Morgunblaðið - 18.09.1966, Side 31

Morgunblaðið - 18.09.1966, Side 31
Sunnudagitr 18 sept. 1968 MORCUNBLAÐIÐ 31 i STUTTU MÍLI Bonn, 16. sept. AP • V-Þýzki flugherinn missti í dag 62. Starfighterþotuna á æfingarflugi yfir Arizona. Flugmaðurinn, sem var þýzk- ur, komst lífs af. Páfagarði, 17. september. AP. Ttilkynni var í Páfagarði í dag, að Páll páfi myndi á mánu- daginn kemur gefa út umburðar bréf, þar sem segir, að októ- bermánuður skuli verða sér- stakur bænarmánuður í því skyni að binda enda á styrjöld- ina í Vietnam. — Ródesía Framhald af bls. 1 ar viðræður við Bretland í því skyni að finna lausn á IVodesiu- deilunni. Aðspurður um, hvort hann hefði nokkrar tillögur á takteinum til lausnar deilunni, svaraði hann, að þær hefði hann. Að svo stöddu gæti hann samt ekki skýrt frá þeim, því að við- ræðurnar færu fram í trúnaði milli Bretlands og Rhodesiu. — En hrapar Framhald af bls. 1 Munu þetta vera mestu aðgerðir, sem gerðar hafa verið í vestur- þýzka hernum fram að þessu í því skyni að koma yngri mönn- um að í stjórn hersins og losna við „blóð og járn“ hugsunar- háttinn. Sex hershöfðingjar úr land- hernum, fjórir úr flughernum, tveir úr sjóhernUm og tveir her- foringjar úr sjúkradeild hersins munu ná aldrinum 56—60 ára nú í lok september og komast á eft- ir laun. Á meðal þeirra eru ners- höfðingjarnir Hermann Aldmg- er, Wilheim Meier-Detring og Heinrich Gerlach. i deilum þehn, sem að undanförnu hafa staðið yfir í sambandi við vesturþýzka herinn, lofaði Hassel varnarmála ráðherra því, að koma nýjum, ungum mönnum að í hernum. Hinir hraustu menn fortíðarinn- ar verða að víkja fyrir angum liðsforingjum, sem kunnugir eru nútíma tækni í vopnabúnaði, sagði ráðherrann og mun hafa átt við flugherinn. í GÆR var suðvestlæg átt um allt land. Fyrir norðan og austan var bjartviðri, en víða súld eða rigning á V og SV- landi. Eins og sjá má á morgun- kortinu, sækir hlýtt loft fram til landsins, og því fyigir þokubræla sunnan og vestan lands. Hæðin yfir Suður-Græn- landi mun verða skammt út if Vestfjörðum í dag og ralda sunnan hvassviðri með rigningu vestan og sann an lands. hnftu pr V-hv7.lfi knfhátnrinn Kafarar athuga kafbátsflakið Athugað hvort slysið hafi orðið vegna vítaverðrar vanrœkslu London 17. sept — NTB — AP V-ÞÝZK yfirvöld hafa gefið upp alla von um að fleiri menn finnist á Iífi af kafbátnum „Hai“ sem sökk í Norðursjó á mið- vikudagskvöld. Rannsókn er haf in vegna slyssins og beinist m.a. að því, hvort um vítaverða van- rækslu hafi verið að ræða varð andi orsakir slyssins. í dag áttu kafarar að reyna að kafa nið- ur að flakinu. Aðeins einn maður af 121 lifði af slysið, sem varð um 320 km. frá Bretalndsströndum. Talsmaður brezka varnarmála- ráðuneytisins sagði í London í morgun, að nú væri svo komið *— / sm'iðum Framhald af bls. 2 skapar, en hún er raunar nægj- anleg í dag. Skipverjinn, sem komst af, er kafbáturinn „Hai“ sökk — Peter Silbernagel Island getur sigrað í dag Við skulum hvetja landan vel ISLENDINGAR og áhugamanna- Iandslið Frakklands heyja lands Ieik í knattspyrnu á Laugardals- vellinum kl. 16 í dag. Þetta er í fyrsta skipti, sem íslenzka lands- liðið mætir áhugamannalandsliði Frakka, en það hefur tvívegis leikið við atvinnumannalið Frakklands fyrir nokkrum ár- um. Frönsku áhugamennlrnir eru sagðir áþekkir að styrkleika og enskir áhugamenn, og ef ís- lenzku leikmönnunum tekst vel upp má gera ráð fyrir skemmti- legum og spennandi leik. Er þess að vænta að sem flestir láti sjá sig á