Morgunblaðið - 11.09.1966, Page 16

Morgunblaðið - 11.09.1966, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Sunnuaagur 11. sept. 1966 fll*Y0UssÞIafetí> Utgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: P.itst jórnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 105.00 f lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavik. Sigfús Jónsson. Sigurður Ejarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 7.00 eintakið. ÞA OG NÚ rpíminn líður og fólk er fljótt A að gleyma. En þó er á stæða til fyrir þá, sem gagn- rýna núverandi ríkisstjórn fyrir stefnu hennar, að láta hugann reika tíu ár aftur x tímann til stjórnartímabils vinstri stjórnarinnar og staldra aðeins við það, sem þá gerðist í þessu landi. Á stuttum stjórnarferli tókst vinstri stjórninni í senn að Ieggja efnahagskerfi og Zitvinnulíf landsmanna í rúst, svo að það varð ekki lengur starfhæft og rýra allt traust íslands út á við, þannig að lánsmöguleikar voru engir, gjaldeyrissjóðir tæmdir og skuldabyrðin gífurleg. Þá var vöruúrval í verzlun- um.mjög takmarkað og þeir sem þurftu á gjaldeyri að halda, viðskipta vegna, urðu að bíða Vikum og jafnvel mánuðum saman til þess að fá óverulegustu gjaldeyris- upphæðir afgreiddar. Þá var haldið uppi fölsku gengi með alls konar brellum og raunar voru mörg gengi á krónunni eftir því hvað kaupa átti. Þá var allt athafna- og viðskipta- líf þjóðarinnar reyrt í viðjar hafta- og skömmtunarstefn i atjórnskipaðra nefnda. Að lokum var svo komið, að vinstri stjórnin hröklaðist frá völdum við lítinn orðstír vegna þess að hún réði ekki lengur við verðbólguvanda- málið. Með stjórnarsamstarfi Sjálf stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins er tekin upp gjör- breytt stefna, frjálsræðis- stefna í málefnum lands- manna. Gengið var skráð í samræmi við raunveruleik- ann, athafnaþrá fólksins í ^andinu veitt útrás með því að afnema höft og bönn, og víðtæk umbótastefna tekin upp á öllum sviðum þjóðlífs ins. Á sex árum hefur árang urinn af þessari stefnubreyt- ingu 1960 orðið meiri en nokkurn óraði fyrir þá. Á þessu tímabili hefur mikið blómaskeið ríkt á íslandi og nýtt velmegunartímabil í sögu landsmanna hafizt. Þessa tvenna tíma er mönn um hollt að hafa í huga nú, vegar velmegun og frjálsræð- ið hefur aukið svo kröfuhörku manna, að ríkisstjórnin er gagnrýnd einmitt fyrir þá stefnu, sem valdið hefur mestri byltingu í íslenzku þjóðlífi á þessari öld. Það er hollt að hafa í huga þá tíma, þegar vinstri stjórnin var við völd og nú. Það er hollt fyrir launþega, sem aldrei hafa bú- ið við betri kjör en nú, það er hollt fyrir atvinnurekendur og athafnamenn, sem í fyrsta skipti í áratugi hafa fengið raunverulegt frelsi til fram- kvæmda og athafna. Þetta ættu menn að hafa ’ huga og velta því fyrir sér hvort þeir raunverulega vilja hverfa aftur til hins gamla tíma. Ef það er sannfæring fólks, að hverfa eigi aftur til stjórnarhátta vinstri stjórnar flokkanna, liggur það auðvit- að í augum uppi, að það mun styðja þá til nýrrar stjórnar- myndunar. En vilji fólk halda áfram að lifa í því velmegun- ar- og athafnaþjóðfélagi, se.n við höfum búið í sl. 6 ár, þa eF stefnan einnig ljós: öflug- ur stuðningur við núverandi ríkisstjórn og þá stefnu hef- ur hún markað. NORSKUR IÐN- AÐUR OG EFTA Cjkrifstofustjóri norska iðn- ^ aðarmálaráðuneytisins, Arne Haar, er staddur hér á landi um þessar mundir tii þess að vera aðilum iðnaðar- ins til ráðuneytis um aukið samstarf og jafnvel samein- ingu iðnfyrirtækja. I erindi sem hann hélt fyrir fulltrúa iðnþings sl. föstudag, ræddi hann um áhrif þátttöku Nor- egs í EFTA á norskan iðnað og skýrði frá því, að aukið frelsi í viðskiptum hefði gert norskum iðnfyrirtækjum kleift að hefja framleiðslu fyrir erlendan markað, og að aðild að Fríverzlunarbanda- laginu hefði veitt no^skum iðnaði aðgang að 100 milljón manna markaði. Þetta hefðu norsk iðnfyrirtæki notfært sér í vaxandi mæli, og hefðu t.d. útflutningsverðmæti iðn- aðarins í Noregi aukizt úr einum milljarð norskra króna 1960 í ca. 2,5 milljarða norskra króna árið 1965. Þetta eru athyglisverðai staðreyndir fyrir okkur ís- lendinga, sem innan tíðar verðum að finna leiðir til þess að tryggja viðskiptahags muni okkar í viðskiptabanda- lögum Evrópuþjóða, um leið og aðstaða innlenda iðnaðar- ms er tryggð. Reynsla Norð- manna er sú, að þátttaka í EFTA hafi orðið norskum iðn aði mikil lyftistöng og spyrja má, hvórt sú yrði ekki einnig raunin fyrir íslenzkan iðnað, ef íslendingar tengdust EFTA á einn eða annan hátt. Alla vega er fróðlegt fyrir iðnrek- endur og iðnaðarmenn á Is- landi að kynna sér rækilega reynslu Norðmanna í þess- um efnum. 4 m, UTAN ÚR HEIMI Feisal vinnur á í baráttunni við Nasserismann HVER skyldi um þessar mundir vera staðan í skák- inni, sem svokallaðir „bylt- ingarsinnar" og „íhaldssinn- ar“ hafa verið að tefla um hinn araibíska heim? Þegar vígstaðan er könn- uð, virðist í stórum dráttum sem „íhaldsmenn" séu í sókn en „byltingarsinnar" hafi lent í varnarstöðu. Þar með er ekki sagt, að þeir hafi misst alla möguleika til nýrrar sókn ar og enn geta þeir átt eftir að greiða andstæðingi sínum þung og e. t. v. banvæn högg. Forystumaður „íhalds- sinna“, Feisal konungur Saudi-Arabíu, virðist leika af kaldri rökhyggju — og hann hann hefur reynzt ó- trauður og óþreytandi, þar sem hann hefur þeytzt um skákborðið — allt frá Pakist Nasser an til Súdan. Nýlega heim- sótti hann Tyrkland og á næstunni hyggst hann heim- sækja Mali, Guineu Tunis og Marokko. Erindi konungs eru m. a. að sannfæra múhameðstrúar- menn um að Saudi- Arabía, sem ræður og heldur vörð um hina helgustu staði múha meðstrúarmanna sé á hraðri leið inn í tuttugustu öldina. Heima fyrir hefur hann fylgt stefnu hægfara en stöðugra þjóðfélagsumbóta og djarfra framkvæmda og framfara á sviði efnahagsmála. . Hann vill gera endurbætur í ríki múhameðstrúarinnar, án þess að rífa til grunna sið- fei'ðislegan grundvöll hennar. Yfirlýstir óvinir hans eru kommúnismi, sósialismi og hvers kyns byltingarkennd falsslagorð sem hálfþroskaðir unglingar falla svo auðveld^" lega fyrir. Helzti óyfirlýsti óvinur hans er, að sjálfsögðu, Nasser, forseti Egyptalands. Eitt af helztu áhugamálum Feisals nú um stundir er, að koma á í Afríku mikilli ráð- stefnu sem flestra ríkisleið- toga og trúarleiðtoga Múha- meðstrúarmanna. Hann miðar í raun og veru að því að drekkja nasserismanum í öfl- ugri samvinnu múhameðs- trúarmanna, því að hann má ekki til þess hugsa að múha- meðstrúin og siðfræðigrund- völlur hennar hverfi fyrir hug myndum Nassers éða arab- Hussein ískri þjóðernisstefnu. Hann vill sýna, að umbótastefna hans geti farið saman