Morgunblaðið - 21.09.1966, Síða 2
MORGUNBLADID
Miðvikudagur 21. sept. 1966
Skiptar skoöanir um hvort
rjúía skuli nú þin;
— meðal forustumanna sænskra jafnaðarmanna
Stokkhólmi 20. september, NTB.
MJÖG skiptar skoðanir ríkja
innan flokksíorystu sænska
Jafnaðarmannaflokksins, u.n
hvort rjúfa skuli þing og efna
til nýrra kosninga, nú að lokn
um mesta kosningaósign
jafnaðarmanna sl. 30 ár.
Fregnir herma þó að meiri
hlutinn sé andvígur slíkum
ráðstöfunum. Stokkhólms-
blaðið Dagens Nyheter full-
yrðir í dag, að engin hætta
sé á þingrofum. Ákvörðun í
þessum etnum verður tek:n
1. október nk., á landsfundi
jafnaðarmannaflokksins.
Borgarflokkarnir hafa ekki sett
fram kröfur um þingslit, og er
haft eftir forystumönnum þeirra
að þeir muni biða þar til taln-
ingu 300 þúsund utankjörstaða-
atkvæða verður lokið. Aftur á
móti hefur leiðtogi Þjóðarflokks-
ins, Bertil Ohlin lagt til að efri
deild þingsins verði leyst upp, og
hin nýkjörnu fylkisþing látin
velja fulltrúa í hana, en þau
útnefna nú fulltrúa til efri deild-
ar til eins árs í senn, en þess ber
að geta að einungis áttundi hluti
deildarinnar er þannig valinn ár-
lega.
Tage Erlander forsætisráð-
herra, sem þegar á kosninganótt-
ina lét hafa eftir sér, að hugsan-
legt væri að þing yrði leyst upp,
hefur afdráttarlaust vísað tillögu
Ohlins á bug, á þeim forsendum
að hann sjálfur hafi í kosninga-
baráttunni lagt til, að fylkisþing-
in veldu fulltrúa í efri deild þeg-
ar að loknum kosningum, en að
kjósandinn yrði að fá að vita
fyrirfram að sveitarstjórnarkosn-
ingar hefðu þannig bein áhrif á
þingið.
Félag ungra jafnaðarmanna í
Svíþjóð hefur krafizt þess að
yngri menn taki sæti í flokks-
forystunni. Var það formaður
félagsins Ingvar Carlson, sem
setti fram þessar kröfur í hörð-
um ummælum sem hann hafði
um kosningaúrslitin. Erlander
svaraði Carlson í ræðu á mánu-
dag, þar sem hann benti á að
Olaf Palme samgöngumálaráð-
herra 39 ára að aldri, sé einn af
yngstu ráðherrum Evrópu. Er-
lander lýsti sig þó fúsan til að
ræða nánar kröfurnar um að
yngri menn taki sæti í stjórninni
og innan flokksforustunnar. Með-
alaldur sænsku ráðherranna er
nú 52,8 ár, og forsætisráðherrann
sjálfur er nú 65 ára að aldri, en
Bifreið veltur
í Hvassahrauni
ÞAÐ slys varð á veginum við
Hvassahraun í gær, að bifreiðin
R-16538 ók á kind, og fór við það
út af veginum og valt í hraun-
inu.
Nokkrir farþegar voru í bíln-
um ásamt ökumanni, en enginn
slasaðist alvarlega og var fóU-
inu leyft að fara heim að aflok
inni rannsókn á Slysavarðstoi-
unni. Kindina varð hins vegar
að aflífa. Bifreiðin er mjog
skemmd.
Ástæða er til að vara öku-
menn við fé. sem mikið er aí
í Hvassahraum og leitar í þar-
ann niður í fjörunni. Hafa sams
konar óhöpp og áður var lyst
áður komi'ð fyrir. bótt enn hafi
ekki orðið stórvægileg slys a
mömium.
hann hefur gegnt embætti for-
sætisráðherra um 20 ára skeið. -
Sænsku blöðin byrjuðu í dag,
að tala um „hauka“ og „dúfur“
innan jafnaðarmannaflokksins.
