum að hann
beið þegar bana. Kristján skýrði
svo frá, að hann hefði vitað að
riffillinn var hlaðinn, og verið í
þann veginn að festa öryggislæs-
inguna, er Haraldur hefði skyndi
lega tekið í riffilinn, og í þeim
svifum hefði skotið riðið af. í for-
sendum dómsins segir, að gera
vei'ði ráð fyrir þeim möguleika
að Haraldur hafi gripið til riff-
ilsins og þannig átt nokkra sök á
óhappinu. Hins vegar var talið
mjög gálauslegt af Kristjáni að
handleika þannig hlaðinn riffil
framan í ölvuðum mönnum, og
þótti hann þannig einnig eiga sök
á slysinu, og hafa unnið til refs-
ingar skv. 215. gr. alm. hegn-
ingarlaga (um manndráp af gá-
leysi). Einnig hafði hann brotið
gegn löggjöf um skotvopn með
því að eiga riffil án tilskilins leyf
is. y
Refsing ákærðs var ákveðin 3
mánaða varðhald. Einnig var
hann dæmdur til að sæta upp-
töku skotvopnsins og til greiðslu
málskostnaðar. Kristján hafði
veri'ð í gæzluvarðhaldi 59 daga
og var ákveðið að vist sú kæmi
refsingunni til frádráttar. Krist-
ján óskaði ekki áfrýjunar.
Dómurinn var kveðinn upp af
Halldóri Þorbjörnssyni sakadóm-
ara. Verjandi ákærðs var Jó-
hann H. Níelsson, hdl.
Mikil síld 200 m.
NA af Raufarhöfn
Adeins eitt sildarskip þar oð ve/ðum
Raufarhöfn, 16. ágúst.
f DAG kastaði vélbáturinn
Sigurður Bjarnason frá Akur-
eyri, á síld 200 mílur NA af
Raufarhöfn eða í beina stefnu
á Jan Mayen. Skipið fékk 1300
mál í fyrsta kasti af bráð-
fallegri síld og kastaði þegar
aftur og fyllti sig. Virðist
þarna vera um mikla og góða
síld að ræða, en báturinn lét
þau boð út ganga til síldarleit-
arinnar á Raufarhöfn, að
hann kæmi þangað með sölt-
unarsíld. Eins og nærri má
geta lifnaði yfir mönnum hér
í plássinu við þessi góðu tíð-
indi, en allir héldu, að síld-
in væri farin fyrir fullt og allt
á miðin fyrir Austfjörðum, og
starfsfólk söltunarstöðvanna
hér hefur undanfarna daga
verið að tínast til Austfjarða-
hafnanna.
Nokkur reytingur hefur und
anfarið verið á Austfjarðar-
miðunum, en Sigurður Bjarna
son tók sig út úr flotanum
þar og hélt einskipa á fyrr-
greindar slóðir.
Er Sigurður þarna aðeins
einn síldarskipa, en sólar-
hringsstím er á þessar slóðir
fyrir báta á Austfjarðarmið-
um. Veður þarna er gott, 2
vindstig og skyggni sæmilegt.
— Einar.
Reist fiskimjöls-
verksmiðja í Orfirisey
NÝSTOFNAÐ félag hér í borg,
Stjörnumjöl h.f., er byrjað á fram
kvæmdum við byggingu fiski-
mjölsverksmiðju í Örfirisey. Er
þegar hafið að grafa fyrir grunni
verksmiðjunnar.
Stjórnarformaður Stjörnumjöls
h.f. er dr. Jakob G. Sigurðsson
forstjóri. Aðrir í stjórn eru: Hörð
ur Vilihjálmsson framkvæmda-
stjóri Óseyrar h.f., Ármann
Friðriksson framkvæmdastjóri,
Bjarni Magnússon framkvæmda-
stjórj og Sigmundur Jónsson.
Blaði'ð hafði í gær samband við
dr. Jakob Sigurðsson, sem sagði
að verksmiðjan yrði nægilega
stór til að vinná fiskúrgang frá
fiskverkunarstöðvum í Reykja-
vík, en enn væri afkastageta
hennar ekki endanlega ákveðin,
enda hefði málið verið á umræðu
grundvelli nú í nokkurn tíma.