Laugardalsvellinum til þess að hvetja landann. Ekki er hægt að segja, að leik- menn íslenzka landsliðsins, sem leikur í dag, hafi mikla leik- reynslu að baki, að tveimur undanskildum, þeim Árna Njáls- syni með 19 landsleiki og Ellert franska knattspyrnu. Franska liðið kom til íslands á föstudagskvöld. Meðal þeirra sem á móti liðinu tóku var Aibert Guðmundsson og varð fagnaðarfundur með þjálfara franska liðsins og Alberts enda höfðu þeir leikið saman í Racing á sínum tíma. Albert var þarna til að taka sérstaklega á móti einum landsliðsmannanna því faðir hans, sem einnig lék með Albert í Racing, hafði beðið hann um það. Hafði Albert ekki séð piltinn síðan hann var í skírnarveizlu hans í París fyrir um 20 árum. Schram með 14 landsleiki. Aðr- ir leikmenn liðsins hafa flestir leikið 2-3 landsleiki, en í liðinu eru og tveir nýliðar, þeir Sig- urður Dagsson Val og Óskar Sigurðsson KR. Samtals hafa leikmenn liðsins að - baki 49 landsleiki. Meðalaldur leikmanna liðsins er um 24 ár, aldursfor- seti er Sigurður Albertsson, Keflavík, en yngstir leikmennirn ir eru þeir Anton Bjarnason, Fram og Hermann Gunnarsson, Val. íþróttafréttaritarar hafa gefið út leikskrá í sambandi við leik- in og er þar að finna ýmsan fróðleik um liðsmenn íslenzka landsliðsins, uppstillingu á lands liðunum báðum, og skrá er yíir landsleiki fs"lands frá upphafi og síðast en ekki sízt viðtal við Albert GuðmundsSon um Útilokoðir frd londsliði ævilongt ÞRIR svissneskir knattspyrnu- menn sem léku í liði lands síns í lokakeppni HM í knattspyrnu í London hafa verið dæmdir af aga nefnd svissneskra knattspyrnu- sambandsins og hlutu þann dóm að vera útilokaðir frá að leika i landsliði Sviss um aldur og ævi. Ástæðan er sú að þeir koma heim kl. 11 síðdegis að aflokn- um leik Sviss í Englandi í júlí. Var sá leikur gegn 'V-Þjóðverj- um og tapaði Sviss 0-5. Leik- mennirnir áttu að koma heim ki. 10 — en þessir þrír sögðust hafa farið í bílferð með þremur stúlk- um til „að sjá umhverfið". Það virðist vera fast tekið á hlutunum þar í landi. Hér er mikill áhugi fyrir því að fullkomin bifreiðaferja koini sem fyrst á milli Reykjavíkur og Akraness, sem raunverulega mundi stytta leiðir og lækka kostnað langferðafólks. Hótelrekstur hefir verið erf- iður, en mundi eflast með þeim og öðrum framkvæmdum. H. J. Þ. að veður hamlaði ekki lengur björgunaraðgerðum. Mikill sjór og rok hefur verið á slysstaðn- um frá því, slysið varð. V-þýzka björgunarskipið „Magnus 111“ er komið á stað- inn. Vonast björgunarmenn til þess, að þeim takizt að lyfta kafbátnum í 15 m. undir yfir- borð sjávar, og eiga kafarar þá að kanna bátinn. ,f, Litli drengurinn okkar, SVEINN PÁLMAU sem lézt á Barnaspítala Hringsins 9. sept. sl. verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. sept. nk. kL 10,30 árdegis. Elinborg Pálniadóttir, Jón Sveinsson. Eiglnmaður mlnn og faðir okkar, FRIÐJÓN SIGURÐSSON frá Hólmavík, andaðist að heimili sínu, Þinghólsbraut 23, 16. september sL Berit Sigurðsson og hörn. Jarðarför konu minnar, KATRÍNAR JÓNSDÓTTUR hefur farið fram í kyrrþei samkvæmt ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Bryjólfur Magnússon, Hulda Brynjólfsdóttir, Magnús Valdimarsson, Magnús Brynjólfsson, Svava Jóhanusdóttir, Hrefna Brynjólfsdóttir, Guðjón St. Bjarnason, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Oswald Wathne, Svava Brynjólfsdóttir, Daie Chvistensen, Birna Brynjólísdóttir, Einar Magnússon, Dóra Thoroddsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.