„Haukar" eru þeir, sem eru fylgj-
andi harðari stjórnmálastefnu, en
„dúfur“, þeir sem eru meira hæg-
fara og rólegri. „Haukarnir“ vilja
að þingið verði leyst upp og efnt
til nýrra kosninga, vegna þess að
þeir álíta að kosningaósiurginn nú
muni verða hagkvæmur jafnað-
armönnum í þingkosningum. Þeir
efast um að borgaralegu flokk-
arnir séu reiðubúnir til að taka
völdin í sínar hendur og segja
að jafnaðarmennimir, sem sátu
heima í þessum kosningum, muni
fylkja sér um flokkinn í þing-
kosningum við slíkar aðstæður.
Einnig er álitið að kommúnistar
myndu fara sér hægt, með tilliti
til þess að þeir hafa gefið hátíð.-
leg loforð um að þeir muni aldrei
styðja borgaraflokkana til valda.
Hinar svokölluðu „dúfur“ vilja
fremur öryggi en hitt, segja að
með því að nota tímann fram að
næstu kosningum, geti jafnaðar-
mannaflokkurinn mætt betur bú-
inn til orrustu með nýja menn í
fararbroddi, sem séu reynslunni
ríkari.
Umræður um mál þessi eru nú
mjög miklar innan flokksins, og
á það er bent, að fjármálaráð-
herrann, Gunnar Stæng, hafi af-
lýst ferð sinni til Washington þar
sem hann ætlaði að sitja fund
Alþ j óðabankans.
Hljómsveit Ingimars
Eydal í Austurbæjarbíói
í kvöld
f ÞESSARI viku er ár síðan
hljómsveit Ingimars Eydal á
Akureyri heimsótti Reykjavík og
lék átta lög inn á segulband, sem
síðar komu út á tveimur hljóm-
plötum. Öll lögin á plötum
þessum hafa nám vinsældum,
"svs/s, ss’- •vy*r*s's<ffs- '"s" 'S"-.'/yA •#, '.y.yssy,
Þeir Hafsteinn Austmann, Jóhannes Jóhannesson og Sigurður Sigurðsson í sýningarnefnd við verk
eftir Sigurjón Ólafsson.
Haustsýning Fei. ísienzkra mynd
listarmanna hefst í kvöld
FÉLAG íslenzkra myndlistar-1
manna opnar hina árlegu haust- [
sýningu sina í Listamannaskál- !
anum í kvöld kl. 8.30. Verður J
sýningin opin í þrjár vikur frá I
því kl. 2—10 daglega. Að þessu
sinni sýna 36 listamenn alls 65 j
olíumálverk, grafikmyndir, teppi,
höggmyndir og fleira. Einn gest-
ur sýnir þarna 4 olíumyndir, en
það er Færeyingurinn Ingalvur
av Reyni, einn af þekktari eldri
málurum Færeyinga.
Þeir sem sýna á haustsýning-
unni eru: Sverrir HaraldsSon,
Jóhannes Jóhannesson, Hafsteinn
Austmann, Jóhann Briem, Ey-
borg Guðmundsdóttir, Hrólfur
'zo.mMésiiz\
XW^
_V » •
í gær var hæg suðvestlæg urlandi var léttskýjað og rúm
átt á landinu. Skúrir voru frá iega io stiga hiti. Horfur eru
SV-landi til Vestfjarða og hejzt ^ svipuðu veðri í dag og
einnig á Norðurlandi vestan-
verðu. Á Austur- og Suðaust- sennilega á morgun.
og ber þar hæst lagið „Á sjó“,
sem sungið var al Þorvaldi Hall-
dórssyni.
Hljómsveitin kom aftur til
Reykjavíkur fyrir þremur dóg-
um og lék tólf lög inn á segul*
band fyrir Ríkisútvarpið, en
þættinum verður sennilega út-
varpað í upphafi vetrardagskrár.
