Morgunblaðið - 11.09.1966, Side 28
28
Sunnudagur 11. sept. 196l
MORCU N BLAÐIÐ
FÁLKAFLUG
Þú færð aldrei stöðu við sjónvarpið með svona nef
EFTIR DAPHNE
— Fundinn! æpti Catarina. —
Nú sleppurðu ekki. Við vitum
um þig, hvernig þú læddist upp
og hnuplaðir dótinu þínu, og
stakkst svo af án þess að borga
henni frú Silvani það sem þú
skuldaðir henni.
Þau stigu nú af baki, öll fjög-
ur, og umkringdu mig.
— Hlustið þið nú á, sagði ég.
— Ég get gert ykkur grein ....
— Jé, það væri þér betra, tók
Paolo fram í. — Þú getur ekki
farið svona með hana frú Sil-
vani, við líðum það alls ekki.
Komdu nú strax með pening-
ana, eða við afhendum þig lög-
reglunni.
— Ég hef enga peninga, sagði
ég. — Ég hef ekki svo mikið
sem tvö þúsund lírur á mér.
Við vorum farin að vera fyrir
umferðinni. Einhver í bíl, sem
framhjá fór, æpti að stúdentun-
um. Paolo gaf Caterinu bend-
ingu með höfðinu.
— Komdu á eftir okkur inn í
Rossinikaffi, sagði hann. Arm-
ino getur setið fyrir aftan mig.
Við skulum koma vitinu fyrir
hann þar. Þið komið á eftir,
Gino og Mario, og sjáið um, að
hann beiti engum brögðum.
Það var ekki annað að gera en
láta að orðum hans. Hefði ég far
ið að hreyfa mótmælum, hefðu
bara orðið vandræði úr þessu.
Ég yppti öxlum og settist fyrir
aftan hann á skellinöðruna, og
við skutumst af stað út í um-
ferðina við Þjóðartorgið, en stað
næmdumst við súlnagöngin við
hertogahöllina í Pesaro. Þar
DU MAURIER
skildum við bæði hjólin eftir og
Paolo gekk svo á undan, en
Gino og Mario sinn hvorum meg-
in við mig, og þannig var ég rek
inn inn í lítið kaffihús þarna
skammt frá. Við gengum inn og
Paolo benti á lítið borð við
gluggann.
— Þetta dugar, sagði hann —
Caterina kemur rétt strax til
okkar.
Hann pantaði svo bjór handa
öllum — að mér meðtöldum —
og þegar þjónninn var farinn,
sneri hann sér að mér, með kross
lagða arma fram á borðið.
— Jæja, sagði hann, — hvaða
grein geturðu svo gert fyrir þér?
— Lögreglan er á hælunum á
mér, sagði ég. — Ég varð að
flýja.
Stúdentarnir þrír litu hver á
annan. — Það var nú einmitt
það, sem hún frú Silvani hélt,
greip Gino fram í. — Það var
einhver að spyrja eftir þér í
morgun, en hún sagði ekki í
hvaða erindum. Hann líktist
mest óeinkennisbúnum lögreglu
manni.
— Ég veit það, sagði ég, —
og ég kom auga á hann. Þess-
vegna sótti ég ekki það, sem ég
átti inni, í skrifstofunni, og gat
þá heldur ekki borgað frú Sil-
vani. í mínum sporum hefðuð
þið gert nákvæmlega það sama.
Þeir gláptu á mig, allir 'þrír.
Þjónninn kom með bjórkollurn-
ar, setti þær á borðið og gek.k
burt.
— Hvað hefurðu gert fyrir
þér? spurði Paolo.
— Ekkert, svaraði ég, — en
það eru sterkar líkur gegn mér.
Ég held helzt, að ég sé grunaður
í staðinn fyrir annan mann. Og
sé svo, þá verður það áfram, því
að svo vill til, að hinn maðurinn
er bróðir minn.
Caterina kom nú inn, úfin og
móð. Hún dró stól að borðinu og
settist síðan milli okkar Paolo.
— Hvað kom íjyrir? sagði hún.
Paolo útskýrði málið í fáum
orðum og nú leit Caterina á
mig.