við og fengið styrk frá hefðbundn- um lögmálum múhameðs- trúarinnar. Helzti stuðningsmaður þess ara hugmynda Feisals, utan hins arabíska heims, er íran- keisari. Þeir eiga þar sam- eiginlegt áhugamáþ sem er baráttan fyrir því að halda Nasser í skefjum og hugsa þá báðir fyrst og fremst um hin- ar auðugu oliulindir í Persa- flóa — helztu auðlindir ríkja þeirra. í þeim éfnum eiga þeir vísan stuðning Breta og hafa bæði Saudi-Arabia og íran á síðasta ári gert mikla vopnasölusamninga við Breta. Saudi-Arabía keypti 100 Shah Reza Pahlevl milljón sterlingspunda loft- varnarkerfi frá Bretum og fékk jafnframt brezka flug- menn til þess að fljúga vélum þess og þjálfa flugmenn Saudi Arabíu. íran hefur nýlega samið um kaup á tundurspill- um, varðbátum og flugskeyt- um fyrír um 35 milljónir sterlingspunda — enda leggja íranar mikla áherzlu á að byggja vel upp varnir sínar við Persaflóa, bæði í lofti, láði og legi, áður en Bretar hverfa þaðan, sem fyrrhugað er snemma ársins 1970. Innan hins arabiska heims er helzti stuðningsmaður Feisals Hussein Jórdaníukon- ungur. Tveggja ára vopnahlé hans og Nassers virðist nú senn á enda. — Kaíró-útvarp- ið hefur á ný hafið árásir á Hussein — þó þær séu, enn að minnsta kosti, aðeins svip- ur hjá sjón miðað við árás- irnar fyrir þremur árum, þeg- ar útvarpið skoraði á Jórd- ana, að „tæta dvergkonung- inn í sundur og hengja hann upp á hliðin í garði brezka sendiráðsins". Hussein er í mun að forð- ast opinn fjandskap við Eg- ypta. Síðasta áratug hefur honum tekizt að stuðla að mjög aukinni velmegun og hagvexti og hann kærir sig ekki um að láta trufla þjóð- ina í baráttunni fyrir bætt- um lífskjörum. Hann er nú vinsæll og mikils metinn þjóð höfðingí — en einmitt það velgir Nasser undir uggum og verður ástæða til þess, að hann vill gjarna vekja þai ólgu og óánægju. Þessir þrír þjóðhöfðingjar, sem hér hafa verið taldir, mynda hinn harða kjarna „í- haldssinna“, sem svo eru kaíl- aðir. En margir aðrir þjóð- höfðingjar hafa safnazt undir merki þeirra. Stjórn Sómalíu hefur iýst fylgi við þá opin- berlega — stjórn Súdan fylg- ir þeim í hjarta sínu — bó hún hafi ekki tekið afdráttar- lausa afstöðu með þeim. Hassan, konungur Marokkó. er þeim mjög hliðhollur. enda þótt hann vilji fara að öllu með gát, til þess að forð- ast vinslit við Kaíró. Pakistan hefur færzt æ nær þessum ríkjum — frá því hinn vinstri sinnaði utanríkisráð- herra, Zulfikar Bhutto, fór frá — og hafði íran nýlega milligöngu um kaup Pakist- ana á allmörgum F-86 Sabre- þotum frá Vestur-Þýzkalandi. Tyrkir kjósa án efa að halda sér utan við hvers kyns átök innan hins arabíska heims — en ljóst er, að leiðtogar lands- ins eru lítt hrifnir af Nasser. En hvað um „byltingar- sinna“? Hvernig er staðan hjá þeim? Egyptar, sem eiga við ótai vandamál að striða — um- fram allt óviðráðanlega fjölg- un íbúanna og alvarlegan gjaldeyrisskort, virðast næst- um því einir halda á lofti byltingarkyndlinum. Sýrlend- ingar, hættulega öfgafullir og ofsalegir skapsmunamenn. eru Egyptum oft meiri höfuð verkur en bandamaður. Sýr- lendingar eru herskáir mjög og lifir Nasser forseti í stöð- ugum ótta við, að þeir dragi hann inn í styrjöld við ísraei, löngu áður en hann kærir sig um. Honum er það bráð nauð- Framhald á bls. 14 Feisal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.