Morgunblaðið - 11.09.1966, Síða 1

Morgunblaðið - 11.09.1966, Síða 1
32 síður og Lesbók 53 árgangur 207. tbl. — Sunnudagur 11. september 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins I i, i SÓL og bjart var á Akureyri er norsku forsætisráðherra- hjónin Per Borten og frú komu til Akureyrar með fylgdarliði sínu í gærmorgun. Hiti var um frostmark en að- faranótt laugardags var frost í hinum norðlenzka höfuð- stað, og kl. 8 í gærmorgun 2 stiga frost á Akureyrarflug- velli. Friðjón Skarphéðinss jri bæjarfógeti tók á móti for- sætisráðherranum, en með honum voru bæjarstjórinn Magnús E. Guðjónsson og Sverrir Ragnars og kona hans, en hann er ræðismaður Noregs á Akureyri. — Frá flu '\ellinum var ekið rak- leiðis norður til Mývatns. Hádegisverður var snæddur í Hótel Reykjahlíð. Kl. 17 var ráðgert að koma aftur til Akureyrar og gista þar. 1 gærkvöldi bauð bæjar- stjórn Akureyrar Per Borten og frú hans til kvöldverðar. í dag verður ekið um Eyjafjörð og flogið til Reykjavíkur síð- degis. í kvöld verður móttaka hjá norska sendiherranum í tilefni af komu norsku for- sætisráðherrahjónanna. Á myndinni sést er Friðjón Skarphéðinsson, bæjarfógeíi á Akureyri, heilsar Per Bort- en forsætisráðherra, en að baki hans er Magnús Jónsson fjármálaráðherra. Til vinstri eru Sverrir Ragnars, norskur konsúll á Akureyri og Magn- ús E. Guðjónsson, bæjarstjóri á Akureyri. Gegn varnarbanda- lagi Noröurlandanna ..Izvestia" krefst kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum Moskvu, 10. sept. — NTB MÁLGAGN sovézka komm- únistaflokksins, „Izvestia’* lagðist í gær hart gegn hug myndinni um norrænt varn- arbandalag. Telur „Izvestia“, að slíkt bandalag myndi binda enda á hlutleysi Svi- þjóðar og Finnlands. Segir blaðið, að í stað baráttunnar fyrir varnarsamtökum Norð- urlandanna ætti að herða bar áttuna fyrir því, að Norður- lönd verði framvegis kjaru- orkuvopnalaust svæði. Grein sú í „Izvestia", sem um mál þetta fjallar, er rituð af Jurij Golosjubov, og er um hálf síða. Segir höfundur, að vanda- mál heimsins í dag séu þannig, að Norðurlönd verði að endur- skoða stefnu sína. Danir og Norðmenn hafi ákveðið að hætta Framhald á bls. 31 Vietcong ógnar kjós- endum í S-Vietnam Hreyfingin gaf i gær út falska tilkynningu í nafni Búddista- kirkjunnar Hanoistjórnin: Spaugilegt aö ræða um gagn- kvæma heimköllun liös N-Vietnam vill ekki viðurkenna að hafa sent herlið til 8-Vietnam Hanoi, 10. sept. — NTB STJÓRNIN í N-Víetnam hafn aði í gær gersamlega tillög- um Johnsons, Bandaríkjafor- seta, um, að bæði Bandaríkin og N-Víetnam drægju smám saman til baka herlið sitt i S-Víetnam. Johnson hafði lýst því yfir, að Bandaríkin myndu kaila heim herlið sitt, gerði stjórn- in í N-Víetnam slíkt hið sama. í fréttum frá Hanoi í gær seg- jr, að talsmaður utanríkismála- ráðuneytis N-Vietnam hafi þá um daginn sagt, að tillaga þessi sé fáheyrð. N-Vietnam hefur hefur aldrei viljað viðurkenna, að herliðs þess lands sé í Suður- Vietnam. Sagði talsmaðurinn, að tillaga Bandaríkjaforseta varp- aði enn betra ljósi en áður á, að Bandaríkin hygðust hafa herlið í S-Vietnam um alla fyrirsjáan- lega framtíð. há lýsti talsmaðurinn því yfir, að andstaðan við stefnu Banda- ríkjanna í S-Vietnam færi nú vaxandi frá degi til dags um heim allan, og það væri hrein- lega spaugilegt að ræða um heimköllun liðs Bandaríkjanna á þann hátt, sem um hefði ver- ið rætt af Johnson. Væri það sambærilegt við yfirlýsinguna um skilyrðin fyrir því, að