Hljómsveit Ingimars Eydal
með söngvaranum Þorvaldi
Halldórssyni og söngkonunni
Erlu Stefánsdóttur, koma fram
sem skemmtiatriði á bingo-
kvöldi Ármanns í Austurbæjar-
bíói í kvöld. Þar mun Þorvaidur
væntanlega syngja í fyrsla
skipti opinberlega í Reykja'nk
lagið „Á sjó“, auk þess sem Þor-
valdur, Erla og Finnur Eydal
munu syngja nokkur lög saman,
en þau hafa myndað söngtríó
innan hljómsveitarinnar.
Sigurðsson, Jóhannes Geir, Jónas
Guðvarðsson, Benedikt Gunnars-
son, Valtýr Pétursson, Bragi Ás-
geirsson, Snorri Sveinn Friðriks-
son, Magnús Á Árnason, Steinþór
Sigurðsson, Eiríkur Smith, Hjör-
leifur Sigurðsson, Þorvaldur
Skúlason, Jón Engilberts, Barb-
ara Árnason, Ásgerður Ester
Búadóttir, Sigurður Sigurðsson,
Hringur Jóhannesson, Arnar
Herbertsson, Ólafur Gíslason,
Bjarni Guðjónsson, Guðmundur
Benediktsson, Guðmundur Elías-
son, Jón Benediktsson og Sigur-
jón Ólafsson.
Þá er að nefna sjö listamenn
sem ekki hafa fyrr tekið þátt í
haustsýningum FÍM, en það eru:
Ragnheiður Jónsdóttir, Gunnar
Bjarnason, Mattea Jónsdóttir,
Ólafur Gíslason, Kristín Eyfells,
Sigríður Björnsdóttir og Sigur-
jón Jóhannsson.
Myndir þessara síðast nefndu
valdi sýningarnefndin, en í henni
eiga sæti þeir Jóhannes Jóhann-
esson, Steinþór Sigurðsson, Sig-
urður Sigurðsson, Hafsteinn Aust
man, Eiríkur Smith, og fyrir
höggmyndadeild, Sigurjón Ólafs-
son, Guðmundur Benediktsson
og Magnús Árnason.
Framhald af bls. 32
í gærdag var fatnaðar Banda-
ríkjamannsins leitað á Stóra-
Meitli og nágrenni af leitar-
mönnum úr Hveragerði. SagM
Magnús Hannesson Mbl. í gær,
að unglingspiltur úr Hveragerði,
sem var þar á ferli upp á eig-
in spýtur, hafi fundið skinnúlou
upp á háfjallinu, en ekki h/ft
hana með sér til byggða. líi
að því er Ingólfur Þorsteinssoi
tjáði blaðinu var vitað að Whit-
low ætti skinnúlpu.
Jólnir
horfinn
EYJAN .Tólnir, sem kom upp
við Surtse.v annan dag jóla í
fyrra, sökk í sæ í óveðrunum
suður af landinu undanfarna
daga. Brýtur nú efst á eyj-
unni. Jólnir var stærstur 70
metra hár, 250—300 metrar á
breidd og 300 m að lengd.
Blaðið hafði samband við
gæziumarninn i Surtsey, Árna
Johnson sem nu dvelst í Eyj
um. Sagði Árm að ófært hati
verið til Surtseyjar undan-
farna daga vegna veðurs, en
bjóst þó við, að komast út i
eyna í dag. Verður Árni í
eyjunni i 10 daga i viðbot, en
hún veröur gæziumannslaus í
vetur.
Árni kvað mikið og stöð-
ugt gos vera enn í Surti. —
Renna 10—15 rummetrar af
hrauni úr gignum á sekúndu.
Árni gat þess til gamans,
að nafnið á Joini væri fornt
nafn á höfuðgoði íslendinga
fyrir kristnitöku, Óðni, en við
hann eru jólin kennd.