— Ég trúi honum, sagði hún,
eftir stutta umhugsun. — Við
erum búin að þekkja hann í
heila viku. Hann er ekki þannig
maður, að hann fari að strjúka
án þess að hafa góða og gilda
ástæðu til þess. Það var eitt-
hvað í sambandi við ferða-
skrifstofuna, sem þú vannst hjá
áður en þú komst til Ruffano,
er ekki svo?
— Já, svaraði ég, og það var
í vissum skilningi satt.
Mario, sem hafði hingað til
þagað, hallaði sér nú fram. —
□----------------□
65
□----------------□
Hversvegna fara til Pesaro?
sagði hann. — Og hversvegna
með einar tvö þúsund lírur í vas
anum?' Hvernig ætlarðu þér að
komast héðan ?
Þau voru nú ekki lengur ófrið
leg og tortryggin. Gino rétti mér
vindling. Ég leit á þau og hugs-
aði, hvað þau gætu verið af
sömu kynslóðinni og Cesare,
Giorgio og Domenico. Öll ung.
Öll óreynd. Og hversu mjög sem
þau kynnu að vera ólík af lífs-
skoðun til, voru þau öll, innst
inni, áfjáð í ævintýri og lífið.
Ég sagði. — Ég hef nú fengið
tóm til að hugsa mig um, síð-
ustu klukkutímana. Mér er það
ljóst nú, að það var heimska
af mér að vera að fara frá Ruff
ano, og nú vil ég komast þangað
aftur. Ég ætlaði með vagninum
klukkan háifsex.
Þau horfðu á mig þögul og
drukku bjórinn sinn. Ég held, að
þau hafi ekki botnað neitt í
neinu.
— Hversvegna að vera fara
aftur? spurði Paolo. — Nær ekki
lögreglan þá í þig?
— Kannski, sagði ég. — En nú
er ég bara ekki lengur hræddur.
Spurðu mig ekki, hversvegna.
Þau hvorki hlógu né gerðu
gys að mér. Þau tóku þessa játn
ingu mína alvarlega, alveg eins
og Cesare eða Domenico mundu
hafa gert.
— Þetta er ekki mál, sem ég
get rætt við ykkur í smáatriðum,
sagði ég, — en bróðir minn er
í Ruffano og gengur undir öðru
nafni en ég. Hvort hann hefur
gert það af ættarstolti. Ég verð
að fá þetta á hreint. Ég verð að
tala við hann.
Þetta skildu þau og gengu
ekki á mig með neinum frekari
spurningum. En mikill áhugi
skein út úr svip þeirra. Caterina
snerti ósjálfrátt handlegginn á
mér.
— Þetta er skiljanlegt ......
að minnsta kosti mér, sagði hún.
— Ef ég væri grunuð um eitt-
hvað, sem ég héldi að Paolo hefði
gert, þá vildi ég vita ástæðuna
til þess, jafnvel þó ég yrði sjálf
að taka afleiðingunum. Skyld-
menni verða að vera hreinskilin
innbyrðis. Við Paolo erum tví-
burar. Kannski erum við sam-
rýmdari vegna þess.
— Það eru ekki einasta skyld-
leikaböndin, sagði Gino, — held
ur líka vináttuböndin. Ég væri
vel til með að taka á mig ábyrgð
ina af einhverju, sem Mario
hefði gert, en ég verð bara að
vita ástæðuna.
— Eru tilfinningar þínar gagn
vart bróður þínum þannig?
spurði Caterina.
— Já, það eru þær.
Þau drukku síðan upp úr glös
unum og þá sagði Paolo: — Við
skulum sjá um, að frú Silvani
fái peningana sína. En það er nú
annars orðið aukaatriði. Aðal-
atriðið er að koma þér til Ruff-
ano, og jafnframt að komast
framhjá lögreglunni. Við skul-
um hjálpa þér. En fyrst verðum
við að leggja áætlun.
Ég varð hrærður af þessu göf-
uglyndi þeirra. Hversvegna
treystu þau mér? Til þess var
engin ástæða. Ekki fremur en
fyrir ungfrú Raspa að lofa mér
að fela mig heima hjá henni. Ég
hefði vel getað verið morðingi,
en samt treysti hún mér. Ég
gæti verið ótíndur fjárglæfra-
maður en samt treystu stúdent-
arnir fnér.