En þegar eru hafnar athuganir á
vélakaupum til verksmiðjunnar.
Byrjað er að grafa fyrir grunni
hennar, eins og fyrr segir, en
fyrirtækið Steinstólpar h.f. mun
reisa bygginguna.
Borgarlsjakcr
á siglingaleið
SAMKVÆMT upplýsingum Veð-
urstofunnar eru 5 stórir borgar-
ísjakar á reki á siglingaleið 8
sjómílur NNA af Horni.
Borgarísiakar geta borist að
landinu á hvaða árstíma sem er,
þar eð þeir bráðna mun hægar
en venjulogur rekís. Áleit Veð-
urstofan, að þeir yrðu á svipuð-
um slóðuin næstu daga, sökum
þess að lognkyrrð ríkir nú á
þessu svæði og straumur er
hægur.
Sjálfstæðisflokksins
Héraðsmót
um næstu helgi
Verða þá á Blonduósi
og Hellissandi
UM næs'u helgi verða haldin
tvö héraðsmót Sjálfstæðisflokks-
ins, sem hér segir:
Blönduósi, laugardaginn 20.
ágúst kl, 21. Ræðumenn verða
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, Séra Gunnar Gíslason og
Sveinn Sveinsson, bóndi.
Hellissandi, sunnudaginn 2,1.
ágúst kl. 21. Ræðumenn verða
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, Friðjón Þórðarson, sýslu-
maður og Elís G. Þorsteinsson,
bóndi.
Hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar skemmtir á héraðs-
mótunum með því að leika vin-
sæl lög. Hljómsveitina skipa
Magnús lngimarsson, Alfreð Al-
ferðsson, Birgir Karlsson og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson. Söngvar-
ar með hljómsveitinni eru Anna
Vilhjálms og Vilhjálmur Vil-
hjálmssor.. Þá munu leikararnir
Bessi Bjarnason og Gunnar Eyj-
ólfsson, flytja gamanþætti. Enn-
fremur verða spurningaþættir,
sem fram fara með þátttöku
gesta á héraðsmótunum.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar leikur fyrir dansi og
söngvarar hljómsveitarinnar
koma fram.
Magnús
Gunnar
Friðjón
Sveinn
Elís
Séra Eiríkur Þ. Stefónsson Idtinn
SÉRA Eiríkur Þ. Stefánsson frá
Auðkúlu, fyrrum prestur og
prófastur að Torfastöðum andað
ist að sjúkrahúsinu á Selfossi í
gærmorgun rúmlega 83 ára að
aldri. Með honum er genginn
mikill persónuleiki og merkur
kennimaður.
Séra Eiríkur var fæddur 30.
maí 1878 að Bergstöðum í Svart
árdal, Foreldrar hans voru séra
Stefán M. Jónsson síðar prestur
á Auðkúlu og kona hans Þor-
björg Halldórsdóttir. Hann lauk
stúdentprófi árið 1002 og em-
bættisprófi í guðfræði árið 1905.
Sama ár voru honum veittir
Torfastaðir í Biskupstungum og
gegndi hann því prestakalli við
miklar vinsældir og virðingu í
nær 50 ár. Jafnframt bjó hann
stórbúi á staðnum. Séra Eiríkur
gegndi jafnframt prestsstörfum
í ýmsum nágrannasóknum sín-
um.
Ýmsum trúnaðarstörfum
gegndi hann I héraði, var m.a.
sýslunefndarmaður í Árnessýslu
árin 1920—1927.
Séra Eiríkur fluttist að Laug-
arvatni er hann lét af prests-
skap og átti þar heimili til
dauðadags. Hann kvæntist eftir
lifandi konu sinni, Sigurlaugu
Erlendsdóttur árið 1906 og áttu
þau tvö börn, son, Þórarin
Stefán er dó í æsku og dóttur,
Þorbjörgu, sem er gift kona á
Laugarvatni.
Þessa merka manns verður
nánar getið síðar.