loft- árásum á N-Vietnam væri hætt. Sagði talsmaðurinn, að yfirlýs- ing Bandaríkjaforseta væri að- eins enn einn liðurinn í viðleitni hans til að fela þá staðreynd, að Bandaríkin ætluðu sér enn að auka herstyrk sinn í Vietnam, og herða loftárásirnar á N-Viet- nam. Hins vegar myndi friður kom- ast á þegar í stað, ef Bendaríkja menn færu heim með allt lið Bristol, 10. september. í fyrradag átti Elísabet Eng- landsdrottning að vígja brú eina mikla yfir ána Severn sem skil- ur England og Wales. Mikill við- búnaður var við athöfn þess, því þjóðernissinnar í Wales, sem allt frá upphafi brúarsmíðarinnar höfðu haft mjög á móti henní, hótuðu síðast að hafa í frammi spellvirki við vígsluathöfnina. Allt fór þó virðulega og frið- samlega fram og varð ekki til tíðinda. sitt frá S-Vietnam. Vietnambúar myndu vinna endanlegan sigur, og Bandaríkin að lúta í lægra haldi. Saigon, 10. september— NTB. • Hermdarverkamenn kommún- ista hafa mjög látið að sér kveða í ýmsum stærri borgum og bæj- um í S-Vietnam í dag, en á morg un verður gengið til kosninga i landinu. Hafa talsmenn Viet- cong-hreyfingar kommúnista lýst því yfir, að kosningarnar fari ekki fram á lýðræðislegum grundvelli. Eru þeir þannig að reyna að vinna gegn þeim ráð- stöfunum, sem stjórnin í S-Viet- nam hefur gert til þess að reyna að tryggja, að kosningarnar geti farið fram á friðsamlegan hátt, og án hættu fyrir almenning í landinu. Vietcong sendi í gær út falska tilkynningu í nafni Búddista- kirkjunnar, þar sem segir, að kirkjan hvetji til allsherjarverk- falls í landinu, og fer þess á leit við almenning, að hann taki alls ekki þátt í kosninunum. Hins vegar beindi forseti S- Vietnam, Nguyen Van Thieu, þeim tilmælum til almennings í landinu, í dag, að hann gengi að kjörborðinu á morgun. Hins vegar eru skiptar skoðanir um, hve mikil þátttaka í kosningun- um verður. Þykir lítill vafi á því leika, að margir muni sitja heima, því að hermdarverkamenn Vietcong hafa hótað illu á mörgum stöð- um, og látið að því liggja, að líf þeirra, sem mæta á kjörstöð- um, kunni að verða í hættu. Ætla Sovétríkin aö auka aðstoð sína við N-Vietnam ? IVfargt þykir nú til þess benda* Viðræður Bresh neve og fulltrúa Hanoistjórnarinnar i Hfoskvu Moskva, 10 sept. — NTB: LEIÐTOGl sovézka kommún- istaflokksins. Leonid Breshn- ev, ræddi í gær við fulltrúa framkvæmdanefndar kommún istaflokks N-Vietnam, en ekki hafa verið gefnar neinar áreið anlegar uppiýsingar um þær viðræður. Fulltrúi kommúnistaflokks N-Vietnam er Le Tahn Nghi, sem dvalizt hefur í Moskvu síðan 4 mánudag. Mun hann nú á ferð um lönd í A-Evrópu til að ræða um etnahagsaðstoð við N-Vietnam. Fréttastofar. Tass skýrði hins vegar frá því í gær, að Mikhail Suslov, aðalhug- myndafræðingur sovézka kommúnistaflokksins, hafi verið viðstaddur fund Breshn evs og Nghi. Tillögum urn gagnkvæma heimköllun herliðs frá S-Viet nam hefur ekki verið vel tek- ið eystra, að því er fréttamað ur NTB í Moskvu segir. Þá er lítið mnrk tekið á ummæl- um utanríkisráðherra Alþýðu lýðveldisins Kína, Chen Yi, er hann )et sér um munn fara í Tokyo. Texti ræðu hans hef ur verið rannsakaður, frá orði til orðs, og hafa fréttamenn komizt að þeirri niðurstöðu, að Chen Yi hafi í raun og veru ekki sagt annað við jap- anska blaöamenn, en að Kína væri algerlega á móti friðsam legri lausn Vietnamdeilunnar. Þá er hatt eftir áreiðanlegum heimildum i Moskvu, að menn ingarbyllmgin svonefnda í Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.