— En svo er það hátíðin, sagði
Caterina allt í einu. — Við gæt-
um bara dulbúið Armino sem
einn uppreisnarmannanna, og
þá mana ég hvaða lögreglumann
sem er til að finna hann innan
um nokkur þúsund álíka manna.
— Hvernig dulbúa hann?
sagði Gino. — Þú manst, að
Donati prófessor sagði okkur að
við skyldum bara koma eins og
við erum. 1
— Einmitt ,sagði Caterina, —
í skyrtu og gallabuxum. Lítið
þið bara á hann Armino. í þess-
um borgarfötum, þessari skyrtu
og með þessa skó. Hann er bein
línis klæddur eins og farar-
stjóri! Klippið þið hann dálítið
öðruvísi ,og færið hann í mis-
lita skyrtu, gyrta ofan í galla-
buxur, og þá skulið þið sjá, að
hann þekkir ekki einu sinni
sjálfan sig.
— Þetta er rétt hjá Caterinu,
sagði Paolo. — Við skulum fara
með hann til næsta rakara og
láta bustaklippa hann. Svo finn
um við eitthvað að færa hann í,
á markaðstorginu. Við skiptum
kostnaðinum jafnt á milli okk-
ar. Gott og vel, Armino, eigðu
sjálfur þessar tvö þúsund lírur
þínar .... þú kannt að þurfa á
þeim að halda.
Ég varð alveg að viljalausu
verkfæri í höndum þeirra. Við
fórum út úr kaffihúsinu, þegar
Paolo hafði greitt fyrir veiting-
arnar, og þau fóru með mig til
rakara, sem breytti mér úr því,
sem ég hafði hingað til haldið
mig vera — fínan fulltrúa Sól-
skinsferða í Genúa og í ómerki
legan götuslána. Og munurinn
varð enn meir áberandi, þegar
þau fóru með mig á eftir í fata-
skranbúð, og þar afklæddist ég
öðrum almennilegu fötunuin
mínum — því að hin voru í
tösku um borð í „Garibaldi", og
fór í staðinn í svartar gallabuxur
með leðurbelti og grænni skyrtu
svo í gervileðurtreyju og striga-
skó. Mín eigin föt voru bundin
í böggul og afhent Caterinu, sem
sagði mér, að þau væru hræði-
leg, og að hún skyldi gera sitt
bezta til að týna þeim. Þau
stilltu mér upp fyrir framan
spegil í búðinni, og — líklega
mest vegna klippingarinnar —•
bjóst ég varla við, að Aldo
mundi þekkja mig, auk heldur
aðrir. Ég hefði getað verið inn-
flytjandi, nýlentur á strönd
Ameríku, hálfvilltur, og vantaði
ekki annað en smelluhníf.
— Þú lítur hræðilega út, sagði
Caterina, og kreisti á mér hönd-
ina, — miklu betur en áður.
Nú hefurðu einhvern stíl,
sagði Gino. — Áður hafðirðu
hann engan.
Þessi aðdáun þeirra gerði mig
hissa, en dró samtímis úr mér
allan kjark. Ef þetta sem ég var
nú orðinn, fullnægði fegurðar-
smekk þeirra hvað áttum við þá
sameiginlegt? Eða var þetta
bara nærgætni hjá þeim?
— Við skulum njóta þess arna
dálítið lengur, sagði Paolo. —
Það er engin þörf á að vera kom
in til Ruffano fyrir myrkur.
Caterina getur tekið vagn
seinna, og Armino getur setið
aftan á hjá mér. Við skulum
fylgja vagninum á eftir á skelli-
nöðrunum okkar. Við skulum at-
huga, hvort fþróttahöllin er op-
in. Þú hittir okkar þar Caterina.
Syndíh
200 m
Meira í flöskunni • aftur í glösin
Ný
KÓNGA-FLASKAN
flöskustærd af Coca-Cola
er komin á markaðinn fyrir þá sem viija fá meira
f flöskunni fyrir tiltölulega hagkvæmara verð.
Biðjid um stóru kónga-flöskuna.
Ætíð sami Ijúffengi drykkurinn, svalur og hress-
andi, sem léttir skapið og gerirstörfin ánægjulegri
FRAMLEITT A F VERKSMIOJUNNI VIFILFELl IUMBOOI THE COCA-COLA.EXPORT CORP.